Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Side 35
Lífsstíll 35Helgarblað 19.–21. júlí 2013
Auðræktanlegar kryddjurtir
n Kryddjurtagarður í eldhúsglugganum gefur góðan ilm í húsið
Þ
að er gaman að rækta sjálf-
ur sínar matjurtir og það er til
fjöldinn allur af jurtum sem
má nota til matargerðar. Sem
dæmi má nefna dill en grönn þráð-
laga blöðin er gott að nota með fiski,
skeldýrum, lambakjöti, kartöflum, í
sósur og til skrauts. Einnig í krydd-
edik og kryddsmjör.
Mintu má nota í lambakjötsrétti,
sósur, drykki og hlaup en piparminta
er mest notuð í sælgæti og líkjöra.
Salvía er notuð í rétti úr svína-,
kálfa- og lambakjöti, fars, pylsur og
kæfu.
Timian er gjarnan sett í kryddlegi
og á vel við svína-, nauta- og kálfa-
kjöt. Það er einnig notað í pottrétti,
súpur og er ómissandi í baunasúpu.
Blöðin af kóríander eru notuð í
karrí-rétti, sósur, salöt. Bragðsterk
fræin eru notuð í súrsað grænmeti,
pylsur og sæta rétti eins og sultur.
Bragðið af fenniku minnir á anis
– er með lakkríslykt, blöðin eru not-
uð í súpur og fiskrétti. Fræið er gott í
te og er oft notað í fiskrétti og svína-
kjötsrétti. Stilkurinn og hýðið er not-
að í hrásalat. n
Bestu heilsubloggin
n Fáðu hjálp við að komast í form n Upplýsingar um líkamsrækt, mataræði og almennt heilbrigði
Ræktaðu þitt eigið krydd
Gómsætt með ýmsum réttum.
Pylsan öðl-
ast nýtt líf
Íslendingar hafa lengi verið sólgn-
ir í pylsu með öllu, eða eina með
öllu, eins og þjóðarrétturinn er
gjarnan kallaður í daglegu tali.
En pylsan býður upp á svo miklu
fleiri möguleika og í raun er það
einungis skortur á hugmyndaflugi
og vanafesta sem stöðvar þig þegar
kemur að því að matreiða þessa
kjötvöru. Á síðunni foodnetwork.
com má til að mynda finna tugi
uppskrifta að pylsuréttum. Fjöl-
margir þeirra innihalda hina hefð-
bundnu samsetningu pylsu og
brauðs ásamt ýmsu meðlæti. Má
þar meðal annars finna sérlega
girnilega uppskrift að svokallaðri
BLT pylsu með beikoni, bökuðum
baunum, majónesi, káli og tómöt-
um. Grænmetisætur geta einnig
nýtt sér hugmyndirnar því þar má
til dæmis finna uppskrift sem inni-
heldur tófú pylsu með lárperu,
gúrku, gulrótum og salatdressingu.
Einfalt og gott
pasta
Ljúffengur matur þarf hvorki að
innihalda mörg hráefni né taka
langan tíma að útbúa. Þennan
girnilega pastarétt tekur aðeins 22
mínútur að útbúa.
Hráefni
n 4 bollar penne pasta
n ½ bolli mjólk
n 2 teskeiðar dijon sinnep
n ¾ bolli rjómi
n Rifinn cheddar ostur
n Smá salt og pipar
Sinnepinu og mjólkinni er
blandað saman í skál og hellt út
í pott með soðnu pasta ásamt
rjóma og ostinum. Hrært í þangað
til osturinn hefur bráðnað. Krydd-
að eftir þörfum og rétturinn er til-
búinn handa fjórum.
Fagleg
fjarþjálfun
www.facebook.com/faglegfjarthjalfun
Vefsíðan Fagleg fjarþjálfun er í um-
sjá íþróttafræðingsins Vilhjálms S.
Steinarssonar. Vilhjálmur hefur spil-
að og þjálfað körfubolta um margra
ára skeið auk þess sem hann býður
upp á einkaþjálfun og afreksþjálf-
un fyrir íþróttamenn, en hann hef-
ur þjálfað fjölmarga íþróttamenn
af báðum kynjum í ólíkum íþrótta-
greinum, bæði á Íslandi og í Noregi.
Vefsíða Vilhjálms hefur að mestu
leyti verið færð yfir á Facebook, en
þar birtast gamlar sem nýjar greinar
eftir hann um líkamsrækt, heilsu og
hvernig megi ná hámarksárangri í
ræktinni. n
Næring.com
www.naering.com
Vefsíðunni næring.com er haldið
út af næringarfræðingnum Hrund
Valgeirsdóttur. Á síðunni er hægt
að skoða rannsóknir og greinar
sem tengjast næringu og matar-
æði, reikna út líkamsþyngdarstuð-
ul (BMI), grunnefnaskipti (BMR) og
þyngdartap sem og nálgast hollar
uppskriftir þar sem næringarupplýs-
ingar fylgja með. Þá bloggar Hrund
sjálf inn á síðuna auk þess sem hægt
er að láta hana útbúa matarpró-
gramm gegn gjaldi sem og halda úti
matardagbók sem farið er yfir af lög-
giltum næringarfræðingi. n