Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 22
22 Fréttir 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Andrea Ólafsdóttir
1. sæti Suðurdæmi
Saman getum við
unnið að réttlæti,
sanngirni og
lýðræði fyrir
heimilin í landinu
Komin til að vera
P
íratar er einn af nýju stjórn-
málaflokkunum sem bjóða
fram í þingkosningunum í
apríl. Einna þekktasti Pírat-
inn er þingkonan Birgitta
Jónsdóttir en hún hefur setið á þingi
síðan 2009, fyrst fyrir Borgarahreyf-
inguna og síðar Hreyfinguna. Flokk-
urinn berst fyrst og fremst fyrir mál-
efnum sem tengjast internetinu en
þau mál teygja anga sína víða, tals-
vert lengra en margir myndu halda í
fyrstu. „Þetta er verkfærið til að gera
raunheima betri,“ segir Birgitta um
netið.
Netið er aðalmálið
Þróun internetsins hefur verið hröð
og talsvert hraðari en þróun lagasetn-
inga og regluverks í kringum þetta fyr-
irbæri. Þetta er eitt af því sem Píratar
leggja mikla áherslu á að breyta en
þeir vilja skýrar reglur og tryggja frelsi
einstaklinga á netinu. Birgitta segir að
sótt sé að internetinu úr öllum áttum
og að mikilvægt sé að grípa í taumana.
„Núna er ég að sjá þennan heim, sem
er mér svo kær, ógnað úr öllum átt-
um,“ segir hún. „Það er kannski sér-
staða Pírata að okkar þekking er á
þessu sviði og þetta hefur áhrif á alla.“
Birgitta segir að internetið hafi
talsvert víðtækari áhrif en bara á þá
sem vafra um í tölvunum sínum.
Allskyns upplýsingar eru geymdar í
gagnagrunnum á netinu. „Þetta hefur
líka áhrif á 85 ára gömlu konuna sem
fer aldrei á internetið út af því að allt
um hana er geymt í gagnagrunnum;
sjúkraskráin hennar og öll hennar
saga. Það er verið að færa þetta allt yfir
á internetið en það eru ekki til nein lög
sem vernda þessar upplýsingar,“ seg-
ir Birgitta. Hún bendir á galla í reglu-
verkinu í kringum netið en Píratar
telja að þróun fyrirbærisins sé hraðari
en þróun lagarammans sem um það
gildir. „Ekkert land hefur náð að halda
í við þróunina sem er á netinu.“
Sjálfsákvörðunarrétturinn
mikilvægur
Internetið og málefni tengd því eru
ekki það eina sem er hluti af grunn-
stefnu Pírata. „Það er ekki bara að við
séum fólk sem er umhugað um þessi
mál heldur erum við með mann-
réttindavinkilinn og sjálfsákvörðunar-
rétturinn er mjög sterkur hjá Píröt-
um,“ segir Birgitta. „Þessvegna erum
við að skoða að breyta fíkniefnalög-
gjöfinni þannig að við tökum við-
brögðin við fíkniefnaneyslu hjá fólki
úr glæpaflokknum og yfir í heilbrigð-
iskerfið. Þá sérstaklega þegar kemur
að fíklum, það er mjög mikilvægt.“
Birgitta nefnir líka hnefaleika sem
dæmi. „Það eru hérna risastór fé-
lög þar sem 500 manns eru að æfa
sem mega ekki keppa nema erlendis.
Þetta er faglega gert, það er ekki verið
að kenna fólki að lemja aðra í klessu
heldur er þetta íþrótt, og ef að sonur
minn vildi fara í þetta og væri mjög
spenntur þá gæti ég sem foreldri ekki
nýtt mér afsláttinn á afsláttarkortinu
hjá Reykjavíkurborg af því að þeir
mega ekki vera í ÍSÍ,“ segir Birgitta. „Ég
þoli ekki svona foræðishyggju og hef
aldrei þolað hana. Auðvitað þurfa að
vera góðar reglur utanum sumt en að
banna allt út af því að við getum ekki
passað upp á okkur sjálf er eitthvað
sem mér finnst ekki í lagi.“
Samkeppni á lánamarkaði
Verðtryggingin hefur verið eitt af heit-
ustu kosningamálunum og hafa sum-
ir flokkar það á stefnuskrá sinni að
afnema hana. Þessu eru Píratar ekki
alveg sammála en Birgitta segir að
mismunandi möguleikar þurfi að
vera til staðar fyrir lánveitendur og
að neytendavernd þurfi að vera virk.
„Við viljum skýrar reglur sem vernd-
ar fólk gegn hákörlum og kannski væri
sniðugt að við myndum koma okkur
saman um eitthvað þak á vexti, að það
sé ekki hægt að hækka vextina upp úr
öllu valdi,“ segir hún um verðtryggð
og óverðtryggð lán. Hún segir gagnsæi
þurfi að vera um reglur og skilyrði fyrir
lánum til neytenda.
Birgitta segir flokkinn ekki endi-
lega vera með einu réttu lausnina í
húsnæðismálum. „Við gerum okkur
grein fyrir því að við höfum ekki svarið
um hver er besta leiðin varðandi hús-
næðismál og það hefur enginn einn
flokkur það – ekki neinn. Við erum öll
með mismunandi þarfir sem einstak-
lingar,“ segir hún og nefnir tillögur ASÍ
um breytt húsnæðiskerfi sem dæmi
um leiðir sem þurfi að ræða.
Aðspurð um skattamál seg-
ir Birgitta að hún myndi einfaldlega
vilja sjá einfaldara og gagnsærra skatt-
kerfi. „Ef maður kaupir sér eitthvað er
búið að margskatta það svo mikið að
maður er kannski ekki bara að borga
25 prósent skatt heldur fimmtíu pró-
sent skatt,“ segir hún. „Ég myndi vilja
einfalda skattakerfið og hafa meira
gagnsæi í því.“
Enginn formaður Pírata
Píratar er ekki séríslensk stjórn-
málahreyfing heldur eru til Pírata-
flokkar um allan heim sem sækja í
sömu hugmyndafræði. Flokkarnir
hafa náð góðum árangri víða erlend-
is og mælast með upp undir fjögur
prósent fylgi í skoðanakönnunum hér
á landi, næst mest nýrra framboða.
Birgitta var sjálf kjörin á þing í síðustu
kosningum fyrir nýtt stjórnmálafl,
Borgarahreyfinguna. Sá flokkur hefur
sameinast þremur öðrum hreyfingum
í Dögun, meðal annars Hreyfingunni,
þingflokknum sem Birgitta tilheyrir
í dag, sem klauf sig frá Borgarahreyf-
ingunni í upphafi kjörtímabilsins.
Birgitta segir að Píratar séu ólíkir
Hreyfingunni, þeir séu raunveruleg-
ur stjórnmálaflokkur en ekki hreyfing
sem verði leyst upp eftir að fyrirfram
ákveðin verkefni eru leyst. Hún seg-
ir valdaskipulag flokkanna þó svipað.
„Þetta er mjög svipað og við höfð-
um í Hreyfingunni og Borgarahreyf-
ingunni,“ segir Birgitta sem segir að
enginn einn sé í raun formaður Pírata.
„Við róterum þessari lögbundnu kröfu
um formenn.“ Sumir eru þó óumflýj-
anlega meira í sviðsljósinu en aðr-
ir innan flokksins og koma fram sem
einhverskonar talsmenn hans. „Ég
hef alltaf reynt og geri það núna með
Pírötum að sitja bara við hringborð
þar sem við skiptum öll jafn miklu
máli og fólk hefur mismunandi hlut-
verk. Ég hef ekkert alræðisvald eða
umboð til að fara fyrir Pírata eða að
þeir verði bara að fylgja mér út af því
að ég er í einhverju hlutverki.“
Þekking að utan
Á kjörtímabilinu hefur Birgitta ferðast
víða og sótt sér fróðleik og þekkingu
um mörg af þeim málum sem Pírat-
ar berjast fyrir. „Það sem hefur haldið
lífinu í mér hérna á þingi, því það get-
ur verið rosalega þrúgandi að vinna
hérna, ég verð að viðurkenna það, er
að mér hefur verið boðið að fara mjög
víða,“ segir hún og bætir við að hún
hafi mátt sæta gagnrýni fyrir. „Ég hef
verið gagnrýnd fyrir það af sumum
að ég sé aldrei hér en ég er með mjög
mikla viðveru hérna og hef passað að
þegar ég er að fara erlendis að það
skarist ekki á við nefndarstörfin mín
og annað.“
Í þessum ferðum hefur Birgitta
verið gestur á stórum ráðstefnum þar
sem fjallað er um álitamál er tengjast
persónufrelsi á netinu. „Ég hef setið
á öllum helstu ráðstefnum um frið-
helgi einkalífs, persónufrelsi og svo
framvegis ásamt fleiri Pírötum, eins
og Smára McCarthy. Við höfum verið
framvarðasveit Íslands í þessum stóra
heimi, sem er mjög sérhæfður en
snertir líf okkar allra. Við höfum getað
aflað okkur mikillar þekkingar fyrir ís-
lensku Píratana.“
Birgitta segir að þekkingin sem
Píratar búi yfir sé mikilvæg fyrir ís-
lenskt samfélag í dag. „Píratar eru
akkúrat á réttum tíma út af því að það
er svo mikil þörf fyrir einhverja sem
skilja hvernig netið fúnkerar til að
stoppa hættuleg lög, hættuleg lög eins
og þau sem innanríkisráðuneytið er
að reyna að fá samþykkt á færibandi,“
segir hún og vísar meðal annars í
frumvarp um happdrættisstofu sem
ætlað er að hafa eftirlit með fjárhættu-
spili á netinu.
Þingreynslan nýtist flokknum
Birgitta segir að reynsla sín af þing-
störfum nýtist Pírötum í sinni vinnu.
Hún er sú eina í flokknum sem hefur
starfað á þingi. Hún segir að þegar hún
og félagar sínar í Borgarahreyfingunni
hafi komið fyrst inn á þing hafi þau
gert mörg mistök, einfaldlega vegna
þess að þau kunnu ekki þær óskrif-
uðu reglur og hefðir sem voru í gildi.
„Veikleikinn var sá að í upphafi feng-
um við ekki vitneskju um allar þessar
ólíku hefðir og allt þetta dótarí sem er
ekki skrifað niður. Fyrir vikið gerðum
við fullt af mistökum.“ segir hún um
reynslu Borgarahreyfingarinnar. „Ég
hef getað miðlað þeirri þekkingu til
hinna Píratanna því það hefur enginn
annar verið að lifa og hrærast í þess-
um heimi nema ég. Þess vegna væri
kannski ágætt ef ég kæmist inn á þing,
ef við fáum fólk inn, því þá gæti ég
kennt hinum – og svo get ég bara hætt.“
Það er þó ekki svo að Birgitta ætli
að hætta á miðju kjörtímabili nái
hún kjöri aftur en hún er nokkuð af-
gerandi þegar hún segir að tvö kjör-
tímabil séu alveg nóg. „Ef ég fæ þessa
vinnu eftir stóra atvinnuviðtalið við
þjóðina finnst mér alveg nóg að vera
eitt kjörtímabil í viðbót. Þá get ég
miðlað reynslu minni og þekkingu til
annarra,“ segir hún. „Það er ekki gott
að vera hérna lengur, inni í þessari
stofnun, en tvö kjörtímabil.“ n
n Píratar skilja hvernig internetið virkar n Eru ekki með formann n Þingreynslan nýtist
Síðasta kjörtímabilið
Nái Birgitta kjöri í apríl verður
það síðasta kjörtímabilið
hennar á þingi. Hún segir að
tvö kjörtímabil sé alveg nóg.
MyNd Sigtryggur Ari
„Píratar eru
akkúrat
á réttum tíma
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Viðtal