Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 8
90 milljónir í að
lagfæra eina götu
8 Fréttir 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Leynd yfir eignarhaldinu
n Segir enga erlenda aðila á bak við sjóðinn
Þ
að eru engir erlendir að-
ilar á bak við sjóðinn. Það
eru fagfjárfestar í þessu,“
segir Gísli Hauksson, fram-
kvæmdastjóri sjóðsstýringarfyr-
irtækisins GAM Management,
aðspurður um eignarhaldið á fjár-
festingarsjóðnum Centrum sem
keypt hefur um 140 íbúðir í Reykja-
vík á síðustu mánuðum fyrir um
fjóra milljarða króna. Íbúðirnar
eru aðallega í miðbænum, Vestur-
bænum og Hlíðunum.
GAM Management er í eigu
Gísla, Agnars Möllers, MP Banka
og annarra starfsmanna GAM.
Fagfjárfestum er svo boðið að fjár-
festa í tilteknum sjóðum fyrirtæk-
isins, meðal annars Centrum. Í
reglum sjóðsins kemur fram að
hann gefi út hlutdeildarskírteini
sem fjárfestar fjárfesta svo í. Sam-
þykktir sjóðsins eru frá því í lok júlí
síðastliðinn en í þeim er ekki tekið
fram hverjir hafi fé í sjóðinn.
Gísli segir að hann geti ekki
greint frá því hverjir það eru sem
hafa fjárfest í sjóðnum. Hann seg-
ir þó að eingöngu sé um að ræða
innlenda aðila og að engir lífeyr-
issjóðir hafi sett fjármuni í Centr-
um. Engar opinberar upplýsingar
liggja fyrir um hverjir það eru sem
eiga sjóðinn sem keypt hefur íbúð-
irnar 140. n
ingi@dv.is
Bótalaus yfir
páskana
Atvinnulausir eru ósáttir með það
fyrirkomulag Vinnumálastofnun-
ar að greiða ekki út atvinnuleys-
isbætur fyrr en 2. apríl næstkom-
andi. Það þýðir að atvinnulausir
verða að líkindum margir hverj-
ir auralausir yfir páskahátíðina.
Vinnumálastofnun segir margar
fyrirspurnir hafa borist vegna
málsins í vikunni en þar bera
menn fyrir sig að í lögum um at-
vinnuleysistryggingar sé tekið
fram að bætur skulu greiddar út
fyrsta virka dag hvers mánaðar og
greiddar eftir á fyrir undanfarandi
mánuð eða hluta úr mánuði.
Dögun í öllum
kjördæmum
Dögun hefur gengið frá fram-
boðslistum í öllum sex kjördæm-
um sínum. Síðasti listinn til þess
að berast er í Suðurkjördæmi, þar
sem Andrea J. Ólafsdóttir, fyrrver-
andi forsetaframbjóðandi, trónir í
fyrsta sæti.
Í öðru sæti er Þorvaldur Geirs-
son kerfisfræðingur. Þór Saari al-
þingismaður vermir fimmta sæti
listans í Suðurkjördæmi. Tíu þing-
menn eru í kjördæminu.
Guðrún Dadda Ásmundar-
dóttir iðjuþjálfi er í fyrsta sæti list-
ans í Norðvesturkjördæmi. Mar-
grét Tryggvadóttir þingmaður er
í fyrsta sæti í Suðvestur. Þórð-
ur Björn Sigurðsson varabæjar-
fulltrúi er í fyrsta sæti í Reykjavík
suður. Ólöf Guðný Valdimars-
dóttir arkitekt er oddviti í Reykja-
vík norður og Gísli Tryggvason,
talsmaður neytenda, er oddviti í
Norðausturkjördæmi.
Fagfjárfestar á bak við sjóðinn
Gísli Hauksson segir að fagfjárfestar
hafi sett peninga í Centrum.
Þ
etta er algjörlega óskiljanlegt.
Að það eigi að setja 90 millj-
ónir í fjögur hundruð metra
vegstúf sem enginn býr við
og ekkert hús stendur við
nema Norræna húsið,“ segir Júlíus
Vífill Ingvarsson, fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í skipulagsráði Reykja-
víkurborgar. Borgin samþykkti fyrr
í mánuðinum að verja 90 milljón-
um króna til lagfæringar á hluta Sæ-
mundargötu í Reykjavík. Í bókun
meirihlutans af fundi skipulagsráðs
þar sem breytingarnar voru sam-
þykktar segir að háskólasamfélagið
hafi ítrekað lýst yfir vilja til þess að
umhverfisvænar ferðavenjur verði
gerðar aðgengilegar og þægilegar.
Telur meirihlutinn að með þessum
breytingum sé komið til móts við þær
kröfur.
Furðar sig á ákvörðuninni
Tilgangurinn með breytingunum er
að gera hjólreiðastíg meðfram Sæ-
mundargötu og þverun fyrir gang-
andi og hjólandi vegfarendur yfir
Hringbraut. Í skipulagsráði náðist
samstaða þvert á flokka um málið en
Júlíus Vífill, sem er einn þriggja full-
trúa Sjálfstæðisflokksins, mótmælti.
Hann er ósáttur við framkvæmdina
og segir að mörg mikilvæg verkefni
sitji á hakanum. „Það er bara hjólað
eftir gangstéttum þarna í dag og hef-
ur ekki kallað á neinar aðgerðir eða
viðbrögð við því og allt saman gengið
vel,“ segir hann.
„Það hafa engin slys orðið við
þessa götu, það virðist ekkert ónæði
vera af þessari götu, það hafa engar
kvartanir borist vegna umferðar um
þessa götu og engar mælingar búa að
baki því að fara að gera stórkostlegar
ráðstafanir í því að takmarka um-
ferð um götuna,“ segir Júlíus Vífill um
málið. „Gatan er frekar breið og það
virðist fara í taugarnar á sumum hér
í borginni en núna á að mjókka hana
svo mikið að til dæmis tveir strætis-
vagnar gætu ekki mæst á henni.“
Ekki gæluverkefni
stjórnmálamanna
Gísli Marteinn Baldursson, flokks-
bróðir Júlíusar og fulltrúi í skipulags-
ráðinu, er ósammála þessu og segir
að verið sé að auðvelda samgöngur
þeirra stúdenta sem komi til með að
búa í stúdentaíbúðum sem rísa nú
í grennd við Sæmundargötu. „Við
Hildur Sverrisdóttir vorum sam-
mála meirihlutanum um að það væri
nauðsynlegt að búa í haginn fyr-
ir byggð stúdenta sem verður þarna
á nýjum stúdentagörðum fyrir neð-
an Oddagötu,“ segir hann aðspurður
um framkvæmdirnar. Hann segir að
stúdentarnir muni koma til með að
fara Sæmundargötu á leið sinni í bæ-
inn. „Þeirra meginleið niður í bæ er
eftir Sæmundargötunni, yfir Hring-
brautina og áfram niður í bæ í gegn-
um Hljómskálagarðinn.“
Breytingarnar eru í samræmi
við þá hjólastígaáætlun sem borgin
samþykkti árið 2010. Gísli Marteinn
segir verkefnið hafa komið á borð
skipulagsráðsins frá samgönguskrif-
stofu borgarinnar. „Þetta er ekki
gælu verkefni einhverra stjórnmála-
manna sem báðu um þetta. Þetta
er samkvæmt þessari hjólaáætlun
og þetta verkefni er tilbúið til fram-
kvæmda,“ segir hann. „Við höfum eytt
svakalegum upphæðum í umferðar-
mannvirki fyrir bíla en við höfum ekki
staðið okkur jafnvel hingað til í að-
stöðu fyrir gangandi og hjólandi. En
það er smám saman að batna og mér
finnst alveg eðlilegt að það sé horft
til svæða eins og Háskólans þar sem
margir koma á hjóli og gangandi, og
reyna að laga aðstöðuna þar.“ n
n Gera göngu- og hjólreiðastíg meðfram Sæmundargötu n Ekki gæluverkefni
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Ekki gæluverkefni Gísli Marteinn segir
breytingarnar ekki gæluverkefni stjórn-
málamanna. Mynd PrESSPhotoS.biz
Annað geymt Júlíus Vífill er ósáttur við
framkvæmdina og segir að mörg mikilvæg
verkefni sitji á hakanum. Mynd róbErt rEyniSSon
tengingin Gísli
Marteinn segir
Sæmundargötu á
stúdentagörðum
fyrir neðan Odda-
götu tengja stúd-
enta við miðbæinn.
Mynd Sigtryggur Ari