Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Qupperneq 6
6 Fréttir 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
Fleiri flytja heim en í burtu
n Alls bjuggu 323.810 á Íslandi í júní
A
lls bjuggu 323.810 á Íslandi,
162.400 karlar og 161.410
konur, í lok júní á þessu
ári, en landsmönnum fjölg
aði um 880 á síðasta ársfjórðungi.
Á öðrum ársfjórðungi 2013 fædd
ust 1.100 börn, en 500 einstakl
ingar létust. Á höfuðborgarsvæð
inu bjuggu 207.120 manns. Þessar
tölulegu upplýsingar koma frá
Hagstofu Íslands, en áhugavert
er að 270 einstaklingar fluttust
til landsins umfram brottflutta á
sama tímabili. Það vekur athygli,
sérstaklega í ljósi umfjöllunar um
brottflutning Íslendinga á undan
förnum árum.
Aðfluttir einstaklingar með ís
lenskt ríkisfang voru 120 umfram
brottflutta, en aðfluttir erlendir
ríkisborgarar voru 150 fleiri en þeir
sem fluttust frá landinu. Fleiri karl
ar en konur fluttust frá landinu.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkis
borgarar komu frá Danmörku, eða
220. 190 komu frá Noregi og 130 frá
Svíþjóð, eða alls 540 einstaklingar af
740. Pólland var upprunaland flestra
erlendra ríkisborgara en þaðan flutt
ust 300 til landsins af alls 840 er
lendum innflytjendum. Spánn kom
næstur, en þaðan fluttust 45 erlendir
ríkisborgarar til landsins.
Noregur var helsti áfangastað
ur brottfluttra íslenskra ríkisborgara
en þangað fluttust 240 manns á öðr
um ársfjórðungi af 620 alls. Til Dan
merkur og Svíþjóðar fluttust 170 ís
lenskir ríkisborgarar. Af þeim 690
erlendu ríkisborgurum sem fluttust
frá landinu fóru flestir til Póllands,
160 manns. n
Í
slandsbanki hefur lýst nærri sjö
milljarða króna kröfu í þrotabú
Byrs sem stýrt er af slitastjórn.
Frá þessari kröfu er greint á
heimasíðu slitastjórnar Byrs og
er tilkynningin dagsett 15. júlí síðast
liðinn. Orðrétt segir þar: „Íslands
banki hefur lýst kröfu í bú Byrs, sem
stýrt er af slitastjórn, þar sem farið er
fram á endurgreiðslu á hlutabréfun
um í Byr.“
Slitastjórnin seldi helstu eignir
Byrs til Íslandsbanka í nóvember
2011 og rann sparisjóðurinn þá inn
í Íslandsbanka. 88,2 prósenta hlutur
var í eigu slitastjórnar Byrs og 11,8
prósenta hlutur var í eigu íslenska
ríkisins sem einnig seldi sinn hlut.
Kaupverðið var 6,6 milljarðar króna.
Forsenda kröfu Íslandsbanka nú er sú
að eignir Byrs hafi verið verulega of
metnar í bókhaldi sparisjóðsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Ís
landsbanka er krafan gerð af þeirri
einföldu ástæðu að skort hafi á upp
lýsingar um virði eigna Byrs í sölu
ferlinu á sínum tíma. Orðrétt seg
ir í svari bankans í tölvupósti: „Í ljós
hefur komið, að mati Íslandsbanka,
að verulega hafi skort á að sérstakar
ábyrgðaryfirlýsingar og tilteknar upp
lýsingar sem gefnar voru af hálfu selj
enda í kaupsamningi milli aðila og
sem lagðar voru til grundvallar kaup
um á Byr hf. hafi reynst réttar og full
nægjandi. Af þeim sökum hefur Ís
landsbanki lýst kröfu í slitabú Byrs
sparisjóðs.“
Ofmat eignasafnsins
Krafan sem Íslandsbanki hefur lýst í
bú Byrs er hærri en kaupverðið sem
Íslandsbanki greiddi fyrir sparisjóð
inn á sínum tíma. Enda segir líka í
auglýsingu slitastjórnarinnar að um
sé að ræða kröfu um „endurgreiðslu“
á kaupverðinu. Orðrétt segir í tilkynn
ingunni: „Krafan er byggð á því að lán
til viðskiptavina hafi verið verulega
ofmetin í ársreikningum sparisjóðs
ins og að þau hafi ekki verið metin
út frá almennum og viðurkenndum
reglum um endurskoðun. Upphæð
kröfunnar er 6.943 milljónir íslenskra
króna auk vaxta og kostnaðar, og er
henni lýst sem forgangskröfu á móti
skuld Íslandsbanka við Byr sem nem
ur 5.834 milljónum króna, sem greiða
á í nóvember 2014 og 2015.“
Því er um að ræða kröfu um
endurgreiðslu á öllu kaupverði spari
sjóðsins, auk vaxta og þess kostnaður
við innheimtu kröfunnar sem fellur á
Íslandsbanka.
Jón Ásgeir Jóhannesson og
tengdir aðilar stærstir
Miðað við kröfugerð Íslandsbanka
voru útlánamál Byrs í miklum ólestri
fyrir hrun og skort hefur á tilhlýðilega
áhættustýringu innan sjóðsins. Líkt og
fjallað hefur verið um ítarlega í DV, þar
sem blaðið hafði lánabók sparisjóðsins
undir höndum, voru eignarhaldsfélög
í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
viðskiptafélaga hans stærstu skuldar
ar sparisjóðsins Byrs fyrir íslenska
bankahrunið árið 2008. Fjárfestingar
félag Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans,
Gaumur, og tengd félög, skulduðu Byr
til dæmis nærri átta milljarða króna í
nóvember 2008.
Skuldir til þessa félagahóps námu
rúmum 18 prósentum af eiginfjár
grunni Byrs í nóvember 2008. Eigið
fé Byrs nam rúmlega 43 milljörðum
króna í árslok 2007. Samkvæmt reglum
Fjármálaeftirlitsins mega lánveitingar
til einstakra viðskiptavina ekki fara yfir
25 prósent af eiginfjárgrunni fyrirtæk
isins. Félög Jóns Ásgeirs voru því tals
vert undir þessu hámarki.
Óráðsía hjá Byr
Samkvæmt úttekt sem unnin var
á störfum lánanefndar Byrs innan
sparisjóðsins árið 2009, og DV hef
ur greint ítarlega frá, voru umrædd
félög Jóns Ásgeirs og viðskiptafélaga
hans í vanskilum við Byr upp á 4,7
milljarða króna í lok ágúst 2009. Út
tektin var unnin vegna þess að grun
ur lék á að starf áhættunefndar Byrs
hefði ekki verið unnið með eðlileg
um hætti enda kom það á daginn að á
fundum nefndarinnar hafði lítið verið
fjallað um þá skuldara sparisjóðsins
sem líklegt þótti að þyrfti að afskrifa
hjá. Hlutverk áhættunefndarinnar var
hins vegar meðal annars að „fjalla um
skuldbindingar sem eru í tapsáhættu
og vísað hefur verið til sérmeðferð
ar“ líkt og segir í úttektinni. Miklir
vankantar virðast hafa verið á starfi
þessarar nefndar innan Byrs og virð
ist ekki hafa verið gætt að hagsmun
um Byrs í starfi hennar. Þetta sést til
dæmis þegar litið er til þess að lítið
virðist hafa verið gert til að tryggja
stöðu sparisjóðsins vegna lána sem
námu á fimmta milljarð króna.
Óráðsían sem virðist sannarlega
hafa einkennt útlánamálin hjá Byr
endurspeglast svo aftur í því að nú
virðist sem Íslandsbanki hafi áttað
sig á því að verulegur vafi leikur á því
að hægt sé að endurheimta mikið af
þeim fjármunum sem voru lánaðir út
til viðskiptavina bankans. n
n Íslandsbanki lýsir nærri sjö milljarða króna kröfu í bú Byrs
Vill endurgreiðslu út
af ofmetnum eignum
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ritstjórnarfulltrúi skrifar ingi@dv.is
Stærstur Félög tengd Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni voru stærstu skuldarar Byrs fyrir
hrun.
Sparisjóðsstjórarnir Þeir Ragnar Z. Guðjóns-
son og Magnús Ægir Magnússon voru sparisjóðs-
stjórar Byrs – Magnús lét af störfum í nóvember
2008 en Ragnar Z. síðar. Eignasafn sparisjóðsins
er lítils virði ef marka má kröfugerð Íslandsbanka.
Snúa frá Norðurlöndum Flestir koma
heim frá Danmörku samkvæmt Hagstof-
unni.
Leyfa veiðar
á lunda
Lundaveiði verður leyfð í Vest
mannaeyjum dagana 19.–23.
júlí. Umhverfis og skipulags
ráð Vestmannaeyja lagði þetta til
á fundi sínum á miðvikudag og
bæjarstjórn samþykkti tillöguna
á fimmtudag. Í bókun umhverfis
og skipulagsráðs kemur fram að
ákvörðunin sé tekin með hliðsjón
af ástandi stofnsins síðast liðin ár
og þeim mikilvæga menningar
lega þætti sem lundaveiði er í
sögu Vestmannaeyja. Síðast liðin
tvö ár hefur engin lundaveiði ver
ið heimiluð í Vestmannaeyjum
að frumkvæði bæjaryfirvalda en
árin þar á undan voru verulegar
hömlur settar á veiði eins og gert
er í ár. Kristín Jóhannsdóttir, full
trúi Vestmannaeyjalistans, er ósátt
með ákvörðunina eins og sést í
bókun sem hún lagði fram á fundi
umhverfis og skipulagsráðs á
miðvikudag. „Undirrituð harmar
áætlanir um að hefja lundaveið
ar að nýju. Ég treysti mati sér
fræðinga sem og einstaka fulltrúa
bjargveiðimanna, sem segja stöðu
lundastofnsins ekki bjóða upp á
lundaveiðar í bráð.“
Ökumenn til
fyrirmyndar
Nær allir ökumenn voru til fyrir
myndar þegar lögreglan var við
hraðamælingar í Auðbrekku í
Kópavogi á föstudag og á Hjalla
braut í Hafnarfirði á fimmtudag
í síðustu viku. í Auðbrekku var
fylgst með ökutækjum sem var
ekið í vesturátt. Á einni klukku
stund, um hádegisbil, fóru 99
ökutæki þessa akstursleið og
var þeim öllum nema tveimur
ekið á löglegum hraða, en þarna
er 50 kílómetra hámarkshraði.
Hinir brotlegu mældust á 61 og
62 kílómetra hraða.
Í Hafnarfirði var fylgst með
ökutækjum sem var ekið Hjalla
braut í vesturátt, að Breiðvangi.
Á einni klukkustund og tuttugu
mínútum, fyrir hádegi, fóru 162
ökutæki þessa akstursleið og
var þeim öllum nema tveim
ur ekið á löglegum hraða, en
þarna, líkt og í Auðbrekku, er 50
kílómetra hámarkshraði. Hin
ir brotlegu mældust á 61 og 63
kílómetra hraða. Vöktun lög
reglunnar á fyrrgreindum stöð
um eru liður í umferðareftirliti
hennar á höfuðborgarsvæðinu,
en ábendingar höfðu borist um
hraðakstur á þessum stöðum.