Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 4
4 Fréttir 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Framsókn trónir á toppnum
n Björt framtíð tapar forskotinu
E
f kosið yrði til Alþingis í dag
myndi Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, að öllum lík-
indum verða næsti forsætisráðherra
Íslands – ef marka má niðurstöð-
ur nýrrar skoðanakönnunar MMR.
Framsóknarflokkurinn heldur áfram
að bæta við sig fylgi og mælist nú með
mest fylgi allra flokka: 29,5 prósent
aðspurðra styðja Framsóknarflokk-
inn.
Í könnun MMR fylgir Sjálfstæðis-
flokkurinn á eftir Framsókn með 24,4
prósent atkvæða en flokkurinn hefur
haldið áfram að tapa fylgi og er í raun
í frjálsu falli frá því sem flokkurinn
mældist með fyrir nokkrum mánuð-
um.
Fylgi Bjartrar framtíðar hefur
einnig dalað nokkuð frá því í byrj-
un febrúar, þegar flokkurinn mæld-
ist með um sautján prósent atkvæða.
Fylgið mælist nú tólf prósent og er
framboðið komið 0,5 prósentum
undir fylgi Samfylkingar.
Þá eru Vinstri græn með 8,7 pró-
senta fylgi og halda því áfram að tapa
hylli kjósenda. Aðrir flokkar mælast
með undir 4 prósentum atkvæða.
81,7 prósent aðspurðra gáfu upp af-
stöðu sína í könnuninni, en fjöldi
svarenda var 893.
Framsókn hefur lagt áherslu á
afnám verðtryggingarinnar sem hef-
ur greinilega hlotið góðan hljóm-
grunn hjá kjósendum. Þar að auki
hefur Framsókn talað fyrir almennri
leiðréttingu húsnæðislána, sem
myndi væntanlega hafa í för með
sér tilheyrandi tekjuskerðingu fyrir
bankana. n simon@dv.is
Sigmundur í sókn Framsóknarflokkurinn
mælist nú stærstur.
Fara í hart
við Elkem
Verkalýðsfélag Akraness (VLFA)
mun draga stóriðjufyrirtækið Elkem
á Grundartanga fyrir félagsdóm. El-
kem hefur ekki getað sýnt fram á að
starfsmenn verktaka á athafnasvæði
fyrirtækisins starfi eftir þeim kjara-
samningum sem á svæðinu gilda.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
VLFA, kveðst hafa krafið Elkem um
svör þar sem kom fram að starfs-
menn verktakafyrirtækisins, sem er
með starfsemi allan ársins hring á
Grundartanga, væru að vinna sam-
kvæmt kjarasamningi á hinum al-
menna vinnumarkaði. Þetta sættir
VLFA sig ekki við enda liggur þá
fyrir að starfsmenn verktakans eru
að vinna á lakari kjörum en kjara-
samningur Elkem Ísland við VLFA
kveður á um. VLFA bauð Elkem að
leiðrétta þetta en þeirri ósk félagsins
var hafnað.
„Þessu verður mætt af fullri
hörku og meðal annars liggur fyr-
ir að þetta mál mun fara fyrir fé-
lagsdóm. Það liggur einnig fyrir
að Verkalýðsfélag Akraness mun
ekki undir neinum kringumstæð-
um skrifa undir samning í komandi
kjarasamningum þar sem ekki verð-
ur tryggt að þau kjör sem um hefur
verið samið inni á athafnasvæði El-
kem Ísland gildi fyrir alla sem þar
starfa,“ segir Vilhjálmur.
Sigurður hjólar
í saksóknara
Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, læt-
ur sérstakan saksóknara heyra það
í Viðskiptablaðinu. Segir Sigurð-
ur að embættið hafi verið stofn-
að til þess að finna glæpi þar sem
enginn sé viss um að glæpir hefðu
verið framdir.
Sigurður er ákærður í al-Thani
málinu en hann sakar saksóknara
um afbrot án þess að tilgreina það
nánar. „Hvað sem aðilum kann
að finnast um hina rannsökuðu í
þessum núverandi málum og hvað
þeir kunna að eiga skilið, þá hlýt-
ur að setja hroll að mönnum þegar
hugsað er til þess fordæmisgildis
sem afbrot hins sérstaka embættis
kunna að hafa til frambúðar.“
Þ
eir Andri Már Þórðarson
og Örvar Arnarsson, sem
létust í fallhlífarstökki í
Flórída á laugardag, lét-
ust við höggið af fallinu.
Þetta eru niðurstöður úr skýrslu
dánardómstjóra í Pasco-sýslu sem
birt var á mánudag. Enn er beðið
niðurstaðna úr lögreglurann-
sókn á slysinu en talið er að Örv-
ar, sá reyndari, hafi reynt að koma
hinum óreyndari, Andra Má, til
bjargar en þegar það hafi ekki tek-
ist hafi þeir báðir hrapað til jarðar.
Andri Már var aðeins 25 ára þegar
hann lést, ókvæntur og barn-
laus námsmaður með brennandi
áhuga á fallhlífarstökki. Örvar
var fertugur, mikill íþróttamaður
og stundaði á sínum yngri árum
fimleika með meistaraflokki Ár-
manns. Örvar var reyndur fallhlíf-
arstökkskennari auk þess að vera
einn reyndasti fallhlífarstökkvari
landsins og rak fyrirtæki í þeim
geira ásamt félögum sínum.
Með myndavél á hjálminum
Andri Már og Örvar voru í hópi Ís-
lendinga í árlegri kennsluferð á veg-
um Fallhlífastökkfélagsins Frjáls falls
í þjálfunarbúðir hjá Skydive City. Um
75.000 fallhlífarstökk fara árlega fram
á vegum Skydive City, og yfir pásk-
ana flykkjast jafnan hundruð manna
þangað til að stökkva.
Missti náinn vin í stökki
Ekki hafa margir Íslendingar látist
í slysum af þessum toga. Árið 2007
lést þó íslenskur karlmaður í stökki í
Nýja Suður-Wales í Ástralíu. Sá mað-
ur var náinn vinur Örvars en þeir
höfðu lengi stundað íþróttina saman.
Þeir sem DV hefur rætt við innan fall-
hlífarstökkheimsins eru allir harmi
slegnir yfir slysinu. „Þetta er lítið sam-
félag. Við þekkjumst nánast öll,“ segir
fallhlífarstökkvari sem DV ræddi við
en vill ekki láta nafns síns getið. „Þetta
minnir mann á að þetta er ekki hættu-
laust sport,“ segir hann. Örvar kenndi
honum líkt og svo mörgum öðrum
ungum fallhlífarstökkvurum listina
og hann ber honum vel söguna.
„Þetta var bara frábær náungi, alltaf
hress, alltaf til í að djóka eitthvað. Í
rauninni er bara ekkert slæmt um
hann að segja,“ segir hann.
Varafallhlífar taldar hafa
opnast of seint
Slysið virðist hafa orðið með þeim
hætti að aðalfallhlífar þeirra hafi ekki
opnast en varafallhlífar beggja opn-
uðust. Hins vegar hafi það gerst of
seint og hraðinn verið of mikill. Örv-
ar var afar vanur stökkvari og átti
þúsundir stökkva að baki. Andri Már
var óvanari og átti aðeins að baki sjö
stökk í frjálsu falli. Myndband sem
Örvar tók með myndavél á hjálmi
sínum er nú til rannsóknar, en það
verður ekki gert opinbert fyrr en að
rannsókn lokinni.
Í umfjöllun DV á mánudag kom
fram að samkvæmt upplýsingum frá
eiganda Skydive City höfðu æfingar
þeirra Örvars og Andra Más gengið
eins og í sögu. Þeir stukku hvor í sínu
lagi, en skoðun á búnaði mannanna
sýnir að aðalfallhlífar þeirra hafi ekki
opnast. Sérstök tölva á að sjá um að
ræsa varafallhlífina í ákveðinni hæð
og hún virðist hafa gert það, en að
öllum líkindum opnuðust varafall-
hlífarnar of seint.
Fundust eftir níu tíma leit
Hópurinn fór í loftið um klukkan 10
að staðartíma í borginni Zephyrhills
í Tampa í Flórída á laugardag. Allur
hópurinn skilaði sér til baka nema
þeir Andri og Örvar. Þegar þeir skil-
uðu sér ekki til baka hófst leit að þeim.
Flugmenn á vegum fyrirtækisins leit-
uðu í um hálftíma að þeim en án ár-
angurs. Í kjölfarið var haft samband
við lögregluna í Zephyrhills sem hóf
leit að þeim.
Þegar líða fór á daginn, klukkan
orðin hálf fjögur og leitin hafði enn
ekki borið árangur var leitað til sýslu-
mannsins í Pasco-sýslu sem sendi
sína menn einnig á vettvang. Eftir um
níu klukkutíma leit var það svo þyrlu-
liðið sem fann þá báða í skóglendi við
flugvöllinn í Zephyrhills, laust fyrir
miðnætti á laugardag.
Beðið er niðurstaðna lögreglunn-
ar í Pasco-sýslu. n
„Þetta minnir
mann á að þetta
er ekki hættulaust sport.
Missti náinn vin
í fallhlífarstökki
n Létust við höggið af fallinu n Örvar var með myndavél á hjálminum
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Þaulreyndur Örvar var þaulreyndur fallhlífarstökkvari
og kennari. Hann átti að baki þúsundir stökkva. Örvar
missti góðan vin sinn í fallhlífarstökki árið 2007.
Átti að baki sjö
stökk Andri Már
var aðeins 25 ára
þegar hann lést.