Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Page 16
16 Fréttir 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
Áhöfnin ákærð
n Yfirvöld í Panama og Norður-Kóreu í hart n Vopnabúr í skipinu
Y
firvöld í Panama hafa ákært
áhöfn skips frá Norður-
Kóreu eftir að 240 tonn af
vopnabúnaði fannst um
borð. Javier Caraballo saksóknari
segir að með háttsemi sinni hafi
áhöfnin stefnt saklausum borgur-
um í hættu. Skipið sem um ræð-
ir var á leið frá Kúbu til Norður-
Kóreu, en vopnabúnaðurinn var
vandlega falinn undir tíu þúsund
tonna farmi af sykri. Ákæran var
gefin út aðeins örfáum klukku-
stundum eftir að yfirvöld í Norður-
Kóreu beindu þeim tilmælum til
stjórnvalda í Panama að leyfa skip-
inu – og áhöfn þess – að halda leið
sinni áfram til Norður-Kóreu.
Yfirvöld í Panama hafa beðið
fulltrúa Sameinuðu þjóðanna
að fara ofan í saumana á mál-
inu. Yfir völd á Kúbu hafa gef-
ið það út að vopnin hafi ver-
ið í eigu þeirra, þau væru gömul
og þörfnuðust viðgerðar í Norð-
ur-Kóreu. Norður-Kóreumenn
hafa sætt viðskiptaþvingunum
vegna kjarnorku áætlunar sinnar
og vegna þess er ólöglegt að selja
vopn til Pyongyang. Samkvæmt
farmskrá skipsins áttu einung-
is tíu þúsund tonn af sykri að vera
um borð og hvergi var minnst á
að vopn væru um borð. Caraballo
segir að áhöfn skipsins hafi verið
þögul eftir að skipið var stöðvað í
síðustu viku, en ekki var greint frá
málavöxtum fyrr en á miðvikudag.
Áhöfnin verður í haldi að minnsta
kosti þar til búið verður að af-
ferma skipið en sú vinna er sögð
vera flókin og tímafrek vegna þess
hversu vel vopnin voru falin.
Fulltrúi í utanríkisráðuneyti
Norður-Kóreu segir að ekkert
óeðlilegt hafi verið við vopnaflutn-
inginn. Fulltrúar frá öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna eru væntan-
legir til Panama þar sem vopnin
verða skoðuð nánar. n
A
ð minnsta kosti 22 börn
eru látin og tugir illa haldin
eftir að hafa borðað eitr-
aða skólamáltíð í bænum
Dharmasati Gandaman á
Indlandi. Kokkur skólans lést einnig
en bærinn er staðsettur á Austur-
Indlandi í héraðinu Bihar.
Gríðarleg reiði greip um sig á
meðal íbúa í bænum en eitrunin átti
sér stað þegar börnin borðuðu fría
máltíð á vegum skólans sem er ætl-
að að bæta mætingu og auka ein-
beitingu barnanna við skólastarfið.
Mikil mótmæli brutust út og kveikt
var í fjórum lögreglubílum, rútum
og fleiri farartækjum. Mótmælendur
köstuðu grjóti að lögreglu en sorgin í
bænum er mikil.
Fleiri gætu dáið
Allt bendir til þess að um fosfór-
mengun hafi verið að ræða en lækn-
ar sem rannsaka atburðinn telja lík-
legt að menguð jurtaolía eða mengað
grænmeti sé orsökin. Gæti efnið hafa
borist í grænmetið með skordýraeitri
en að sögn lækna geta smáir skammt-
ar verið banvænir og sérstaklega fyrir
börn. Formleg rannsókn á atburðin-
um er hafin en fjölskyldum fórnar-
lambanna hefur einnig verið lof-
að skaðabótum að upphæð 400.000
króna. Yfirmaður menntamála í hér-
aðinu segir að ekki sé búið að útiloka
hvort um slys var að ræða eða ekki.
Að minnsta kosti 47 börn, öll
yngri en 12 ára, veiktust eftir máltíð-
ina á þriðjudag en þar af er 22 látin
og líklegt þykir að fleiri deyi þar sem
mörg þeirra eru alvarlega veik. Fað-
ir drengs sem veiktist sagði í sam-
tali við BBC að sonur sinn hefði ælt
linnulaust eftir að hann kom heim úr
skólanum.
Ekkert eftirlit
Bihar er eitt fátækasta og fjölmenn-
asta hérað Indlands en máltíðin
sem börnin átu kallast Miðdagsmál-
tíðin og er ríkisstyrkt verkefni. Það
er stærsta skólamatarprógramm í
heiminum og meira en 120 milljón-
ir barna á Indlandi nærast á hverj-
um degi í gegnum það. Ekkert gæða-
eftirlit er með matnum í Bihar-héraði
að sögn yfirmanns menntamála en
heimamenn segja hreinlæti ábóta-
vant og að þetta sé ekki í fyrsta skipti
sem börn veikist eftir að hafa borðað
í skólum héraðsins.
Það hefur reynst yfirvöldum í hér-
aðinu ofviða að sinna gæðaeftirliti
þar sem í héraðinu einu og sér er
verið að fæða 20 milljón börn dag-
lega og margir skólar séu á mjög af-
skekktum stöðum.
Margar fjölskyldur treysta á mál-
tíðina enda héraðið eitt það fátæk-
asta og fjölmennasta á Indlandi eins
og áður kom fram. n
Ásgeir Jónsson
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
n Fleiri alvarlega veikir n Ekkert eftirlit með mat sem milljónir borða„Ekkert gæðaeftirlit
er með matnum í
Bihar-héraði að sögn yfir-
manns menntamála en
heimamenn segja hrein-
læti ábótavant.
22 börn létu lífið
eftir skólamáltíð
Fleiri gætu dáið Faðir heldur á syni sínum sem er alvarlega veikur eftir að hafa borðað
eitraðan mat í skólanum.
Mikil sorg
Amma drengs
sem lést
grætur á götum
Dharmasati
Gandaman á
Indlandi.
Bitinn af
snák á
klósettinu
Ísralelskum karlmanni brá heldur
betur í brún þegar hann var bitinn
af snáki þegar hann á klósettinu
á heimili sínu. Maðurinn, sem er
35 ára, segir í samtali við ísraelsku
pressuna að skyndilega hafi hann
fundið sviðatilfinningu í getnaðar-
limi sínum. Þegar honum var litið
ofan í klósettskálina kom hann
auga á snákinn – en taka ber fram
að snákurinn á myndinni hér að
ofan tengist fréttinni ekki. Sem bet-
ur fer var snákurinn ekki eitraður
og því varð manninum ekki meint
af þessari óvenjulegu reynslu.
Hann var þó fluttur á sjúkrahús til
öryggis en var útskrifaður samdæg-
urs. „Ég hef aldrei sinnt svona út-
kalli,“ segir sjúkraflutningamaður
sem aðstoðaði manninn í samtali
við Jewish News.
Pyntaði ást-
mann konunnar
Fjögurra barna faðir í Osló hefur
verið dæmdur í átta og hálfs árs
fangelsi fyrir að pynta, nauðga og
kúga ástmann eiginkonu sinnar.
Í dómnum kemur fram að mað-
urinn hafi komið að eiginkonu
sinni og manninum saman í rúm-
inu. Eiginmaðurinn, sem er 46
ára, virðist hafa brugðist ókvæða
við en hann hélt ástmanninum í
gíslingu í fimmtán klukkustund-
ir. Á meðan á prísundinni stóð
batt hann manninn við rafmagns-
ofn, barði hann með exi og öðrum
áhöldum áður en hann nauðg-
aði honum. Hlutar af árásinni
voru teknir upp á myndband og
sagðist árásarmaðurinn ætla að
senda glefsur úr myndbandinu
til fjölskyldu fórnarlambsins ef
honum yrðu ekki greiddar 10
þúsund krónur norskar, eða 200
þúsund íslenskar krónur. Fórnar-
lamb árásarinnar fær 315 þúsund
norskar krónur í bætur, 6,3 millj-
ónir króna, samkvæmt dómnum.
Mandela
varð 95 ára
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti
Suður-Afríku, varð 95 ára á fimmtu-
dag. Sem kunnugt er liggur Mand-
ela á sjúkrahúsi í Pretóríu þar sem
hann hefur dvalið síðan 8. júní síð-
ast liðinn. Þangað var hann fluttur
vegna alvarlegrar lungnasýkingar
og er ástand hans sagt stöðugt. Há-
tíðarhöld fóru fram í Suður-Afríku í
tilefni afmælisins og voru lands-
menn hvattir til að sinna góðgerðar-
störfum í 67 mínútur, eða eina
mínútu fyrir hvert ár sem Mandela
hefur eytt í pólitíska baráttu. Í yfir-
lýsingu sem Jacob Zuma, forseti
Suður-Afríku, sendi frá sér af til-
efni afmælisins var landsmönnum
þakkað fyrir að standa þétt við bak-
ið á Mandela í veikindum hans.
Vel falið Eins og sést á þessari mynd
voru vopnin vel falin undir um tíu þúsund
tonnum af sykri. Þetta er aðeins brot af
þeim vopnum sem fundust. MYNd REutERs