Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Page 37
Besti ferðafélaginn
Lífsstíll 37Helgarblað 19.–21. júlí 201336 Lífsstíll
þau myndu lenda í þokuslæðingi og
þessi aðgerð er orðin miklu einfaldari
en í gamla daga.“
Myndavélin vinsæl
En hvað kostar þá GPS tæki fyrir þá
sem vilja fjárfesta í slíkri græju?
„Ódýrustu tækin eru þau sem ekki
eru með innbyggðu Íslandskorti. Þau
kosta um 22 þúsund en það selst lítið
af þeim. Ódýrasta tækið með inn
byggðu korti kostar 40 þúsund krón
ur en þar er kostnaðurinn við kortið
innifalinn, 12.900. Vinsælustu tæk
in okkar kosta á milli 60–80 þús
und krónur. Þau tæki eru með inn
byggðri myndavél, stærri skjá og svo
framvegis,“ segir Ríkarður og bætir
við: „Það má auðvitað ekki gleyma
montþættinum, það er gaman að
geta staðið upp á hæsta tindi og sagt
– sjáiði, hérna fór ég!“ n
„Það er bara
fyrir aumingja“
É
g var farinn að dragast aft
ur úr göngufélögunum og fór
því í hjartarannsókn. Þá kom
í ljós 85 prósenta stífla,“ sagði
göngumaðurinn sem ég hitti
við Steininn á Esjunni.
Hann sagðist vera sjötugur og í
gríðarlega góðu formi eftir að gripið
hafði verið til aðgerða vegna hjartans.
Strax eftir greininguna var undirbúin
stóraðgerð. Hinn hjartveiki var kom
inn á skurðarborðið innan skamms
tíma.
„Hjartað var tekið úr mér og því
komið fyrir í vaskafati. Svo var skipt
um æðar. Nú er ég eins og ungling
ur,“ sagði hann glaðbeittur þar sem
við stóðum í efstu hlíðum Esjunnar
og horfðum á sólroðann bregða lit á
höfuðborgina.
Ég stóðst ekki mátið að segja hon
um mína sögu. Fyrir rúmum þrem
ur árum var ég stórreykingamaður
sem glímdi við offitu. Af rælni hafði
ég samband við hjartalækni sem
skoðaði mig og sendi umsvifalaust
í hjartaþræðingu. Í ljós kom að ég
var með 40 prósenta stíflu í stofnæð.
Ekki var ástæða til aðgerðar en mér
var gert ljóst að ég væri á óheilla
braut. Þarna varð stund sannleikans
í mínu lífi. Ég hætti að reykja í fram
haldinu og fór að hreyfa mig reglu
lega. Nú, tæplega 800 fjallgöngum
síðar, hefur stíflan minnkað í 20 pró
sent.
Fyrir nokkrum árum hvarflaði
ekki að mér að leggjast í fjallgöngur.
Ég var að eigin mati orðinn of gam
all fyrir slíkt. Rúmlega fimmtugur
maður átti ekkert erindi á fjöll. Það
var miklu fremur kominn tími fyrir
rólegheit ævikvöldsins þar sem há
markið yrði að stíga nokkur dans
spor á milli þess að maður fengi sér
matarbita og lúr. Það var í mínum
huga samasemmerki á milli aldurs
og hreyfingarleysis. Gönguferðirnar
á Esjuna hafa kennt mér að aldur er
enginn fyrirstaða.
Á meðal þeirra sem ganga reglu
lega á Esjuna allan ársins hring er
arkitekt á eftirlaunum. Hann er nýbú
inn að fagna 75 ára afmæli sínu. Og
það vill svo skemmtilega til að ferð
irnar hans upp Esjuna það sem af er
ári eru jafnmargar eða fleiri. Og þegar
okkar maður talar um að fara á Esj
una er það ekki aðeins upp að Steini.
Hann fer alla leið upp klettana og á
toppinn, í 780 metra hæð.
„Það er bara fyrir aumingja,“
sagði hann um það að snúa við í
600 metra hæð við Steininn. Og
þannig er það. Að vetrinum pjakk
ast hann upp Ráðherraleiðina á
Þverfellshorninu með ísöxi og á
jöklabroddum. Það er næstum
sama hvernig viðrar. Okkar mað
ur mætir á Esjuna ásamt nokkrum
öðrum fastagestum fjallsins sem
komnir eru vel yfir miðjan aldur.
Sjálfur er ég að nálgast sextugt.
Karlarnir á Esjunni eru mér stöð
ug hvatning til þess að byggja mig
upp fyrir efri árin. Það er ágætis
framtíðarsýn að verða sjötug
ur í fullu fjöri með ísöxi á Þver
fellshorninu. En aðalatriðið er
þó að njóta þess að ganga á fjöll
með öllum þeim kostum sem því
fylgja.
Ég fer gjarnan upp að Steini
og sný þar við. Ástæðan er sú að
ég er að keppa við tímann til að
ná upp styrk fyrir hærri fjöll sem
bíða komu minnar. Ég er enginn
sérstakur aumingi þrátt fyrir að
Steinninn sé oftast endastöð.
Eftir að hafa hlustað á sögu
mannsins með hjartað í vaska
fatinu snéri ég við og hélt áleiðis
niður. Við gilið gekk ég fram á
mann sem sat móður og másandi
á steini og reykti Salem Light. Ég
bægði fordómunum frá og heils
aði fíklinum. Ég var sérstaklega
ánægður að vera laus við nikótín
djöfulinn úr lífi mínu. Leiðin niður
var að vanda ljúf. n
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
„Hjartað var tekið
úr mér og því kom-
ið fyrir í vaskafati. Svo var
skipt um æðar.
75 ára harðjaxl
Í klettum Esjunnar.
Mynd ReyniR TRausTason
Veður geta orðið válynd á fjöllum
Þá er gott að hafa GPS tæki við hönd.
Mynd Flóki kRisTinsson
GPs-tæki frá Garmin Úrval GPS
tækja sem hægt er að kaupa.
Mynd siGTRyGGuR aRi