Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.10.2015, Síða 20

Fréttatíminn - 23.10.2015, Síða 20
Örlát vitsmuna- vera sem hugsar standandi Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur lýst yfir framboði til varaformanns Sjálfstæðisflokksins og þegar þetta er ritað hefur enginn boðið sig fram á móti henni. Hún var varaformaður flokksins á árunum 2010 - 2013 og naut vinsælda sem slíkur. Ólöf þykir vaxandi stjórnmálamaður, sem „hefur það umfram ýmsa kollega sína að vera vits- munavera,“ eins og pólitískur andstæðingur orðaði það. Ó löf er dóttir Jóhannesar Nor-dal, fyrrum seðlabankastjóra, og Dóru Guðjónsdóttur Nordal píanóleikara og ólst upp í stórum systk- inahópi, systurnar eru fimm og einn bróðir. Hún var leitandi barn, að sögn systra hennar, listhneigð og bókelsk og sílesandi, helst þjóðsögur og fantasíur og skrifaði slíkar sögur sjálf, en íþróttir áttu ekki upp á pallborðið hjá henni, allra síst hópíþróttir. Snemma vaknaði hjá henni áhugi á hönnun og tísku og ekki síst bíl- um sem hún hefur ástríðu fyrir. „Ólöf er dugnaðarforkur en þó mesta svefnpurka sem ég veit um. Hún elskar græjur og bíla og er lestrarhestur,“ segir gömul vinkona og bætir við. „Hún er hlý, hreinskiptin og ráðagóð og fáa veit ég traustari.“ „Ólöf er mjög félagslynd og laðar fólk að sér enda er hún vinaföst. Hún er mikil fjölskyldumanneskja og hefur búið til fal- legt og líflegt umhverfi í kringum sig,“ segir önnur vinkona. „En kostir fólks eru stundum þeir sömu og lestir. Hún getur verið stíf á meiningu sinni, en það er auð- vitað kostur þegar þarf að fylgja málum eftir. Hún getur líka verið mjög utan við sig, eins og hún sé í eigin heimi, en það er ábyggilega kostur í pólitíkinni þegar sumum hættir til að taka sjálfa sig of há- tíðlega.“ Auk bíladellunnar og lestursins hefur Ólöf mikinn áhuga á tísku, er dálítið hé- gómleg og elskar að líta vel út. Hún var þó ekki sérlega ánægð með útlit sitt þegar hún var yngri, einkum öngruðu eyrun hana og hún þráði að fá þau límd við höf- uðið til að losna við stríðnina og spurn- ingarnar um hvort hún gæti flogið á eyr- unum. Snemma varð hún þó snögg upp á lagið og fljót að svara fyrir sig og svaraði gjarnan spurningunni um hvort hún gæti flogið á þann veg að vissulega gæti hún það en hún tæki ekki farþega. Sumarið 2014 greindist Ólöf með krabbamein og þeir sem næst henni standa eru sammála um að það hvernig hún hafi tekist á við veikindin lýsi mann- kostum hennar best. „Hún tók þessu með æðruleysi og skynsemi enda einstaklega jafnlynd og stór í sniðum. Hún hefur stóran faðm og getur tekið allt sem upp á kemur í lífinu í fangið og gert gott úr því. Hún er einhver örlátasta mann- eskja sem ég þekki. Ég held að veik- indin hafi í raun gert hana afslapp- aðri og gefið henni aðra sýn á lífið, en það finnst mér ég sjá vel þegar hún talar nú sem stjórnmálamaður. Hún talar beint frá hjartanu og af sann- færingu en þó um leið af yfirvegun og natni.“ Sem stjórnmálamaður nýtur Ólöf vaxandi aðdáunar bæði samherja og andstæðinga, þykir hafa ótvíræðan pólitískan talent. „Það er gaman að eiga í rökræðum við hana yfir ræðu- stól Alþingis. Hún ber af öðrum ráð- herrum í þinginu að því marki að jafnvel í flóknum umræðum svarar hún blaðlaust í lokaræðum hverri einustu spurningu – sem er sjald- gæft því flestir kollega hennar geta ekki opnað munninn nema spuna- rokkar þeirra og aðstoðarmenn hafi skrifað hverja tuggu. Þetta er mik- ill og sjaldgæfur kostur,“ segir einn stjórnarandstæðingur. „Mér finnst yfirleitt að hún hafi í mjög erfiðum málaflokkum eins og varðandi flótta- menn mannlega nálgun en í öðrum málaflokkum glittir þó í íhaldsvarg. Ennþá hefur hún þó ekki fyllilega stigið fram sem stjórnmálamaður.“ „Hún er metnaðarfull, sem er kost- ur hjá stjórnmálamanni, ætlar langt og er á góðri leið með að verða einn af sterkustu stjórnmálamönnum Sjálf- stæðisflokksins,“ segir annar alþing- ismaður. „Persónulega er hún gáfuð og skemmtileg sem er ekki endilega það sem menn tengja alltaf við stjór- málamenn. Hún hefur ótvíræðan pólitískan talent, og í ríkisstjórn- inni nýtur hún þess að hafa verið í fámennum hópi á síðasta kjörtímabili sem stóð með Bjarna í gegnum þykkt og þunnt og yfirgaf hann aldrei – ekki heldur þann örstutta tíma þegar svo virtist sem úlfurinn í líki Hönnu Birnu myndi gleypa hann endanlega. Nálægðin og sterkt tengsl við Bjarna hjálpa henni gríðarlega og nú þegar hefur vild fjármálaráðherrans sem heldur um ríkispyngjuna auðveldað henni erfiðustu málin, sem tengjast flóttamönnum.“ Bæði samherjar og andstæðingar Ólöf nordal Fædd í Reykjavík 3. desember 1966. Foreldrar: Jóhannes Nordal, fyrr- verandi seðlabankastjóri og Dóra Guðjónsdóttir Nordal, píanóleikari og húsmóðir. Maki: Tómas Már Sigurðs- son forstjóri. Börn: Sigurður (1991), Jóhannes (1994), Herdís (1996), Dóra (2004). Nám og störf: Stúdentspróf MR 1986. Lögfræðipróf HÍ 1994. MBA-próf HR 2002. Deildarstjóri í samgönguráðu- neyti 1996–1999. Lögfræðingur hjá Verðbréfaþingi Íslands 1999–2001. Stundakennari í lögfræði við Við- skiptaháskólann á Bifröst 1999–2002. Deildarstjóri viðskiptalögfræðideildar Viðskiptaháskólans á Bifröst 2001– 2002. Yfirmaður heildsöluviðskipta hjá Landsvirkjun 2002–2004. Fram- kvæmdastjóri sölusviðs hjá RARIK 2004–2005 er rafmagnssala var tekin inn í sérstakt fyrirtæki, Orkusöluna, framkvæmdastjóri Orkusölunnar 2005–2006. Í bankaráði Seðlabanka Íslands 2013–2014. Formaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Auðar á Austurlandi 2006–2009. Formaður Spes, hjálparsamtaka vegna byggingar barnaþorpa í Afríku. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2010–2013. Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2007–2009, alþingismaður Reykja- víkurkjördæmis suður 2009–2013. Innanríkisráðherra síðan 4. desember 2014. í pólitíkinni bera virðingu fyrir Ólöfu sem vitsmunaveru og stjór- nmálamanni og það er samdóma álit þeirra að það muni styrkja Sjálfstæðisflokkinn mikið að hún verði varaformaður. „Hún hefur það umfram ýmsa aðra kollega sína að vera vitsmunavera sem getur hugsað standandi. Hún er hlýr stjórmálamaður, og flestum þingmönnum er hlýtt til hennar.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is 20 nærmynd Helgin 23.-25. október 2015 Suðurlandsbraut 34 / S. 517 3900 / f lexor.is GILDIR TIL 30. OKTÓBER Skósprengja
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.