Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 76

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 76
76 Fólk 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað Ö ll þjóðin fer á jólatónleika og mér fannst vanta tón- leika um páskana, segir Davíð Lúther Sigurðsson tónleikahaldari en tón- leikarnir Páskagleði verða haldn- ir í fyrsta skipti laugardaginn 30. mars. Á tónleikunum koma fram listamenn sem allir eiga það sam- eiginlegt að spila tónlist sem ein- kennist af gleði en það eru Ás- geir Trausti, Sísý Ey, Þórunn Antonía ásamt Berndsen, DJ Mar- geir og Daníel Ágúst. Í tilkynningu segir að tónleikarnir eigi að vera skemmtilegur viðburður þar sem frábærir tónlistarmenn komi fram, glæsilegt hljóðkerfi frá Nýherja verður notað og stefnt sé að því að senda tónlistargesti með bros á vör út í páskafríið. Davíð segist gríðarlega ánægð- ur með viðtökurnar og miðasala gangi vel enda stutt í tónleikana. Það sé þó eitthvað af miðum eftir sem verða seldir við innganginn. „Það er gaman að segja frá því að Sísí Ey er að stækka gríðar- lega hratt og þær verða til dæm- is á Sónar á Spáni í sumar. Ásgeir Trausti hefur undanfarið spilað í Bandaríkjunum og Þórunn Ant- onía sendir frá sér plötu bráðum. Þetta eru allt mínir uppáhalds- tónlistarmenn í dag og fannst mér þau því tilvalið listafólk til að vera með alvöru páskagleði.“ Aðspurð- ur hvort hann sjái fyrir sér að tón- leikarnir stækki með árunum segir Davíð svo vera. „Þetta er eins stórt og við getum haft þetta núna en ef við ætlum að stækka þetta eitthvað í framtíðinni þá þurfum við líklega að fara yfir í Hörpu með þetta,“ segir hann. Listasafn Reykjavíkur 20:00 Páskagleði í Listasafni Reykjavíkur Hvað er að gerast? Miðvikudagur27 Mar The Croods — frumsýning Ný teiknimynd frá Dreamworks um forsögulega fjölskyldu sem neyðist til að halda af stað í sitt fyrsta ferðalag þegar hellir þeirra hrynur saman. Þetta er einstaklega litrík og fyndin saga, en um leið bæði spennandi og áhrifamikil. Croods-fjölskyldan hefur búið í sama hell- inum alla sína ævi enda felst helsta heilla- ráð fjölskylduföðurins í því að forðast allar hættur með því að prófa aldrei neitt nýtt, þar með talið að yfirgefa hellinn. Um er að ræða eina stærstu frumsýningu á erlendri mynd á Íslandi frá upphafi. The Croods verður frumsýnd á morgun í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Egilshöll, Álfabakka og Borgarbíói Akur- eyri og á Ísafirði, Sauðarkróki og Akranesi yfir páskana. Myndin verður sýnd í 19 kvikmyndasölum. 14:00 Ófeigur gengur aftur — frumsýning Ófeigur, nýlátinn faðir Önnu Sólar, gengur aftur og fer að hlutast til um líf hennar og kærasta hennar, Inga Brjáns. Unga parið ætlar að selja hús hins látna en Ófeigur er því mótfallinn og vill ekki að þau flytji. Afskiptasemi afturgöngunnar er slík að Ingi Brjánn bregður á það ráð að reyna að kveða drauginn niður með aðferðum sem hann finnur í gamalli galdrabók. Leikstjóri myndarinnar er Ágúst Guð- mundsson en með aðalhlutverk fara Þórhallur Sigurðsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Halldóra Geirharðs- dóttir og Ilmur Kristjánsdóttir. Sambíóin 29. mars Síðasta Partíþokan Partíþokan hefur ferðast um allt land og bindur endahnútinn að þessu sinni með tónleikum á Faktorý. Fram koma Jónas Sigurðsson, Prins Póló, Borko og Sin Fang. Faktorý 22:00 Coming up Tveir danshöfundar ætla sér að skapa dansverk með fullkomnum hápunkti. Þegar á hólminn er komið eiga þeir erfitt með að dansa í takt, dansspor eru skilin eftir í lausu lofti, ein uppbygging tekur við af annarri, nýjar hugmyndir breyta stöðugt atburðarásinni og allar tilraunir til að skapa hinn fullkomna hápunkt renna út í sandinn. Höfundar og flytjendur eru Katrín Gunnars- dóttir og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir Tjarnarbíó 21:00 Skírdagur27 Mar Todmobile Stórhljómsveitin Todmobile með þau Andreu, Eyþór Inga og Þorvald Bjarna í broddi fylkingar hitar upp fyrir 25 ára afmælið sem er framundan. Hljómsveitin mun flytja öll bestu Todmobile-lögin og gott betur. Græni Hatturinn 22:00 Killer Queen Queen-heiðurshljómsveitin Killer Queen var stofnuð árið 2008 af þeim Magna Ás- geirssyni,Thiago Trinsi, Valmari Valjaots, Val Hvanndal og Sumarliða Hvanndal en árið 2011 bættist svo við undrabarnið og Borgnesingurinn Einar Þór Jóhannsson. Hljómsveitin hefur það að markmiði að heiðra hina goðsagnakenndu bresku hljómsveit Queen og leitast við að ná fram og mynda hina sönnu „live“ rokk tónleikastemningu sem einkenndi Queen. Hof 21:00 Magnús og Jóhann Í rúm 40 ár hafa þessir snillingar komið saman og sent frá sér frábærar plötur. Seint á síðasta ári kom út plata þeirra Í tíma sem fengið hefur frábæra dóma og af mörgum talin þeirra besta. Græni Hatturinn býður með stolti upp á tónleika með þeim félögum þar sem þeir flytja lög af þessari plötu auk sem þeir flytja brot af sínum bestu lögum. Græni Hatturinn 22:00 Föstudagurinn langi29 Mar Páskadagur31 Mar Fjölskyldan saman Páskarnir eru í hugum margra tími til að njóta með fjölskyldunni og vinum. Það er ýmislegt sem hægt er að gera saman yfir hátíðardagana og um að gera að njóta hækkandi sólar með útiveru, svo sem sundi eða að skella sér á skíði. Dýrunum í Húsdýragarðinum finnst líka alltaf gaman að fá gesti: Húsdýragarðurinn Opið alla daga frá 10.00 –17.00 Sundlaugar um páskana: Flestar sund- laugar landsins eru lokaðar á föstudaginn langa og páskadag, með nokkrum undantekn- ingum. Aðra daga má þó skella sér í sund og fá jafnvel nokkra sólargeisla á andlitið Hægt er að sjá opnunartíma á sundlaugar.is. Skíðasvæðin: n Bláfjöll: 27. mars til 1. apríl - kl. 10.00– 17.00 n Hlíðarfjall: 27. mars til 1. apríl - kl. 09.00–16.00 n Dalvík: 27. til 31. mars - kl. 10.00–17.00. 1. apríl - kl. 10.00–16.00. Kvölddagskrá miðvikudag til föstudags kl. 20.00–22.00 n Ísafjörður: 27. mars til 1. apríl kl. 10.00–17.00 n Oddskarð: 28. mars til 1. apríl - kl. 10.00–17.00. Kvölddagskrá fimmtu- dag og laugardag kl. 20.00–23.00 Stórtónleikar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og nemendur Tónlistarskólans á Akureyri sameina krafta sína á sannkölluðum stórtónleikum að venju á skírdag. Ferðast er um tímann þar sem ólíkar tónlistar- stefnur kallast á. Unnendur ástríðu- fullrar sinfóníutónlistar og magnaðrar kvikmyndatónlistar ættu ekki láta þessa tónleika fram hjá sér fara. Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson. Hof 16:00 Hvað er að gerast? Aldrei fór ég suður R okkhátíðin Aldrei fór ég suð- ur hefur fest sig rækilega í sessi í hugum landsmann en hátíðin fer fram í tíunda sinn á Ísafirði um páskahelgina. Á þriðja tug hljómsveita og listamanna koma fram á hátíðinni í ár og dag- skráin er einstaklega glæsileg. Meðal þeirra sem koma fram eru: n Bubbi Morthens n Borkó n Jónas Sig. n Langi Seli og skuggarnir n Ojba Rasta n Sin Fang n Valdimar n Ylja Laugardagur30 Mar n 29. og 30. mars n Allir aldurshópar ættu að geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk um páskana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.