Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 32
Íslandsgáttirnar þrjár
32 Umræða 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
A
ukið frelsi í viðskiptum
og sköpun nýrra tæki
færa til að auka hagsæld
Íslands eru grunngildi
í þeirri utanríkisstefnu
sem ég hef mótað fyrir Ísland.
Áherslur mínar hafa einkum ver
ið þrenns konar: Í fyrsta lagi að
tengja Ísland nánari böndum við
mikilvægustu markaðssvæði okk
ar, ekki síst Evrópulöndin, sem
er sterkasti markaður Íslendinga.
Í öðru lagi að spenna upp gáttir
til nýrra markaða í Asíu þar sem
efnahag þjóða fleygir fram. Þessir
markaðir munu verða drifafl í hag
vexti á öldinni og ég lít á þá sem
mikilvægar nýræktir fyrir íslenska
framleiðslu í framtíðinni. Í þriðja
lagi að skapa Íslandi tækifæri til
að gera norðurslóðir að upp
sprettu mikilla, nýrra verðmæta
fyrir land og þjóð. Þessa stefnu
má gróflega draga saman í þrennt:
Evrópuleiðina, Asíugáttina og
norðurslóðir. Hver þeirra styrk
ir hina, og þó ein lokist eru hinar
opnar. Kjarni þessarar stefnu er að
veðja ekki öllu á einn framtíðar
kost, heldur þróa marga.
Evrópuleiðin
Evrópuleiðin fól í sér umsókn um
aðild að Evrópusambandinu. Hún
miðar að því að gera Ísland að hluta
af stærri og sterkari efnahagsheild,
sem tryggir efnahagslegan stöð
ugleika, og heldur opnum þeim
möguleika að taka upp evru í stað
inn fyrir krónu – ef þjóðin svo kýs.
Það væri því glapræði að fresta við
ræðum um aðild, og skera þannig
endanlega á möguleikann til að
taka upp evru í stað krónunnar. Það
myndi skaða hagsmuni Íslands.
Upptaka evru felur í sér lækk
un á vöxtum, verðbólgu – og verð
lagi – og er auðveldasta leiðin til
að kasta verðtryggingunni. Aðild
að ESB mun samkvæmt reynslu
annarra smáþjóða sem hafa geng
ið í sambandið stórauka erlendar
fjárfestingar á Íslandi, minnka við
skiptakostnað um tugi milljarða ár
lega að sögn Seðlabankans og ein
falda viðskipti. Hún mun því leiða
til aukins útflutnings, meiri hag
vaxtar, og fleiri starfa. Evrópuleiðin
er langbesti kosturinn til að bæta
lífskjör á Íslandi og tryggja stöð
ugleika fyrir fjölskyldur og fyrirtæki.
Stórsókn fyrir sjávarútveg
Utanríkisstefnan þarf að taka
mið af sjávarútvegi, sem burðar
ási í atvinnulífinu. Innan hans
hefur verið tortryggni gagnvart
Evrópuleiðinni. Sú tortryggni er
á misskilningi byggð. Aðild opn
ar á stórsókn fyrir sjávarútveg
í Evrópu. Hún mun í fyrsta lagi
tryggja þær auðlindir, sem sjáv
arútvegur býr að í dag. Hún mun
í öðru lagi afnema alla tolla á 500
milljóna manna markaði Evrópu. Í
því felast einstök, ný tækifæri fyrir
fjölmörg lítil fyrirtæki í fullvinnslu
hringinn í kringum landið, sem
í dag eru lokuð frá Evrópu með
tollamúr.
Ástæðan fyrir að þau eru flest
örsmá er örlítill heimamarkaður.
Yrði þeim boðið upp á tollalausan
500 milljóna manna heimamark
að ættu þau gríðarlega sóknar
möguleika. Enginn vafi er á að
sum þeirra myndu vaxa upp í stór
alþjóðleg fyrirtæki og skapa með
útflutningi mikil, ný verðmæti fyr
ir íslenska samfélagið.
Með aðild myndi einnig útgerð
og annarri vinnslu opnast opn
ast leið til að sækja fram í Evrópu
í krafti einstakrar samkeppnis
hæfni. Í nýju samstarfi við evrópsk
fyrirtæki í vinnslu og veiðum
gæti íslenskur sjávarútvegur því
líka náð miklum slagkrafti utan
Evrópu þar sem sjávarútvegur er
vanþróaður.
Sama gildir um landbún
að. Millistétt Evrópu er viljug til
að greiða hátt verð fyrir heil
næma hágæðavöru einsog obbi
íslensks landbúnaðar framleið
ir. Evrópuleiðin felur því í sér
sóknarmöguleika fyrir báðar þess
ar gömlu greinar, fyrir nú utan að
hún leiddi til vaxtalækkana sem
myndu létta 6–9 milljörðum af
sjávarútvegi í vaxtagreiðslur ár
lega, og líklega rífum milljarði af
bændum.
Asíugáttin
Kína og Indland sigla hraðbyri í að
verða mestu efnahagsveldi verald
ar innan skamms tíma. Suðaust
urAsía er sömuleiðis á fljúgandi
siglingu. Millistétt Asíu mun strax
á næsta áratug verða mótorinn í
aukningu heimsviðskipta. Þetta
geta orðið nýræktir Íslands í fram
tíðinni, ef rétt er á málum haldið.
Við þurfum að tryggja fríverslun
við þessi ríki, sem í framtíðinni
geta greitt hátt verð fyrir íslenska
framleiðslu, hvort sem hún er úr
fiski, landbúnaði, eða skapandi
greinum.
Innan EFTA hef ég því lagt mikla
áherslu á fríverslunarsamninga við
þennan heimshluta, ekki síst tví
hliða samning við Kína. Það hefur
loks skilað ríkulegum ávöxtum – í
apríl mun Ísland undirrita samn
ing um fríverslun við Kína. Það
er fyrsti samningur sem nokkru
evrópsku ríki hefur tekist að gera
við Kína um fríverslun. Þessi ein
stæði árangur mun skapa Íslandi
gríðarlegt viðskiptalegt forskot inn
í framtíðina.
Gegnum EFTA er Ísland einnig
langt komið með fríverslunar
samning við Indland og áleið
is við sólrisuríki í SAAsíu einsog
Malasíu og Víetnam. Innan EFTA
höfum við lagt drög að því að taka
upp viðræður aftur við Tæland, og
á fundi með Trond Giske, utan
ríkisviðskiptaráðherra Noregs, í
síðustu viku vorum við sammála
um að EFTA hæfi viðræður við Mj
anmar, og ræddum sérstaklega
möguleika á fríverslun við Filipps
eyjar. Um þessar mundir er verið
að ljúka við að koma upp þéttriðnu
neti valinna ræðismanna í þess
um löndum, sem allir eru mjög vel
tengdir frá sjónarhóli verslunar
milli Íslands og viðkomandi landa.
Aukin og góð tengsl við Asíu
eru þar að auki mikilvæg með til
liti til þess að þau eru í fararbroddi
um þróun nýrra siglingaleiða yfir
norðurpól. Ný gátt til Asíu hefur
því verið opnuð með áherslunni á
fríverslun við sólrisuríki Asíu – og
norðursiglingar.
Ný gátt til norðurs
Þegar ég kom í utanríkisráðuneytið
2009 gerði ég norðurslóðir að for
gangsþætti í utanríkisstefnunni.
Reynslan hefur sýnt, að það var
hárrétt ákvörðun. Nú liggur fyrir að
á þessari öld getur mestur auður
Íslands komið úr norðrinu, ef olía
finnst í vinnanlegu magni. Jafnvel
án hennar geta ný tækifæri á norð
urslóðum veitt tugum milljarða ár
lega inn í samfélagið á næsta ára
tug. En nýtingu auðlindanna fylgja
hættur, og grunnstefnan um norð
urslóðir felst í að takast á við þær
samhliða því að búa í haginn fyrir
ný tækifæri.
Margvísleg gögn benda til olíu á
Drekasvæðinu – fyrir utan að í því
eru sömu jarðlög og varðveita olíu
lindir við VNoreg og NAGræn
land. Skýrustu vísbendingarnar
eru kannski sýni sem örkafbátur í
tengslum við norskt rannsóknarskip
á leiðinni til NAGrænlands tók úr
neðansjávarfjalli sumarið 2011. Þar
fundust skýrar leifar um olíu. Terje
Haagevang, norskur sérfræðing
ur sem eytt hefur hálfri starfsævi í
að rannsaka svæðið, telur að þar sé
að finna mestu ónýttu olíulindir í
heiminum. Norska olíustofnunin
telur líka 80 prósenta líkur á að þar
sé fremur að finna olíu en gas – sem
er mjög jákvætt.
Fyrsta stóra tækifæri Íslendinga
liggur þó í þjónustustarfsemi við
„orkuþríhyrninginn“ sem ég hef
skilgreint sem svæðið frá NAGræn
landi til Jan Mayen, og suður til Ís
lands. Markmið mitt er að tryggja
að öll þjónusta við rannsóknir, til
raunaboranir og vinnslu innan
orkuþríhyrningsins verði á Íslandi.
Ég hef unnið kappsamlega að því í
viðræðum við grænlensk stjórnvöld
og norsk, síðast í liðinni viku.
Við leit að olíu þarf stóra bor
palla til að stunda tilraunaboran
ir, og þeim fylgir gífurleg útgerð,
bæði þjónustuskipa á hafi, en líka
mikil umsvif í landi. Ef þjónusta við
Drekasvæðið, norska svæðið hand
an þess, og við vinnslusvæði sem
nú er í þróun út af NAGrænlandi
yrði öll veitt frá Íslandi gæti það fært
tugi milljarða í gjaldeyri inn til Ís
lands á hverju ári. Það myndi líka
gjörbreyta möguleikum á þróun
byggðar á Norður og Austurlandi.
Íslendingar eru þegar farnir að sjá
möguleikana í þessu. Í síðustu viku
tilkynnti ég þannig í Fosnavåg í
Noregi um kaup íslensks fyrirtækis,
Fafnir Offshore, á fyrsta sérútbúna
skipinu sem Íslendingar kaupa til
þjónustu við olíuvinnslusvæði. Það
kostaði litla 7 milljarða króna sem
er hæsta verð fyrir skip keypt til Ís
lands.
Norðursiglingar um Ísland
Önnur veruleg tækifæri tengd
norðrinu liggja í norðursigling
um – vöruflutningum með stórum
ísstyrktum skipum milli Asíu og
Evrópu yfir norðurheimskautið. Ís
þekjan á heimskautinu bráðnar illu
heilli mun örar en menn ætluðu, en
fyrir vikið munu nýju siglingaleið
irnar opnast miklu fyrr en talið var.
Fyrir Ísland skiptir langmestu að
Miðleiðin svokallaða, sem liggur
nánast þvert yfir norðurpól, opnist.
Ástæðan er sú, að rökrétt endastöð
hennar væri á Íslandi, þar sem lík
legt er að ein af umskipunarhöfnum
vegna leiðarinnar yrði. Það tækifæri
færist nær – Kínverjar áforma nú
að hefja þær hluta úr ári strax um
2020. Jafnvel þó aðeins örlítill hluti
af flutningunum færi um Ísland
mun það skipta geysilegu máli fyrir
efnahag Íslands, og ekki síst þróun
byggðar á norðausturhorninu.
Í pólitísku tilliti myndu norður
siglingar hins vegar gjörbreyta póli
tísku vægi Íslands gagnvart Evrópu,
Asíu og NorðurAmeríku – við yrð
um aftur hin ósökkvandi móður
stöð sem yrði lífsnauðsynleg fyrir
siglingar um Miðleiðina. n
Aðsent
Össur
Skarphéðinsson
„ Nú liggur fyrir að
á þessari öld get-
ur mestur auður Íslands
komið úr norðrinu, ef olía
finnst í vinnanlegu magni.
Íslendingar á sumardegi „Það væri því glapræði að fresta viðræðum um aðild, og skera þannig endanlega á möguleikann til að taka upp evru í stað krónunnar. Það myndi skaða hagsmuni Íslands.“