Fréttatíminn - 23.10.2015, Síða 17
n Streita er oftast ástæða fyrir forföllum starfsmanna, slakari
frammistöðu og afköstum ásamt neikvæðu andrúmslofti.
n Alþjóða heilbrigðisstofnunin spáir því að árið 2020 verði þung-
lyndi önnur helsta orsök örorku.
n Um 50-60% allra tapaðra vinnudaga í ríkjum Evrópusambands-
ins má tengja við streitu.
n Geðsjúkdómar eru á meðal fimm algengustu ástæðna fyrir
skammtímafjarvistum frá vinnustöðum, sérstaklega vegna streitu
og þunglyndis.
n Innan ESB eru geðraskanir algengasta orsök örorku, algengari en
stoðkerfisvandamál og hjartasjúkdómar. Það sama á við um Ísland.
Samkvæmt heimildum Tryggingastofnunar ríkisins árið 2009 voru
geðraskanir fyrsta orsök örorku hjá þeim sem voru metnir með 75%
örorku eða meiri (Tryggingastofnun ríkisins, 2010).
Launamenn vilja oft
leyna þunglyndi
Rannveig Sigurðardóttir, formaður
framkvæmdastjórnar Sjúkrasjóðs VR.
„Geðraskanir eru stærsta vanda-
mál flestra örorkugreindra í
landinu, hvort sem það er hjá
lífeyrissjóðum, sjúkrasjóðum
eða Tryggingastofnun, og þar
eru þunglyndi og streita mjög
ofarlega á blaði. Launamaðurinn
vill oft leyna því að eitthvað sé
að, sem þýðir að vandinn greinist
seint. Hann er óvinnufær og
fær vottorð, en ég vil meina að atvinnu-
rekendur, með sína trúnaðarmenn og
mannauðsstjóra, eigi að þekkja launa-
manninn og geta greint vandann fyrr. Ef
launamaður fer að detta ítrekað úr vinnu
væri eðlilegast að taka hann í viðtal og
reyna að gera eitthvað í málunum.“
„Ábyrgðin liggur því að miklu leyti hjá
vinnuveitendum sem taka ekki eftir
ástandinu. Ég hef talað fyrir því að trún-
aðarmenn á vinnustöðum skoði
þetta með okkar trúnaðarmönn-
um innan VR því það verður að
greina vandann fyrr. Það er bara
allt of seint í rassinn gripið að
ætla að gera eitthvað þegar fólk
er komið í örorku. Að sjálfsögðu
eiga allir rétt á sínum greiðslum
en við verðum að skoða hvað við
getum gert til að hjálpa fólki. Það
er engum hollt að fara í örorku og þurfa
að sitja heima og bíða eftir bótum inn um
bréfalúguna. Þess vegna eru forvarnir svo
mikilvægar.“
inu. Hér áður fyrr var kulnun talin
vera einstaklingsvandamál, að ein-
staklingurinn væri viðkvæmari en
aðrir en það er löngu búið að hrekja
þá kenningu og margsanna það að
kulnun er vandamál stjórnenda
vinnustaðarins. Kulnun er mjög
hættuleg og það er sorglegt að sjá
á eftir góðu starfsfólki sem hefur
keyrt sig svo gjörsamlega fram af
brúninni að það þarf að fara á ör-
orkubætur.“
Ragnheiður segir þennan falda
skaðvald hafa mun meiri áhrif á
samfélagið en við gerum okkur
grein fyrir. Nauðsynlegt sé að efla
forvarnarstarf, upplýsa atvinnu-
rekendur og grípa mun fyrr inn í
vandann. „Því miður er allt of stór
hópur fólks sem endar á sjúkrabót-
um vegna langvarandi álags og við-
varandi streitu. Hér áður fyrr voru
stoðkerfisvandamál einn stærsti út-
gjaldaliður sjúkrasjóðs en í dag eru
það andleg vandamál sem oftar en
ekki má rekja til streitu. Ísjakinn
undir yfirborðinu er því farinn að
blasa við okkur.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
50-60%
veikinda starfsmanna má
rekja til streitu.
2/3
sem leita til heim-
ilislæknis eru þar vegna
streitueinkenna.
mjög streituvaldandi og það sést glögglega
á vinnutímunum. Ef einstaklingur vinnur
35 vinnustundir á viku en eykur þær svo
upp í 40 stundir þá eykst streitan ekki það
mikið en ef vinnustundir verða 45 þá eykst
streitan verulega og hún snareykst ef ein-
staklingurinn ef farinn að vinna 48 klukku-
stundir á viku við sama verk. Kröfur um
vinnutímaákvæði eru til þess fallin að draga
úr streitu, svo það er mjög mikilvægt að fólk
virði vinnutímaákvæðið. Um leið og streitan
eykst þá fjölgar mistökum sem geta valdið
tjóni, óþægindum og jafnvel slysum.
fréttaskýring 17 Helgin 23.-25. október 2015
Það eru 1000 ástæður fyrir því að velja Vario 400-línuna frá Gaggenau.
Og 1648 útfærslur.
Vario 400-kælitækin frá Gaggenau: Auðvelt er að raða
þeim saman og sníða nákvæmlega að þörfum og óskum
hvers og eins. Framúrstefnuleg tækni sem setur nýja
staðla. Sem dæmi má nefna innréttingar úr hágæða ryðfríu
stáli sem standast kröfur um hreinlæti og hollustuhætti
sem jafnan eru aðeins gerðar í atvinnueldhúsum. Öll tækin
ganga saman hvert með öðru hvort sem um er að ræða
Vario-kæliskáp, -frystiskáp eða -vínkæliskáp. Óháð því
hvaða samsetning er valin lítur hún alltaf út fyrir að vera
klæðskerasniðin að þörfum hvers notanda.
Munurinn felst í Gaggenau.