Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Síða 18
18 Sport 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
50 verðmætustu íþróttafélögin
n Lið úr NFL-deildinni raða sér á topp 20 n Knattspyrnuliðin, með Real Madrid í broddi fylkingar, eru þó verðmætust
R
eal Madrid er verðmætasta íþróttafélag
heims. Þetta kemur fram í niðurstöðum
bandaríska blaðsins Forbes sem birti niður-
stöður sínar yfir 50 verðmætustu íþrótta-
félög heims í vikunni. Það kemur kannski
ekki mikið á óvart að knattspyrnustórveldið frá
Madrid sé verðmætast, enda er félagið það sigur-
sælasta í vinsælustu íþrótt heims. Félagið er nú
metið á 3,3 milljarða Bandaríkjadala, 397 milljarða
króna. Næsta íþróttafélag á listanum er Manchester
United en félagið er metið á 3,17 milljarða dala, 382
milljarða króna. Það sem vekur þó athygli er hversu
vel stæð félögin í bandarísku NFL-deildinni eru
en á topp 20 listanum eru hvorki fleiri né færri en
tólf NFL-lið. Hér að neðan má sjá umfjöllun um 20
verðmætustu íþróttafélög heims í heild sinni.
einar@dv.is
1 Real MadridVirði: 397 milljarðar krónaEigendur: Félagsmenn
Staðreynd Real Madrid endaði í 2. sæti spænsku úr-
valsdeildarinnar í vor og 2. sæti í spænska Konungs-
bikarnum. Þeir náðu þó að vinna einn stóran titil á
árinu og hirtu hann úr höndum Manchester United
– titilinn verðmætasta íþróttafélag heims. Mikil
aukning í tekjum félagsins tímabilið 2011 til 2012 er
helsta ástæða þess að þeir skjótast á toppinn þetta
árið. Félagið landaði góðum auglýsingasamningum
við Adidas og Emirates Airlines sem skila félaginu
10 milljörðum króna í kassann á hverju ári.
2 Manchester UnitedVirði: 382 milljarðar krónaEigendur: Glazer-fjölskyldan
Staðreynd Sir Alex Fergu-
son, knattspyrnu-
stjóri United, hætti
í vor eftir tæp 27 ár
við stjórnvölinn og
kvaddi á góðum
nótum með úrvals-
deildartitli. Sir Alex
á stóran þátt í mikilli
uppbyggingu United
undanfarin ár sem fyrir
löngu er búið að festa sig í
sessi sem eitt verðmætasta íþróttafélag heims. Fé-
lagið landaði nýlega stórum auglýsingasamningi við
bílarisann General Motors sem mun skila félaginu
67 milljörðum króna í tekjur yfir sjö ára tímabil.
3 BarcelonaVirði: 313 milljarðar krónaEigendur: Félagsmenn
Staðreynd Barcelona
er þriðja knattspyrnu-
liðið á topp þrem-
ur. Félagið framleið-
ir unga og efnilega
knattspyrnumenn á
færibandi og það hafa
svo sannarlega mörg lið not-
ið góðs af því. Liðið er það sigursælasta í Evrópu
undanfarinn áratug; það hefur unnið spænsku
deildina sex sinnum og Meistaradeild Evrópu
þrisvar á síðustu 10 árum. Liðið fjárfesti í einum
efnilegasta leikmanni heims í sumar, Brasilíu-
manninum Neymar. Þá gerði félagið treyjusamn-
ing við Qatar Sports Investment sem metinn er á
4,6 milljarða króna á ári næstu þrjú árin.
4 New York YankeesVirði: 277 milljarðar krónaEigendur: Steinbrenner-fjölskyldan
Staðreynd New York
Yankees er langverð-
mætasta hafnarbolta-
félag heims og einnig
það félag sem á flesta
stuðningsmenn. Fé-
lagið hefur tekjur víða
en mestu munar þó um
sterka sjónvarpssamn-
inga sem félagið hefur gert
á undanförnum árum. Þá flutti
liðið á nýjan heimavöll árið 2009 sem tekur 50
þúsund manns í sæti og eru bestu sætin langt frá
því að vera ókeypis.
5 Dallas CowboysVirði: 253 milljarðar krónaEigandi: Jerry Jones
Staðreynd Kúrek-
arnir frá Dallas hafa
verið verðmætasta
félagið í bandarísku
NFL-deildinni síð-
an árið 2007. Félagið
er eitt það vinsælasta í
NFL-deildinni í Banda-
ríkjunum en gengi þess hef-
ur þó ekki verið upp á marga fiska á undanförn-
um árum. Ástæða þess að félagið er svo ofarlega
er meðal annars sú að sæti á heimavöll liðsins,
Cowboys Stadium, eru með þeim dýrustu sem
þekkjast. Þá hefur Jerry Jones landað mjög góðum
auglýsingasamningum sem skapa félaginu mikl-
ar tekjur.
6 New England PatriotsVirði: 197 milljarðar krónaEigandi: Robert Kraft
Staðreynd New England
Patriots á sér tryggan
aðdáendahóp og til
marks um það hefur
verið uppselt á hvern
einasta heimaleik
liðsins síðan félagið
flutti á nýjan heimavöll,
Gillette Stadium, árið
2002. Þá eru yfir 60 þúsund
manns á biðlista eftir ársmiðum.
7 Los Angeles DodgersVirði: 195 milljarðar krónaEigandi: Guggenheim Baseball
Staðreynd Hafnarbolta-
félagið Los Angeles
Dodgers er eitt best
rekna íþróttafélag
heims. Félagið er
nálægt því að landa
ótrúlegum 25 ára
samningi við Time
Warner Cable um
sjónvarpsrétt af leikj-
um liðsins, sem gæti
skilað félaginu yfir þúsund
milljörðum íslenskra króna.
8 Washington RedskinsVirði: 193 milljarðar krónaEigandi: Daniel Snyder
Staðreynd Redskins hef-
ur þrisvar unnið Super
Bowl en það gerðist síð-
ast árið 1991. Í liðinu er
þó ein skærasta stjarna
NFL-deildarinnar, Ro-
bert Griffin, og seljast
treyjur með nafninu hans
að aftan, hraðar en treyj-
ur nokkurs annars leikmanns
deildarinnar.
9 New York GiantsVirði: 177 milljarðar krónaEigendur: John Mara og Steven Tisch
Staðreynd New York Giants
hefur átt góðu gengi að
fagna á undanförnum
árum og unnið Super
Bowl tvisvar á síðustu
fimm árum. Félag-
ið fær miklar tekjur
frá tryggingafélaginu
MetLife en leikvöllur
liðsins, sem það deil-
ir með grönnum sínum í
Jets, heitir MetLife Stadium.
10 ArsenalVirði: 160 milljarðar krónaEigandi: Arsenal Holdings plc
Staðreynd Þó að mörg ár
séu liðin síðan Arsenal
vann titil hefur það
ávallt verið í hópi
efstu liða ensku
úrvalsdeildar-
innar undan-
farin tímabil.
Fá knattspyrn-
ufélög fá jafn
miklar tekjur af
heimavelli sínum
og Arsenal, Emirates
Stadium. Samkvæmt úttekt
Forbes námu tekjur Arsenal af hverjum og einum
heimaleik tímabilið 2011/12, átján milljörðum
króna að meðaltali.
Aníta örugg
Nýkrýndur heimsmeistari 17 ára
og yngri í 800 metra hlaupi, Aníta
Hinriksdóttir, tryggði sér í dag
sæti í úrslitum 800 metra hlaups-
ins á Evrópumeistaramóti 19 ára
og yngri. Mótið fer fram á Ítalíu
en Aníta var með besta tíma allra
keppenda í undanúrslitum.
Aníta hljóp á 2:02,62 mínútum
og var lang fyrst í sínum riðli en Ís-
landsmet hennar er 2:00,49. Aníta
var með mikla yfirburði í hlaupinu
hljóp fyrri hringinn mjög hratt eða
á 57,81 sekúndu.
Aníta á besta skráða tímann af
keppendum í 800 metra hlaup-
inu. Úrslitin fara fram á laugardag
kl. 15:15.
Aníta var í viðtali á heima-
síðu mótsins en þar sagðist
heimsmeistarinn ungi ætla að
setja mun meiri kraft í úrslita-
hlaupið.
Misjafnt
gengi
KR, Breiðablik og ÍBV spiluðu öll
Evrópuleiki á fimmtudagskvöld.
KR tapaði 1–3 á móti belgíska
liðinu Standard Liege í 2. umferð
Evrópudeildar UEFA. KR komst
í 1–0 með marki Kjartans Henry
Finnbogasonar en belgarnir skor-
uðu þrívegis og unnu sannfær-
andi sigur í fyrri leik liðanna. ÍBV
tapaði 2–0 í Belgrad í fyrri leik sín-
um við Rauðu stjörnuna í 2. um-
ferð forkeppni Evrópudeildarinn-
ar. Hermann Hreiðarsson, þjálfari
ÍBV, var í byrjunarliði liðsins en fór
af velli 20 mínútum fyrir leikslok.
Þá gerðu Breiðablik og austurríska
liðið Sturm Graz 0–0 jafntefli í fyrri
leik liðanna í 2. umferð forkeppni
Evrópudeildarinnar. Leikurinn fór
fram í Kópavogi.
Réðst á
hlutkesti
Ísland mætir Svíþjóð í 8 liða úrslit-
um á Evrópumótinu í knattspyrnu
í Svíþjóð. Það réðst á hlutkesti á
fimmtudagskvöld hvaða lið yrði
mótherji Íslands. Þetta var ljóst
eftir að Frakkland vann Eng-
land 3:0 og Spánn og Rússland
gerðu jafntefli, 1:1, í lokaleikjum
C-riðilsins. Því þurfti hlutkesti á
milli Dana og Rússa en svo fór að
heppnin var með Dönum og því
mæta Íslendingar Svíum í 8 liða
úrslitunum. Leikurinn er á sunnu-
dag klukkan 13:00 og verður sýnd-
ur beint á RÚV.