Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 14
Hvert fara ferðamenn á sumrin?
mati sama hóps. Nefnt hefur verið
sem dæmi hversu heillandi svæðið
við Austurvöll í miðborg Reykjavíkur
verði í framtíðinni ef þar verði nán-
ast eingöngu hótel, veitingastaðir og
barir með tilheyrandi linnulítilli um-
ferð langferðabíla, leigubíla, jeppa
og stórra hópa erlendra ferðamanna.
Það geti vart verið sérstakt markmið
að breyta miðborginni í eitt túrista-
bæli og slíkt hafi líka neikvæð áhrif
á upplifun Íslendinga sjálfra af mið-
borg höfuðborgarinnar.
Stíga þarf varlega til jarðar
Ráðgjafar sem ekki hafa beina hags-
muni að verja hafa að undanförnu
tekið undir sjónarmið síðarnefnda
hópsins og ítrekað brýna þörf fyr-
ir að stíga varlega til jarðar í orðsins
fyllstu merkingu. Rúm vika er síðan
Íslandsstofa kynnti ítarlega skýrslu
breska ráðgjafafyrirtækisins PKF
sem kortlagt hefur ferðaþjónustu í
landinu, möguleika greinarinnar og
tækifæri og ekki síst hvað beri helst
að varast í framhaldinu.
Bretarnir benda á nokkra þætti
sérstaklega. Ísland sé þrátt fyrir allt
dýr áfangastaður í alþjóðlegu sam-
hengi og verðlag fari hækkandi.
Hluti ferðaskrifstofa erlendis sem
sérhæfa sig í ferðum hingað til lands
hafi áhyggjur af þeirri þróun og telji
að gæta verði þess að Ísland verð-
leggi sig ekki beint út af markaðn-
um aftur.
Bráðnauðsynlegt er að gera ferða-
þjónustuna eins sjálfbæra og frek-
ast er unnt og þar er Ísland eftirbát-
ur nágrannaþjóðanna. Sjálfbærni
þarf að taka til samfélagsþátta, nátt-
úruverndar og efnahagslegra þátta
sömuleiðis. Brýnt er að sníða reglur
til að koma í veg fyrir náttúruspjöll
og eða eyðileggingu ferðamanna-
staða sem er erfitt þegar yfirstjórn er
lítil eða engin.
Þá telja ráðgjafarnir nauðsynlegt
að auka fjölbreytni í ferðaúrvali og
það allan ársins hring. Finna þurfi
þéttbýlisstað eða -staði sem geta veitt
mótvægi við Reykjavík en slíkir staðir
þurfa að hafa innviði, þjónustu og af-
þreyingu til að sinna stórum hópum
ferðamanna á öllum tímum ársins.
1,3 milljónir ferðamanna 2015?
Fræðingarnir segja að fari fram sem
horfi sé ekki útilokað að ætla að er-
lendir ferðamenn á Íslandi nái 1,3
milljónum strax árið 2015 og miða
þar við áframhaldandi vöxt og ver-
ið hefur undanfarin ár. Þeir telja þó
bæði vænlegra og líklegra að gera
ráð fyrir þessum vexti hægt og bít-
andi fram til ársins 2020. Vænlegra
sökum þess að fjölgi ferðamönn-
um um helming á næstu tveimur
árum umfram það sem nú er muni
það valda stórauknu álagi í viðbót á
ferðaþjónustuaðila alla og ekki síst
náttúru landsins. Slíkt yrði ekki til
góðs og því þurfi að leita leiða til að
fjölga ferðamönnum hægt og rólega
eftirleiðis en ekki einblína á fjöld-
ann. n
Styrkur Íslands
n Framandi áfangastaður með fjöl-
breyttu landslagi.
n Afar jákvæð upplifun fólks sem hingað
kemur.
n Auðvelt aðgengi og beint flug frá
Evrópu og Bandaríkjunum.
n Fyrirtaks matargerðarlist og góður
matur.
n Margir ferðaþjónustuaðilar sem hafa
sjálfbærni að leiðarljósi.
n Öruggur staður að ferðast um og góð
þjónusta um land allt.
14 Fréttir 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Benidorm
norðursins
n Hvar liggja þolmörk lands og þjóðar gagnvart fjölda ferðamanna?
1 Fáir dvelja hér lengi Af öllum þeim fjölda erlendra
ferðamanna sem landið heimsækir
stoppa aðeins sextán prósent lengur
en tvær vikur. Fjórtán prósent dvelja
tólf til fjórtán daga. Langflestir staldra
við í fimm til sjö daga í senn eða 21
prósent aðspurðra. Gróflega skiptist
lengd ferðalaga til helminga miðað við
könnun sem tekin var 2011. 51 prósent
ferðast um Ísland viku eða lengur
en 49 prósent láta viku eða skemur
nægja. Skemmri ferðirnar eru mun
algengari yfir vetrartímann og slíkar
oft aðeins styttri helgarferðir.
2 Magn en ekki gæði Bresku ráðgjafarnir segja það
segja sína sögu að langflestir erlendir
ferðamenn, hvort sem er á sumrin eða
veturna, notist fyrst og fremst við
rútur til að komast leiðar sinna. Bæði
í skipulögðum hópferðum en ekki
síður með áætlunarvögnum hingað og
þangað. Sérstaklega er þetta áberandi
yfir vetrartímann og þessi staðreynd
sýnir glögglega að áherslur ferðaþjón-
ustunnar snúist um magn umfram
annað. Það sé ein stór ástæða fyrir
miklum fjölda ferðafólks á tiltekna
staði.
3 Reykjavík dýrari en Ósló og Helsinki Könnun
Bretanna sýnir að verðlag hér á landi
þykir mörgum erlendum ferðamönn-
um hátt þrátt fyrir allt. Sem dæmi
um það kostar vikuheimsókn fjögurra
manna fjölskyldu frá Evrópu yfir
sumartímann meira til Reykjavíkur
en sams konar heimsókn til Óslóar,
Helsinki og Stokkhólms. Er þó Ósló ein
allra dýrasta borg heims samkvæmt
fjölmörgum könnunum þar að lútandi.
Þá kvartar fimmtungur ferðamanna
almennt yfir verðlagningu, aðspurðir
um hvað mætti betur fara hérlendis.
E
ngum dylst að gullæði ríkir í
ferðamennsku hérlendis. Svo
mjög reyndar að erlendir ráð-
gjafar vara við að Ísland sé á
góðri leið að verða Benidorm
norðursins. Sú nafngift er lítt eftir-
sóknarverð enda til marks um svo
linnulausa græðgi og uppbyggingu á
mettíma að niðurstaðan varð innan-
tóm og fráhrindandi borg sem í dag
stendur frammi fyrir því, þrátt fyrir
fínar strendur, að hafa tapað helm-
ingi þess fjölda ferðamanna sem
þangað kom þegar best var. Borgin,
sem var um tíma allra vinsælasti sól-
arstaður Spánar, þykir í dag svo hall-
ærisleg að hún flokkast í undirflokk
sem „aðrir ferðamannastaðir“ á op-
inberum vef ferðamálaráðs Spánar.
Með og móti
Íslendingar sjálfir skiptast nokk-
uð í tvo hópa aðspurðir um ferða-
mennsku og mikinn vöxt þeirrar
greinar hérlendis. Einn hópur fagn-
ar þessu mjög enda ótöldum fjár-
munum verið varið til landkynn-
ingar í því skyni að fjölga ferðafólki
til landsins. Það áratugalanga starf sé
loks að bera raunverulegan ávöxt og
það sé jákvætt fyrir alla. Með því fjölgi
hér störfum og miklar tekjur skili sér
bæði til ferðaþjónustuaðila en ekki
síður í kassa ríkisins. Enn meiri aukn-
ing sé því jákvæð fyrir þjóðina alla.
Hinn hópurinn telst ekki beint
vera á móti en geldur varhug við
síauknum fjölda ferðalanga. Telur sá
hópur ljóst að viðkvæm íslensk nátt-
úra, sem er langmesta aðdráttarafl
fyrir erlendra ferðamenn, muni ein-
faldlega ekki standast átroðning þús-
unda og jafnvel tugþúsunda ferða-
manna hvern einasta dag. Dæmi
þessa eru fyrir nokkru farin að sjást
berum augum á Þingvöllum og Geys-
issvæðinu og ekki síður við Land-
mannalaugar. Þá geti jafnvel menn-
ingarleg verðmæti og jafnvel jákvæð
upplifun ferðafólks verið í hættu að
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Reykjavík
94%
Vesturland
45%
Vestfirðir
14%
Norðurland
42%
Austurland
32%
Hálendið
36%
Reykjanes
47%
Suðurland
72%
Tækifæri Íslands
n Einbeittari markaðssetning til að auka
eyðslu og heimsóknir utan annatíma.
n Miklir möguleikar í sérferðum ýmiss
konar.
n Landkynning í samstarfi við erlend
kvikmyndafyrirtæki sem hér taka
myndir sínar.
n Fjölga þéttbýlisstöðum sem geta tekið
beint á móti fjölda ferðamanna allt
árið.
n Meiri vinnu í markaðssetningu á
Íslandsferðum yfir vetrartímann.
n Mikið sóknarfæri í menningartengdri
ferðamennsku.
n Takmarka komur skemmtiferðaskipa
við smærri skip og þannig gera Ísland
sérstakara en ella.
n Þjappa raðir markaðs- og þjónustuaðila
í greininni.
Ógnir Íslands
n Gullni hringurinn orðinn mettaður af
umferð og náttúran á þeim hring liggur
undir skemmdum.
n Skipulagningu ferðamannastaða mjög
ábótavant og aðstaða víða léleg.
n Ísland er dýrt heimsóknar og meiri
hækkanir geta auðveldlega dregið úr
áhuga fólks.
n Mikil fjölgun stórra skemmtiferðaskipa
hér hefur ýmsar neikvæðar hliðar.
n Íslendingum sjálfum finnst mörgum
nóg um og er beinlínis ógnað vegna
fjölgunar ferðafólks.
n Samkeppnislönd Íslands eru langt á
veg komin að uppfylla markmið um
sjálfbærni.
Veikleikar Íslands
n Keflavíkurflugvöllur starfar sem skipti-
stöð (hub) svo auðvelt er fyrir fólk að
fljúga áfram í stað þess að staldra við.
n Markaðssetning Íslands erlendis er
mistæk og misvísandi.
n Breyta þarf áherslu á Ísland sem sum-
aráfangastað eingöngu.
n Skortur á skipulagningu ferðamála og
innviðum.
n Samgöngur vestur og norður erfiðar á
veturna sem gerir það erfitt að stunda
ferðaþjónustu.
n Menningarleg ferðaþjónusta hefur liðið
fyrir fjalla- og ævintýraferðaþjónustu.
n Áherslan á sjálfbærni greinarinnar
kemur ekki nógu skýrt fram.