Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 34
3.250.000 kr.
Kia cee’d SW 1.6
Árgerð 2013, ekinn 34 þús. km,
dísil, 128 hö, beinskiptur.
2.350.000 kr.
Kia Rio LX 1.4
Árgerð 2014, ekinn 19 þús. km,
dísil, 90 hö, beinskiptur.
6.450.000 kr.4.690.000 kr.
Kia Sorento LuxuryKia Sportage EX
Árgerð 2014, ekinn 43 þús. km,
dísil, 198 hö, sjálfskiptur.
Árgerð 2013, ekinn 38 þús. km,
dísil, 136 hö, sjálfskiptur.3.290.000 kr.
Kia cee’d EX 1.6
Árgerð 2014, ekinn 16 þús. km,
bensín, 135 hö, beinskiptur.
42.472 kr. á mánuði*
61.232 kr. á mánuði*
30.747 kr. á mánuði*
84.161 kr. á mánuði*
Afbo
rgun
aðe
ins:
42.9
93 k
r./mán
.*
*Mánaðargreiðsla m.v. 70% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9%
og árleg hlutfallstala kostnaðar er frá 10,72-10,83%.
**Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartími:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Allt að 7 ára
ábyrgð fylgir
notuðum Kia**Ábyrgð fylgir!
ástand varði í langan tíma, sjálfsagt
líka vegna ótta míns um að það væri
ekki allt í lagi með barnið.“
Það var mikill léttir þegar dóttirin
fæddist. Við fyrstu sýn var hún heil-
brigð en svo komu í ljós kvillar sem
erfitt var að átta sig á. Læknar töldu
ekki útilokað að rekja mætti kvilla
barnsins til áfalls móður á meðgöngu.
„Fyrsta árið var rosalega erfitt. Hún
léttist rosalega, var alltaf að kasta upp
og var farin að kasta upp blóði. Við
héldum að hún væri með mjólkuróþol,
eða kveisu því hún grét nánast allan
sólarhringinn, metið hennar var að
gráta í 23 tíma samfellt. Það var alltaf
verið að leggja okkur inn á barnaspít-
alann en aldrei fannst nein viðhlítandi
skýring. Læknarnir studdu ekki beint
þá kenningu að hún þjáðist líka af
áfallastreituröskun en þeim fannst það
ekkert útilokað, enda hafa rannsóknir
sýnt að áfall sem móðir verður fyrir á
meðgöngu dælir stresshormónum út
í blóðið og það hefur auðvitað áhrif á
fóstrið þannig að það er ekkert ólík-
legt að þetta tengist.“
Úr mathúsi í sviðslistadeild
Eftir eitt ár segir Vigdís að það
hafi verið eins og ýtt væri á takka
og dóttirin, Iðunn, hafi verið stál-
hraustur orku- og stuðbolti síðan.
Líðan Vigdísar fór smátt og smátt
batnandi í kjölfarið og hún ákvað að
drífa sig aftur í Listaháskólann, í þetta
sinn í mastersnám í listkennslu. „Þar
kynntist ég hellingi af flottu fólki og
fann aftur neistann í listinni. Eftir að
ég útskrifaðist þaðan fór ég að reka
Bergsson Mathús og gerði það í hálft
ár. Hitt áhugamálið mitt, fyrir utan
leiklistina, er nefnilega matur. Ég fæ
brjálæðislegt kikk út úr því þegar ein-
hver fær matarást á mér, það er mesta
viðurkenning sem ég get fengið. Rétt
fyrir síðustu áramót fæ ég svo símtal
frá Steinunni Knútsdóttur, deildarfor-
seta sviðslistadeildar Listahá-
skólans og hún býður mér
stöðu verkefnastjóra sviðs-
listadeildar sem ég þáði eftir
að hafa tekið mér góðan tíma
til umhugsunar. Það er mjög
gaman og þótt að starf mitt
sé mikil skriffinnska þá fæ ég
samt líka útrás fyrir sköpunar-
þörfina. Mitt aðaláhugamál
núna er að þróa menntun fyrir
starfsþróun leikara, bæði inn-
an LHÍ og í tengslum við aðra
skóla á Norðurlöndum. Ég er
líka í stjórn Hollnemafélags
Listaháskólans sem hefur það
að markmiði að tengja fyrr-
verandi nemendur betur við
skólann og byggja brú úr skól-
anum yfir í leikhúsin. Það er
því miður töluvert gap þar á milli og það
finnst mér rosa sorglegt og hef mikinn
áhuga á að hjálpa til að brúa það.“
Garðabær og Seltjarnarnes
Endurvakinn áhugi á leiklistinni fær að
blómstra þessa dagana því um næstu
helgi verður frumsýnt leikritið 90210
Garðabær eftir skólafélaga Vigdísar úr
LhÍ, Heiðar Sumarliðason, þar sem hún
fer með eitt aðalhlutverkið. Spurð hvort
hún sé sjálf úr Garðabænum neitar hún
því en bætir því svo við að hún sé af Sel-
tjarnarnesinu, hinni vöggunni eins og
hún kallar það.
„Heiðar er reyndar alinn upp í
Garðabænum, en verkið er alls ekki um
Garðabæ sem slíkan, en ég er hrædd
um að það hafi einhver misskilningur
farið í gang varðandi það og allir haldi
að þetta sé einhver ádeila á Garðabæ.
Við erum með þessa vísun í póstnúmer
Beverly Hills og Garðabær er kannski
það næsta sem við komumst því á Ís-
landi þannig að hann er bara sögusviðið
okkar. Við erum að leika okkur með
þessar steríótýpur sem fyrirfinnast
vissulega í Garðabæ en þær eru líka
víðar, til dæmis á Seltjarnarnesi þaðan
sem ég kem sjálf, en þessir tveir bæir
eru oft kallaðir vagga Sjálfstæðisflokks-
ins. Best að taka það líka fram að þetta
verk snýst alls ekki um pólitík, heldur
miklu frekar um manneskjurnar og ein
af grundvallarspurningunum er hvenær
við hættum að vera unglingar og förum
að hegða okkur eins og fullorðið fólk.
Að mörgu leyti hverfist verkið um ein-
elti og þótt það væri rangt að segja að
þetta sé verk um einelti þá eru persón-
urnar mótaðar af þeim aðstæðum. Það
er mjög erfitt að tala um þetta verk án
þess að segja of mikið, en þetta er svört
kómedía um steríótýpur og allt þetta
mannlega. Þetta er óskaplega skemmti-
legt og við hlæjum mikið á æfingum.“
Vigdís leikur konu sem fæddist með
silfurskeið í munninum, nýtur virð-
ingar í bæjarfélaginu og er mjög upp-
tekin af því að viðhalda þeirri ímynd
að hún sé fyrirmynd og leiðtogi. „Það
er svona glansmynd sem hún er mjög
upptekin af og óttast að blettur falli á.
Ég sæki mér ekki fyrirmynd að henni
í neina ákveðna konu en vissulega eru
margar konur sem ég þekki sem ég get
nýtt mér ýmislegt frá til að túlka hana.
Svona konur eru alveg til og það víðar
en á Seltjarnarnesi og í Garðabænum.“
Leitar uppi það skemmtilega
Vigdís viðurkennir að það sé erfitt að
snúa aftur á sviðið eftir svona langa
fjarveru, en segist njóta þess þrátt fyrir
óöryggið og auðvitað kitli það alltaf
að standa sig vel og fá klapp á bakið.
Hún sjái þó ekki fyrir sér að snúa aftur
í leikhúsið í fullu starfi. „Ég finn alveg
að það er ögrun að fara aftur á fjalirnar
eftir fimm ára hlé, ég er ryðguð og óör-
ugg, en fólkið sem ég er að vinna með
er bara svo yndislegt að þau standa við
bakið á mér hundrað prósent og hvetja
mig áfram. Ég vona að þetta gangi vel
og auðvitað væri óskaplega gaman að
standa sig vel fá atvinnutilboð í fram-
haldinu, ég er alveg opin fyrir því, en
mér líður mjög vel í Listaháskólanum
og ætla ekki að hætta þar til þess
að fara í harkið. Mér finnst lífið svo
óskaplega skemmtilegt þessa dagana,
elska vinnuna mína, finnst gaman að
eiga barn, líður ógeðslega vel í leik-
húsinu og ég held að það sé það sem
lífið snýst um; að maður nái því að hafa
gaman. Það var nógu leiðinlegt þessi
ár í kringum árásina og ég var búin að
fá nóg af því að lífið væri erfitt, þótt það
sé auðvitað partur af lífinu hjá öllum og
maður þurfi bara að komast í gegnum
það, en núna leita ég uppi það sem mér
finnst skemmtilegt og nýt þess að vera
til.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
13 ára Fordstúlka í Los Angeles.
34 viðtal Helgin 23.-25. október 2015