Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Side 4
Mikil tengsl Erlendur Hjaltason var bæði
stjórnarformaður sparisjóðsins og forstjóri
Exista. Hann sést hér ásamt Guðmundi
Haukssyni, forstjóra Sparisjóðsins, Ágústi
Guðmundssyni, stærsta hluthafa Exista og
Sigurði Valtýssyni, hinum forstjóra Exista.
4 Fréttir 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
„Misnotkun á valdi“
n Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir um Ólaf F. Magnússon
Þ
að var misnotkun á valdi að
gera Ólaf F. Magnússon að
borgar stjóra, segir Þorbjörg
Helga Vigfús dóttir, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins. Hún segist
enn skammast sín fyrir að hafa tek-
ið þátt í að gera hann að borgarstjóra
í Reykjavík á sínum tíma. Frá þessu
var greint í viðtali við Nýtt Líf, en
þar segir Þorbjörg Helga að borgar-
stjórnarflokkurinn hafi talið sig vera
að vinna þjóðþrifamál.
„Þegar það gerðist vorum við borg-
arfulltrúarnir sárir eftir REI-málið. Í
því máli tókum við sannfæringuna
fram fyrir liðsheild og við töldum okk-
ur vera að vinna þjóðþrifamál, með
því að stöðva yfirvald sem ætlaði að
keyra málin í gegn. Þess vegna þótti
okkur gríðarlega ósanngjarnt að missa
meirihlutann í kjölfarið. Ólafur F. var
veikur maður og það vissu allir. Allir
borgarfulltrúar misnotuðu aðstæður
hans en við í Sjálfstæðisflokknum
geng um skrefinu lengra en hinir með
því að bjóða honum borgar stjóra-
stólinn,“ segir Þorbjörg.
Hún segist ekki muna hver það var
sem átti hugmyndina að því að Ólaf-
ur yrði gerður að borgarstjóra, en segir
að sér hafi liðið ömurlega þegar Ólaf-
ur tók við.
„Ég man mjög skýrt eftir því þegar
Ólafur hafði verið borgarstjóri í nokkra
mánuði og einn úr okkar hópi með
þekkingu á geðheilbrigðismálum gekk
inn á fund til okkar borgarfulltrúanna
og sagði okkur fullkomlega meðvirk,“
segir hún og segir að það hafi ekki verið
valdagræðgi, en misnotkun á valdi að
gera hann að borgarstjóra. „Alla vega
misnotkun á valdi, að mínu mati.“ n
S
tjórn Sparisjóðs Reykjavíkur
ákvað að lána eignarhalds-
félaginu Exista tvo milljarða
króna á fundi sínum þann
30. september 2008, einum
degi eftir yfirtöku íslenska ríkisins á
Glitni banka. Þetta herma heimildir
DV. Stjórnarformaður sparisjóðsins á
þessum tíma var Erlendur Hjaltason
sem jafnframt var forstjóri Exista.
Aðrir stjórnarmenn í Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis á þess-
um tíma voru Rannveig Rist, for-
stjóri Alcan á Íslandi, Rannveig Guð-
mundsdóttir, forstjóri Icepharma,
Ari Bergmann Einarsson athafna-
maður og Jóhann Ásgeir Baldurs,
fyrrverandi forstjóri Vátryggingafé-
lags Íslands. Heimildir DV herma
að umrædd ákvörðun um lán-
veitinguna hafi verið til skoðunar hjá
eftirlitsaðilum á Íslandi.
Lánveiting til 30 daga
Jóhann Ásgeir Baldurs segir að lán-
veitingin hafi verið talin traust á
þeim tíma sem hún var veitt. Hann
segir að gengið hafi verið frá lán-
veitingunni til Exista eftir að stjórn-
in samþykkti hana. „Þetta var talinn
vera góður kostur; góð lánveiting.“
Hann segir að lánveitinguna hafi
borið þannig að að stjórnendur
sparisjóðsins hafi kynnt lánið fyrir
stjórninni og að hann reki ekki minni
til þess að Erlendur Hjaltason hafi ýtt
sérstaklega á eftir lánveitingunni. Jó-
hann Ásgeir segir að lánið hafi verið
til skamms tíma, 30 daga. „Það sem
var byggt á var að þetta væri traust
lánveiting, innan við eitt prósent af
eigin fé Exista á þessum tíma og fjár-
hagsstaða félagsins traust. Þetta var
allt gert í góðri trú og gert með hags-
muni sparisjóðsins að leiðarljósi.“
Níu dögum eftir að stjórn SPRON
ákvað að veita Exista lánið var Kaup-
þing yfirtekið af Fjármálaeftirlitinu
en hlutabréf Exista í bankanum voru
stærsta og verðmætasta eign Exista.
Neita að tjá sig
Aðrir stjórnarmenn í sparisjóðnum
en Jóhann Ásgeir Baldurs neita að
tjá sig um málið.
Erlendur Hjaltason neitar að-
spurður að tjá sig um málið þegar
DV hefur samband við hann. „Ég
ætla ekki að tjá mig um þetta mál,
ég vil það ekki.“ Aðspurður af hverju
hann vilji ekki tjá sig um þessa lán-
veitingu segir Erlendur: „Ég bara tjái
mig ekki neitt um þau mál.“
Rannveig Guðmundsdóttir neitar
einnig að tjá sig um málið í samtali
við DV. „Ég ætla ekkert að tjá mig um
þetta mál.“ Aðspurð hvort hún vilji
ekki tjá sig um þetta tiltekna mál eða
bara stjórnarstörf sín almennt segir
Rannveig: „Ég ætla bara ekkert að tjá
mig um mín stjórnarstörf; þau eru
trúnaðarmál.
Ari Bergman Einarsson segist
sömu leiðis heldur ekki ætla að ræða
um lánveitinguna.
DV skildi eftir skilaboð til Rann-
veigar Rist í gegnum upplýsingafull-
trúa Alcan en forstjórinn hafði ekki
samband.
Mikil tengsl
Lánveitingin frá SPRON til Exista á
þessum tíma vekur sérstaka athygli
í ljósi þeirra miklu tengsla sem voru
á milli þessara tveggja félaga á þess-
um tíma. SPRON var einn stærsti
hluthafinn í Exista í gegnum fjár-
festingarfélagið Kistu auk þess sem
Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista,
var stjórnarformaður SPRON. Þá var
Guðmundur Ingi Hauksson, forstjóri
SPRON, fyrrverandi forstjóri Kaup-
þings og einn af stjórnarmönnum
Exista. Í ljósi fjárfestingar SPRON í
Exista hafði sparisjóðurinn gríðar-
lega mikilla hagsmuna að gæta inni í
Exista og valt framtíð sjóðsins raun-
ar á því að Exista stæði af sér íslenska
efnahagshrunið.
DV hefur ekki heimildir fyrir því
hvað orðið hafi um lánið til Exista
eftir að það var veitt. Hins vegar
er afar ólíklegt að það hafi verið
greitt til baka þar sem Kaupþing féll
nokkrum dögum síðar og allar eignir
Exista hrundu í verði. n
Exista fékk milljarða
degi eftir fall Glitnis
n Stjórnarmenn Sparisjóðsins í Reykjavík neita að tjá sig um málið„Ég ætla
ekki
að tjá mig um
þetta mál
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ritstjórnarfulltrúi skrifar ingi@dv.is
Reksturinn
stendur varla
undir sér
„Það eru engar tölur komnar á
hreint, en það er ljóst að reksturinn
er erfiður. Við ætlum að sjá hvernig
júlí og ágúst koma út og meta svo
stöðuna í framhaldinu,“ segir Geir
Kristinn Aðalsteinsson formað-
ur stjórnar Samtaka sveitarfélaga
í Eyjafirði og Þingeyjar sýslum um
rekstur almennings samgangna
á svæðinu. Vikudagur greinir frá
þessu, en Eyþing heldur uppi al-
menningssamgöngum á svæðinu
í samvinnu við Strætó bs. Þá rek-
ur Eyþing einnig áætlunarferðir
á milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Vikudagur greinir frá að heimildir
blaðsins hermi að sveitarfélögin í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslum megi
eiga von á 20 milljóna króna reikn-
ingi vegna taprekstursins og að
reksturinn standi ekki undir sér.
Stal tösku
úr verslun
Héraðsdómur Norðurlands eystra
dæmdi í síðustu viku 28 ára konu
í 30 daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir þjófnað. Konan var sakfelld
fyrir að stela tösku úr verslun á
Glerártorgi á Akureyri í mars síð-
ast liðnum en umrædd taska kost-
aði 14.999 krónur.
Konan neitaði sök fyrir dómi;
sagði að málið væri byggt á mis-
skilningi og hún skildi ekki hvern-
ig taskan hefði komist í vörslu
hennar. Taldi dómari frásögn kon-
unnar ótrúverðuga en hún hefur
auk þess áður gerst sek um þjófn-
að. Dómurinn er skilorðsbundinn
til tveggja ára en auk þess var kon-
unni gert að greiða tæpar 270 þús-
und krónur í málskostnað.
Misnotkun Allir borgarfulltrúar misnot-
uðu aðstæður hans en við í Sjálfstæðis-
flokknum gengum skrefinu lengra, segir
Þorbjörg Helga.