Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Qupperneq 8
8 Fréttir 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
Fóru 13 milljarða fram yfir
n Þriðjungur fjárliða fram úr fjárheimildum
R
íkisendurskoðun skilaði Al
þingi skýrslu um framkvæmd
fjárlaga fyrir árið 2012 á mánu
daginn. Þar kemur fram að
ríkis sjóður hafi verið rekin með 40
milljarða króna halla árið 2012. Fóru
142 liðir af 435 fram úr fjárheim
ildum sem nam alls 13 milljörðum
króna.
Þá er þess einnig getið að nokkrar
ríkisstofnanir hafi farið fram úr fjár
heimildum sínum ár eftir ár án þess
að við því hafi verið brugðist. Óskar
Ríkisendurskoðun eftir því að fjár
laganefnd kalli eftir svörum viðkom
andi ráðherra um hvernig og hvenær
fjármálastjórn þessara aðila verði
komið í lag.
Um er að ræða Landbúnaðarhá
skóla Íslands, Háskólann á Hólum,
Flensborgarskóla í Hafnarfirði, Sýslu
manninn í Borgarnesi, Sýslumanninn
á Selfossi, Heilbrigðisstofnun Austur
lands, Heilbrigðisstofnun Suður
lands og Heilbrigðisstofnunina í Vest
mannaeyjum.
Segir í skýrslunni að það valdi
Ríkisendurskoðun vonbrigðum
hversu margir fjárhagsliðir hafi far
ið fram úr fjárlögum og ekki hafi tek
ist nógu vel að viðhalda þeim aga í
fjárlagaframkvæmd sem hafi verið
innleiddur í kjölfar bankahrunsins í
október 2008.
Þá kemur fram í skýrslu Ríkis
endurskoðunar að embætti sérstaks
saksóknara hafi verið 887 milljónum
króna undir fjárheimild á árinu en
þar af nam ónýtt fjárheimild vegna
fyrra árs 416 milljónum króna.
Hefur Ríkisendurskoðun áður
bent á það í skýrslu að huga gæti
þurft að forsendum fjárveitinga til
embættisins í ljósi mikils rekstrar
afgangs og þess að verkefni við rann
sókn sakamála í tengslum við banka
hrunið 2008 og tengd mál hljóti að
dragast saman.
Þá var Fjármálaeftirlitið 631 millj
ón króna undir fjárheimild árið 2012
en þar af námu 334 milljónir króna
vegna ónýttra fjárheimilda frá fyrra
ári. Kostnaður FME er að tveimur
þriðja hluta fjármagnaður með sér
stöku eftirlitsgjaldi sem fjármála
stofnanir greiða. Í fjárlögum fyrir árið
2013 voru fjárveitingar til Fjármála
eftirlitsins ákveðnar 1.818 milljónir
króna. n as@dv.is
Miklir fjármunir Sömu stofnanirnar fara
ítrekað fram úr fjárlögum.
Vilja ræða við
stúlkurnar
Lögreglan á Suðurnesjum lýsti
á miðvikudag eftir tveimur kon
um sem þeir telja að séu mögu
leg vitni í nauðgunarmáli. Það
var aðfaranótt sunnudagsins 30.
júní síðast liðinn sem konurn
ar óku ungri konu heim eftir að
hún óskaði eftir því. Konurnar
voru að öllum líkindum á bláleit
um fjögurra dyra smábíl og aft
an í honum var barnastóll eða
barnasæti. Bifreiðin var kyrr
stæð, ofarlega á Hafnargötu, þegar
stúlka kom að og bað um að sér
yrði ekið heim og urðu þær við
því. Stúlkurnar munu hafa ver
ið frá höfuðborgarsvæðinu eða á
leiðinni þangað, og eru þær beðn
ar um að hafa samband við lög
regluna á Suðurnesjum, sem þarf
nauðsynlega að ná tali af þeim.
Google Maps
á Íslandi
Gera má ráð fyrir að Google
Streetview muni bráðlega inni
halda myndir af götum á Íslandi
því frést hefur að Google bíll sé á
leið til landsins með Norrænu til
að mynda götur landsins. Eigandi
iStore á Íslandi greinir frá þessu,
en hann var um borð í Norrænu
og náði mynd af bílnum á leið
um borð. Google mun ferðast á
næstu 1–2 mánuðum um Ísland
til að kortleggja allar götur og vegi
landsins fyrir Google Streetview,
segir á vef iStore, en bíllinn er
að koma frá Danmörku. Eigandi
iStore bendir á að ekki sé úr vegi
að laga til í görðum og á götum
til að myndirnar verði sómasam
legar.
Frisbí-golfvöllur
slær í gegn
Frisbígolf, eða Folf, nýtur vaxandi
vinsælda hjá landanum að því er
Reykjavíkurborg greinir frá. Tvo
ár eru síðan settur var upp frisbí
golfvöllur á Klambratúni og hefur
hann reynst mjög vinsæll og notk
un hans hefur slegið öll met það
sem af er sumri, þrátt fyrir veður
far í höfuðborginni. Ekki líður sá
dagur að ekki sé einhver að spila
á vellinum. Frisbígolf er spilað
með frisbídiskum og takmarkið
er að kasta diskunum í sérhannað
ar körfur í sem fæstum skotum. Á
landinu eru núna sex sérhannað
ir vellir og víðar er hægt að finna
körfur – en auk Klambratúns er í
Reykjavík hægt að spila í Gufunesi
í Grafarvogi.
H
eildarkostnaður íslenska
ríkisins við rekstur sjö há
skóla í landinu er rúm
lega 16,1 milljarður króna
á hverju ári. Niðurskurð
arhópur ríkisstjórnarinnar fer nú
yfir mögulegar niðurskurðaraðgerð
ir í ríkisfjármálum og er háskóla
kerfið meðal þeirra kostnaðarliða
sem horft er til. Vigdís Hauksdóttir,
þingkona Framsóknarflokksins sem
á sæti í hópnum, hefur raunar sagt
að „allt“ sé undir í niðurskurðarað
gerðunum. Niðurskurðarhópurinn
fundaði á fimmtudaginn.
Sameining stærstu skólanna
Sameining háskóla hefur oftsinnis
verið rædd á Íslandi á liðnum árum
og er ekki ólíklegt að komi til slíkra
sameininga á næstunni. Til að
mynda sagði Katrín Jakobsdóttir,
menntamálaráðherra síðustu ríkis
stjórnar, að hún væri ekki mótfallin
því að sameining Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík yrði skoðuð.
Háskólinn í Reykjavík er sá skóli sem
fær næst hæst fjárframlög frá ríkinu,
rúmlega 2,1 milljarða króna en Há
skóli Íslands fær langhæsta framlag
ið, rúmlega 10,4 milljarða. „Ég myndi
ekki leggjast gegn því að þessir skól
ar ræddu saman um sameiningu
en þá yrði að fella niður skólagjöld.
Mér finnst hins vegar tvennt mjög
mikilvægt og það er að skólarnir eru
sjálfstæðar stofnanir og hins vegar
að íslenskir háskólar eru undirfjár
magnaðir ef við skoðum alþjóðlegan
samanburð og hafa verið það árum
saman. Þar myndi ég vilja byggja upp
þannig að við kæmumst á par við til
dæmis meðaltal OECD ríkja,“ sagði
Katrín.
Katrín skipaði nefnd á liðnu kjör
tímabili, að tillögu allsherjar og
menntamálanefndar Alþingis, sem
ætlað var að gera úttekt á hagkvæmni
samstarfs eða sameiningarkosta há
skóla og sýnir sú viðleitni að svo
virðist sem nokkur vilji sé til slíkra
sameininga hjá íslenskum stjórn
málamönnum.
DV sendi fyrirspurn um skoðan
ir núverandi menntamálaráðherra
Illuga Gunnarssonar á hugsanlegri
sameiningu háskóla á Íslandi. Ill
ugi hafði ekki svarað fyrirspurninni
þegar blaðið fór í prentun.
Tveir skólar ítrekað gagnrýndir
Tveir af háskólunum hafa ítrek
að verið gagnrýndir fyrir óráðsíu í
rekstri á liðnum árum. Þessir tveir
skólar eru Hólaskóli og Háskólinn á
Bifröst.
Ríkisendurskoðun vann skýrslu
um starfsemi Hólaskóla þar sem bent
var á uppsafnaðan hallarekstur skól
ans og mikilvægi þess að mennta
málaráðuneytið myndi finna lausn
á rekstrarvanda skólans og erfiðleik
um hans. „Uppsafnaður rekstrarhalli
skólans nam engu að síður 76 m. kr.
í árslok 2010 og heildarskuldir voru
207 m .kr., þar af var skuld við ríkis
sjóð 178 m .kr. Ríkisendurskoðun tel
ur brýnt að Hólaskóli og mennta og
menningarmálaráðuneyti finni var
anlega lausn á þessum vanda.“
Þá sagði í breytingum á fjárlög
um ársins 2013, þar sem Háskólinn
á Bifröst fékk viðbótarframlag úr rík
issjóði, að framtíð skólans myndi
væntanlega ráðast í ljósi þeirr
ar niðurstöðu sem nefnd um sam
einingu háskóla kæmist að. Orðrétt
sagði í fjárlagafrumvarpinu þar sem
Háskólinn á Bifröst fékk fyrirgreiðsl
una: „Skilyrði þessarar fyrirgreiðslu
er að Háskólinn á Bifröst leggi fram
trúverðuga áætlun um að hann geti
tryggt nægilegan nemendafjölda til
að skólinn verði starfhæfur, til dæmis
með sameiningu við aðrar háskóla
stofnanir. Gera má ráð fyrir að gerðar
verði tillögur um framhald og fyrir
komulag skólahalds á Bifröst af hálfu
lögskipaðrar nefndar um úttekt á há
skólastiginu.“
Ljóst er því að nokkurt tilefni er
til niðurskurðar í háskólakerfinu
og mun hópur Vigdísar örugglega
horfa til háskólakerfisins í vinnu
sinni. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ritstjórnarfulltrúi skrifar ingi@dv.is
Kostnaður
Kostnaður ríkisins við háskólana
Háskóli Íslands 10,426 milljarðar
Háskólinn í Reykjavík 2,122 milljarðar
Háskólinn á Akureyri 1,471 milljarðar
Listaháskóli Íslands 794 milljónir
Landbúnaðarháskólinn 629 milljónir
Háskólinn á Bifröst 358 milljónir
Hólaskóli 302 milljónir
Alls: 16,102 milljarðar
*HeiMild fjárlög árSinS 2013
Kostnaður við háskóla
er rúmir 16 milljarðar
n Tveir skólanna ítrekað gagnrýndir fyrir rekstur sinn á síðustu árum„Ég myndi ekki
leggjast gegn því
að þessir skólar ræddu
saman um sameiningu.
lagst yfir niðurskurðinn Vigdís
Hauksdóttir er í niðurskurðarhópi
ríkisstjórnarinnar sem mun skoða
niðurskurðaraðgerðir hjá ríkinu.