Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.10.2015, Qupperneq 32

Fréttatíminn - 23.10.2015, Qupperneq 32
Þegar ég byrjaði í MH átti ég mjög erfitt með að taka því að vera kynnt sem Vigdís sem var einu sinni Ford­ stúlkan og reyndi allt sem ég gat að losna frá þeirri ímynd. V igdís er greinilega ánægð með að vera komin aftur í leikhúsið, hún bókstaflega geislar þegar við hittumst á Café Rosenberg eftir langa og stranga æfingu hjá henni í Kassanum. Hún hlær bara þegar ég spyr hvort reynsl- an af Fordkeppninni hafi gert hana frá- hverfa því að vera áberandi í samfélaginu og segir það ekki hafa haft nein langtíma- áhrif, þótt það hafi valdið töluverðu umtali á sínum tíma. „Það var dálítið annað landslag þá en nú varðandi það að verða þekkt á Íslandi. Ef maður birtist á forsíðu blaðs þá sáu það allir og tóku eftir því. Núna man eng- inn hver er á forsíðum blaðanna. Þá var hvorki komið net né samfélagsmiðlar þar sem allt er tæmt strax. Ég var ekki orðin 14 ára þegar ég vann Ford-keppn- ina og var í kjölfarið send til Los Angeles í stóra keppni og þar held ég að fólk hafi áttað sig á því hvað ég var mikið barn. Mér bauðst að fara til Ítalíu og vinna sem módel sumarið eftir, en það hefði þýtt að mamma hefði þurft að koma með mér og satt að segja þá var áhuginn bara ekki nógu mikill til þess að mig langaði þangað. Mig langaði aldrei að verða módel, hef aldrei þolað myndatökur, en mér fannst gaman að koma fram og naut mín því á tískusýningum þar sem ég gekk bara inn í eitthvert hlutverk.“ Spaugstofan og Áramótaskaupið Sigur Vigdísar í Ford-keppninni vakti mikla athygli og fólk hneykslaðist óspart á því að svona ungt barn væri látið keppa í svona keppni. Vigdís segir þá reynslu hafa mótað öll sín unglingsár. „Já, þetta var mikið fár, ég var alveg óskaplega barnaleg, vantaði meira að segja í mig eina fullorðinstönn og ég skil vel að fólk hafi verið sjokkerað. Heiðrún systir mín, Heiðrún Anna Björnsdóttir, varð í öðru sæti í Ungfrú Ísland á sama tíma og það vakti mikla athygli að tvær systur væru í fegurðarsamkeppnum þannig að það var dálítið mikill ágangur bæði á hana og mig og þar af leiðandi á heimilið. Það var gert grín að mér bæði í Spaugstofuþætti og Áramótaskaup- inu og mér fannst það bara fyndið, en mæður vinkvenna minna voru skelfingu lostnar yfir þessari meðferð á barninu. Ég var rosalega feimin og höndlaði alla þessa athygli bara með því að loka sjálfa mig inni í einhverjum kassa sem ég eyddi svo unglingsárunum í að reyna að brjótast út úr. Þegar ég byrjaði í MH átti ég mjög erfitt með að taka því að vera kynnt sem Vigdís sem var einu sinni Fordstúlkan og reyndi allt sem ég gat að losna frá þeirri ímynd. Fór að ganga í strákafötum, hlusta á hipp hopp og rapp, sem þótti ekki töff á þeim tíma, og var í uppreisn gegn þessum fegurðarkven- leikastaðli. Það var ekki fyrr en ég var orðin 25 ára, skömmu áður en ég byrjaði í Listaháskólanum, að ég fann að ég var laus við þennan stimpil og gat leyft mér að verða kvenleg aftur.“ Vigdís segist sjá það, svona eftir á að hyggja, að það sé galið að svo ungar stelpur taki þátt í svona keppnum, þótt hún hafi ekki séð neitt athugavert við það á sínum tíma. „Á þeim tíma var fólk ekki eins meðvitað um hversu gróteskur þessi tískuheimur er. Þegar ég fór út í keppnina í LA komst ég í kynni við það og kynntist stelpum sem notuðu eiturlyf eða sveltu sig. Tvær af þeim sem voru með mér þar dóu fimm árum seinna, önnur af of stórum skammti og hin úr anorexíu. Í dag á ég dóttur og mér myndi aldrei detta í hug að leyfa henni að fara út í þennan bransa svona ung, en þá var fólk ekki eins meðvitað um það hversu harkalegur bransinn er, þetta var allt sveipað mun meiri ljóma en í dag.” Þótt Vigdís hafi ekki kunnað við sig sem ljósmyndafyrirsæta þá fannst henni alltaf jafn gaman að koma fram og 25 ára gömul fór hún í leikaranám í Listahá- skóla Íslands eftir að hafa m.a. leikið í nokkrum sýningum hjá Stúdentaleik- húsinu og starfað með Helgu Steffensen í brúðubílnum, sem hún segir hafa haft gífurleg áhrif á sig, sérstaklega varðandi vinnusiðferði og elju . Hvað dró hana að leiklistinni? „Það var auðvitað fyrst og fremst sköpunarþörfin. Fyrir utan það hvað mér finnst gaman að koma fram þá fæ ég mikið út úr því að gleðja aðra, hvort sem það er með því að gefa þeim gott að borða, koma þeim á óvart eða skemmta þeim. Ég fann mjög sterkt í Stúdentaleik- húsinu að það er hægt að nota leiklist til að segja eitthvað sem skiptir máli, skapa umræðu og hafa áhrif. Það í bland við að Líkamlegu áverkarnir léttvægir miðað andlegu áhrifin Vigdís Másdóttir leikkona hefur verið fjarri sviðinu í fimm ár en stígur á það á ný í Kassa Þjóðleikhússins eftir viku þegar verkið 90210 Garðabær eftir Heiðar Sumarliðason verður frumsýnt. Ein ástæða þess að Vigdís hvarf af sjónarsviðinu er að hún varð fyrir alvarlegri líkamsárás komin fjóra mánuði á leið og það dró langan dilk á eftir sér. Hún hafði reyndar slæma reynslu af sviðsljósi almennt síðan hún tæplega 14 ára gömul var valin Fordstúlka Íslands og varð aðhlátursefni Spaugstofunnar um leið og fólk krossaði sig yfir þessari með- ferð á vesalings barninu. skemmta fnnst mér mjög áhugavert og aðlaðandi.“ Hrottaleg árás dró dilk á eftir sér Vigdís útskrifaðist sem leikari vorið 2009 og þótti eiga glæstan frama vísan í leikhúsunum en það hefur lítið farið fyrir henni þar. Ein af ástæðum þess að hún hefur ekki verið að leika er að árið 2011 þegar hún var komin fjóra mánuði á leið, réðist vistmaður í skammtímavistun þar sem hún var að vinna á hana og slasaði alvarlega. Líkamlegu áverkarnir voru þó létt- vægir miðað við þau áhrif sem árásin hafði á hana andlega. „Árásin setti mig í ákveðnar skorð- ur. Ég var ófrísk og óttaðist mjög að missa barnið, eða að eitthvað væri að því. Þessi verknaður hafði það í för með sér að það kom risaskarð í öryggi mitt og það smitaðist út í allt. Áfallastreituröskun er svo ótrúlega merkilegt fyrirbæri og mér finnst að sömu leiti að mér hafi verið gefin gjöf þarna, til þess að ég öðlaðist meiri og betri skilning á mér; af hverju ég geri það sem ég geri og er eins og ég er. Áfallastreituröskun er mæld á ákveðnum skala og ég skoraði mjög hátt á þeim skala mjög lengi. Við- brögð mín við ýmsu áreiti voru al- gjörlega órökrétt, til dæmis þurfti ég að fela mig á bak við hurð ef síminn hringdi til þess að hann sæi mig ekki. Ég gerði mér fulla grein fyrir því að þetta væri fáránlegt, en ég réði bara ekki við mig, ég varð að gera þetta. Ég hef alltaf litið á sjálfa mig sem til- tölulega sterkan einstakling og mér finnst mjög áhugavert að skoða það hvernig þessi sterki einstaklingur varð allt í einu fullkomlega vanmátt- ugur, hefur enga stjórn á neinu. Þetta Framhald á næstu opnu “Ég hef alltaf litið á sjálfa mig sem tiltölulega sterkan einstakling og mér finnst mjög áhugavert að skoða það hvernig þessi sterki einstaklingur varð allt í einu fullkomlega vanmáttugur.” Ljósmynd/Hari 32 viðtal Helgin 23.-25. október 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.