Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Qupperneq 16
16 Fréttir 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
„Þetta er
fordæmis-
gefandi dómur
H
æstiréttur hefur dæmt
bræðrunum Guðmundi og
Hjálmari Kristjánssonum
í vil í deilu þeirra við aðra
eigendur útgerðarfélagsins
Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum. Þeir Guðmundur og Hjálmar
eiga þriðjung í útgerðinni í gegnum
félagið Stillu útgerð ehf. og stefndu
þeir félaginu vegna samruna út-
gerðarinnar Ufsabergs við Vinnslu-
stöðina árið 2011. Þá tók meirihluti
hluthafa í Vinnslustöðinni ákvörðun
um að kaupa Ufsaberg með þeim
hætti að útgerðin sameinaðist
Vinnslustöðinni og í staðinn fengu
hluthafar Ufsabergs hlutabréf í hinu
sameinaða fyrirtæki, samtals 2,5 pró-
sent hlutafjár. Héraðsdómur dæmdi
Vinnslustöðinni í vil í fyrra en Hæsti-
réttur hefur nú snúið þeim dómi.
Guðmundur og Hjálmar töldu að
ákvörðunin um samruna Ufsabergs
við Vinnslustöðina hefði verið ólög-
mæt og að hlutur þeirra í fyrir-
tækinu hefði þynnst út fyrir vikið.
Byggði málatilbúnaður þeirra meðal
annars á því að hluthafar Ufsabergs
hefðu tekið þátt í því á hluthafafundi
Vinnslustöðvarinnar að samþykka
samruna eigin félags við Vinnslu-
stöðina. Orðrétt sagði um máltilbún-
að þeirra í stefnunni í málinu: „Stefn-
endur telja framangreinda ákvörðun
hluthafafundarins tekna með ólög-
mætum hætti, brjóta í bága við hluta-
félagalög nr. 2/1995 (hfl.) og sam-
þykktir stefnda. Ákvörðunin er því
ógild. Þar af leiðandi krefjast stefn-
endur þess að umrædd ákvörðun
verði ómerkt, sbr. 4. mgr. 96. gr. hfl.“
Guðmundur Kristjánsson, sem
er forstjóri og aðaleigandi útgerðar-
félagsins Brims, segist vera ánægður
með þessa niðurstöðu Hæstaréttar.
„Þetta er fordæmisgefandi dómur,“
segir Guðmundur.
Tæknileg niðurstaða
Niðurstaða Hæstaréttar Íslands í
málinu er nokkuð tæknileg. Þrír
dómarar af fimm dæmdu Guðmundi
og Hjálmari í hag en tveir dómar-
ar vildu staðfesta dóm héraðsdóms
í málinu.
Niðurstaða Hæstaréttar byggir
á þeirri forsendu að í hlutafélagi
megi eigin bréf sem félagið á í sjálfu
sér ekki bera atkvæðavægi á hlut-
hafafundi. Í þessu felst að fyrirtækið
sjálft sem á bréfin í sjálfu sér má ekki
greiða atkvæði í krafti þess hlutafjár
sem það á sjálft. Þetta ákvæði er í lög-
um til að vernda alla hluthafa í hluta-
félögum og svo að stærstu eigendur
félags geti ekki, í krafti meirihluta-
valds síns og í ljósi yfirráða yfir stjórn-
um félaga, notað atkvæðavægið sem
fylgir eigin hlutum félagsins í sjálfu
sér til að tryggja og treysta stöðu sína
enn frekar í krafti atkvæðavægisins
sem fylgir eigin hlutum félagsins.
Segir í dómnum að ef slík skipan
væri á málum þá gætu ráðandi að-
ilar í hlutafélagi misnotað aðstöðu
sína: „Sú skipan væri mjög óheppi-
leg og gæti leitt til óeðlilega mikils
valds stjórnar, enda væri víðast hvar
erlendis lagt bann við atkvæðisrétti
fyrir eigin hluti, jafnframt því sem
slíkri hlutafjáreign væri yfirleitt sett-
ar miklar skorður.“
Hæstiréttur telur að hlutabréf-
in sem hluthafar Ufsabergs eign-
uðust og greiddu atkvæði með hafi
verið eigin hlutir Vinnslustöðvar-
innar í sjálfri sér. Þar af leiðandi fellst
Hæstiréttur á að ákvörðun hluthafa-
fundarins um samrunann hafi ver-
ið tekin með „ólögmætum hætti“.
Vinnslustöðin var sömuleiðis dæmd
til að greiða þrjár milljónir króna í
málskostnað.
Áralangar deilur
Málaferlin eru liður í áralöngum
deilum á milli hluthafa í Vinnslu-
stöðinni sem einfalda má með þeim
hætti að meirihluti hluthafa, Eyja-
mennirnir í hluthafahópnum, og
aðkomumennirnir frá Snæfellsnesi,
Guðmundur og Hjálmar, hafi eldað
grátt silfur vegna yfirráða í félaginu
frá því árið 2007.
Árið 2007 reyndi meirihluti hlut-
hafa í Vinnslustöðinni að kaupa
bræðurna út úr félaginu í gegnum
eignarhaldsfélagið Eyjamenn. Bræð-
urnir höfnuðu hins vegar yfirtökutil-
boði meirihlutans á þeim forsendum
að það væri of lágt. Vinnslustöðin var
tekin af hlutabréfamarkaði það ár og
börðust bræðurnir frá Snæfellsnesi
einnig gegn því.
Haft hefur verið eftir Sigurgeiri
Brynjari opinberlega að bræðurnir frá
Snæfellsnesi geti ekki krafist óraun-
hæfs verðs fyrir hlut þeirra í Vinnslu-
stöðinni. „Þeir geta alveg gleymt því
að við förum að kaupa þá út á ein-
hverju óraunhæfu verði og steypa
okkur sjálfum í skuldir sem við ráðum
ekki við. Þeir verða að átta sig á því að
árið 2007 er löngu liðið.“ n
n Áralangar deilur innan Vinnslustöðvarinnar n Ólögmæt sameining í Vestmannaeyjum
Dæmdi Guðmundi
og Hjálmari í vil
Ógilt ákvörðun
Hæstiréttur ógilti eftirfarandi ákvörðun:
n „Hluthafafundurinn
samþykki samruna
Ufsabergs-útgerðar
ehf. við Vinnslustöðina
hf. Greiðsla skal innt af
hendi með afhendingu
eigin bréfa Vinnslustöðv-
arinnar, sem eru í dag að nafnverði EUR
237.611 og afhendingu á ný útgefnu
hlutafé, sbr. 5. lið dagskrár að nafnverði
EUR 299.057.
n Hluthafafundurinn samþykkir að
hækka hlutafé félagsins um EUR
299.057 vegna samruna Ufsabergs-
útgerðar ehf. og Vinnslustöðvarinnar
hf. Forgangsréttur hluthafa til áskriftar
gildir ekki um hið nýja hlutafé. Stjórn fé-
lagsins skal nýta hlutaféð sem greiðslu
í tengslum við samruna Ufsabergs-
útgerðar ehf. og Vinnslustöðvarinnar.
Heildarhlutafé Vinnslustöðvarinnar hf.
eftir hlutafjáraukninguna nemur EUR
17.459.145.“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Dæmt Guðmundi í vil Eigendur Vinnslustöðvarinnar í
Eyjum, hluthafar í kringum Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson
annars vegar og Guðmund Kristjánsson hinsvegar, hafa
átt í áralöngum innbyrðis deilum um yfirráðin í félaginu. Í
Hæstarétti á fimmtudag var ákvörðun hópsins í kringum
Sigurgeir Brynjar dæmd ógild.