Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 67
VIÐKVÆM HÚÐ?
PRÓFAÐU
ALLA LÍNUNA…
ÞVOTTAEFNI | HREINLÆTISVÖRUR | HÚÐVÖRUR | ANDLITSLÍNA | BARNAVÖRUR
ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAG ÍSLANDS
MÆLIR MEÐ VÖRUM FRÁ NEUTRAL
…fyrir heimilið, fjölskylduna og þig.
Neutral er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð og inniheldur
engin ilmefni, litarefni eða paraben – þannig hjálpar Neutral
þér að vernda húð allra í fjölskyldunni.
Skoðaðu allar Neutral vörurnar í næstu verslun eða kíktu á Neutral.is
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
N
AT
7
16
82
1
1/
14
B ókin hefur verið þýdd á 30 tungumál og hefur selst í yfir 1,5 milljónum eintaka.
Rakel Björnsdóttir þýddi bókina
á íslensku. „Bókin kom eins og
himnasending til mín. Ég hafði lent
í í miklum áföllum, glímt við veik-
indi og svo missti ég báða foreldra
mína úr krabbameini með stuttu
millibili. Ég var því að taka mig í
gegn, andlega og líkamlega, og
fannst rétt að byrja að vinna í mér
innan frá.“ Það kom hins vegar upp
skemmtilegur misskilningur þegar
Rakel var beðin um að taka að sér
verkefnið. „Þegar ég fékk símtalið
frá Veröld, sem gefur bókina út,
hélt ég fyrst að ég væri að fara að
þýða bók um karma en ekki þarma,
og fannst það bara skemmtilegt. En
þegar það hafði verið leiðrétt eftir
mikinn hlátur hugsa ði ég með mér
að ef ég hefði verið beðin að taka
þetta verkefni að mér mánuði fyrr
hefði ég talið það alveg galið, en
þar sem ég var að taka meltinguna
í gegn hjá sjálfri mér gat þetta ekki
átt betur við.“
Bókin prýddi efsta sæti met-
sölulista Eymundssonar í síð-
ustu viku og segir Rakel að það
hafi ekki komið á óvart. „Þetta
er bók sem höfðar til allra. Öll
höfum við þarma en við eigum
það til að gleyma þeim. Þarm-
arnir segja hins vegar heil-
mikið um hvernig okkur líður.
Eftir lestur bókarinnar losnar
maður við allan tepruskap og
fer að kíkja ofan í klósettið.“
Skilaboðin bókarinnar eru
skýr, að mati Rakelar. „Ef við
sinnum meltingarveginum af
alúð uppskerum við hamingju
og vellíðan. Í bókinni má finna
lykilinn að hamingjuríkara og
heilbrigðara lífi sem býr innra
með okkur.“
Veist þú þetta um þína þarma?
n Þarmarnir eru 100 sinnum stærri
en húðin.
n Stærsti hluti ónæmiskerfisins er í
þörmunum.
n 100 milljarðar af bakteríum búa í
þörmunum.
n Þarmaflóran er samtals 2 kíló.
n Þarmarnir eru annað stærsta
taugakerfið á eftir heilanum.
n Ef dreift er úr öllum þörmunum eru
þeir yfir 7 kílómetrar að lengd.
Rakel Björnsdóttir hélt í fyrstu að hún
væri að fara að þýða bók um karma, en
ekki þarma. Mynd/Hari.
Systir höfundarins sér um teikningar í
bókinni, sem eru jafn fyndnar og þær
eru fróðlegar.
heilsutíminn 67Helgin 23.-25. október 2015