Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Side 10
10 Fréttir 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
E
ins og DV greindi frá síðasta
sumar stíuðu forsvarsmenn
Sólheima trúlofuðu pari, Úlf-
hildi Stefánsdóttur og Magn-
úsi Helga Vigfússyni, í sund-
ur árið 2011. „Ég myndi fórna lífi
mínu fyrir að fá að vera með hon-
um, þó það væri annars staðar en í
þessu jarðlífi,“ sagði Úlfhildur – Úlla
– meðal annars í samtali við DV, þar
sem hún kvartaði sáran undan að-
skilnaðinum. Án unnustans væri líf-
ið tómt og innihaldslaust. „Ég mæti
í vinnuna og fer svo heim til mín
og hef ekkert að gera. Svo fer ég að
sofa,“ sagði Úlfhildur og Magnús –
Maggi – tók í sama streng. „Líf mitt
er ein rjúkandi rúst; ég hef ekkert fyr-
ir stafni. Ég geri ekkert annað en að
vera í tölvunni – búið.“
Nú, rúmu ári síðar, er ást þeirra
enn í meinum. „Það á bara að banna
okkur að vera saman,“ segir Úlla um
stöðu mála í dag. Hún segir afstöðu
forsvarsmanna Sólheima ekkert hafa
breyst og hún hafi ekki einu sinni
verið kölluð á fund til að ræða mál-
in. „Það er bara lokað á okkur og þau
vilja ekki einu sinni tala við mig og
okkur um málið.“
Gerður brottrækur
Úlla og Maggi felldu hugi saman árið
2005, eftir að hafa kynnst á Sólheim-
um. Í kjölfarið flutti Maggi inn í íbúð
Úllu og þau trúlofuðust ári síðar.
Árið 2011 tók Magnús Olís-kort Sól-
heima ófrjálsri hendi og dældi bens-
íni á bíl sinn fyrir samtals 125.000
krónur. Þjófnaðurinn dró dilk á eft-
ir sér. Auk þess að reka hann úr íbúð
sinni kærðu stjórnendur Sólheima
Magnús, sem hlaut í kjölfarið tveggja
ára skilorðsbundinn fangelsisdóm
og sekt. „Ég hafði átt í fjárhagserfið-
leikum. Þú trúir ekki hvað ég sé mik-
ið eftir þessu; ég er miður mín. Ég
missti ekki bara ástina mína, held-
ur einnig marga bestu vini mína; ég
missti líf mitt!“ sagði Magnús full-
ur iðrunar í samtali við DV. Þann 27.
maí var hann kallaður á fund og, að
eigin sögn, sagt að hypja sig á brott.
Síðan þá hefur parið verið aðskilið.
Tilboð framkvæmdastjórans
Guðmundur Ármann Pétursson,
fram kvæmdastjóri Sólheima, lét ekki
ná í sig þegar blaðamaður skoðaði
mál parsins í fyrra, þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir í marga daga. Ástæð-
una má hugsanlega rekja til þess sem
Magnús sagði um samskipti þeirra
tveggja eftir ofannefndan stuld.
Magnús sagði að Guðmundur hafi
boðið sér til fundar við hann á kaffi-
húsi á Selfossi. Þar hafi Guðmund-
ur reynt að gera samkomulag þess
efnis að Sólheimar myndu fella nið-
ur bensínskuldina gegn því að hann
sliti öllum samskiptum við Úlfhildi.
„Hann hélt að samband okkar væri
ekki meira virði en 125 þúsund kall,“
sagði Magnús í fyrra.
Blaðamaður náði tali af Guð-
mundi í þetta skiptið. Aðspurður
hvort hann hafi boðið Magnúsi fyrr-
greindan samning segir hann: „Ég
hef ekkert um málið að segja. Bara no
comment.“ Guðmundur vildi heldur
ekki svara því hvers vegna parið fær
ekki að vera saman. „Einstaklings-
mál eru ekki blaðamál.“
Fær aðstoð
„Þeim finnst að við eigum ekki að
vera saman,“ segir ÚIla sem hefur
ekki hitt unnusta sinn, sem nú býr
á Selfossi, í tæplega tvo mánuði. „Ég
hitti hann síðast í lok maí eða byrjun
júní,“ segir hún og bætir við að hún
sakni hans og ætli að gera allt sem í
hennar valdi stendur til að þau geti
verið saman á ný. „Ég er að vinna í
því að fá að hitta hann. Þau vilja bara
ekkert ræða þetta við mig. Ég er bú-
inn að tala við réttindagæslumann
fatlaðra og vonandi getur hann
hjálpað mér.“
Sigrún Jersey Sigurðardóttir er
réttinda gæslumaður fatlaðs fólks á
Suðurlandi. Hún hefur verið að vinna
í máli Úlfhildar frá því að hún hóf störf
sem réttindagæslumaður fyrir um ári
síðan. „Ég kom sem stuðningsaðili
hennar inn í þetta mál,“ segir Sigrún
sem tekur fram að vegna eðlis starfs
síns megi hún ekki úttala sig um mál
skjólstæðinga sinna. „Það er alveg
skýrt í lögum og reglugerðum hvern-
ig við komum að málum þar sem ver-
ið er að brjóta á réttindum fatlaðra
einstaklinga. Við erum þeirra tals-
maður og stöndum með þeim við að
leita réttar síns.“ Þrátt fyrir að hafa ver-
ið að vinna í málinu frá því að hún hóf
störf hillir ekki undir lok þess. „Þetta
mál er í raun og vera bara á vinnslu-
stigi.“
Á meðan er Úlla ein á Sólheim-
um og vinnur í versluninni á staðn-
um. Aðspurð hvernig henni líði þar án
Magga segir hún: „Ekki nógu vel.“ n
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Hafa ekki Hist
í tvo mánuði
n Ást Magga og Úllu enn í meinum n Fá ekki að vera saman á Sólheimum„Þeim finnst að
við eigum ekki að
vera saman.
18. júlí 2012
Trúlofuð og ástfangin Úlla og Maggi felldu hugi
saman árið 2005. Þau voru rifin hvort frá öðru árið
2011. Úlla hefur leitað á náðir réttindagæslumanns
fatlaðs fólks, sem vinnur í málinu fyrir hennar hönd.
Fasteignaverð
svipað og 2004
Fasteignaverð í landinu er nú á
svipuðum slóðum og raunin var
árið 2004 eða áður en Íbúðalána-
sjóður og bankarnir stórjuku fast-
eignalán sín með þeim afleiðing-
um að fasteignaverð tók mikinn
kipp upp á við. Magnús Árni
Skúlason, hagfræðingur, segir að
jafnvægi sé að nást á markaðnum
og nú verði að gæta þess að bólu-
myndun hefjist ekki á nýjan leik.
Hætta er sögð á slíku vegna gjald-
eyrishaftanna sem gera að verkum
að fjárfestar og lífeyrissjóðir hafa
ekki marga betri kosti en festa
peninga sína í fasteignum. Slíkar
fjárfestingar skili ávöxtun og hafi
næg áhrif á verð til að bóla geti
myndast.
Bretar nískir
Samkvæmt tölum frá fyrirtækinu
Global Blue eru það kínverskir
ferðamenn sem eyða mestum fjár-
munum í verslunum hér á landi.
Þeir kaupa ekki mikið í einu en
yfirleitt dýrari hluti en aðrir ferða-
menn. Það stemmir við það sem
gerist annars staðar í Evrópu en
Kínverjar hafa síðustu árin eytt
allra mest ferðamanna á Ítalíu og
í Þýskalandi og Danmörku sam-
kvæmt opinberum tölum. Þar á
eftir koma ferðamenn frá Mið-
Austurlöndum en þeir eru enn
sem komið er sjaldséðir hér á
landi. Kaupmenn kvarta þó yfir að
Bretar, sem að frátöldum Banda-
ríkjamönnum eru fjölmennastir
ferðamanna hér, halda að sér
höndum í innkaupum á landinu.
Mun færri
skjálftar
Verulega dró úr skjá lftavirkni á
landinu í júní eftir æði viðburða-
ríka mánuði á undan. Alls mældi
Veðurstofa Íslands rúmlega eitt
þúsund skjálfta á landinu öllu en
enginn þeirra var sérstaklega öfl-
ugur. Sá stærsti varð suðaustur af
Flatey á Skjálfanda en sá mæld-
ist 2.8 á Richter-skalanum. Til
saman burðar urðu yfir 1.600
skjálftar í maímánuði og um 2.500
skjálftar mældust í apríl. Mesta
skjálftahrinan varð skammt frá
Grímsey í aprílmánuði og fannst
hún víða á Norðurlandi en stærsti
einstaki skjálftinn í þeirri hrinu
var 5.5 að stærð.