Fréttatíminn - 23.10.2015, Qupperneq 84
Um þessar
mundir er
Ceasetone
að æfa fyrir
Iceland
Airwaves
hátíðina,
þar sem
þau munu
spila sex
sinnum.
Í takt við tÍmann Oliver SigurjónSSOn
Elskar Dominospítsur og Vesturbæjarís
Oliver Sigurjónsson er tvítugur Kópavogsbúi sem sló í gegn með Breiðabliki í
Pepsi-deildinni í knattspyrnu í sumar og var valinn efnilegasti leikmaðurinn
hjá Fótbolta.net og í Pepsimörkunum. Hann verður stúdent frá MK um jólin
og langar að ferðast meira í framtíðinni.
Staðalbúnaður
Undanfarið hef ég keypt svolítið af fötum í
Nike og ég er mikill stuðningsmaður Zöru á
Íslandi. Oftast nær kaupi ég samt föt í útlönd-
um í búðum eins og River Island og H&M. Ég
pæli alveg í því hverju ég klæðist, ég er mikið
í gallabuxum og reyni að vera nokkuð fínn í
skólanum og þegar ég kem á æfingar.
Hugbúnaður
Ég æfi oftast sex daga vikunnar og að meðal-
tali tekur það fjóra tíma frá því ég mæti og
þar til ég er farinn út. Þegar ég á lausan tíma
er ég mikið með fjölskyldu, vinum og vin-
konum. Mér finnst Vesturbæjarís mjög góður
og fer oft þangað og einstaka sinnum fer ég í
bíó með strákunum. Ég drekk ekki áfengi og
hef aldrei gert og er því ekki mikið að stunda
skemmtanalífið. Ég kíki auðvitað einstaka
sinnum niður í bæ, kíki á lýðinn, en finnst
skemmtilegra þegar strákarnir eru bara að
drekka heima.
Vélbúnaður
Ég er mikill Apple-maður, er með iPhone
5s eins og stendur og Macbook Pro. Ég er á
eiginlega öllum samfélagsmiðlum, Twitter,
Facebook, Instagram og Snapchat, og er
ágætlega virkur þar. Ég skoða samt meira
heldur en ég pósta og svo tala ég mikið við
vinina á Messenger og Snap.
Aukabúnaður
Ég er svakalegur stuðningsmaður Dominos
og Glóar, ég tek þetta alveg í báðar áttir. Ég
elska bæði pepperoni-veisluna á Dominos
og Street Food á Gló. Svo fer ég stundum á
Roadhouse inni á milli. Ég kann líka að elda
sjálfur og tel mig sérfræðing í kjúklinga-
bringum. Ég fæ að nota bíl eftir vinnu hjá
mömmu og pabba en fer fljótlega að fá mér
bíl sjálfur. Annars fer ég mest í strætó og
hjóla eins og hægt er. Ég hef aldrei notað
snyrtivörur fyrir utan rakspíra og hef ekki
sett vax eða gel í hárið á mér síðustu 4-5 árin.
Ég hef mjög gaman af því að ferðast. Ég fer
til Barcelona með strákunum í Breiðabliki í
lok mánaðarins og svo ætla ég Bandaríkjanna
að heimsækja bróður minn um jólin, eftir að
ég verð stúdent. Skemmtilegasta ferð sem ég
hef farið var þegar ég fór með landsliðinu til
Ísrael. Við fórum meðal annars til Jerúsalem
og það var svakaleg upplifun að vera þarna.
Ég ætla klárlega að fara í fleiri slíkar ferðir í
framtíðinni. En þó ég elski að ferðast elska ég
líka að vera heima hjá mér, ég elska Ísland.
Maður kann að meta landið sitt miklu betur
þegar maður er búinn að prófa að flytja út.
Þetta er minn uppáhalds staður.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Það kom öllum að óvörum þegar ung íslensk hljóm-
sveit að nafni Ceasetone var tilkynnt í fyrstu frétta-
tilkynningu tónlistarhátíðarinnar South by Sout-
hwest, skammstöfuð SXSW. Hátíðin er haldin í Austin
í Texas í Bandaríkjunum í mars á næsta ári og hana
sækja tugir þúsunda, þar af mikið af mikilvægu fólki
úr tónlistarbransanum um heim allan.
Ceasetone hefur aðeins starfað sem fjögurra manna
hljómsveit í stuttan tíma en á undan því hafði nafnið
staðið fyrir sólóverkefni Hafsteins Þráinssonar. Haf-
steinn hefur vakið mikla athygli fyrir óaðfinnanlegan
gítarleik sinn og var hann til að mynda fenginn til að
spila með Agent Fresco á útgáfutónleikum þeirra í
Hörpu. Þetta reyndust vera ansi merkilegir tónleikar,
ekki aðeins fyrir Agent Fresco, heldur einnig fyrir
Hafstein og hljómsveitina hans þar sem einn skipu-
leggjandi frá SXSW var meðal áhorfanda og kolféll
fyrir þessum unga hæfileikaríka dreng.
Hafsteinn og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, trommari
Ceasetone, segja að spennandi tímar séu framundan.
Þau eru mjög spennt fyrir því að feta í fótspor hljóm-
sveita á borð við Of Monsters and Men, Ólafs Arnalds
og nú síðast Kaleo, og spila á þessari mögnuðu hátíð.
Ferðalagið verður þó ekki auðvelt þar sem þau þurfa
að fylgja eftir ítarlegri kynningaráætlun til að halda í
við aðrar hljómsveitir á svæðinu, en hátíðin er einnig
þekkt fyrir gríðarlega mikla samkeppni.
Um þessar mundir er Ceasetone að æfa fyrir Ice-
land Airwaves hátíðina, þar sem þau munu spila sex
sinnum, auk þess sem þau eru að undirbúa útgáfu á
fyrstu breiðskífu sinni sem kemur út á næsta ári. -hf
tónliSt ÍSlenSk hljómSveit á SXSW
Ceasetone hefur aðeins starfað sem fjögurra manna hljómsveit í stuttan tíma.
Ceasetone til Texas
84 dægurmál Helgin 23.-25. október 2015