Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 52
C
orey Miller, fæddur 9. mars
1971, var bandarískur rapptón-
listarmaður. Að því sögðu þarf
engan að undra að hann tók
upp sérstakt listamannsnafn,
og fyrir valinu varð – í anda banda-
rískrar rappmenningar – nafnið
C-Murder; Sjá Morð má kannski segja.
Reyndar er ekki fyrir hvern sem er að
fá botn í sviðsnöfn bandarískra rapp-
ara og því til staðfestingar skulu nefnd-
ir til sögunnar tveir slíkir; Master P og
Silkk the Shocker, sem báðir eru bræð-
ur C-Murder.
Dæmdur fyrir morð
C-Murder afplánar nú um stundir lífs-
tíðar fangelsisdóm vegna morðs, en
áður en honum var hent í grjótið átti
hann ágætum ferli að fagna; hann
hafði sent frá sér átta plötur í gegn-
um þrjá útgefendur og varð Life or
Death fyrsta platínuplata kappans,
1998. Corey Miller var í hljómsveitinni
504 Boyz, með „z“ enda engan veg-
inn nógu kúl að nota „s“. Hljómsveitin
átti smell árið 2000 sem heitir því
skemmtilega nafni Wobble Wobble.
En hér er ekki ætlunin að kryfja
tónlistarafrek C-Murder frekar en
bráðnauðsynlegt er og til að gera langa
sögu stutta þá var C-Murder dæmd-
ur til fangelsisvistar í september 2003,
vegna barsmíða og skotárásar í næt-
urklúbbi í Harvey í Louisiana-fylki.
Uppá koman átti sér stað árið 2002 og
kostaði einn aðdáanda, 16 ára dreng
Steve Thomas, lífið.
Ný réttarhöld og stofufangelsi
En dómari, Martha Sassone, gaf heim-
ild til nýrra réttarhalda á grundvelli
fullyrðinga verjenda C-Murder að sak-
sóknarar hefðu setið á upplýsingum
um glæpsamlegan bakgrunn þriggja
vitna sem þeir öttu fram.
Á meðan C-Murder beið nýrra
réttarhalda var honum gert að vera í
stofufangelsi. Það reyndist ekki vera
alslæmt því Sassone heimilaði C-
Murder – í stofufangelsi – að auglýsa
nýja, óútgefna og ónefnda plötu og
skáldsögu, Death Around the Corn-
er, Dauði handan hornsins. En Sasso-
ne fyrirbauð með öllu að aflétt yrði
þagnarskyldu um allt sem dómsmál-
ið varðaði. Einnig þurftu allir sem
hugðust drepa niður fæti í híbýlum C-
Murder að fá heimild þar að lútandi
hjá Sassone.
Hinn 13. mars, 2007, samþykkti
Sassone að C-Murder gæti unnið að
tónlistarferli hans að því gefnu að
hann leitaði heimildar þar að lútandi
í hvert skipti. En sveigjanleiki Sasso-
ne var á þrotum þegar hann fór þess
á leit að hann fengi útivistarleyfi frá
klukkan 7 að morgni til klukkan 9 að
kveldi. Þessi undanlátssemi Sassone
átti síðar eftir að koma henni í koll er
hún reyndi að tryggja endurkjör sitt í
dómarasæti árið 2008.
Ellen Kovach tók við af Sassone
og öll hlunnindi til handa C-Murder
voru afturkölluð.
„Grafreitur og ljósmynd“
Réttarhöld yfir Corey „C-Murder“
Miller hófust 5. ágúst 2009. Faðir
fónarlambsins sagði frá því að sonur
hans hefði verið mikill aðdáandi Cor-
ey í lifanda lífi. Þá bar starfsmaður á
skemmtistaðnum vitni um að hann
hefði séð skýrt og greinilega þegar
Corey myrti drenginn. Þann 10. ágúst
barst tilkynning frá kviðdómi um að
mikil óeining væri um það hvernig
dæma ætti í málinu og engin niður-
staða hefði fengist. Þá gaf dómar-
inn kviðdómendum fyrirmæli um að
leysa ágreininginn og þremur tímum
seinna höfðu þeir komist að niður-
stöðu; tíu vildu sakfella Corey en
tveir vildu sýkna hann. En dómarinn
gat ekki unað sáttur við þetta. Hann
taldi að þessi snöggu umskipti hlytu
að stafa af því að einhver kviðdóm-
endanna hefði látið undan þrýstingi
vegna tímahraks. Þeim var gefinn auk-
inn tími til að komast að niðurstöðu
en hvikuðu ekki frá fyrri ákvörðun-
um. Corey var sakfelldur og dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi fyrir annars stigs
morð með tíu atkvæðum gegn tveim-
ur. „Ég gleðst ekki yfir þessari niður-
stöðu,“ sagði faðir fórnarlambsins. „Ég
vorkenni Miller-fjölskyldunni, en þau
geta þó séð drenginn sinn. Það eina
sem við höfum er grafreitur og ljós-
mynd.“
Sinnaskipti vegna þrýstings
Skömmu eftir að dómur féll í málinu
hófst rannsókn á vinnubrögðum kvið-
dómsins. Kom þá í ljós að tveir af kvið-
dómendunum, tvítug stúlka og eldri
kona, sem töldu að sýkna ætti Corey
höfðu verið þvingaðar til að skipta um
skoðun með þrýstingi og andlegu of-
beldi. „Þeir gerðu þessa 20 ára stelpu
hreinlega veika. Hún skalf öll og hljóp
inn á baðherbergi þar sem hún kastaði
upp,“ sagði annar kviðdómendanna og
var vitnisburður hennar staðfestur af
þeim þriðja. Í Lousiana þurfa minnst
10 af 12 kviðdómendum að fallast á
sekt til að maður sé sakfelldur. Af þeim
sökum áfrýjaði Corey dómnum en
hafði ekki erindi sem erfiði því hann
var staðfestur 28. desember 2011. n
52 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Skaut eiginkonu og leynilegan elskhuga Afbrýðisamur eiginmaður, Ben Wheeler, í Texas
skaut konu sína til bana eftir að hann kom að henni þar sem hún stundaði kynlíf með öðrum manni. Eiginmaðurinn rakst á bíl konu sinnar
fyrir utan heimili manns sem hann vissi að bar hlýjan hug til hennar. Skaut hann þau bæði klukkan sex að morgni sunnudags og hringdi
svo í lögregluna og viðurkenndi verknaðinn. Skilur konan eftir sig fjögur börn en ætla má að maðurinn verði dæmdur í lífstíðarfangelsi.
n Rappar í fangelsinu n Leitar réttar síns í lífstíðarfangelsi
RAPPARINN C-MURDER
DÆMDUR FYRIR MORÐ
„Ég vorkenni Miller-
fjölskyldunni, en
þau geta þó séð drenginn
sinn. Það eina sem við
höfum er grafreitur og
ljósmynd.
Vafasamur auðjöfur fellur frá
n Kom Pútín til valda en var hrakinn úr landi
B
oris Berezovsky, einn um-
deildasti auðjöfur Rússlands,
lést í íbúð sinni í London í síð-
ustu viku en rannsókn bend-
ir til þess að hann hafi svipt sig lífi.
Berezovsky efnaðist gríðarlega eft-
ir fall Sovétríkjanna þegar ríkisfyrir-
tæki í landinu voru seld á brunaút-
sölu og sölsaði meðal annars undir
sig stærstu sjónvarpsstöðina í Rúss-
landi, Channel 1. Þá var hann góðvin-
ur Boris Yeltsin, fyrrverandi forseta
Rússlands, og tilheyrði hinni svoköll-
uðu Yeltsin-klíku. Á þeim tíma kynnt-
ist hann Vladimir Pútín, stofnaði með
honum Unity-flokkinn og gerðist fjár-
hagslegur bakhjarl hans. Ætla má að
Berezovsky hafi átt nokkurn þátt í því
að Putín sigraði í forsetakosningun-
um árið 2000 en skömmu síðar sinn-
aðist þeim. Rússnesk stjórnvöld sök-
uðu Berezovsky um fjármálamisferli,
peningaþvætti og tilraunir til valda-
ráns með þeim afleiðingum að Ber-
ezovsky flúði land. Eignir hans í Rúss-
landi voru teknar eignarnámi en
Berezovsky fékk pólitískt hæli í Bret-
landi þar sem hann dvaldist til ævi-
loka. Síðustu æviárum sínum eyddi
Berezvosky í allsherjar herferð gegn
rússneskum stjórnvöldum sem hann
sakaði um alls kyns glæpi. Á ævi sinni
bakaði hann sér ótal óvildarmenn og
var oftar en einu sinni reynt að koma
honum fyrir kattarnef.
johannp@dv.is
Corey Miller Rapparinn
Corey Miller gengur undir
listamannsnafninu C-Murder
en hann var dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi árið 2003.
Myrti fjöl-
skylduna
Jeremy Bamber hefur nú gert enn
eina tilraunina til að fá mál sitt tek-
ið upp aftur en fyrir 25 árum var
hann dæmdur í ævilangt fang-
elsi fyrir að hafa myrt móður sína,
stjúpföður, systur og tvo tvíburasyni
hennar. Bamber var 25 ára þegar
dómurinn féll, en hann hefur alltaf
haldið fram sakleysi sínu. Vill hann
meina að systir hans, sem haldin
var geðklofa, hafi gengið berserks-
gang á heimili sínu og að lokum
svipt sjálfa sig lífi. Fannst byssan í
höndum hennar og taldi lögreglan
vikum saman að hún hefði framið
morðin. Dómstólar komust þó að
þeirri niðurstöðu að Bamber hefði
komið byssunni þar fyrir eftir að
hafa myrt fjölskylduna. Hann hefur
gert þrotlausar tilraunir til að sanna
sakleysi sitt og meðal annars farið
með málið fyrir Mannréttindadóm-
stól Evrópu án árangurs.
Græddi á einkavæðingunni Boris
Berezovsky sveifst einskis í rússneska
gullæðinu þegar eignir ríkisins voru
seldar klíkubræðrum. Þá átti hann þátt í
að koma Pútín til valda.
Manson einmana
Aðdáandi fjöldamorðingjans
Charles Manson hefur verið hand-
tekinn eftir að hann reyndi að
smygla farsíma inn í fangaklefa
hans í Kaliforníu. Frá þessu greindu
lögregluyfirvöld í ríkinu á þriðju-
daginn en sá sem gerði þessa mis-
heppnuðu tilraun er 63 ára og verð-
ur dreginn fyrir dóm í apríl. Charles
Manson hefur tvisvar sinnum verið
gripinn glóðvolgur með farsíma
síðustu fjögur árin en þá hafði
hann sent textaskilaboð og hringt í
ókunnugt fólk frá Kaliforníu, Flór-
ída og New Jersey. Vera má að
Charles sé einmana en hann hefur
setið í fangelsi í meira en 40 ár.