Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Page 36
Besti ferðafélaginn
36 Lífsstíll
Drekkum í okkur kraft öræfanna
n Blanda saman útivist og hugleiðslu n Byrjuðu með ferðirnar til að vekja athygli á umhverfisvernd
Á
sta Arnardóttir, jógakennari,
leikkona og leiðsögukona, býð
ur upp á svokallaðar „augna
bliksferðir“ upp á hálendi Ís
lands. Þar blandar hún andlegri
næringu við kraft fjallanna og fegurð
landsins. Næsta ferð er að Langasjó
sem hún segir heillandi stað.
,,Þetta er stórkostlegur leiðangur
um mikla hálendisvin. Þetta er fagurt
svæði og við fáum að sigla á vatninu
sem er einstakt. Þarna mætir kynngi
magnaður kraftur öræfanna hinni
mjúku orku vatnsins – maður skoð
ar bæði blómgaðar brekkur og jökul
breiður,“ segir Ásta.
Ásta hefur kennt jóga síðan
1999 og starfað sem leiðsögukona á
hálendinu frá árinu 1991. Hún hef
ur einnig tekið virkan þátt í um
hverfisvernd og finnst mikilvægt að
efla með vitund fólks um mikilvægi
náttúru verndar.
,,Þessar ferðir áttu upptök sín í nátt
úruverndarbaráttunni. Ég og Ósk Vil
hjálmsdóttir fórum með eitthvað um
1.000 manns inn á Kárahnjúkasvæðið
sem var og skoðuðum magnaða nátt
úru sem nú er horfin,“ segir Ásta.
Ásta segist fara í einn leiðangur að
Langasjó á ári. Í þetta skiptið verða
listakonurnar Harpa Arnardóttir og
Margrét Blöndal með í för en þær
munu sjá um að elda mat ofan í hóp
inn. Lagt verður af stað 25. júlí og eru
enn nokkur pláss laus. Ferðin kostar
79 þúsund krónur en innifalið í því
verði er rútuferðin, matur, leiðsögn
og svo jóga kvölds og morgna.
,,Við drekkum í okkur kraft
öræf anna og fólk kemur til baka
með fjalla blik í augum,“ segir Ásta
og bendir áhugasömum að skoða
heima síðu sína: http://asta.this.
is. n
Þ
essi tæki eru gríðarlega mik
ilvæg eins og komið hefur í
ljós í sumar. Þau hafa bjarg
að þó nokkrum ferðamönn
um sem lent hafa í þoku og
misst áttir. Tækið veit alltaf nákvæm
lega hvar þú ert, í hvaða stefnu þú
átt að halda og getur þar af leiðandi
bjargað mannslífum,“ segir Ríkarður
Sigmundsson starfsmaður Garmin
búðarinnar en þar er að finna mikið
úrval af GPS tækjum.
Ekki bara fyrir göngufólk
GPS tæki eru ekki einungis fyrir
göngu fólk á fjöllum. Hægt er að
nota þau við akstur á þjóð vegum,
innan bæjar og fyrir hvers kyns úti
vist – hvort sem það er ganga yfir
Fimm vörðu hálsinn, Rjúpna veiði eða
göngur í nágrenni borgarinnar.
„Tækin virka einnig hvetjandi fyr
ir fólk. Þú sérð árangurinn, hvað þú
hefur lagt marga kílómetra að baki
og hve langt er í næsta áningarstað
eða skála. Svo er gaman að gera upp
ferðina þegar komið er heim, skoða
hve langt maður labbaði og svo hef
ur maður yfirlit yfir þá staði sem voru
manni kannski eftirminnilegir og
mann langar til að heimsækja aftur.“
GPS tækin í dag eru talsvert frá
brugðin þeim tækjum sem ferðafólk
notaðist við þegar tækin komu fyrst
á markaðinn. Þá voru engir snerti
skjáir eða kort sem sýndu staðsetn
ingu manns heldur notaðist maður
við hnit og örvar og svo þurftu ferða
menn að staðsetja sig á korti.
Snertiskjárinn breytir miklu
„Stærsta breytingin er snertiskjár
inn. Það einfaldaði alla notkun til
muna. Snertiskjárinn leiðir þig áfram
og þú ert ekki að kljást við alls kyns
valmyndir. En allt krefst þetta samt
undirbúnings. Þú kaupir ekki bara
GPS tæki og heldur svo af stað upp
í fjöll. Ég mæli með að fólk eyði
nokkrum kvöldum í að læra á tækin,
fari í styttri gönguferðir og sjái hvern
ig þetta virkar. Það er svo öllum vel
komið að koma hingað í búðina og
fá aðstoð ef spurningar um notkun á
tækjunum vakna,“ segir Ríkarður.
Ein breyting sem hefur orðið á
notkun GPS tækja er gríðar legt magn
af gögnum og göngu leiðum sem finna
má á net inu. Síður á borð við Wikiloc
og adventure.garmin.com gera fólki
kleift að hlaða eigin göngu leiðum á
netið og í dag er stór gagna banki til
fyrir fólk sem vill byrja að njóta náttúr
unnar á gönguferðum.
„Nýjustu tækin eru líka með
mynda vélar innbyggðar og þá er hægt
að skrá og vista fallega útsýnisstaði. Ég
get nefnt sem dæmi að það kom fólk í
búðina á dögunum sem var að fara að
labba frá Hveragerði til Úlfljótsvatns.
Ég fór á netið og fann gönguleiðina og
hjálpaði þeim að setja hana upp í GPS
tækinu. Þar með voru þau örugg ef
GPS staðsetningartæki
verða sífellt fullkomnari.
Tækin eru ekki einung-
is mikilvæg öryggisins
vegna heldur geta þau
stóraukið ánægju ferða-
langa og gert góða ferð
eftirminnilegri.
Útivist
Símon Birgisson
simonb@dv.is
„Tækið veit alltaf
nákvæmlega hvar
þú ert, í hvaða stefnu
þú átt að halda og get-
ur þar af leiðandi bjargað
mannslífum.
Ásta Arnardóttir Kennir jóga og
leiðir ferðamenn á fagrar slóðir.
Stórkostleg fegurð Myndin er tekin í
einni af ferðum Ástu að Langasjó.
Gönguleið upp á Móskarðshnúka Dæmi um leið sem hlaðið hefur verið inn á síðuna
Wikiloc.
Fjallarefir
fyrir byrjend-
ur í útivist
Fjallarefir er fjölbreytt námskeið
sem felur í sér göngudagskrá,
þrekþjálfun og námskeið í fjalla
mennsku og er haldið á vegum
Útivistar. Markmiðið er að byggja
upp gönguþrek og úthald, fræða
um hagnýta hluti sem tengjast
göngu og fjallaferðum, kynna
fjölbreyttar gönguleiðir og að þátt
takendur upplifi íslenska náttúru
á skemmtilegan hátt og í góðum
félagsskap. Námskeiðið er tilvalið
fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu
skerf í útivist og fjallamennsku.
Nánari upplýsingar má finna á vef
Útivistar.
Vill efla öryggi í
gönguferðum
Ferðafélag Íslands hefur kynnt
til sögunnar nýtt áhættumat fyrir
fjölmargar gönguleiðir á landinu.
Þar sem sprenging hefur orðið í
gönguferðum Íslendinga og al
mennri útivist um allt land hef
ur FÍ, í samstarfi við VÍS, unnið
að gerð áhættumats helstu
gönguleiða á Esjuna. Tilgangur
inn er að upplýsa göngufólk um
þær hættur sem búast má við á
viðkomandi gönguleið. Ráðist var
í gerð þess þar sem FÍ er í inn
leiðingarferli á Vakanum – um
hverfis og gæðastjórnunarferli
Ferðamálastofu.
Áhættumatið, sem sjá má á
síðu FÍ, segir til um hvar hætturn
ar eru, alvarleika þeirra og hvernig
skuli bregðast við. Einnig má finna
áhættumat á öðrum gönguleið
um, svo sem Hvannadalshnjúk og
Lónsöræfum.
Helgafell Dæmi um leið sem er að finna á Garmin Adventure síðunni.
19.–21. júlí 2013 Helgarblað