Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 20
20 Fréttir 27. mars – 2. apríl 2013 Páskablað A ndrúmsloftið í innanríkis­ ráðuneytinu er þrungið spennu daginn sem niður­ stöður skýrslu starfshóps um Guðmundar­ og Geir­ finnsmálið eru kynntar. Það er fal­ legt veður og sólin skín, líkt og hún vildi leggja sitt af mörkum á þessum tímamótum. Litla fundarherbergið sem hýsir blaðamannafundinn er þétt setið, ekki bara af fréttamönnum og ljós­ myndurum, heldur einnig aðstand­ endum Sævars Marinós Ciesielskis. Á fundinum er einnig Erla Bolla­ dóttir, ein dómfelldu í málinu. Það er ljóst að öll eru þau þangað komin með von í brjósti, enda búin að bíða lengi eftir þessari stund. Þungu fargi er af þeim létt þegar starfshópurinn hefur gert grein fyrir niðurstöðum sínum. Óáreiðanlegir framburðir Helstu niðurstöður eru þær að „það er hafið yfir allan skyn­ samlegan vafa að framburðir“ Erlu Bolladóttur, Sævars Mar­ inós Ciesielskis, Kristjáns Viðars Viðarssonar, Tryggva Rúnars Leifs­ sonar og Albert Klahn Skaftason­ ar í Guðmundar­ og Geirfinnsmál­ inu, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi „hafi verið óáreiðanlegir.“ Þá er „hafið yfir allan skynsamlegan vafa að framburður Guðjóns Skarphéð­ inssonar í Geirfinnsmálinu bæði hjá lögreglu og fyrir dómi hafi verið falskur.“ Leggja til endurupptöku Í ljósi þeirrar afdráttarlausu niður­ stöðu að framburðir dómfelldra í Guðmundar­ og Geirfinnsmálum hafi verið óáreiðanlegir telur starfs­ hópurinn veigamiklar ástæður fyrir því að málin verði tekin upp á ný. Hópurinn bendir á þrjár leiðir til að málunum verði komið í tilhlýði­ legan farveg: n Að ríkissaksóknari meti hvort tilefni sé til aðgerða af hálfu ákæru­ valds. n Að dómfelldu í málunum leiti eftir því að þau verði tekin upp á ný og að slík umleitan verði studd með opinberu fé. n Að lagt verði fram lagafrum­ varp sem mæli fyrir um endurupp­ töku málanna. Tveir fyrri valmöguleikarnir henta þó aðeins í málum þeirra dómfelldu sem enn eru á lífi, en samkvæmt íslenskum lögum er ekki unnt að beiðast endurupp­ töku sakamála fyrir hönd látinna einstaklinga. Sævar og Tryggvi eru hins vegar báðir látnir og eina leiðin til að mál þeirra verði endurupp­ tekin er að Alþingi grípi inn í með lagasetningu. „Þetta er mikill áfangi“ „Ég held að þetta sé það besta sem gat komið út úr þessu. Þetta er mikill áfangi,“ segir Sóley Brynja Jensen, fyrrum sambýliskona og barnsmóðir Sævars eftir að niður­ stöðurnar lágu fyrir. Hún kom til blaðamannafundarins ásamt börn­ um hennar og Sævars, Victori Blæ og Lilju Rún. Sóley var ekki búin að gera sér vonir um að niðurstöð­ ur nefndarinnar yrðu svo afgerandi. „Þetta kom skemmtilega á óvart,“ segir hún og brosir einlægt. Hún segir skýrsluna vel unna og augljóst að starfshópurinn hafi far­ ið djúpt ofan í málið. „Mér finnst það virðingarvottur við Sævar heitinn að hann skuli loksins fá áheyrn.“ Baráttan skilaði árangri Synir Sævars frá fyrra sambandi, Hafþór og Sigurþór, voru einnig mættir til að hlýða á niðurstöð­ urnar. „Þetta eru mikil tímamót en mér finnst sorglegt að pabbi skuli ekki vera með okkur í dag að fagna þessu. Hann lifði fyrir að hreinsa nafn sitt af þessum málum,“ segir Hafþór. Hann bendir á að með skýrslunni sé búið að hreinsa nafn Sævars og annarra sakborninga og það sé fagnaðarefni. „Það er gott að fá sannleikann loksins upp á borð í þessu máli. Það er ánægjulegt, jafn­ vel þó að pabbi sé ekki með okkur í dag, að hans barátta hafi skilað grundvelli fyrir þeim þrýstingi sem varð til þess að starfshópurinn var skipaður.“ „Það er mjög óvenjulegt, nema í hryðjuverkamálum, að mönnum sé haldið í einangrun nema í eina til tvær vikur. Grafið undan minninGum sakborninGa n Einblínt á sekt n Ýtt undir minnisvafaheilkenni n Hugsanleg brot í opinberu starfi Ánægð með skýrsluna Fyrrverandi sambýl- iskona og barnsmóðir Sævars, Sóley Brynja, ásamt börnum þeirra Victori Blæ og Lilju Rún. Á myndinni eru einnig synir Sævars frá fyrra sambandi, Hafþór og Sigurþór. mynd sigtryggur ari Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Þau voru dómfelld Sævar Marinó Ciesielski sætti gæsluvarðhaldi í 1533 daga, þar af var hann vistaður í 615 daga í einangrun í Síðu- múlafangelsi. Hann var ákærður fyrir manndráp, með því að eiga þátt í dauða Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar. Sævar hlaut með dómi sakadóms Reykjavíkur ævilanga fangelsis- vist, en Hæstiréttur dæmdi hann í 17 ára fangelsi 22. febrúar 1980. Erla Bolladóttir var 20 ára þegar fyrst var tekin af henni skýrsla og sætti gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á Guðmundar- og Geirfinnsmálunum í 239 daga. Hún var dæmd í Hæstarétti til þriggja ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að málunum. Kristján Viðar Viðarsson sætti gæsluvarðhaldi í samtals 1522 daga, þar af var hann vistaður í 503 daga í einangrun í Síðu- múlafangelsi. Með dómi sakadóms hlaut hann ævilangt fangelsi en Hæstiréttur dæmdi hann í 16 ára fangelsi. Tryggvi Rúnar Leifsson var vistaður í 1522 daga, þar af 655 daga í einangrun í Síðumúlafangelsinu. Hann var dæmdur í 16 ára fangelsisrefsingu í sakadómi Reykjavíkur en Hæstiréttur mildaði dóminn niður í 13 ára fangelsi. Albert Klahn Skaftason var vistaður í einangrun í gæsluvarðhaldi í 87 daga. Hæstiréttur dæmdi hann til 12 mánaða fangelsisvistar og til greiðslu fésektar vegna aðildar að málinu. Guðjón Skarphéðinsson sætti gæsluvarðhaldi í 1202 daga, þar af var hann vistaður í 412 daga í einangrun í Síðu- múlafangelsinu. Guðjón hlaut með dómi sakadóms Reykjavíkur 12 ára fangelsisrefsingu en sá dómur var mildaður í 10 ára fangelsi í Hæstarétti. „svolítið óraunverulegt“ Blaðamaður nær einnig tali af Erlu Bolladóttur, sem er ein dómfelldu í málinu. Hún stendur með skýrsluna í fanginu, þykkan doðrantinn sem bíður lesningar. „Ég er ánægð með að niðurstaðan sé komin,“ seg­ ir Erla. Aðspurð segist hún þó ekki vera búin að taka ákvörðun um það hvort hún muni fara fram á endur­ upptöku í málinu. „Þetta er svolítið óraunverulegt, það er ekki svo langt síðan að ég hefði ekki trúað því að þetta myndi gerast.“ Hún segist þó hafa verið farin að hallast að því að niðurstöðurnar yrðu í þessum dúr miðað við heilindin sem henni fannst liggja að baki vinnu hópsins. „Ég þorði samt ekkert að gefa mér,“ segir Erla yfirveguð. Um leið og hún nær áttum og getur einbeitt sér hyggst hún leggjast yfir skýrsluna og rýna gaumgæfilega í hana. Þess ber að geta að umrædd skýrslan er engin smásmíði, rétt tæpar 500 blaðsíður. minnisaukandi aðferðir Í niðurstöðukafla skýrslunnar um sál­ fræðimat á framburðum sakborn­ inga kemur fram að eftirfarandi þætt­ ir hafi dregið úr áreiðanleika þeirra: Í fyrsta lagi, lengd einangrunarvistar og tíðar og langar yfirheyrslur. Í öðru lagi, einstaklingsbundnir áhættuþættir líkt og sálrænir veikleikar. Í þriðja lagi, tíð óformleg samskipti rannsakenda við sakborninga á meðan á rannsókn stóð, svo sem heimsóknir í klefa þeirra og ferðir með þá út úr fangelsinu. Í fjórða lagi, fjöldi samprófana, sem gat ýtt undir að sakborningar breyttu framburði sínum, aðeins vegna áhrifa annarra sakborninga. Í fimmta lagi, fjöldi vettvangsferða og tilrauna til að leita að líkum Guðmundar og Geir­ finns. Í sjötta lagi, takmörkuð aðstoð lögmanna, en ljóst er að sakborn­ ingarnir fengu sjaldan að ræða eins­ lega við lögmenn sína og dæmi eru um að þeim hafi beinlínis verið neit­ að um aðgang að þeim. Í áttunda lagi, óttinn við að gæsluvarðhaldið yrði framlengt ef rannsakendurnir væru ekki sáttir við framburð þeirra. Í ní­ unda lagi, þá voru fangaverðir í ein­ hverjum tilvikum að ræða við sak­ borninga um atvik málanna. Í tíunda lagi, þá virðist sem rannsakendur hafi haft „rörsýn“ við rannsókn mál­ anna og haft fyrirfram skoðun á sekt sakborninganna og neikvæð viðhorf til sumra þeirra, einkum Sævars og Kristjáns Viðars. Sem dæmi um rör­ sýn rannsakenda má nefna að hugs­ anleg fjarvistarsönnun Sævars í Guð­ mundarmálinu var ekki könnuð. Játningar þvingaðar fram Að mati skýrsluhöfunda er greinilegt að þýski rannsóknarlögreglumaður­ inn Karl Schütz sem fenginn var til að aðstoða við rannsókn málsins, leit á sakborningana sem seka og sitt hlut­ verk að samræma framburð þeirra. Einnig er greinilegt að Schütz leit á ósamræmi í framburði sakborninga sem tilraunir þeirra til flækja málin og tók ekki mark á þeim þegar þau drógu framburð sinn til baka. Ljóst er að játningar í Guðmundar­ og Geirfinnsmálum voru þvingaðar fram af hörku og fram hefur komið í yfirlýsingum fangavarða í Síðu­ múlafangelsinu að framkvæmd ein­ angrunar hafi verið strangari en venja var til. Virtist allt til þess gert að fá fram játningar sakborninga sem allra fyrst, en í fangelsinu ríkti sú skoðun að sakborningarnir væru sekir. Starfshópurinn Starfshópur um Guðmundar- og Geir- finnsmálið var skipaður 7. október 2011 og var honum falið að fara yfir rann- sókn tveggja sakamála í heild sinni en sérstaklega þá þætti sem lúta að rannsókninni og framkvæmd hennar á sínum tíma. Starfshópnum var jafn- framt falið að taka til athugunar þau gögn sem komið hafa fram á síðustu árum og að greina í skýrslu sinni frá því hvort og þá til hvaða ráðstafana þyrfti að grípa varðandi framhald málanna. Upphaflega átti starfshópurinn að skila áfangaskýrslu í apríl á síðasta ári en málið var töluvert umfangsmeira en í fyrstu var talið. Starfshópinn skipuðu Arndís Soffía Sigurðardóttir, lögfræðingur og lögreglumaður, formaður hópsins, Haraldur Steinþórsson lögfræðingur og Jón Friðrik Sigurðsson prófessor og yfirsálfræðingur. Með starfshópnum störfuðu Gísli H. Guðjónsson prófessor og Valgerður María Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá innanríkisráðu- neytinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.