Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 80
Halló Borg.
Honda cr-V 4x4, kostar frá kr. 5.690.000
CR-V sniðinn fyrir snúninga.
HALLÓ. MEIRA NÝTT.
www.honda.is/cr-v
Halló Borg! Allir þekkja lipurð og öryggi Honda CR-V. Fjórða kynslóð Honda CR-V
setur ný viðmið í ferðaþægindum, gæðum innréttinga og auknu öryggi í akstri.
Ný stopp-start tækni ásamt sparnaðarráðgjafa lækkar eldsneytiskostnaðinn.
Upplýsingaskjár, átta fjarlægðarskynjarar og bakkmyndavél víkka sjóndeildar-
hringinn. Með aksturseiginleika Honda CR-V óskar þú þér fleiri ferða um
borg og bæ.
Lifðu meira nýtt og veldu Honda CR-V. Besta 4x4 bíl ársins*.
*B
es
ti
4x
4
bí
ll
ár
si
ns
s
am
kv
æ
m
t T
ot
al
4
x4
M
ag
az
in
e.
M
yn
di
n
sý
ni
r H
on
da
C
R
-V
E
xe
cu
tiv
e
út
fæ
rs
lu
.
Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Umboðsaðilar:
Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800
Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020
Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
„Dislike“
á það!
Vala tekur slaginn
n „Ég hef verið í miklum erfiðleik-
um að finna þá rödd innan stjórn-
málanna sem ég get verið sam-
þykk og sýnt stuðning. Nú finnst
mér ég hafa fundið þá rödd í Lýð-
ræðisvaktinni,“ segir sjónvarps-
konan Vala Matt, sem tekið hefur
14. sæti fyrir flokkinn í Reykjavík
norður. Stefnumál hans hugnast
henni best. „Ég er sammála öllum
málum á stefnuskrá flokksins og
er sannfærð um
að þegar fólk
kynnir sér þau
stefnumál
og það fólk
sem stend-
ur á bak við
þau, þá sjái
bara þjóðin
að þetta er
besti val-
kosturinn
í næstu
kosn-
ingum –
hrein-
lega.“
Krókur á
móti bragði
n Kastljósstjarnan Helgi Seljan lenti
upp á kant við verkalýðsforingj-
ann Vilhjálm Birgisson á Facebook-
síðu þess síðarnefnda á þriðjudag.
Þar hlekkjaði Vilhjálmur á pistil
um baráttu Verkalýðsfélags Akra-
ness við Elkem sem sagt er frá í
DV í dag. Þar sá Helgi sér leik á
borði og hóf að gera athugasemd-
ir þar sem hann vitnaði í eldri
pistil Vilhjálms þar sem skotið var
föstum skotum á umfjöllun Kast-
ljóss um skattamál Norðuráls sem
Helgi hafði augljós-
lega ekki verið
hrifinn af. Eftir
að heitar um-
ræður höfðu
spunnist um
málið upplýsti
Helgi þá allra
skapheitustu að
allt hafi þetta
verið í gríni
gert.
Pétur vildi
Arnþrúði með
n Það fór varla framhjá neinum
þegar Pétur Gunnlaugsson, sem gert
hefur garðinn frægan á Útvarpi
Sögu sagði sig úr Lýðræðisvaktinni
fyrir skemmstu og gaf þá ástæðu
að flokkurinn væri „femínískur
Evrópuflokkur.“ Leiddar hafa ver-
ið að því líkur að Pétri hafi ekki
hugnast að Þórhildur Þorleifsdóttir,
fyrrverandi þingkona Kvenna-
listans, skipaði fyrsta sæti á lista
Lýðræðisvaktarinnar í Reykjavík.
Samkvæmt heimildum DV skýrist
brotthvarf Péturs fyrst og fremst
af því að Arnþrúður
Karlsdóttir, sam-
starfskona hans
og vinkona af
Útvarpi Sögu
fékk ekki ör-
uggt sæti á
neinum fram-
boðslista
hjá Lýð-
ræðisvakt-
inni.
F
yrrverandi skipuleggjandi Söng-
keppni íslenskra framhaldsskóla
neitar að eftirláta núverandi skipu-
leggjendum aðgang að Facebook-
síðu keppninnar nema honum verði
greiddar 250 þúsund krónur. Meira en
15.000 manns hafa „lækað“ síðuna og
því gefur auga leið að hún myndi nýtast
vel til að auglýsa keppnina.
Fyrirtækið Almiðlun ehf. sá um
skipulagningu keppninnar fyrir tveim-
ur árum en var úrskurðað gjaldþrota í
fyrra. Ríkti nokkur óánægja með störf
fyrirtækisins meðal framhaldsskólanna
og var því gerður samningur við Saga
Film um að skipuleggja keppnina í
staðinn. Hvorki Saga Film né Sambandi
íslenskra framhaldsskólanema hefur
verið veittur aðgangur að Facebook-
síðunni, en þar hafa samt nýlega birst
stöðuuppfærslur þar sem boðaðar eru
útdeilingar á gjöfum og ókeypis mið-
um á keppnina. Eva Brá Önnudóttir,
formaður Sambands íslenskra fram-
haldsskólanema, segist ekki skilja hvað
mönnunum gengur til. „Þeir eru ennþá
að pósta statusum reglulega og þannig
virðist sem síðan sé á okkar vegum. Það
veldur talsverðum ruglingi,“ segir hún.
Þegar Einar Benedikt Sigurðsson,
fyrrverandi meðstjórnandi Almiðlunar,
var spurður hvort hann hefði skrifað
stöðuuppfærsluna sagði hann að ein-
hverjir aðrir hlytu að hafa gert það. Við
upphaf símtalsins viðurkenndi hann
að hann hefði sjálfur aðgang að síð-
unni og að leiga á henni kostaði 250
þúsund krónur. Síðar í símtalinu skipti
hann hins vegar snarlega um skoðun
og sagði: „Þetta er mjög einfalt, ég er
ekki með aðgang að síðunni þar til ann-
að kemur í ljós.“
Eva segir að ekki standi til að greiða
einum né neinum fyrir aðgang að síð-
unni, en þessi hegðun geri skipuleggj-
endum söngkeppninnar erfitt fyrir.
„Það hefði verið betra að nota þessa
gömlu síðu. Hún heitir Söngkeppni
framhaldsskólanna, svo það nafn er
frátekið. Núna þurfum við að gera nýja
síðu á hverju ári og koma henni á fram-
færi sem er mjög óhentugt.“ n
johannp@dv.is
Facebook-síða í gíslingu
n Aðgangur að síðu söngkeppninnar kostar 250 þúsund
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80PÁSKABLAÐ 27.MARS–2. APRÍL 2013 36. TBL. 103. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 659 KR.
Hatrammar deilur Einar Benedikt segir
að leiga á Facebook-síðu söngkeppninnar
kosti 250 þúsund krónur. Eva Brá Önnu-
dóttir, formaður SÍF, er ekki par sátt.