Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 78
78 Fólk 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
„Er virkilega
ástfangin“
n Fylgist með Nikita í Dancing with the Stars
É
g verð bara að vera áhorfandi
og fá að horfa á hann svitna og
púla,“ segir dansarinn Hanna
Rún Óladóttir en kærasti henn
ar og dansfélagi, hinn rússneski Nik
ita, tekur þátt í þýska raunveruleika
þættinum Dancing with the Stars.
Hanna Rún er hvergi bangin við
að hleypa þýskum stjörnum nálægt
kærastanum. „Nei, ég er bara spennt
að sjá hversu vel hann nær að þjálfa
hana,“ segir hún hlæjandi.
Hanna Rún er einn fremsti
dansari Íslands en hún vakti athygli
þegar hún og þáverandi kærasti
hennar tóku þátt í þættinum Dans
dans dans. Þegar þau hættu saman
sagðist Hanna ekki ætla að finna
sér kærasta í bráð. Raunin varð hins
vegar sú að Nikita heillaði hana fyr
irvaralaust upp úr skónum. „Það var
ekki annað hægt en að elska hann.
Ég vil meina að þetta sé í fyrsta skipt
ið sem ég er virkilega ástfangin. Ég
hef aldrei haft svona miklar tilfinn
ingar til einhvers. Ég elska allt við
hann, það er ekkert sem ég get sett
út á hann. Hann er fullkominn í alla
staði,“ segir Hanna Rún og bætir við
að Nikita sé afar rómantískur.
„Hann er alltaf að gefa mér eitt
hvað og færir mér morgumat í rúmið
á hverjum einasta degi. Svo nudd
ar hann mig og meira að segja þvær
þvottinn minn, hengir á snúruna og
vaskar upp. Ég fæ ekkert að gera!“ n
Ung og ástfangin Hanna Rún var ákveðin í að finna sér ekki nýjan kærasta en segist
ekki hafa getað staðist Nikita.
Ný heimasíða
Steed Lord
S
vala Björgvins og félagar í
hljómsveitinni Steed Lord
halda áfram að gera garðinn
frægan í henni Ameríku. Nú
hafa Svala, Einar og Eddi opn
að nýja vefsíðu fyrir aðdáendur
sveitarinnar. Slóðin er einfaldlega
steedlord.com en á síðunni er hægt
að fylgjast með öllu sem viðkemur
listamönnunum, sama hvort það
er tíska, myndbönd, stuttmyndir,
remix, viðtöl og upptökur af tón
leikum.
Á síðunni er myndband ástr
ölsku popp stjörnunnar Havana
Brown við lagið Big Banana en Ein
ar leikstýrði myndbandinu og Svala
og Einar skrifuðu handritið. n
É
g er hámarksfiðrildi og vanur
að vera með rakettu í rassin
um. Ég veit aldrei hvert ég er
að fara eða hvar ég enda,“ seg
ir tískubloggarinn og ljós
myndarinn Helgi Ómarsson sem er
farinn heim til Kaupmannahafnar
eftir að hafa verið hér á landi við tök
ur í Ljósmyndakeppni Íslands, raun
veruleikaþætti sem hefst á Skjá Ein
um í næstu viku.
Helgi er einn átta keppenda sem er
kominn í úrslit en segist alls ekki alltaf
sammála dómurunum. „Mér fannst
mjög skrítið að leggja verkin mín í hend
ur á þremur aðilum sem grannskoða
myndina og gagnrýna hana. Ég get ekki
sagt að það hafi verið þægileg tilfinning,
sérstaklega þegar dómararnir kunnu
ekki að meta eitthvað í myndinni sem ég
sjálfur elskaði. Oft var ég alls ekki sam
mála dómurunum og enn síður eftir
að ég horfði á fyrsta þáttinn. En auðvit
að er frábært að fá gagnrýni og ég nýti
mér hana til góðs. Mér fannst bara frekar
skondið að myndirnar sem þau töldu
verstar þótti mér yfirleitt bestar. Ég þarf
að venjast því að verkin mín séu skoðuð
á þennan hátt.“
Helgi bloggar á vefnum trend
net.is en hefur einnig starfar sem
stílisti og fyrirsæta. Hann hefur ver
ið á samningi hjá Eskimo í þrjú ár og
er einnig á samningi hjá skrifstofu í
London. Hann segir að dregið hafi
úr áhuga sínum á að sitja sjálfur fyr
ir. „Ég fæ voðalega lítið út úr því að
módelast. Mér finnst ég líka ekki
nógu módellegur. Og það er allt í
lagi. Ég kann töluvert betur við mig
sem ljósmyndari. Það besta sem ég
geri í lífi mínu er að vinna með hug
myndir og skapa fallegar myndir. Öll
sú næring sem ég þarf, kemur frá því
– ég elska það.“
Hann tekur undir að reynslan
sem fyrirsæta hafi hjálpað honum í
ljósmynduninni. „Mér finnst ég eiga
auðveldara með að leikstýra módel
um af því að ég hef sjálfur verið fyr
ir framan myndavélina. Þessi reynsla
opnar augun fyrir alls konar hlutum
og kennir manni helling.“
Aðspurður segir hann skemmtileg
ast að mynda tilfinningar. „Það skipt
ir ekki máli hvers konar verkefni eða
hvern ég er að mynda, mér finnst alltaf
mikilvægast að ná ákveðinni einlægni
fram,“ segir hann og bætir við að fyr
irsætan Edda Óskarsdóttir sé í miklu
uppáhaldi hjá honum. „Ég hef mynd
að Eddu mikið. Hún er algjör draum
ur að mynda. Hún hefur kennt mér
helling bara með því að vera frábær
fyrirsæta. Svo myndi ég gjarnan vilja
mynda Frank Ocean og gera eitthvað
„documentary“ með honum; bók,
sýningu eða eitthvað álíka. Hann er
ótrúlega heillandi maður.“
Helgi flutti til Kaupmannahafn
ar til að elta ástina sína. Sá heppni
heitir Kasper og er Dani. „Hann er
þvílíkur draumaprins,“ segir Helgi
sem er greinlega ástfanginn upp fyr
ir haus. n
Elti ástina
til Köben
n Helgi Ómars tekur þátt í Ljósmyndakeppni Íslands
„Ég fæ
voðalega
lítið út úr því að
módelast
Ekki módel lengur Helgi
heldur því fram að hann sé
ekki lengur efni í fyrirsætu
enda hafi hann mun meira
gaman af því að taka
myndirnar sjálfur.