Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Page 32
32 Menning 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
Kuldalegt brimbrettarokk
H
ljómsveitin Bárujárn gaf út
sína fyrstu breiðskífu, Báru-
járn, á dögunum. Sjálf lýsa
þau tónlist sinni sem kraft-
miklu íslensku brimbrettarokki. Það
er ekki fjarri sanni. Í tónlist sveitar-
innar er fátt sem minnir á gullnar
strendur, brennandi sól og sólbrúna
kroppa. Íslenskt brimbrettarokk er
eins og íslenska sumrið, kalt, blautt
og með myrkum undirtóni. En burt-
séð frá öllum brimbrettalíkingum
þá má einnig heyra áhrif frá banda-
rískri vegatónlist, finnskum tangó, og
hið goðsagnakennda band, Kanada,
kom stundum upp í hugann þegar
hlustað var á gripinn.
Uppstilling sveitarinnar er hefð-
bundin, gítar, bassi og trommur –
fyrir utan þeramínið, sem Hekla
Magnúsdóttir leikur á.
Lögin á plötunni eru keimlík og
renna á köflum saman í eitt, kannski
Skuggasörf, Cha cha cha og Þögn
standi upp úr. Tökulagið Brennið
þið vitar er einna síst á plötunni og
skemmir heildarsvipinn. Öldugnýr í
upphafi og lok plötunnar er áhuga-
verð hugmynd sem bætir litlu við.
Best er þegar tónlistin talar sínu
máli.
Bárujárn er sérstök plata, nostal-
gísk, kröftug og hrá – alvöru rokk og
ról. Þeir sem eru nógu harðir til að
stunda brimbretti á Íslandi ættu ekki
að vera sviknir. n
Aukin vegglist
í Breiðholti
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykja-
víkurborgar, segir í tillögu um
aukna vegglist í borginni: „Lista-
verk í opinberu rými geta haft
mjög jákvæð áhrif á umhverfið,
fegrað það, vakið umræðu og
skapað almennan áhuga á mynd-
list.“ Borgarráð samþykkti þann
11. júlí, gerð tveggja stórra vegg-
mynda á gafla hárra fjölbýlishúsa
í Efra-Beiðholti. Myndirnar eru
hluti af tveggja ára verkefni sem
Listasafn Reykjavíkur hefur um-
sjón með. Listamennirnir Sara Riel
og Theresa Himmer eru höfund-
ar verkanna en þriðji listamaður-
inn verður valinn næsta sumar til
að bæta einni veggmynd við. Auk
gerð veggmyndanna verður boðið
upp á listasmiðjur í Breiðholtinu
þar sem ungmenni fá tækifæri
til að læra veggmyndagerð undir
handleiðslu reyndra listamanna
og mögulega að mála eigin myndir
á byggingar í hverfinu.
Bárujárn
Flytjendur: Hljómsveitin Bárujárn
Útgefandi: Melur Records
Tónlist
Símon Birgisson
simonb@dv.is
Hljómsveitin Bárujárn
Tónlistin er kröftug og hrá.
L
istahátíðinni LungA á Seyðis-
firði lýkur nú um helgina með
stórtónleikum og uppskeru-
hátíð þeirra sem tóku þátt í há-
tíðinni í ár. Gjörningar, hljóð-
verk og skúlptúrar setja svip sinn á
Seyðisfjörð en hátíðin er orðinn fastur
liður í menningarlífi bæjarins.
,,Hátíðin var nú ekki svo stór í snið-
um þegar hún byrjaði árið 2000. Ætli
það hafi ekki verið um 20 þátttakend-
ur fyrsta árið. En svo stækkaði hún
mikið á næstu árum og nú eru um 100
listamenn sem taka þátt í listasmiðj-
unum á hátíðinni og annar eins fjöldi
sem kemur á hátíðina á eigin veg-
um,“ segir Björt Sigfinnsdóttir, einn af
skipuleggjendum hátíðarinnar.
Hún lýsir LungA sem suðupunkti.
,,Þetta er uppskeruhátíð listamanna.
Staður til að koma og njóta og vera
með.“
Fjölbreytt hátíð
LungA, eða Listahátíð ungs fólks –
Austurlandi, er haldin á Seyðisfirði
um miðjan júlí á hverju ári. Á dag-
skrá hátíðarinnar eru fjölbreyttar
listasmiðjur, tónleikar, myndlistar-
sýningar og fleira. Hátíðinni er lýst
sem blöndu af listum, sköpun, tján-
ingu og stórbrotinni náttúru. Hátíðin
á að færa þátttakendum gleði, sjálfs-
þekkingu, búa til vináttusambönd og
góðar minningar.
,,Þetta hefur verið frábær vika,“
segir Björt. ,,Hér er fólk frá öllum
heimshornum og frábærir við-
burðir á kvöldin. Á laugardaginn
lýkur svo hátíðinni með stórtón-
leikum og uppskeruhátíð. Það
verða sýningar út um allan bæ,
gjörningar og hljóðverk og fleira
sem þeir listamenn sem verið hafa
á námskeiðunum í vikunni hafa
búið til.”
Lofar góðviðri
Meðal þeirra sem koma fram á tón-
leikunum er hljómsveitin Vök,
Mamm út, FM Belfast, Ghostigital
og hin nýstofnaða hljómsveit Grísa-
lappa lísa.
,,Tónleikarnir verða haldnir á
bryggju út með firðinum. Þetta er
rosalega fallegur staður og ég lofa
að besta veðrið verður hjá okkur á
laugardaginn,“ segir Björt. n
Uppskeruhátíð lista-
manna fyrir austan
n LungA haldin í 13 skipti á Seyðisfirði n Yfir hundrað listamenn taka þátt
Hugleikur Dagsson
með uppistand Fjöldi
skemmtiatriða er á hátíð-
inni sem lýkur um helgina.
Listasmiðjur Lilja
Birgisdóttir heldur
námskeið á hátíðinni.
Menningar
Epísk helgi
Hallfríður Þóra Tryggvadóttir nemi
n Helgin mín byrjar á brjáluðu
stuði en árshátíð Stúdentaleik-
hússins verður haldin á föstu-
daginn. Þema veislunnar er
Þjóðhátíð í Eyjum og verður
stemningin eflaust algjörlega
epísk. Á laugardaginn er stefn-
an tekin á að fara upp í sveit til að
slappa af og fara loksins á hestbak.
Mig dreymir þó um að taka flugið
á listahátíðina LungA á Seyðisfirði.
Forynjur og völvur
Snorri Engilbertsson leikari
n Verð staddur á LungA þessa
helgina. Ég er að aðstoða kærustu
mína, Hörpu Einars, með vídeó-
verk þar sem forynjur og fagrar
völvur birtast í þokunni og verður
sýnt á tískusýningu hennar sem
verður í Norðursíld á föstudags-
kvöldið. Eftir sýninguna mun ég
njóta þess sem hátíðin hefur upp
á að bjóða og mér sýnist vera þétt
dagskrá á laugardeginum sem
endar með tónleikum um kvöldið.
Á sunnudaginn verður svo lagt í
bæinn og verður suðurleiðin fyrir
valinu og þar verða á vegi okkar
nokkrar vegasjoppur sem bjóða
upp á vont kaffi og Lindubuff.
helgin
Vegglist á Seyðisfirði
Hátíðin lífgar upp á bæinn.
Björt Sigfinnsdóttir Einn af skipuleggj-
endum listahátíðarinnar LungA Art Festival.