Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 48
H ann opnar útidyrnar að einni íbúðinni á stúdenta- görðum. Réttir fram hönd, heilsar og býður inn. Lokar og gengur hægum skref- um inn í íbúðina. Það er snyrti- legt hjá honum og örfáir hlutir í stúdíóíbúðinni enda er hann ný- fluttur: Sófi, rúm, lítið eldhúsborð, kommóða og hljómflutningstæki. Hann hellir kaffi í krúsina sína og setur fingur ofan í til að passa að ekki flói upp úr. Gulur Cheerios- kassi er á eldhúsborðinu. Skærasti liturinn í íbúð inni. Eyþór hóf síðastliðið haust nám í félagsfræði með kynjafræði sem aukagrein. Hann fékk úthlutað úr Þor- steinssjóði í vetur en um er að ræða styrki til blindra og sjónskertra nemenda við Háskóla Íslands þar sem undanfarin ár hefur verið lögð áhersla á að blindir og sjónskert- ir njóti jafnræðis á við aðra og eigi sömu möguleika til náms. Hver styrkur nemur 400.000 krónum. Hann segir fínt að stunda nám við háskólann. „Ég hef ekki orðið fyrir neinum meiriháttar vandkvæðum; ég er ekkert mjög krítískur maður þó ég sé í kynjafræði sem er mjög krítísk grein. Ég hef ekki mætt neinu nema vilja til að láta þetta ganga sem best. Ég bjóst við að það yrði strangara eins og upp á próftöku en það hef- ur ekki verið neitt mál að fá að taka próf eins og mér finnst henta best.“ Það er þó nokkur spölur í há- skólann. Eyþór segir að það sé ekk- ert mál. „Ástæðan fyrir því að ég flutti hingað er að ég vil geta geng- ið. Umferliskennarar kenna blind- um umferli; þetta skiptist í „mobil- ity“ og „orientation“ áttun. Þetta er ekkert langt eða um tíu mínútna göngutúr. Ég geng upp götuna og beygi svo til hægri.“ Hlustuðu á metaltónlist Eyþór fæddist blindur. „Ég byrjaði í Hólabrekkuskóla þegar ég var sex ára en ég held ég hafi verið fyrsti blindi nemandinn í Reykjavík sem var í sínum hverfisskóla. Við vor- um samrýmdir strákarnir í bekkn- um en bekkurinn breyttist lítið frá 1. upp í 7. bekk. Ég fékk að vera með í leikjum og það truflaði mig ekk- ert þá að vera blindur. Ég spilaði til dæmis stundum fótbolta og var þá í marki.“ Hann sagði „þá“. Hvað breytt- ist? „Já,“ segir hann. „Þá kom þessi fræðilegi, umtalaði, andlegi gler- veggur fatlaðra unglinga. Ég áttaði mig á því að ég væri kannski ekki al- veg með sömu spil á hendi og hin- ir þegar ég var 12–13 ára. Það er mismunandi hvernig fólk dílar við það. Þetta fór fljótt út í það að ég og vinur minn fórum pínulítið aðr- ar leiðir.“ Hann brosir. „Við máttum í unglingadeildinni sitja á ákveðnu svæði en við sátum alltaf á jaðrin- um og hlustuðum á metaltónlist. Við vorum samt aldrei upp á kant við aðra. Ég einangraðist heldur aldrei.“ Jú, hann hafði verið í marki í fót- bolta þegar hann var yngri. En á þessum tíma breyttist það líka. „Ég fattaði að ég var ekki „useful“ í fót- bolta.“ Ólympíumót fatlaðra Hann fór að æfa sund þegar hann var sex ára. „Það er til viðtal í Mogg- anum frá því ég var níu ára þar sem ég sagði að ég ætlaði að fara á Ólympíumót fatlaðra. Ég fór að æfa af alvöru þegar ég var kannski 12 eða 13 ára. Sund- liðið mitt var mjög samrýmt á tímabili en ég synti með Íþrótta- félagi fatlaðra. Við vorum nokkr- ir krakkar sem mynduðum mjög sterkan hóp sem var miklu meira en bara liðið. Við hittumst og átum fullt af nammi og horfðum kannski á mynd. Ég á mér ekki sterka fyrirmynd í sundinu eins og sumir. Ég æfði mig og svo æfði ég mig meira og meira.“ Eyþór sýpur á kaffinu. „Svo allt í einu var ég kominn með lágmörk- in í unglingalandslið þess tíma. Svo var það ekkert rosalega langt frá því að ná lágmarkinu inn á heimsmeistaramót og það var ekk- ert langt frá heimsmeistaramóti á Ólympíumót fatlaðra. Ég sá fram á að það væri möguleiki á að taka þátt í því. Liðsheildin var reyndar ekki jafnsterk og áður, árin 2006 og 2007, og sumir hættir svo ég hugs- aði svolítið „what‘s the point?“. Fé- lagslífið var stór þáttur af íþrótta- iðkun minni og vinir mínir voru í íþróttinni. Þess vegna hafði ég yf- irleitt verið tilbúinn til að sleppa því að gera ýmislegt fyrir íþrótta- mót. Ég var nálægt því að hætta árið 2007 en fékk svo innspýtingu.“ Innspýtingin varð til þess að Ey- þór tók þátt í Ólympíumóti fatlaðra í Peking árið 2008. Hann rifjar upp þegar hann keppti í úrslitum á mótinu. „Það var merkileg tilfinning. Þegar nafnið mitt var kallað upp heyrðust rosa- leg fagnaðarlæti. Úr öllum áttum kom alveg dúndrandi klapp.“ Þögn. „Ég get ekki lýst þessari tilfinn- ingu en ég man að mér þótti þetta mjög merkileg upplifun. Svo fékk ég að vera fánaberi á lokaathöfninni sem mér fannst vera mikill heiður og var mjög ánægður með það. Þetta var frábært mót og mér gekk vonum framar. Það var eins og að vera á fimm stjörnu hóteli að vera í Ólympíuþorpinu.“ Hann skoðaði Kínamúrinn. „Ég held að allir sem fara til Kína ættu að sjá hann. Ég hugsaði meira að segja áður en við fórum þangað að ég nennti ekkert að fara því ég sæi hann ekki; þetta væri bara ein- hver grjóthleðsla. En mér fannst mjög merkilegt að sjá þennan stað. Ég gekk á múrnum; það var ein- hver tilfinning eins og þegar maður kemur inn í virkilega flottar kirkj- ur.“ Á frönskunámskeið Eyþór hefur ferðast víða um lönd og fór eitt sumarið með vini sínum á frönskunámskeið í Montpellier. „Þetta var reyndar mjög fyndið. Umsóknin mín var samþykkt af skólanum en tveimur vikum síð- ar fékk ég tölvupóst þar sem kom í ljós að starfsmenn hefðu ekki gert sér grein fyrir því að ég væri blind- ur en það stóð samt í umsókninni. Þetta reddaðist þó allt. Við bjugg- um hjá fjölskyldu og skoðuðum borgina vel. Ég mæli ekki með því að villast í frönsku úthverfi á sunnudagseftirmiðdegi; garðarnir eru lokaður með veggjum þannig að það er ekki hægt að spyrja neinn til vegar þar sem enginn er á ferli.“ Þeir félagar hafa sem sé villst? „Já,“ segir Eyþór og hlær. Fer ekkert nánar út í það. „Svo fórum við til Parísar og vor- um þar í nokkra daga. Við skoðuð- um ýmislegt af því sem maður á að skoða í París og nokkra staði í við- bót. Við fórum í katakomburnar og það er dálítil upplifun að koma þangað. Fórnarlömb plágunn- ar voru grafin þar og eru heilu veggirnir úr mannabeinum. Þetta var eins og að vera kominn inn í tölvuleik; það eru meira að segja dramatískar tilvitnanir höggnar í steina á veggjunum.“ Samdi kennslubók í tónfræði Allt í einu heyrist tónlist; það er klukka Eyþórs og vélræn rödd segir síðan hvað klukkan er. „Ég er alveg að falla á tíma,“ seg- ir hann. Kaffið að minnka í krúsinni. Hvað með draumana? „Mig langar til þess að verða einhvers konar fræðimaður. Mig hefur lengi langað til þess að kenna. Mig langar til að gera ýmislegt; ég væri alveg til í að vera með þrjú börn, hund og „white picket fence.“ Hvít girðing: Hann hefur aldrei séð hvíta litinn. „Mig langar að fara til Suðurskautslandsins; ég veit ekki hvers vegna. Það poppaði einhvern tímann upp að mig langaði til að fara þangað.“ Þar ríkir hvítur ísinn. Hann fæddist blindur og veit ekki hvernig það er að sjá. Hvað með draumana sem hann dreymir þegar hann sefur? „Þeir eru frekar grillaðir; segja ekki flest- ir að draumarnir þeirra séu steikt- ari en draumar annarra?“ Draumarnir endurspegla þau skilningarvit sem hann hefur – það sem hann heyrir og skynjar. Einhver bankar á útidyra hurð- ina. Þar stendur hávaxinn, ljós- hærð ur maður. Eyþór fer inn í lítið, skuggsýnt og glugga laust herbergi þar sem stendur rafmagnspíanó og nær í harmonikku sem hann setur í tösku. Maðurinn er leigubílstjóri og ætlar að aka honum í tónlistartíma. Eyþór hefur lengi spilað á hljóð færi og samdi ásamt öðr- um tónfræðibók sem var gefin út í fyrra. „Ég og félagi minn sömd- um kennslubók í tónfræði með punktaletursnótum. Hugmyndin var að kenna blindum tónfræði og nótur.“ Hann veit ekki hvernig himinn- inn lítur út, sólin, blómin eða Esj- an, Akrafjall og Skarðsheiðin. Hann hefur aldrei séð snjóinn eða regndropa. Hann lifir samt lífinu til fullnustu og hefur gert meira en margir jafnaldrar hans; staðið í marki án þess að sjá boltann, keppt á alþjóðlegu íþróttamóti, gengið á Kínamúrnum, farið í frönskunám og villst í frönsku úthverfi á sunnu- dagssíðdegi og hann hefur skrifað þykka bók sem margur eldri mað- urinn gæti verið stoltur af. Hann er strákslegur og lítillátur. Gengur út ásamt félaga sínum sem heldur á harmonikkutöskunni og fer með honum inn í bíl. Annars þekkir hann leiðina í skólann þar sem hann nem- ur félagsfræði og kynjafræði: Upp götuna og beygja svo til hægri. n Svava Jónsdóttir 48 Viðtal 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað Skoðaði París Það er eins og sumir geri hluti sem aðra óar við að gera eða finnst óyfirstíganlegir. Eyþór Kamban Þrastarson er rétt rúmlega tvítugur. Hann fæddist blindur en hefur ekki látið það aftra sér í að njóta lífs- ins. Svava Jónsdóttir hitti Eyþór og ræddi við hann um það þegar hann sá Kínamúrinn og skoðaði París. „Ég get ekki lýst þessari tilfinningu en ég man að mér þótti þetta mjög merkileg upplifun Klapp og fagnaðarlæti „Það var merkileg tilfinning. Þegar nafnið mitt var kallað upp heyrðust rosaleg fagn- aðarlæti. Úr öllum áttum kom alveg dúndrandi klapp.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.