Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.10.2015, Side 26

Fréttatíminn - 23.10.2015, Side 26
Tengdabörn Íslands Brúðkaup Söru Heimisdóttur og Rich Piana í Las Vegas á dögunum vakti mikla athygli. Piana bættist þar með í hóp frægra útlendinga sem hafa náð sér í íslenska maka. Við rifjuðum upp nokkra þá eftirminnilegustu en stilltum okkur um að telja upp einnar nætur gaman sem poppstjörnur kunna að hafa átt hér á landi. Og svo voru það hinir... n Tengdasynir Íslands hafa komið og farið. Einn sá eftirminnilegasti var bílasalinn Cal Worthington, háaldraður og moldríkur eiginmaður Önnu Mjallar Ólafsdóttur. Cal þessi var kominn yfir nírætt þegar þau Anna drógu sig saman en ástin entist ekki nema nokkra mánuði. Cal lést svo árið 2013. n Annar eftirminnilegur var fótboltamað- urinn Dwight Yorke en Akureyrarmærin Kristrún Ösp Barkardóttir var kærasta hans til skamms tíma. Yorke er glaumgosi mikill og hafði áður eignast barn með glamúr- fyrirsætunni Jordan svo samband hans og Kristrúnar vakti að vonum mikla eftirtekt. n Af öðrum nafntoguðum má nefna Lee Bucheit, bandarískan sérfræðing í samn- ingatækni og alþjóðalögum, sem fór fyrir samninganefnd Íslands í Icesave-deilunni. Samdráttur hans og Sigrúnar Davíðsdóttur fréttakonu var því nokkuð í umræðunni. n Linda okkar Pétursdóttir lenti í klóm bresku pressunnar þegar hún skemmti sér með Top Gear-stjórnandanum Jeremy Clarkson en myndir af þeim birtust í mörgum miðlum. Ekki fór neinum frekari sögum af sambandi þeirra. Fjölnir Þorgeirsson og Mel B Hann hefur verið kallaður Íslandsmeistari Íslandsmeistaranna og það ekki að ástæðulausu. Auk frábærs árangurs í íþróttum hefur Fjölnir náð einna lengst okkar Íslendinga á hinu alþjóðlega markaðstorgi ástarinnar. Frægt er þegar hann sló sér upp með Kryddpíunni Mel B en þá var Spice Girls einhver vinsælasta hljómsveit heims. Séð & heyrt seldist sem aldrei fyrr þegar fréttir bárust af heimsóknum dömunnar til Íslands. Frægt varð til dæmis þegar hún óð snjóinn tignarleg í parduspels og skálaði í kampavíni á Astró. Árið 2006 tjáði Fjölnir sig um samband Mel og Eddie Murphy og spáði því að þau myndu varla endast tvö ár, vegna þess að það „fetar enginn í fótspor íslenska draumsins.“ Sólveig Káradóttir og Dahni Harrison Dahni Harrison er kannski ekki jafn áberandi nafn í tónlistinni og Mel B var á sínum tíma en blóðlína drengsins trompar Spice Girls eins og þær leggja sig svo um munar enda drengurinn sonur bítilsins George Harrison. Fatahönnuðurinn og sálfræð- ingurinn Sólveig er sjálf ekki af aukvisum komin, dóttir Kára Stefánssonar kenndur við deCode. Sólveig og Dhani gengu í hjónaband fyrir þremur árum og meðal gesta í brúðkaupinu voru Paul McCartney og Ringo Starr. Myndir úr brúðkaupinu birtust í Vogue í kjölfarið. Sara Heimisdóttir og Rich Piana Nýjasti tengdasonur Íslands er líkamsræktarfrömuðurinn Rich Piana en hann og Sara Heimisdóttir, 26 ára Reykjavíkurmær, gengu að eiga hvort annað í Las Vegas á dögunum. Sara og Rich eru eins og Fríða og dýrið, hún með sitt ljósa norræna útlit en hann vaxinn eins og Hulk og með húðflúr um allan líkamann. Ekki þarf þó að velkjast í vafa um að þau passi saman: Sumt fólk mun aldrei finna svona ást í lífinu en við erum mjög heppin að hafa fundið hvort annað, sagði Sara í viðtali við Fréttatímann á dögunum. Arnar Gunnlaugsson og Michaela Conlin Traust tengslanet hjálpaði fótboltakappanum Arnari Gunnlaugs- syni við að krækja í bandarísku leikonuna Michaelu Conlin en þáverandi mágkona Arnars, sjálf Ísdrottningin Ásdís Rán, leiddi þau saman. Conlin þessi hefur leikið í þáttum á borð við Bones og vakti mikla athygli þegar þau Arnar skemmtu sér saman í Reykja- vík. Því miður entist sambandið ekki en núverandi kærasta Arnars er Marín Manda Magnúsdóttir sem í eina tíð var kærasta Fjölnis Þorgeirssonar. Svona fer þetta nú allt saman í hringi. 26 úttekt Helgin 23.-25. október 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.