Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 66
Dýrt á toppnum í enska
66 Sport 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Ronaldo sækir hratt að Messi
n Allra fróðlegasta tölfræðin í evrópska boltanum
A
rgentínski snillingurinn Lion-
el Messi hefur verið mestur
og bestur síðastliðna mánuði
samkvæmt tölfræðiúttekt
Castrol en nú sækir Cristiano Ronaldo
hratt að kappanum. Munar nú aðeins
76 stigum á þeim.
Miðað við að Castrol-úttektin er ein
af ítarlegustu tölfræðikerfum í boltan-
um þar sem hver einasti leikmaður í
Evrópuboltanum fær einkunn byggða á
fimmtán mismunandi þáttum leiksins í
hverjum einasta leik ætti einkunnagjöf
sú að vera kunnari en hún er.
Sú tekur til allra helstu þátta og
áhrif hvers leikmanns í hverjum ein-
asta leik, reiknar út með sérstakri
reikniformúlu og gefur stig fyrir hvern
og einn leikmann. Í því tilliti kemur
ýmislegt á óvart.
Engum skal koma á óvart að Messi
hafi trónað á toppnum mánuðum
saman enda verið stórkostlegur í alla
staði. Ekki er neitt merkilegt við að
Cristiano Ronaldo sé í öðru sætinu
enda frábær leikmaður og hefur gert
fína hluti í vetur þó komið hafi mis-
jafnir kaflar annað slagið.
Þekktir kappar koma þar á eftir al-
veg þangað til í áttunda sætinu þar sem
Pierre-Emerick Aubamayang, fram-
herji St. Etienne í frönsku deildinni,
situr en sá hefur farið á kostum í allan
vetur. Tveir næstu leikmenn eru ekki
mjög þekktir heldur. Framherjinn
Mandzukic hjá Bayen München hefur
aldeilis fundið sig að undanförnu og á
eftir honum kemur fyrsti varnarmað-
urinn sem kemst á listann. Það er Le-
onardo Bonucci hjá Juventus. n
F
rá því keppnistímabilinu
2006/2007 lauk er Arsenal eitt
fjögurra félagsliða í ensku úr-
svalsdeildinni sem hafa skil-
að hagnaði í leikmannavið-
skiptum sínum. Raunar er það eina
„stórliðið“ sem skilar hagnaði á þessu
sviði þegar horft er til síðustu sex
ára. Helstu keppinautarnir beinlínis
brenna peningum. Milljarði á millj-
arð ofan er eytt í leikmenn, samkvæmt
úttektinni, sem sótt er í smiðju Sport
Magazine.
Hagnað Arsenal má að miklu leyti
rekja til sölu lykilmanna félagsins.
Stjörnur á borð við Cesc Fabregas og
Robin van Persie hafa verið seldar frá
félaginu fyrir háar upphæðir.
Rýr uppskera Arsenal
Þó liðið hafi keypt öfluga leikmenn
síðastliðið sumar, eftir brotthvarf
Persie til Manchester United eru
stuðningsmenn ekki sáttir. Lykilmenn
hafa margir hverjir verið seldir til liða
sem berjast við Arsenal um sæti í
Meistaradeild Evrópu en undanfarin
ár hefur það verið fjarlægur draumur
að raunhæft sé að gera kröfu um ein-
hvern af stóru titlunum.
Arsene Wenger hefur teflt fram
ungu og óreyndu liði, í samanburði
við hin stóru félögin, enda hefur upp-
skeran verið rýr. Þótt liðið hafi haldið
sæti sínu í Meistaradeildinni síðustu
ár hefur Arsenal ekki unnið titil frá
því vorið 2005 þegar liðið varð bik-
armeistari. Árið áður varð liðið enskur
meistari þegar það lék alla 38 leikina
án taps.
Velgengnin kostar
Á sama tíma hafa liðin sem hafa ver-
ið rekin með svimandi tapi ár eftir
ár eftir ár, hampað titlunum. Önnur
þau lið sem skilað hafa góðum rekstri
undanfarin sex ár renna stoðum und-
ir það sem augljóst virðist vera; heil-
brigði í rekstri og árangur á vellinum
haldast síður en svo í hendur. Mestu
glannarnir í fjármálum vinna stóru
titlana. Þeir sem sýna ráðdeild verða
undir í baráttunni. n
n Arsenal er eina stórliðið sem hagnast á leikmannamarkaðnum n Árangur í deildinni dýru verði keyptur
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Arsenal
40 milljóna punda gróði
↑ Aðeins fjögur úrvalsdeildarlið hafa skilað
hagnaði í leikmannaviðskiptum frá árinu
2007. Í tilviki Arsenal er það fyrst og fremst
vegna sölu lykilleikmanna liðsins. Þeir leik-
menn sem keyptir hafa verið í staðinn hafa
ekki verið í sama gæðaflokki. Afleiðingin er
sú að átta tímabil eru nú liðin frá síðasta titli.
Reading
8 milljóna punda gróði
↑ Reading hefur tvisvar á umræddu tímabili
unnið sér sæti í úrvalsdeildinni og því hefur
nokkuð gengið á hjá félaginu. Félagið má
þrátt fyrir flakk á milli deilda vel við una. En
breyttir tímar kunna að vera framundan.
Rússneski milljarðamæringurinn Anton
Zingarevich á nú félagið og þykir líklegur til
að opna ávísanaheftið oftar en gert hefur
verið á undanförnum árum.
Newcastle
8 milljóna punda gróði
↑ Þrátt fyrir að skiptar skoðanir séu á
eigenda félagsins, Mike Ashley, verður að
gefa honum klapp á bakið fyrir að hafa
tryggt rekstur félagsins. Það varð félaginu
nokkurt áfall þegar Newcastle féll um deild
um árið en þar var stoppið stutt. Félagið
hefur keypt skynsamlega inn og hefur
tryggt sæti sitt í deild þeirra bestu.
Wigan
5 milljóna punda gróði
↑ Wigan er annað dæmi um lið sem hefur
farið sparlega með fé á undanförnum árum.
Þeir hafa reyndar oft verið nálægt því að
falla en hafa að hluta fjármagnað félagið
með sölu á þeirra bestu leikmönnum.
Roberto Martinez hefur tekist að kaupa
óreynda leikmenn til félagsins sem orðið
hafa öflugir leikmenn. Hugo Rodallega er
gott dæmi.
Everton
2 milljóna punda tap
↓ David Moyes hefur um árabil þurft að
sætta sig við takmörkuð fjárráð félagsins.
Þrátt fyrir það hefur Everton tekist ár eftir ár
að vera í baráttu um sæti í Evrópukeppnum.
Félagið eyðir nánast aldrei háum upphæð-
um í leikmenn. Everton keypti Marouane
Fellaini fyrir metfé árið 2008 þegar liðið
borgaði 15 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Það er enn félagsmet.
Swansea
4 milljóna punda tap
↓ Swansea spilaði lengst af því tímabili
sem um er rætt í neðri deildum á Englandi.
Útgjöldin hafa þess vegna ekki verið ýkja há.
Félagið hefur verið klókt í leikmannakaup-
um, til dæmis með því að kaupa Michu fyrir
slikk og fá Gylfa Þór Sigurðsson að láni. Liðið
hefur fest sig í sessi í úrvalsdeild.
Norwich
10 milljóna punda tap
↓ Norwich var í úrvalsdeildinni þegar
hún var stofnuð en hefur átt erfiða tíma í
knattspyrnulegu og fjárhagslegu tilliti. Liðið
er þó komið í deild hinna bestu á nýjan leik,
eftir mögur ár og mikla endurskipulagningu.
Liðið hefur staðið sig vel í vetur og er að
mestu laust við falldrauga.
West Brom
12 milljóna punda tap
↓ Félagið hefur flakkað á milli efstu deildar
og þeirrar næstefstu margoft á undan-
förnum árum. Núna gengur betur og eftir
frábæra byrjun á tímabilinu er liðið enn í
baráttu um Evrópusæti. Liðið er á sínu þriðja
tímabili í efstu deild, sem er met frá árinu
1992. Liðið hefur alla tíð farið sparlega með
fé og látið lítið fyrir sér fara á leikmanna-
markaðnum.
Southampton
14 milljóna punda tap
↓ Félagið hefur á tímum glímt við mikla fjár-
hagserfiðleika, sérstaklega eftir að liðið féll
úr úrvalsdeild 2005, eftir 27 ára veru í efstu
deild. Síðustu misseri hafa þó verið blómlegri
og gefið fyrirheit um betri tíð. Félagið hefur
verið nokkuð duglegt á leikmannamarkaðn-
um og keypti meðal annars Gaston Ramirez
fyrir 12 milljónir punda í fyrra.
Fulham
26 milljóna punda tap
↓ Mohamed Al-Fayed keypti Fulham árið
1997 og hefur haldið afar þétt um pyngju
sína. Það kemur þess vegna svolítið á óvart
að liðið hafi tapað jafn miklum peningum
og hér má sjá. Félagið hefur þó, allra síðustu
misseri, látið fyrir sér fara á markaði með
leikmenn og keypti til dæmis Dimitar Ber-
batov frá Manchester United.
West Ham
56 milljóna punda tap
↓ Lundúnaliðið féll um deild 2011 og það
hafði slæm áhrif á fjárhag félagsins. Liðið
er hins vegar mætt aftur í efstu deild og
hlutirnir ganga bærilega. Eftir að David Gold
og David Sullivan tóku um stjórnartaumana
í félaginu hefur það látið meira fyrir sér fara
á leikmannamarkaðnum.
Tottenham
65 milljóna punda tap
↓ Í tíð Harry Redknapp var Tottenham dug-
legt að eyða peningum. Redknapp keypti t.d.
bæði Darren Bent og Peter Crouch dýru verði
en á móti hefur félaginu tekist að fá dágóðar
upphæðir, til dæmis fyrir Dimitar Berbatov
og Luka Modric. Það kemur ef til vill á óvart,
miðað við leikmannahóp Tottenham, að
félagið skuli ekki vera í stærri mínus.
QPR
72 milljóna punda tap
↓ Peningar hafa ekki verið vandamál hjá QPR
síðan Tony Fernandez keypti tvo þriðju hluta í
félaginu í ágúst 2011. Áður hafði reyndar Flavio
Briatore veitt félaginu fjárhagslega innspýt-
ingu en ekkert í líkingu við það sem fylgdi
komu Fernandez. Tvisvar í janúarglugganum
2013 var félagsmet slegið þegar Loic Remy og
Christopher Samba voru keyptir. Félagið hefur
eytt duglega á undanförnum misserum og
sjóðir eigandans malasíska virðast botnlausir.
Stoke
80 milljóna punda tap
↓ Stoke City hefur ekki verið sérstaklega
áberandi á leikmannamarkaði undanfarin
misseri, þó liðið hafi staðið sig vel inni á vell-
inum og treyst sig í sessi sem úrvalsdeildar-
lið. Það kemur þess vegna svolítið á óvart að
tapið sé jafn mikið og raun ber vitni. Stoke
hefur reyndar keypt leikmenn eins og Peter
Crouch, Kenwyne Jones og Charlie Adam en
annars hefur liðið látið lítið fyrir sér fara.
Sunderland
88 milljóna punda tap
↓ Leikmannakaup Sunderland hafa á undan-
40
m
. £
Gerrard
er tuddi
Það kjaftaði hver tuska á auka-
spyrnusérfræðingnum Gylfa Þór
Sigurðssyni, í viðtali á FM957 í
vikunni þar sem hann ræddi við
Auðun Blöndal þáttastjórnanda.
Gylfi Þór, sem leikur með Totten-
ham í ensku úrvalsdeildinni, var
meðal annars spurður að því hver
væri erfiðasti andstæðingurinn í
deildinni. „Það er erfitt að spila
við Gerrard,“ sagði hann. „Hann er
tuddi og það er leiðinlegt að spila
við hann.“ Hann bætti svo við að
City-leikmennirnir Sergio Aguero
og David Silva væru einnig afar
erfiðir viðureignar.
Gylfi skoraði stórbrotið mark
úr aukaspyrnu í landsleik gegn
Slóveníu um síðustu helgi. Hann
sagði aðspurður að um væri að
ræða fallegasta mark sem hann
hefði skorað á ferlinum. „Þetta
mark og markið á móti Skotlandi
með U21 árs landsliðinu eru
skemmtilegustu mörkin.“
Íslendingaslagur
Rhein-Neckar ljón Guðmundar
Guðmundssonar mæta Magde burg
í átta liða úrslitum EHF-bikarsins
í handbolta. Dregið var í Vín á
fimmtudag en Íslendingar leika
með báðum liðum. Alexander Pet-
ersson leikur með Rhein-Neckar
Löwen eins og hinn stórefnilegi
Stefán Rafn Sigurmannsson. Í her-
búðum Magdeburg er svo lands-
liðsmarkvörðurinn Björgvin Páll
Gústafsson.
Aðrar viðureignir
verða sem hér segir:
n KIF Kolding – Team Tvis Holstebro
n Maribor Branik – Frisch Auf Göppingen
Liðin eigast við tvisvar, fyrst 20. til 21.
apríl en svo 27. og 28. apríl. Taka má fram
að gestgjafar úrslitahelgarinnar í keppn-
inni, Nantes, sitja hjá í þessari umferð.
Með því liði leikur Íslendingurinn Gunnar
Steinn Jónsson.
Topp 10 á Castrol
1. Leo Messi 1.137 stig
2. Cristiano Ronaldo 1.061 stig
3. Arjen Robben 983 stig
4. Karim Benzema 902 stig
5. Thomas Müller 896 stig
6. Robin van Persie 892 stig
7. Luis Suarez 862 stig
8. Pierre Aubamayang 850 stig
9. Mario Mandzukic 845 stig
10. Leonardo Bonucci 829 stig