Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Síða 31
Menning 31Helgarblað 19.–21. júlí 2013
Töfrandi tónar
Samaris
Samaris
Samaris
Barist við
uppvakninga Berbrjósta ballerínur
World War Z
Leikstjóri: Mark Forster
Skinnsemi
Sirkus Íslands
Þ
etta er herþota,“ segir einn
heimamanna fyrir utan Villa
borgara. „Svona hljómar
þegar þær rjúfa hljóðmúrinn.“
„Þetta hljóð minnir mig alltaf
á uppvaxtarár mín hér,“ segir ann
ar. Undir þotugný maulum við sérrétt
hússins, hamborgara sem er borinn
fram eins og pulsa með öllu. Tilveran
verður ekki mikið keflvískari en þetta.
Í kringum gamla herflugvöllinn
stendur girðingin enn eins og leif
ar múrsins í Berlín. Við innganginn
er mannlaus varðstöð, okkar eig
in Checkpoint Charlie. Það eina sem
vantar er skilti sem á stendur: „You are
now leaving the Icelandic zone.“ Þetta
var undarleg veröld sem Kalda stríð
ið skóp. Það er undarlegt að hún skuli
vera horfin.
Bannfært úr Reykjavík
Þessa dagana eru það ekki vígtól sem
eru geymd hinum megin við girðingar,
heldur stúdentaíbúðir og nýsköpunar
stöð og jafnvel kvikmyndaver. Sitthvað
annað er að sjá og skoða í Keflavík, Vík
ingasafn og Byggðasafn og Skessuhell
ir þar sem skessan hrýtur og rekur við á
víxl. Og það eru fleiri veitingastaðir hér
en Villaborgari, svo sem Thai Keflavík
sem þykir einn sá besti í bænum og
nýopnaður kenískur veitingastaður.
Alþjóðavæðingin kemur líklegast
beint frá flugvellinum, en í miðbæn
um blasir við kunnugleg sjón. Gler
skýlið sem eitt sinn prýddi Iðnó en
var fjarlægt þaðan eftir hörð viðbrögð
fagurkera er nú orðið viðhengi við
Hótel Keflavík. Má því segja að gler
skýli þetta hafi farið sömu leið og her
inn áður, bannfært úr Reykjavík en
fékk sitt heimili í Keflavík.
Stjarna með drykkjulæti
Sagt er að söngvarinn Mark E. Smith
hafi fengið nóg af hótelbarnum þegar
hann var staddur hér á tónleikahá
tíð og haldið af stað á Paddys, þar sem
hann sat að sumbli þar til honum var
hent út fyrir drykkjulæti. Paddys er
einhver helsta menningarmiðstöð
bæjarins, en eigandinn var sjóari sem
ákvað að setjast hinum megin við bar
borðið og hefur víst sparað talsverðan
pening á því.
Mikið er um viðburði hér og fyrir
utan hefur blakvelli verið komið upp
sem hefur alþjóðlegt keppnisleyfi. Á
sviðinu er hljómsveit að spila standarda
eins og Purple Haze og Stand By Me, en
virðist kunna á þeim takmörkuð skil.
Kvöldið eftir mætir hún ekki á um
ræddum tíma, en maður sem kallar sig
„Smári Klári“ stekkur á svið og bjargar
kvöldinu, en ekki endilega tónlistinni.
Hamsleysi Keflavíkur
Paddys er besti staðurinn til að fara á,
vilji maður sleppa óbarinn úr bænum.
Það að vera laminn í Keflavík er líkleg
ast eitthvað sem allir verða að reyna
einu sinni á lífsleiðinni, en má bíða
betri tíma. Skemmtun heimamanna
virðist annars helst felast í því að ganga
upp að hvorum öðrum og öskra nafn
hvors annars af hamslausri gleði yfir
fundum þessum.
Þá tekur við hálf vandræðaleg þögn
þegar hvorugur virðist vita hvað skal
segja, leiðir skilja og er gengið upp
að næsta manni og nafn hans öskr
að í staðinn. Ekkert svo ólíkt Reykja
vík, svo sem, en hamslausara einhvern
veginn. Þegar barnum lokar er síðan
haldið í 10–11 þar sem hægt er að fá
sér í svanginn og er síðasti séns til að
komast á séns.
Þegar Clint Eastwood kom ekki
Daginn eftir liggja enn bjórglös fyr
ir utan 10–11. Það eru fáir á ferli, enda
virðist alltaf rok hér og fólk forðast
að vera utandyra. Framan við bíóið í
Hafnargötu er nokkurs konar „Keflavík
Walk of Fame.“ Hér má sjá heiðurskjöld
í götunni merktan Clint Eastwood, sem
kom hingað þegar hann var að taka
„Flags of Our Fathers“ en olli bæjar
búum miklum vonbrigðum þegar
hann var ekki viðstaddur afhjúpunina.
Neðar í götunni við staðinn sem Clint
stóð aldrei á er svo skjöldur til heiðurs
Hljómum, sem einhvern tímann voru
algengari sjón á götum bæjarins.
Á hinum yfirgefna Patterson flug
velli er maður úti að keyra með hund
inn, sem látinn er ganga við hliðina á
bílnum. Hér má enn sjá flugskýli úr
seinni heimsstyrjöld og er yfirbragð
ið nánast eins og úr uppvakninga
mynd, eins og á heimsenda séu síð
ustu mannvistarleifarnar eftir að
hamfarirnar gengu yfir. Völlurinn þyk
ir þó heppilegur til spyrnu, og á þaki
eins skýlisins eru hjólför. „Hnakkar eru
alltaf að gera eitthvað skemmtilegt,“
segir fylgdarmaður minn og maður
fær það á tilfinninguna að lífið hér sé
einn langur „Jackass þáttur.“ n
Ferðalög
Valur
Gunnarsson
„Að að vera laminn
í Keflavík er lík-
legast eitthvað sem allir
verða að reyna einu sinni
á lífsleiðinni.
n Skemmtistaðurinn Paddys menningarmiðstöð bæjarins
Keflavík lengi lifi
Sviðsmynd úr kalda stríð-
inu Yfirgefin herstöðin er eitt af
einkennismerkjum Keflavíkur.
Strandblak á barnum Völlurinn á
Paddys hefur alþjóðlegt keppnisleyfi.
„Walk of fame“ Skjöldur til heiðurs Clint
Eastwood á gangstétt í bænum.
Helena Stefánsdóttir
kvikmyndagerðarkona
Opnar jógamiðstöð og vinn-
ur að kvikmyndahandriti.
Hjón og samstarfsfélagar Arnar
Steinn og Helena hafa unnið saman í
leikhúsinu og opnað kaffihús.