Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Blaðsíða 19
Sport 19Helgarblað 19.–21. júlí 2013
50 verðmætustu íþróttafélögin
n Lið úr NFL-deildinni raða sér á topp 20 n Knattspyrnuliðin, með Real Madrid í broddi fylkingar, eru þó verðmætust
11 Boston Red SoxVirði: 158 milljarðar krónaEigandi: John Henry og Thomas Werner
Staðreynd Fenway Park,
heimavöllur Boston Red
Sox, komst nýlega á
skrá yfir sögulega staði
í Bandaríkjunum, en
hann er rúmlega 100
ára gamall. Þetta gerir
það að verkum að félag-
ið fær veglegan skattaaf-
slátt sem nemur hundruð-
um milljóna á hverju ári. Eigendur félagsins, þeir
Henry og Werner, eru einnig eigendur enska úr-
valsdeildarfélagsins Liverpool.
12 Bayern MunchenVirði: 157,7 milljarðar krónaEigendur: Stuðningsmenn
Staðreynd Bayern
Munchen er óum-
deilanlega besta
knattspyrnufélag
heims og einnig
langtekjuhæsta
knattspyrnulið
Þýskalands. Tekjur
félagsins eru tvöfalt
hærri en hjá næsta
liði á eftir, Borussia
Dortmund.
13 Houston TexansVirði: 157,3 milljarðar krónaEigandi: Robert McNair
Staðreynd Houston Tex-
ans er eitt tekjuhæsta
félag NFL-deildar-
innar, þökk sé 200
lúxussvítum á
heimavelli félags-
ins. Þá eru 8.900
lúxussæti á vellin-
um og saman skapar
þessi lúxus, fyrir vel
stæða stuðningsmenn,
tæpa sex milljarða í kassann
á hverju tímabili. Þá gerði félagið 30 ára samning
við Reliant Energy sem metinn er á 36 milljarða
króna. Heimavöllur félagsins heitir Reliant Stadi-
um.
14 New York JetsVirði: 154 milljarðar krónaEigandi: Robert Wood Johnson IV
Staðreynd Þó svo að
NFL-félagið sé vel statt
hefur engin logn-
molla verið í kring-
um það undanfar-
in misseri. Stjóri
félagsins, Mike
Tannenbaum, var
rekinn í vor eftir
dapurt gengi. Þá var
miðaverð í efstu stúkurn-
ar á heimavelli félagsins, 12
þúsund sæti, lækkað um 52 prósent til að auka
eftirspurn eftir miðum á völlinn.
15 Philadelphia EaglesVirði: 152 milljarðar krónaEigandi: Jeffrey Lurie
Staðreynd Andy Reid
hætti sem stjóri
NFL-liðsins fyr-
ir skemmstu eft-
ir fjórtán ár við
stjórnvölinn, en
hann skilaði fé-
laginu níu sinn-
um í úrslitakeppni.
Félagið hefur fjár-
fest í endurbótum á
heimavelli sínum þar
sem sætum verður fjölgað
verulega.
16 Chicago BearsVirði: 143 milljarðar krónaEigandi: McCaskey-fjölskyldan
Staðreynd Bears
hækkaði miða-
verð á heimavöll
sinn um 9,2 pró-
sent á síðasta
tímabili. Miða-
verð á heima-
völl félagsins er
það fjórða hæsta
í NFL-deildinni
og kostar hver miði
rúmar 13 þúsund
krónur að meðaltali.
17 San Francisco 49ersVirði: 141 milljarður krónaEigendur: Denise DeBartolo York og John York
Staðreynd Fram-
kvæmdir hófust
á síðasta ári við
nýjan heima-
völl í Santa Clara
sem mun kosta
hvorki meira né
minna 130 millj-
arða króna. Þegar
völlurinn opn-
ar verður hann einn
tekjuhæsti íþróttaleik-
vangur Bandaríkjanna.
18 Green Bay PackersVirði: 140 milljarðar krónaEigendur: Stuðningsmenn/hlutafélag
Staðreynd NFL-félagið
Green Bay Packers er
eina stóra íþrótta-
félagið í Banda-
ríkjunum sem
er í eigu stuðn-
ingsmanna. Fé-
lagið safnaði
átta milljörðum
króna í hlutafjárút-
boði á síðasta ári og
verða peningarnir nýtt-
ir í endurbætur á heimavelli
liðsins.
19 Baltimore RavensVirði: 139 milljarðar krónaEigandi: Stephen Bisciotti
Staðreynd Baltimore
Ravens vann Super
Bowl í annað
skipti í sögu fé-
lagsins í febrúar
síðastliðnum.
Félagið fær 9
milljarða króna
á næstu 15 árum
frá M&T Bank en
heimavöllur liðsins
heitir einmitt M&T
Bank Stadium.
20 Indianapolis ColtsVirði: 139 milljarðar krónaEigandi: James Irsay
Staðreynd Indianapol-
is Colts er tólfta NFL-
félagið á topp 20
listanum. Colts er
gríðarlega vel rekið
félag og á tiltölu-
lega lítinn en mjög
tryggan hóp stuðn-
ingsmanna. Uppselt
er á flesta leiki liðsins
og er heimavöllurinn
langstærsta tekjulind félagsins.
Næstu íþrótta-
félög á eftir
21. Ferrari
22. Denver Broncos
23–24. New York Knicks
23.–24. Pittsburgh Steelers
25. Miami Dolphins
26. Carolina Panthers
27. Seattle Seahawks
28. Tampa Bay Buccaneers
29. Tennessee Titans
30. Kansas City Chiefs
31. Chicago Cubs
32. Los Angeles Lakers
33. Toronto Maple leafs
34. Cleveland Browns
35. Minnesota Vikings
36. New Orleans Saints
37. AC Milan
38. San Diego Chargers
39. Arizona Cardinals
40. Chelsea
41. Philadelphia Phillies
42. Cincinnati Bengals
43. Detroit Lions
44. Atlanta Falcons
45. New York Mets
46. Buffalo Bills
47. Chicago Bulls
48. McLaren
49. San Francisco Giants
50. Oakland Raiders
Vilja tvöfalda
launin hjá Bale
Forsvarsmenn Tottenham eru
sagðir reiðubúnir að tvöfalda laun
sóknarmannsins Gareth Bale til
að halda honum hjá félaginu.
Bale hefur verið orðaður við Real
Madrid í sumar og á miðvikudag
var greint frá því að Manchester
United væri að undirbúa 60 millj-
óna punda tilboð í leikmanninn.
Spænska dagblaðið AS greindi svo
frá því á fimmtudag að Tottenham
væri reiðubúið að ganga langt til
að halda sínum besta manni og
tryggja honum 150 þúsund pund á
viku. Þá greindi AS frá því að Flor-
entino Perez, forseti Real Madrid,
vildi fá fund með Daniel Levy,
stjórnarformanni Tottenham,
til að ræða framtíð Bale en Real
Madrid mun einmitt leika sinn
fyrsta leik á undirbúningstímabil-
inu um helgina þegar liðið mætir
Bournemoth.
Ferrari verður
að fara að vinna
Ökuþórinn Fernando Alonso seg-
ir að hann og Ferrari-liðið verði
að fara að vinna keppnir ætli það
sér að halda í við Sebastian Vettel í
baráttunni um heimsmeistaratitil-
inn. Vettell, sem ekur fyrir Red Bull,
er kominn með örugga forystu í
baráttunni um titilinn en hann
situr í efsta sæti í keppni ökuþóra
með 157 stig. Fernando Alonso er
í öðru sæti með 123 stig og Kimi
Raikkonen hjá Lotus er þriðji með
116 stig. Næsta keppni fer fram um
þar næstu helgi í Ungverjalandi
og eftir það eru níu keppnir eftir.
Í keppni bílaframleiðanda er Red
Bull efst með 250 stig en Ferrari er
í þriðja sæti með 180 stig. „Það er
enn mikið eftir af mótinu og það
getur allt gerst. Við þyrftum helst
að vinna tvær eða þrjár keppnir í
röð en í augnablikinu virðst það
vera okkur ómögulegt.“
Emil orðaður
við South-
ampton
Emil Hallfreðsson, landsliðsmað-
ur í knattspyrnu, var orðaður við
Southampton í ensku úrvals-
deildinni í breskum fjölmiðlum á
fimmtudag. Emil, sem leikið hefur
með Verona á Ítalíu, undanfarin ár
er sagður vera á óskalista Mauricio
Pochettino, stjóra Southampton,
sem tók við stjórn liðsins í vetur.
Emil er 29 ára en hann var á mála
hjá Tottenham frá 2005 til 2007 en
hann hefur leikið með Verona síð-
an 2011 við góðan orðstír. South-
ampton hefur þegar fengið til sín
miðjumanninn Victor Vanyama frá
Glasgow Celtic og varnarmanninn
Dejan Lovren frá Lyon.