Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Qupperneq 34
34 Lífsstíll 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
„Skemmtilegast að grafa ærfillet“
n Yfirmatreiðslumaður gefur leiðbeiningar um hvernig grafa skuli kjöt
Þ
etta er tiltölulega einfalt verk.
Aðalmálið er að hafa góða
uppskrift svo hlutföll sykurs
og salts séu rétt,“ segir Ágúst
Garðarsson, yfirmatreiðslumaður hjá
Icelandair aðspurður um aðferðina
við að grafa kjöt og fisk.
Hann segir að oftast noti maður
hreina vöðva, til dæmis af lambi,
hrein dýri eða nauti og mikilvægt sé
að hreinsa kjötið vel af fitu og sin
um. Að því loknu þerri maður kjötið
með pappír og leggi það svo á bakka.
„Svo blandar maður þá kryddblöndu
sem maður vill hafa og leggur kjöt
ið ofan á hana og þekur það vel með
blöndunni.“ Í sumum uppskriftum sé
einnig olía eða jafnvel smá koníak en
þá skuli einungis setja nokkra dropa
yfir saltið og sykurinn.“
Ágúst bendir á að til dæmis lamba
fillet og fiskflök þurfi um það bil sólar
hring en stærri vöðvar þurfi lengri
tíma. „Þú veist að þetta er tilbúið þegar
vökvinn fer að vera mikið í botninum
og kjötið orðið mjög stinnt. Svo er ein
faldast að skera enda af og athuga
hvort það sé litamismunur. Kjötið á að
vera eins á litinn í gegn svo ef það er
annar litur í miðjunni þarf það lengri
tíma.“ Honum finnst gott að eiga graf
ið kjöt í kælinum því það sé þægilegur
og góður forréttur sem gott sé að grípa
til ef fólk fær skyndilega gesti í mat.
Aðspurður um uppáhaldsafurðir
til að grafa nefnir hann lunda, bleikju
og ærfillet. „Mér finnst mjög gott að
grafa ærfillet. Það tekur svo skemmti
lega við bragðinu og er þar að auki
ódýrara hráefni,“ segir hann.
Að lokum bendir hann á að vel
sé hægt að grafa kjöt fyrir eldun. Þá
sé það grafið í klukkustund áður en
því er skellt á grillið. „Þannig færð þú
mjög gott grillkjöt sem er létt maríner
að og þar sem það er búið að herða
frumurnar, þolir það grillun mikið
betur.“ n
Ágúst Garðarsson Segir
einfalt að grafa kjöt og fisk.
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Bestu heilsubloggin
n Fáðu hjálp við að komast í form n Upplýsingar um líkamsrækt, mataræði og almennt heilbrigði
Aðrar síður
Egill Einarsson er einn þekktasti einka-
þjálfari landsins og heldur úti síðunni fjar-
þjalfun.is þar sem hann aðstoðar fólk við
að komast í form.
Logi Geirsson sló í gegn sem atvinnu-
maður í handbolta í Þýskalandi og hefur
spilað með FH. Hann heldur út síðunni
logigeirsson.is þar sem hann býður fjar-
þjálfun.
Kraftheimar.net er fyrir þá sem er
alvara með vöðvafíknina. Þar skiptast
vöðvatröll Íslands á upplýsingum og bera
saman árangur sinn. Ekki fyrir nein með-
almenni.
Fitness.is er heimasíða tímaritsins Fit-
ness fréttir sem fjallar um heilsu og
vaxtarrækt og birtir jafnframt upplýsingar
og myndir frá nýjustu vaxtarræktarmót-
um sem haldin eru hér heima og erlendis.
Vodvafikn.is er heimasíða um allt sem
tengist lyftingum, svo sem aflraunir,
kraftlyftingar, fitness og vaxtarrækt.
Dóra Svavarsdóttir
matriðslumeistari á Culina
„Þar sem ég var
stödd í Laugar
ási í Biskups
tungum þegar
kallið kom
um að vera
matgæðing
ur vikunnar,
þá fór ég í tvær
eftirlætis „búð
irnar“ mínar; lífræna markaðinn
á Engi og sjálfsafgreiðslugróður
húsið í Heiðmörk. Þar skoðaði ég,
þuklaði og þreifaði á öllu þessu
stórkostlega grænmeti og keypti allt
sem mig langaði í. Þegar heim var
komið hófst svo gleðin. Þið fáið að
njóta með mér fullkomins tómat
drykks og grillaðs grænmetis með
landnámshænueggi,“ segir Dóra
Svavarsdóttir, matreiðslumeistari
á Culina veitingar, en hún er mat
gæðingur vikunnar að þessu sinni.
Tómat fordrykkur
n 6 stórir tómatar, eins rauðir og hægt er
að hugsa sér
n 1/2 agúrka skræld
n 1/4 úr chilli
n 2 dl vatn
n Sjávarsalt
milli fingra
n 1 sellerístöngull
og dill
Aðferð
Tómatarnir, gúrkan, chillið og vatnið
er maukað saman í blandara og svo
saltað eftir smekk.
Deilið í glös og setjið seller
ístöngul í glasið, en selleríið gefur
smá bragð í drykkinn og er gott til
að hræra hann upp. – Fyrir lengra
komna og eldri er gaman að setja
vodka slettu í glasið.
Grillað grænmeti
n 1 stk eggaldin
n 1 stk kúrbítur
n 1/2 púrra
n 1 stk paprika
n Hnúðkál
n 4 tómatar
n Smá olía
n Salt
n Pipar
n Chilli
n Oregano, timijan, steinselja, basilíka
og allt annað sem þykir gott á þínu
heimili.
Aðferð
Allt grænmetið, nema tómatarn
ir, er skorið í sneiðar, penslað með
olíu og kryddað með salti og pipar.
Svo er það grillað og að lokum skor
ið niður í smærri bita og sett í skál.
Tómatarnir eru sneiddir gróft og
settir á pönnu með olíunni og smá
vatni. Látnir sjóða niður í róleg heit
unum þar til þeir eru alveg maukað
ir, en þá setjum við út í hnefafylli af
öllum þeim kryddjurtum sem okk
ur finnast bestar. Hrærum saman
og hellum yfir grillaða grænmetið.
Þetta er frábært meðlæti með öll
um grillmat; eins finnst mér gott að
sjóða mér landnámshænuegg og
borða með.
Eftir þessa góðu máltíð var
bara bakki af jarðarberjum eftir
úr sveit inni og rann hann ljúflega
niður, alveg einn og sjálfur.
Hollusta úr
sveitinni
Dóra skorar á Stefán Jón Hafstein
að verða matgæðing næstu viku.
Matgæðingurinn
H
efur þú áhuga á að grenn
ast, styrkjast og auka út
hald og líkamlega getu?
Þá getur verið gott að lesa
sér til um hollt mataræði,
styrktar og þolæfingar, vítamín
og bætiefni, næringarfræði og
reynslusögur annarra af heilbrigð
um lífsstíl.
Blaðamaður DV tók saman
nokkur góð heilsu og lífsstílsblogg
sem fræða lesendur um mataræði,
hreyfingu og heilbrigt líferni. n
Ragga nagli
ragganagli.wordpress.com
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt
sem Ragga nagli, heldur úti sam
nefndri vefsíðu þar sem hún skrifar
um ýmislegt sem tengist heilbrigðu
líferni. Ragnhildur er sálfræðing
ur og einkaþjálfari að mennt og er
með fjölmarga í fjarþjálfun. Á vef
síðu hennar má finna ótal matar
uppskriftir þar sem hollustan er í
fyrirrúmi og ekki er notast við syk
ur, hveiti eða aðra óhollustu. Þá má
einnig finna ýmsar greinar um fjar
þjálfun, fitutap, vöðvauppbyggingu,
styrktar og þolæfingar, hugarfar og
markmið í ræktinni. n
Mataræði.is
www.mataraedi.is
Vefsíðan mataræði.is er í umsjá Ax
els F. Sigurðssonar hjartalæknis,
en hann er sérfræðingur í lyflækn
ingum annars vegar og hjarta
lækningum hins vegar. Axel hefur
starfað sem sérfræðingur í hjarta
lækningum við Landspítalann frá
árinu 1996, með megináherslu á
kransæðasjúkdóma, kransæða
virkjanir og hjartabilanir. Hann
starfar nú bæði á Landspítalanum
og í Hjartamiðstöðinni í Kópavogi.
Á vefsíðu Axels má finna ýmsan
fróðleik um mataræði, næringar
fræði, sjúkdóma og heilbrigðan
lífsstíl, en allar greinar byggja á ör
uggum heimildum, svo sem viður
kenndum vísindarannsóknum og/
eða álitum sérfræðinga í viðkom
andi málaflokki. n
Beta Runs
www.betaruns.com
Elísabet Margeirsdóttir heldur úti
vefsíðunum Beta Runs og Beta nær
ingarráðgjöf. Elísabet er með B.Sc.
próf í lífefnafræði og mastersgráðu í
næringarfræði, en árið 2012 stofnaði
hún fyrirtækið Beta næringarráð
gjöf ehf. þar sem hún starfar við að
ráðleggja einstaklingum um lífsstíl
og mataræði. Elísabet hefur mik
inn áhuga á heilbrigðum lífsstíl og
stundar langhlaup af miklu kappi.
Á vefsíðum sínum skrifar hún um
ýmislegt sem tengist heilbrigðu líf
erni, svo sem hlaup, næringu, mat
og heilsu auk þess sem hún deilir
sínum persónulegu hlaupaafrekum
með lesendum. n