Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 32
Íslandsgáttirnar þrjár 32 Umræða 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað A ukið frelsi í viðskiptum og sköpun nýrra tæki­ færa til að auka hagsæld Íslands eru grunngildi í þeirri utanríkisstefnu sem ég hef mótað fyrir Ísland. Áherslur mínar hafa einkum ver­ ið þrenns konar: Í fyrsta lagi að tengja Ísland nánari böndum við mikilvægustu markaðssvæði okk­ ar, ekki síst Evrópulöndin, sem er sterkasti markaður Íslendinga. Í öðru lagi að spenna upp gáttir til nýrra markaða í Asíu þar sem efnahag þjóða fleygir fram. Þessir markaðir munu verða drifafl í hag­ vexti á öldinni og ég lít á þá sem mikilvægar nýræktir fyrir íslenska framleiðslu í framtíðinni. Í þriðja lagi að skapa Íslandi tækifæri til að gera norðurslóðir að upp­ sprettu mikilla, nýrra verðmæta fyrir land og þjóð. Þessa stefnu má gróflega draga saman í þrennt: Evrópuleiðina, Asíugáttina og norðurslóðir. Hver þeirra styrk­ ir hina, og þó ein lokist eru hinar opnar. Kjarni þessarar stefnu er að veðja ekki öllu á einn framtíðar­ kost, heldur þróa marga. Evrópuleiðin Evrópuleiðin fól í sér umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Hún miðar að því að gera Ísland að hluta af stærri og sterkari efnahagsheild, sem tryggir efnahagslegan stöð­ ugleika, og heldur opnum þeim möguleika að taka upp evru í stað­ inn fyrir krónu – ef þjóðin svo kýs. Það væri því glapræði að fresta við­ ræðum um aðild, og skera þannig endanlega á möguleikann til að taka upp evru í stað krónunnar. Það myndi skaða hagsmuni Íslands. Upptaka evru felur í sér lækk­ un á vöxtum, verðbólgu – og verð­ lagi – og er auðveldasta leiðin til að kasta verðtryggingunni. Aðild að ESB mun samkvæmt reynslu annarra smáþjóða sem hafa geng­ ið í sambandið stórauka erlendar fjárfestingar á Íslandi, minnka við­ skiptakostnað um tugi milljarða ár­ lega að sögn Seðlabankans og ein­ falda viðskipti. Hún mun því leiða til aukins útflutnings, meiri hag­ vaxtar, og fleiri starfa. Evrópuleiðin er langbesti kosturinn til að bæta lífskjör á Íslandi og tryggja stöð­ ugleika fyrir fjölskyldur og fyrirtæki. Stórsókn fyrir sjávarútveg Utanríkisstefnan þarf að taka mið af sjávarútvegi, sem burðar­ ási í atvinnulífinu. Innan hans hefur verið tortryggni gagnvart Evrópuleiðinni. Sú tortryggni er á misskilningi byggð. Aðild opn­ ar á stórsókn fyrir sjávarútveg í Evrópu. Hún mun í fyrsta lagi tryggja þær auðlindir, sem sjáv­ arútvegur býr að í dag. Hún mun í öðru lagi afnema alla tolla á 500 milljóna manna markaði Evrópu. Í því felast einstök, ný tækifæri fyrir fjölmörg lítil fyrirtæki í fullvinnslu hringinn í kringum landið, sem í dag eru lokuð frá Evrópu með tollamúr. Ástæðan fyrir að þau eru flest örsmá er örlítill heimamarkaður. Yrði þeim boðið upp á tollalausan 500 milljóna manna heimamark­ að ættu þau gríðarlega sóknar­ möguleika. Enginn vafi er á að sum þeirra myndu vaxa upp í stór alþjóðleg fyrirtæki og skapa með útflutningi mikil, ný verðmæti fyr­ ir íslenska samfélagið. Með aðild myndi einnig útgerð og annarri vinnslu opnast opn­ ast leið til að sækja fram í Evrópu í krafti einstakrar samkeppnis­ hæfni. Í nýju samstarfi við evrópsk fyrirtæki í vinnslu og veiðum gæti íslenskur sjávarútvegur því líka náð miklum slagkrafti utan Evrópu þar sem sjávarútvegur er vanþróaður. Sama gildir um landbún­ að. Millistétt Evrópu er viljug til að greiða hátt verð fyrir heil­ næma hágæðavöru einsog obbi íslensks landbúnaðar framleið­ ir. Evrópuleiðin felur því í sér sóknarmöguleika fyrir báðar þess­ ar gömlu greinar, fyrir nú utan að hún leiddi til vaxtalækkana sem myndu létta 6–9 milljörðum af sjávarútvegi í vaxtagreiðslur ár­ lega, og líklega rífum milljarði af bændum. Asíugáttin Kína og Indland sigla hraðbyri í að verða mestu efnahagsveldi verald­ ar innan skamms tíma. Suðaust­ ur­Asía er sömuleiðis á fljúgandi siglingu. Millistétt Asíu mun strax á næsta áratug verða mótorinn í aukningu heimsviðskipta. Þetta geta orðið nýræktir Íslands í fram­ tíðinni, ef rétt er á málum haldið. Við þurfum að tryggja fríverslun við þessi ríki, sem í framtíðinni geta greitt hátt verð fyrir íslenska framleiðslu, hvort sem hún er úr fiski, landbúnaði, eða skapandi greinum. Innan EFTA hef ég því lagt mikla áherslu á fríverslunarsamninga við þennan heimshluta, ekki síst tví­ hliða samning við Kína. Það hefur loks skilað ríkulegum ávöxtum – í apríl mun Ísland undirrita samn­ ing um fríverslun við Kína. Það er fyrsti samningur sem nokkru evrópsku ríki hefur tekist að gera við Kína um fríverslun. Þessi ein­ stæði árangur mun skapa Íslandi gríðarlegt viðskiptalegt forskot inn í framtíðina. Gegnum EFTA er Ísland einnig langt komið með fríverslunar­ samning við Indland og áleið­ is við sólrisuríki í SA­Asíu einsog Malasíu og Víetnam. Innan EFTA höfum við lagt drög að því að taka upp viðræður aftur við Tæland, og á fundi með Trond Giske, utan­ ríkisviðskiptaráðherra Noregs, í síðustu viku vorum við sammála um að EFTA hæfi viðræður við Mj­ anmar, og ræddum sérstaklega möguleika á fríverslun við Filipps­ eyjar. Um þessar mundir er verið að ljúka við að koma upp þéttriðnu neti valinna ræðismanna í þess­ um löndum, sem allir eru mjög vel tengdir frá sjónarhóli verslunar milli Íslands og viðkomandi landa. Aukin og góð tengsl við Asíu eru þar að auki mikilvæg með til­ liti til þess að þau eru í fararbroddi um þróun nýrra siglingaleiða yfir norðurpól. Ný gátt til Asíu hefur því verið opnuð með áherslunni á fríverslun við sólrisuríki Asíu – og norðursiglingar. Ný gátt til norðurs Þegar ég kom í utanríkisráðuneytið 2009 gerði ég norðurslóðir að for­ gangsþætti í utanríkisstefnunni. Reynslan hefur sýnt, að það var hárrétt ákvörðun. Nú liggur fyrir að á þessari öld getur mestur auður Íslands komið úr norðrinu, ef olía finnst í vinnanlegu magni. Jafnvel án hennar geta ný tækifæri á norð­ urslóðum veitt tugum milljarða ár­ lega inn í samfélagið á næsta ára­ tug. En nýtingu auðlindanna fylgja hættur, og grunnstefnan um norð­ urslóðir felst í að takast á við þær samhliða því að búa í haginn fyrir ný tækifæri. Margvísleg gögn benda til olíu á Drekasvæðinu – fyrir utan að í því eru sömu jarðlög og varðveita olíu­ lindir við V­Noreg og NA­Græn­ land. Skýrustu vísbendingarnar eru kannski sýni sem örkafbátur í tengslum við norskt rannsóknarskip á leiðinni til NA­Grænlands tók úr neðansjávarfjalli sumarið 2011. Þar fundust skýrar leifar um olíu. Terje Haagevang, norskur sérfræðing­ ur sem eytt hefur hálfri starfsævi í að rannsaka svæðið, telur að þar sé að finna mestu ónýttu olíulindir í heiminum. Norska olíustofnunin telur líka 80 prósenta líkur á að þar sé fremur að finna olíu en gas – sem er mjög jákvætt. Fyrsta stóra tækifæri Íslendinga liggur þó í þjónustustarfsemi við „orkuþríhyrninginn“ sem ég hef skilgreint sem svæðið frá NA­Græn­ landi til Jan Mayen, og suður til Ís­ lands. Markmið mitt er að tryggja að öll þjónusta við rannsóknir, til­ raunaboranir og vinnslu innan orkuþríhyrningsins verði á Íslandi. Ég hef unnið kappsamlega að því í viðræðum við grænlensk stjórnvöld og norsk, síðast í liðinni viku. Við leit að olíu þarf stóra bor­ palla til að stunda tilraunaboran­ ir, og þeim fylgir gífurleg útgerð, bæði þjónustuskipa á hafi, en líka mikil umsvif í landi. Ef þjónusta við Drekasvæðið, norska svæðið hand­ an þess, og við vinnslusvæði sem nú er í þróun út af NA­Grænlandi yrði öll veitt frá Íslandi gæti það fært tugi milljarða í gjaldeyri inn til Ís­ lands á hverju ári. Það myndi líka gjörbreyta möguleikum á þróun byggðar á Norður­ og Austurlandi. Íslendingar eru þegar farnir að sjá möguleikana í þessu. Í síðustu viku tilkynnti ég þannig í Fosnavåg í Noregi um kaup íslensks fyrirtækis, Fafnir Offshore, á fyrsta sérútbúna skipinu sem Íslendingar kaupa til þjónustu við olíuvinnslusvæði. Það kostaði litla 7 milljarða króna sem er hæsta verð fyrir skip keypt til Ís­ lands. Norðursiglingar um Ísland Önnur veruleg tækifæri tengd norðrinu liggja í norðursigling­ um – vöruflutningum með stórum ísstyrktum skipum milli Asíu og Evrópu yfir norðurheimskautið. Ís­ þekjan á heimskautinu bráðnar illu heilli mun örar en menn ætluðu, en fyrir vikið munu nýju siglingaleið­ irnar opnast miklu fyrr en talið var. Fyrir Ísland skiptir langmestu að Miðleiðin svokallaða, sem liggur nánast þvert yfir norðurpól, opnist. Ástæðan er sú, að rökrétt endastöð hennar væri á Íslandi, þar sem lík­ legt er að ein af umskipunarhöfnum vegna leiðarinnar yrði. Það tækifæri færist nær – Kínverjar áforma nú að hefja þær hluta úr ári strax um 2020. Jafnvel þó aðeins örlítill hluti af flutningunum færi um Ísland mun það skipta geysilegu máli fyrir efnahag Íslands, og ekki síst þróun byggðar á norðausturhorninu. Í pólitísku tilliti myndu norður­ siglingar hins vegar gjörbreyta póli­ tísku vægi Íslands gagnvart Evrópu, Asíu og Norður­Ameríku – við yrð­ um aftur hin ósökkvandi móður­ stöð sem yrði lífsnauðsynleg fyrir siglingar um Miðleiðina. n Aðsent Össur Skarphéðinsson „ Nú liggur fyrir að á þessari öld get- ur mestur auður Íslands komið úr norðrinu, ef olía finnst í vinnanlegu magni. Íslendingar á sumardegi „Það væri því glapræði að fresta viðræðum um aðild, og skera þannig endanlega á möguleikann til að taka upp evru í stað krónunnar. Það myndi skaða hagsmuni Íslands.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.