Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 34
34 Umræða 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Þorsteinn Harðarson Af hverju á ég að
kjósa Dögun?
Þórður Björn Sigurðsson Vegna
þess að Dögun er nýtt óspillt afl sem vill
afnám verðtryggingar, almenna leiðréttingu
húsnæðislána, nýja stjórnarskrá og að þjóðin
fái hámarksarð af auðlindum sínum.
Guðmundur Gíslason Hver er stefna
Dögunar varðandi aðild að Evrópusam-
bandinu?
Þórður Björn Sigurðsson Við leggjum
áherslu á opið og lýðræðislegt ferli, óháða
upplýsingagjöf og fræðslu, og treystum þjóð-
inni til að ráða niðurstöðunni. Ef aðildarvið-
ræðum verður ekki lokið fyrir samþykkt nýrrar
stjórnarskrár og þjóðin ákveður að hætta
aðildarviðræðum í samræmi við 66. grein
frumvarps stjórnlagaráðs, munum við styðja
þá niðurstöðu. Að öðrum kosti verði aðildar-
viðræður við Evrópusambandið kláraðar og
niðurstaðan borin undir þjóðaratkvæði.
Napóleón Bónaparte Viljið þið taka
burt verðtryggingu aftur í tímann eða
bara á nýjum lánum eins og Framsókn?
Þórður Björn Sigurðsson Bæði framvirkt
og afturvirkt.
Ólafur Garðarsson Er fyrirbærið
verðtrygging forræðishyggja eða
umönnun, hönnuð fyrir fjárfesta?
Þórður Björn Sigurðsson Umönnun,
hönnuð fyrir fjárfesta.
Þorsteinn Harðarson Hvað ætlið þið
að gera fyrir spítalana?
Þórður Björn Sigurðsson Við telj-
um of langt gengið í niðurskurði í heilbrigðis-
þjónustu. Ástandið er komið að hættumörk-
um. Forgangsverkefni Dögunar er að hefja að
nýju uppbyggingu og kalla fram betri árangur
og skilvirkari heilbrigðisþjónustu. Um leið og
tekst að létta á vaxtabyrði ríkissjóðs (lækkun
skulda) skapast svigrúm til að stíga stærri
skref á þessu sviði. Dögun leggur áherslu
á aukið sjálfstæði og fjölbreytni í rekstri stofn-
ana, með valddreifingu og aðkomu fagfólks
og notenda. Viljum snúa frá einkavæðingu.
Ármann Óskarsson Varðandi
sæstrengsmálið, er ekki kominn tími til
að tengja?
Þórður Björn Sigurðsson Dögun hefur ekki
stefnu í því máli. Er sjálfur andvígur því að
lagður verði sæstrengur til Evrópu, eins og
rætt hefur verið um. Tel að fórnarkostnaður-
inn verði of mikill fyrir íslenska náttúru og að
líklega muni raforkuverð til einstaklinga hér
á landi hækka umtalsvert.
Annas Sigmundsson Hversu háir yrðu
óverðtryggðir vextir af íbúðalánum á
Íslandi til langframa ef verðtryggingin
yrði afnumin? Landssamtök lífeyrissjóðanna
hafa sagt að þau myndu núvirða eignir sínar með
9% óverðtryggðri kröfu ef verðtrygging yrði
afnumin en krafan í dag er 3,5% verðtryggð.
Myndi það ekki þýða að erfitt yrði fyrir
lánastofnanir að bjóða minna en svona 10%
óverðtryggða vexti af íbúðalánum?
Þórður Björn Sigurðsson Ef ekki verður
sett nafnvaxtaþak á neytendalán samhliða
afnámi verðtryggingar mun framboð og eft-
irspurn eftir lánum ráða vaxtastiginu. Alþingi
hefur reyndar nýlega lögfest 50% vaxtaþak
(árleg hlutfallstala kostnaðar). Ég myndi
vilja beita mér fyrir því að þetta þak væri um
5–6%.Með því að lögfesta vaxtaþak bindum
við hagsmuni lánveitenda við það að halda
verðbólgu í skefjum. Ólíkt því sem nú er.
Fundarstjóri Ert þú sammála því,
Þórður, sem einhverjir hafa bent á að
fjöldi nýju framboðanna geti skemmt
fyrir þeim? Að fylgið geti dreifst of mikið á milli
nýrra framboða?
Þórður Björn Sigurðsson Ég veit ekki hvort
ég myndi segja „skemmt fyrir“. En sú hætta
að fjöldi framboða dreifi fylgi er fyrir hendi.
Dögun hefur verið og er jákvæð fyrir myndun
kosningabandalags við önnur framboð.
Ágústa Ágústsdóttir Nú vill stór
meginhluti þjóðarinnar afnám
verðtryggingar en háværar raddir segja
að þetta sé ekki hægt. Hvað viltu þú segja
varðandi þetta?
Þórður Björn Sigurðsson Vilji er allt sem
þarf.
Ármann Óskarsson Telurðu að það séu
til 3,5 TWh til í raforkukerfinu nú þegar
sem nýst gætu í gegnum sæstreng, eða
er þetta reiðuafl sem nauðsynlegt er fyrir
núverandi virkjanir?
Þórður Björn Sigurðsson Þessu get ég því
miður ekki svarað.
Ólafur Garðarsson Hver er að þínu mati
megináherslumunurinn á milli Dögunar,
Lýðræðisvaktarinnar og svo Bjartrar
framtíðar?
Þórður Björn Sigurðsson Stefna flokkanna
varðandi afnám verðtryggingar er það fyrsta
sem kemur upp í hugann. Eins og kunnugt
er þá talar Dögun afdráttarlaust um afnám
verðtryggingar á meðan hin tvö framboðin
gera það ekki. Þá virðist Björt framtíð
reiðubúin að gefa afslátt af nýju stjórnar-
skránni á þessu þingi á meðan Dögun og
Lýðræðisvaktin vilja ekki bakka með málið.
Brynjólfur Tómasson Hvar stendur þú
gagnvart því að selja Landsvirkjun?
Þórður Björn Sigurðsson Ég
vil ekki að Landsvirkjun verði seld. Stefna
Dögunar er að orkufyrirtæki verði í opinberri
eigu.
Sigurður Sigurðsson Ef þú værir forseti
Alþingis núna í einn dag, hvað myndir þú
gera?
Þórður Björn Sigurðsson Beita mér
fyrir því að þjóðarvilji nái fram að ganga í
sambandi við skuldavanda heimilanna og
lýðræðisumbætur.
Björk Þórðardóttir Hvað finnst ykkur
hjá Dögun að betur mætti fara hjá okkur
öryrkjunum?
Þórður Björn Sigurðsson Það þarf að
lögfesta framfærsluviðmið sem duga fyrir
mannsæmandi lífi.
Viktoría Hermannsdóttir Af hverju
ákvaðst þú að fara í framboð?
Þórður Björn Sigurðsson Vegna
þess að ég gat ekki setið lengur hjá aðgerða-
laus. Vil gera gagn. Er búinn að missa trúna á
gömlu flokkunum.
Hólmfríður Ásmundsdóttir Hvað
ætlar Dögun að gera gagnvart þeim
fjölda sem er að missa húsnæði sitt á
uppboð? Ef þið fáið einhverju um það ráðið eftir
kosningar.
Þórður Björn Sigurðsson Dögun leggur
áherslu á að sett verði lög sem stöðva
tímabundið nauðungarsölur og yfirtöku
heimila og bújarða – sem og þrotameðferð
fyrirtækja – þar til niðurstaða er fengin
varðandi lögmæti verðtryggingar lána.
Sigurður Sigurðsson „Við verðum að
auka hagvöxt“ segja margir
stjórnmálamenn og fulltrúar ASÍ og SA.
Telur þú að hagvöxtur sé góður mælikvarði fyrir
velferð þjóðarinnar?
Þórður Björn Sigurðsson Nei. Í veröld þar
sem auðlindir eru takmarkaðar hvílir hagkerfi
okkar á ranghugmynd um stöðugan vöxt.
Birgir Olgeirsson Hvernig hefur gengið
að mynda samstöðu innan Dögunar?
Þetta er flokkur sem byggist upp á
samstarfi manna úr ólíkum áttum og hafa borist
fregnir af frekar mörgum úrsögnum úr þessum
unga flokki. Er samstaða innan flokksins?
Þórður Björn Sigurðsson Það hefur gengið
ágætlega að byggja upp samstöðu í Dögun.
Við komum úr mörgum ólíkum áttum og ég
lít svo á að sú breidd sé okkar helsti styrkleiki.
Við erum hvorki eins manns né eins máls
flokkur. Rétt er að sumir hafa ákveðið að fara
frá borði og um það hefur verið fjallað. Aðrir
hafa komið í staðinn en um það er minna sagt.
Við erum á þriðja þúsund í flokknum í dag.
Sigurjón Guðmundsson Hvernig
hyggist þið laga skuldastöðu
heimilanna? Hvað fylgir því annars að
vera óspillt afl í heimi pólitíkur? Veit ekki betur en
að pólitíkin hér er á landi sé á kafi í spillingu og
bræðralagi. Þú gætir sem sagt gefið mér það
loforð eins og flest allir flokkar eru núna að
keppast við að gefa að þið verðið ekki viðriðin
þetta sama skítafar og fjórflokkarnir fara í?
Þórður Björn Sigurðsson Við viljum
afnema verðtryggingu og leiðrétta húsnæð-
islán. Koma á nýju óverðtryggðu lánakerfi
til framtíðar eins og þekkist í nágranna-
löndunum. Það fylgir því að vera óspillt afl
að taka ekki við peningum frá fyrirtækjum,
sem dæmi – einnig að vinna í umhverfi þar
sem allir félagar hafa sama lýðræðislega rétt
og geta komið sínum málum á dagskrá. Að
taka alltaf almannahagsmuni umfram sér-
hagsmuni er lykilatriði. Ég get lofað þér því
að ég mun leggja mig fram um að ástunda
heilbrigð vinnubrögð.
Jóhanna Guðmundsdóttir Þið viljið
lögfesta framfærsluviðmið. Ýtir það
ekki undir verðbólgu?
Þórður Björn Sigurðsson Hugsanlega
til skamms tíma en langtímaáhrifin vega
þyngra. Við megum heldur ekki setja verð-
miða á mannréttindi.
Örn Helgason Hvað er hægt að gera til
að losna við þessa gífurlegu spillingu
sem viðgengst á Alþingi og stofnunum
tengdum Alþingi?
Þórður Björn Sigurðsson Kjósa nýja flokka
sem ekki eru rígbundnir sérhagsmunaöflum
og helst taka sjálf þátt í stjórnmálum.
Alfa Eymarsdóttir Hvað á Alþingi að
gera núna í sambandi við stjórnar-
skrána? Þingið virðist ekki ráða við
þetta. Sérðu einhverja lausn?
Þórður Björn Sigurðsson Alþingi á að
samþykkja breytingartillögu Margrétar
Tryggvadóttur sem fyrir liggur.
Jón Ingi Smárason Hver er afstaða þín
til þess að afglæpavæða öll fíkniefni líkt
og stjórnvöld í Portúgal hafa gert, þ.e.
nær til kaupa, neyslu og vörslu allra fíkniefna til
einkanota og er skammtastærðin mæld sem sá
skammtur sem dugi til tíu daga neyslu
einstaklings?
Þórður Björn Sigurðsson Dögun hefur
mótað sér stefnu í þessum málaflokki.
Dögun vill að litið verði á ofneyslu vímuefna
sem heilbrigðisvandamál en ekki glæpsam-
lega hegðun. Dögun leggur áherslu á að
horfast þurfi í augu við þá staðreynd að hið
svokallaða „stríð gegn fíkniefnum“ sé tapað
og hafi valdið mun meira tjóni en þeim ávinn-
ingi sem unnt er að sýna fram á. Líta skal til
reynslu annarra þjóða sem hafa verið að fikra
sig nær afglæpavæðingu, s.s. Portúgal og
fleiri Evrópuþjóða sem og Kanada. Ég er mjög
hlynntur þessari breyttu nálgun.
Snæbjörn Brynjarsson Dögun gengur
líklegast óbundin til kosninga eins og
flestir flokkar á Íslandi. En það má reyna
að spyrja því þið eruð svo ný, ef þið náið nokkrum
mönnum inn, með hverjum gætuð þið myndað
stjórn?
Þórður Björn Sigurðsson Dögun er
sennilega eina stjórnmálaaflið sem þarf
samkvæmt eigin samþykktum að lýsa því
yfir fyrir kosningar með hverjum Dögun
vilji starfa eftir kosningar. Á landsfundi var
eftirfarandi samþykkt: Dögun er samvinnu-
miðað umbótaafl sem sett hefur þrjú mál í
forgang: a) aðgerðir í efnahagsmálum með
sérstaka áherslu á hagsmuni heimilanna;
afnám verðtryggingar, almenna leiðréttingu
húsnæðislána og lögfestingu sómasamlegra
framfærsluviðmiða b) lýðræðisumbætur
og nýja stjórnarskrá á grundvelli frumvarps
stjórnlagaráðs c) að hámarka arð þjóðar-
innar af sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda
hennar og uppstokkun á stjórn fiskveiða.
Dögun lýsir yfir áhuga á að starfa með öðrum
framboðum að ofangreindum málefnum.
Í því sambandi horfum við fyrst til nýrra
framboða áður en við lítum til þeirra gömlu.
Dögun hefur verið og mun áfram vera jákvæð
gagnvart kosninga- og/eða málefnabanda-
lagi við önnur stjórnmálaöfl.
Árni Sigurðsson Þú talar um málefni
eins og þú verðir í stjórn. Hvernig verður
að ná þessum málefnum fram með 3–5
þingmenn utan stjórnar (sem flestum myndi
finnast gífurlegur kosningasigur miðað við
núverandi stöðu í könnunum)?
Þórður Björn Sigurðsson Árni, það verður
erfitt að ná fram málum ef þingstyrk skortir.
Þess vegna hvet ég alla til að kjósa Dögun :)
Guðmundur Gíslason Hvers vegna ætti
hinn almenni kjósandi að kjósa Dögun í
stað Lýðræðisvaktarinnar sem er með
mjög svipaða stefnuskrá og þið?
Þórður Björn Sigurðsson Guðmundur,
helsti munurinn á Dögun og Lýðræðisvakt-
inni felst í afstöðu flokkanna til verð-
tryggingarinnar. Dögun vill afnema hana.
Alfa Eymarsdóttir Hver er stefna
Dögunar í fiskveiðimálum? Myndi Dögun
samþykkja frumvarp SJS? Hver er
afstaða Dögunar til handfæraveiða?
Þórður Björn Sigurðsson Alfa, auk þeirra
breytinga sem ný stjórnarskrá að forskrift
stjórnlagaráðs hefur í för með sér fyrir skipan
auðlindamála er nauðsynlegt að stokka
upp stjórn fiskveiða frá grunni. Tryggja þarf
aðskilnað veiða og fiskvinnslu og að jafnræði
ríki meðal landsmanna við nýtingu á sameig-
inlegum fiskveiðiauðlindum. Hámarka skal
arð þjóðarinnar af auðlindum hennar. Virða
skal álit Mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna. Allur ferskur fiskur skal seldur
á fiskmörkuðum. Alfa. Dögun myndi ekki
samþykkja frumvarp SJS þar sem til stendur
að afhenda útvegsmönnum 5.000 milljarða
á silfurfati í formi nýtingarréttarsamninga til
20 ára. Dögun vill frjálsar handfæraveiðar.
Ragnhildur Guðmundsdóttir
Skuldastaða heimilanna og afnám
verðtryggingar eru algerlega
forgangsmál. Mun Dögun standa fast við þessar
fyrirætlanir sínar eða er einhver hætta á því að
þessi mál verði gjaldfelld vegna samstarfs við
aðra?
Þórður Björn Sigurðsson Dögun mun
standa fast á sínu, ef ég fæ einhverju ráðið.
Jóhanna Guðmundsdóttir Hver ætlar
að borga fyrir höfuðstólslækkun? Á að
ganga á eignarrétt manna eða á ríkið að
gera það? Aðrar hugmyndir?
Þórður Björn Sigurðsson Það er hægt að
leiðrétta lánin með því að taka upp nýjan
gjaldmiðil á mismunandi skiptigengi. Það
er líka hægt að leiðrétta lánin með því að
skattleggja bankana sem skilað hafa yfir 200
milljarða hagnaði frá hruni. Hugmyndin er að
leiðrétta lánin án þess að kostnaður falli á
ríkið. Það eru margar leiðir færar.
Jóhanna Guðmundsdóttir Þið viljið
þak á vexti. Hvaða banki ætlar að lána?
Íbúalánasjóður er á hausnum eftir
4–5% verðtryggt.
Þórður Björn Sigurðsson Við viljum breyta
því kerfi sem viðgengst í dag og reikna með að
núverandi fjármálastofnanir þurfi að aðlaga
sig að breyttum aðstæðum. Með öðrum orð-
um, þeir sem eru að lána í dag muni halda því
áfram þó aðstæður breytist og menn horfist
í augu við þá staðreynd að peningar eru ekki
verðmæti í sjálfum sér heldur ávísun á þau.
Alfa Eymarsdóttir Ætlar Dögun að
senda reikninginn fyrir lánaleiðrétting-
um heimila á skattgreiðendur? Hver á að
borga fyrir þessar leiðréttingar ?
Þórður Björn Sigurðsson Nei, hugmyndin
er að leiðrétting lána leiði ekki til aukinna
útgjalda fyrir ríkissjóð. Ef við erum að tala
um skiptigengisleiðina þá gengur hún út
á að sá sem á kröfuna í dag þarf að taka á
sig niðurfærsluna. Að skattleggja bankana
skýrir sig sjálft. Afskriftasjóðsleiðin gengur
út á að taka hluta af lánunum og færa í
sérstakan afskriftasjóð sem greiðist niður á
löngum tíma. Skapa svo sjóðunum tekjur úr
mismunandi áttum. Það er pólitísk ákvörðun
hvaðan. Aðalatriðið er að þetta er hægt.
Sigurður Sigurðsson Er mikill munur á
stefnu Dögunar varðandi skuldamál
heimilanna og annarra flokka sem
styðja almennar leiðréttingar?
Þórður Björn Sigurðsson Í raun og veru
ekki, nei. Þegar kemur að leiðréttingu lána
er þetta oftast nær bara mismunandi leið
að sama markmiði: Að leiðrétta vegna þess
forsendubrests sem varð í hruninu.
Ólafur Garðarsson Varðandi samvinnu
nýju framboðanna. Telur þú að hægt
væri að ná saman um aðgerðir varðandi
verðtryggingu með því að sammælast um að
leggja málið í dóm þjóðarinnar?
Þórður Björn Sigurðsson Það er þess
virði að ræða það. Þegar stórt er spurt þá er
lýðræði svarið.
Steingrímur Jónsson Ég velti fyrir mér
hvar þessi meinta stökkbreyting lána á
finnast. Íbúðalánasjóðslánin mín af 60
fm. íbúð í miðbænum hafa hækkað um 10.000 kr.
á mánuði frá 2008, að teknu tilliti til samnings-
bundinna hækkana launa, en ekki hækkunar á
vaxtabótum. Það má þá uppreikna það í segjum
25–30.000 í venjulega fjölskylduíbúð. Er ekki
málið að þeir sem eru í vanda hafa annað hvort
of lág laun eða hafa tekið allt of há lán? Er ekki
rétt að leiðrétta rétt vandamál?
Þórður Björn Sigurðsson Forsendubrestur-
inn felst í því að við hrunið þá rauk höfuðstóll
lána upp úr öllu valdi vegna aðstæðna sem
lántakendur gátu ekki borið ábyrgð á. Þess
vegna er ósanngjarnt að ætlast til þess að
þessum kostnaði sé velt af fullum þunga á
lántakendur. Ruglið í okkar kerfi felst í því að
leyfa verðbreytingarákvæði þegar kemur að
höfuðstól lánsins. Hvað hefur höfuðstóll þíns
láns hækkað mikið frá 2008 t.d.? Í venjulegu
umhverfi lækkar lán þegar þú borgar af því.
Nafn: Þórður Björn Sigurðsson
Aldur: 36 ára
Menntun: BA í mannfræði
frá HÍ
Starf: 1. sæti fyrir Dögun í
Reykjavík suður
Þegar stórt er
spurt þá er
lýðræði svarið
Frambjóðandi Dögunar var gjarnan spurður um verð-
trygginguna og skuldamál heimilanna á Beinni línu