Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Qupperneq 2
2 Fréttir 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
vörumerkið hættir
50-70% afsláttur!
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
www.facebook.com/spennandi
MC PLANET
Gillz fær stuðning
3 Þjóðhá-tíðarnefnd
hefur fengið Egil
„Gillz“ Einars-
son til að stýra
hinu sögufræga
Húkkaraballi
á næstu Þjóð-
hátíð. Í kjölfar
ákvörðunar-
innar var nafnlaust bréf sent á
Þjóðhátíðarnefnd, samstarfs aðila
Þjóðhátíðar og Elliða Vignisson,
bæjarstjóra. Bæði Elliði og talsmað-
ur Ölgerðarinnar, sem er stærsti
styrktaraðili Þjóðhátíðar, segjast
styðja ákvarðanir Þjóðhátíðar-
nefndar og treysta henni fullkom-
lega til að skipuleggja hátíðina og
velja þá listamenn sem þar koma
fram. Þetta kom fram í DV á mið-
vikudag.
Gnúpverjum
stefnt
2 Slitastjórn Glitnis hefur
stefnt fyrrverandi
stjórnarmönnum
í Gnúpi: Magnúsi
Kristinssyni, fjár-
festi í Gnúpi og
útgerðarmanni í
Vestmannaeyjum,
Kristni Björnssyni, fjárfesti og fyrr-
verandi hluthafa í Gnúpi, og Þórði
Má Jóhannessyni, fyrrverandi for-
stjóra Gnúps, vegna meintrar ólög-
mætrar arðgreiðslu út úr Gnúpi um
sumarið 2007. Þetta kom fram í DV á
miðvikudag. Krefst bankinn endur-
greiðslu á hinni meintu ólögmætu
arðgreiðslu sem nemur um þremur
milljörðum króna samkvæmt heim-
ildum DV.
Vildi stöðva soninn
1 „Hann hefur verið algjör-
lega stjórnlaus eft-
ir árásina,“ sagði
móðir Stefáns Loga
Sívarssonar sem
lögregla handtók
um helgina eftir
umfangsmikla
leit. Árásin sem móðir hans vís-
ar til átti sér stað í Ystaseli í maí en
þá var Stefán Logi laminn illa eftir
að hópslagsmál brutust út vegna
máls þar sem vinur hans var sakað-
ur um að hafa nauðgað konu. Meðal
árásarmanna var kærasti konunnar.
Móðir Stefáns leitaði til lögreglu um
miðjan júní þar sem hún óskaði eftir
aðstoð til þess að stöðva son sinn.
Taldi móðir hans að hann hefði
orðið fyrir heilaskaða út af árásinni
og væri stjórnlaus í kjölfarið.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
P
alestínskur múslimi, sem
var þann 23. maí síðast
liðinn dæmdur fyrir kyn-
ferðisbrot gegn tveimur
ólögráða stúlkum og afplán-
ar nú 18 mánaða dóm á Litla-Hrauni,
er sagður vera lagður í harkalegt ein-
elti af samföngum sínum. Þetta seg-
ir nánasti aðstandandi mannsins á
Íslandi. Eineltið er sagt birtast í of-
beldi gagnvart manninum; líkam-
legu, andlegu og kynferðis legu. Auk
þess eru samfangar hans sagðir
reyna að lauma svínakjöti í matinn
hans. Það væri kannski ekki mikið
tiltökumál, ef ekki væri fyrir klausu í
hinni helgu bók múslima, Kóranin-
um, sem bannar svínaát. Maðurinn
var sakfelldur fyrir að hafa kysst 14
ára stúlku á munninn og látið hana
fróa sér, og fyrir að hafa kysst 13 ára
stúlku tungukossi, káfað á henni og
beðið hana um að hafa við sig sam-
ræði eða önnur kynferðismök. Var
háttsemin talin varða við 1. og 2. mgr.
202. gr. almennra hegningarlaga.
Talað fyrir daufum eyrum
„Hann er búinn að vera á Litla-
Hrauni frá byrjun júlí. Samfangar
hans byrja að leggja hann í ein-
elti á fyrsta degi. Þeir voru alltaf að
lauma svínakjöti í matinn hans og
gerðu grín að honum vegna trúar-
skoðana hans. Þeir voru með kyn-
ferðislega áreitni við hann. Þeir
læstu hann inni í klefa, með öðrum
manni, og létu þann síðarnefnda
reyna við hann. Þeir tóku svínakjöt
og vöfðu inn í bænamottuna hans.
Þeir tepptu símann, svo að hann gat
ekki hringt, skiptust á að taka sím-
ann svo að hann kæmist aldrei að.
Ofan á þetta beita þeir hann annars
konar andlegu ofbeldi í sífellu,“
segir aðstandandi mannsins hér á
landi, sem vill ekki láta nafns síns
getið. Hann gagnrýnir einnig við-
brögð fangelsismálayfirvalda og að
maðurinn hafi talað fyrir daufum
eyrum forsvarsmanna fangelsisins.
„Síðan gerist það fyrir skemmstu að
þeir taka sig sex saman og misþyrma
honum. Börðu hann í höfuðið með
hillu, kýldu hann í barkarkýlið og í
síðuna,“ segir aðstandandinn. Hann
segist hafa hitt fangann eftir árásina
og þá hafi hann verið með auðsjáan-
lega áverka.
Tjáir sig ekki um einstök mál
Margrét Frímannsdóttir er forstöðu-
kona á Litla-Hrauni. „Ég get ekki sagt
þér neitt, því að ég má ekki ræða mál
einstakra fanga,“ segir hún. Aðspurð
hvernig tekið sé á eineltismálum af
þessu tagi segir Margrét: „Það gilda
mjög skýrar reglur um það hér. Um
leið og við fáum vitneskju um einelti,
þá tökum við á því. Við ræðum bæði
við geranda og þolanda. Ef að þetta
er þannig að mennirnir eru á sömu
deild, þá er reynt að aðskilja þá.“
Maðurinn hefur nú verið fluttur
á aðra deild, en óttast enn aðgerðir
annarra fanga gagnvart sér. Heim-
ildir DV herma að maðurinn hafi
kvartað sáran yfir því að svínakjöt sé
borið á borð til hans af starfsmönn-
um fangelsisins, þegar sú kjöttegund
er elduð í mötuneytinu. Margrét seg-
ir að enginn sé skikkaður til að borða
ákveðna fæðutegund og ávallt sé
annað í boði. „Ef það er boðið upp á
eitthvað sem maður getur ekki borð-
að – hvort sem það er svínakjöt eða
eitthvað annað – þá er alltaf eitthvað
sem fylgir með, sem menn fá sér í
staðinn,“segir Margrét.
Kynferðisafbrotamenn í hættu
Það er kunnara en frá þurfi að segja
að kynferðisafbrotamenn – þá sér-
staklega barnaníðingar – fá gjarnan
óblíðar móttökur í fangelsum, hér-
lendis og erlendis. Palestínumaður-
inn hefur upplifað þessa andúð frá
fyrstu hendi að sögn aðstandandans.
Einnig hefur hann greint frá því að
samfangi hans, dæmdur kynferðis-
afbrotamaður, hafi orðið fyrir að-
kasti frá öðrum föngum. Fangarnir
höfðu gert það að leik sínum að klína
mannasaur í andlit hans.
Gat ekki lesið dóminn
Aðstandandi mannsins segir hann
ekki aðeins hafa þurft að þola
ósanngjarna meðferð í fangelsinu,
heldur frá öllu réttarvörslukerfinu.
Því til stuðnings nefnir aðstand-
andinn meðal annars að þýðingu
rannsóknargagna og dómskjala
hafi verið ábótavant. Þá hafi mað-
urinn ekki fengið dóm Hæstaréttar
þýddan, þrátt fyrir enga íslensku-
kunnáttu. n
Múslimi sagður vera
fyrir einelti á Hrauninu
n Svínakjöti laumað í matinn hans n Tekið á eineltismálum í fangelsinu
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Músliminn fékk óblíðar móttökur frá
samföngum sínum á Litla-Hrauni
Samkvæmt öruggum heimildum laumuðu þeir
svínakjöti í matinn hans og börðu hann.
Þögul sem gröfin Margrét
Frímannsdóttir segist ekki
mega tjá sig um einstök mál.
Hún segir skýrar reglur gilda
um eineltismál.
Banna svínakjöt Í Kóraninum er skýrt
kveðið á um að ekki megi leggja sér svín til
munns. Samfangar múslimans notfæra
sér þessa heilögu kvöð.
Kalli ekki
gjaldþrota
Áréttað skal að Karl Steingríms-
son, oftast kenndur við verslun-
ina Pelsinn, var ekki persónu-
lega gjaldþrota heldur var það
fasteignafélag hans, Borgarmiðj-
an ehf., sem var úrskurðað gjald-
þrota. DV greindi frá þessu gjald-
þroti þann 10. júlí síðastliðinn og
sagði Karl, þegar hann var spurð-
ur hvað hafi farið úrskeiðis: „Það
fór allt fjandans til og fátt við því
að gera. En við erum vonandi að
horfa fram til bjartari daga.“
„Lágkúruleg að-
för og ósannindi“
„Viðtalið er það rætið í minn garð
og fullt af rangfærslum, að það
er fyrir neðan mína virðingu að
svara því efnislega,“ segir Ólaf-
ur F. Magnússon fyrrum borgar-
stjóri um viðtal sem Nýtt Líf birtir
við Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins.
Þorbjörg Helga segir í viðtalinu
að Sjálfstæðismenn hefðu notfært
sér Ólaf þegar hann var skipaður
borgarstjóri í kjölfar REI-málsins
árið 2008.
„Ólafur F. var veikur maður og
það vissu allir. Allir borgarfulltrú-
ar misnotuðu aðstæður hans en
við í Sjálfstæðisflokknum geng-
um skrefinu lengra en hinir með
því að bjóða honum borgarstjóra-
stólinn,“ segir Þorbjörg í viðtalinu.
Ólafur segir Þorbjörgu fara
með ósannindi: „Ég lýsi skömm
minni og vanþóknun á Þorbjörgu
Helgu Vigfúsdóttur borgarfulltrúa,
fyrir þessa lágkúrulegu aðför og
ósannindi,“ segir Ólafur í samtali
við DV.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
fyrrum borgarfulltrúi og sam-
starfsmaður Ólafs í borgarstjórn
kom Ólafi til varnar í fréttatil-
kynningu sem hann sendi frá sér
á fimmtudag. Þar sagði hann að
Ólafur hafi verið starfandi sem
læknir þegar hann var skipaður
borgarstjóri og þykir honum því
fráleitt að tala um Ólaf sem „veik-
an mann“.