Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Page 38
Vel útbúinn
miðað við verð
38 Bílar 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
Endurkoma
Datsun
Eftir 27 ára hlé verður Datsun
merkið aftur sett á bíl þegar
Nissan verksmiðjurnar kynna
nýja Micru með Datsun merk-
inu, á Indlandi á næstu vikum.
Datsun bílar voru með þó nokkra
markaðshlutdeild hér á Íslandi
á níunda áratug síðustu aldar og
samkvæmt fregnum frá Nissan
verksmiðjunum sem eiga nafnið
í dag þá hyggjast þeir markaðs-
setja Datsun í fleiri löndum þegar
fram í sækir. Frægasti Datsun bíll-
inn hingað til er án efa 510 týpan
sem var ódýr og nokkuð rennileg-
ur sportbíll en þeir seljast dýrum
dómi í dag sem og 240Z bíllinn
en nokkur eintök af honum eru
einnig til hérlendis.
Dýrasti bíllinn
Mercedes F1 bíll Juan Manuel
Fangio seldist á uppboði á dögun-
um á 3,9 milljarða og er það lang-
hæsta verð sem nokkurn tímann
hefur verið greitt fyrir bíl. Það
kaupverð sem næst þessu kemst
og átti metið var 1957 Ferrari 250
Testa Rossa Prototype en hann
var seldur á 10,8 milljónir punda
eða ríflega tvo milljarða í íslensk-
um krónum. Bifreiðin er frá árinu
1954 og er sú sem tryggði Fangio
heimsmeistaratitilinn það ár en
það var annar af samtals fimm
titlum sem Fangio vann. Þessi 2,5
lítra átta strokka línumótorbíll
er eini W196 bíllinn í einkaeigu í
heiminum og hann er einnig eini
W196 bíllinn sem hefur unnið
tvær keppnir.
V
W Tiguan 4Motion Sport
heitir þessi fákur og lætur
lítið fyrir sér fara við fyrstu
sýn en kemur skemmtilega á
óvart þegar um borð er kom-
ið. Hann er einn af betri valkostum í
þessum flokki í dag og er á ótrúlega
góðu verði miðað við útbúnað.
Það fyrsta sem vekur hrifningu í
akstri er stýrishjólið sjálft í bílnum en
það er sniðið til að fara vel í hendi og
gefur manni trausta og góða tilfinn-
ingu fyrir akstrinum. Bíllinn svarar líka
öllum stýrishreyfingum vel og með
4Motion fjórhjóladrifið verður beygju-
radíus mjög góður og hvergi er að finna
neinar 4x4 hreyfingar í honum í venju-
legum akstri, en það kemur vel að not-
um þegar á því þarf að halda. Tiguan
er byggður upp á VW Golf grunni en er
eins og gefur að skilja töluvert hærri og
stærri og í útliti ber hann mestan ætt-
arsvip af Touareg.
140 hestafla túrbó mótor
Bíllinn er eingöngu fáanlegur með
túrbó dísil mótor og er hann í öll-
um útfærslum 140 hestöfl. Eyðslan er
ekki til að kvarta undan en í blönduð-
um akstri er hún uppgefin 6,0 lítrar á
hundraðið. Í reynsluakstrinum, sam-
kvæmt aksturstölvunni, eyddi bíllinn
þó 8,2 lítrum en þann mun má auð-
veldlega heimfæra á að ekki var um
neinn sparakstur að ræða þar sem vél
og skipting voru reynd við hinar ýmsu
aðstæður sem ekki flokkast undir dag-
lega notkun.
Stóran þátt í lítilli olíunotkun á án
efa nýja DSG sjálfskiptingin frá VW en
hún er sjö þrepa og virkar eins og stig-
laus skipting – ökumaður verður í raun
aldrei var við að bíllinn sé að skipta sér
í akstri. Skiptingar má reyndar heyra á
vélarhljóði sem er óþarflega mikið og
svo náttúrulega á snúningshraðamæli.
Allur akstur með þessum búnaði er
ljúfur og góður og þessi jepplingur er
eins og fyrr sagði einn sá allra besti í
þessum verðflokki. Sportlegir ættar-
eiginleikar segja einnig til sín í venju-
legum bæjarakstri og fátt sem minnir
mann á að um jeppling sé að ræða.
Falleg innrétting
Að innan er bíllinn ríkulega búinn og
þar má vel taka undir auglýsinga slag-
orð VW en þeir segja þá hluti sem séu
aukabúnaður í öðrum bílum vera
staðalbúnað hjá sér. Hann kemur
með einstaklega fallegri innréttingu,
aksturstölvu – sem reyndar er svo-
lítið ruglingsleg að upplagi, ABS, ESR,
„Start and go“ búnaði, glertoppi og
sá bíll sem undirritaður ók var einnig
með Airline-útlitspakkanum en þar er
bætt við dökkum rúðum, hita í sætum
og speglum, leðurklæddu stýri, þoku-
ljósum og 17“ Boston álfelgum svo fátt
eitt sé nefnt. Þá er bakkmyndavélin al-
veg frábær og ein sú besta sem er fáan-
leg í bílum í þessum verðflokki.
Ekki gallalaus
Eins og aðrir molar á markaðnum
þá er gripurinn nú samt ekki galla-
laus þrátt fyrir að vera mjög góður.
Mest pirrandi hlutir í ökumannsrým-
inu eru þeir að erfitt er að sjá á mæla-
borð nánast sama hvernig veltistýrið
er stillt og í annars mjög vel hannaðri
innréttingu þá koma stefnuljósa- og
rúðuþurrkurofar eins og þeir séu úr
leikfangabíl. Ódýrt plast með lélegum
merkingum einkenna þessa rofa og er
óþolandi búnaður í bílum sem kosta
margar milljónir. Þá er mjög hátt upp
í farangursgeymsluna og leiðinlegur
þröskuldur þar fyrir annars mjög rúm-
gott skott. Þetta eru þó smámunir, þó
leiðinlegir séu, í heildarmyndinni því
VW Tiguan er ekki bara góður jeppl-
ingur heldur frábær bíll. n
Þokkalegt pláss Afturhlerinn opnast vel
og plássið þar er þokkalegt, þó er óþarflega
hátt upp í farangursgeymsluna miðað við
gólfhæð.
Gott stýri Bíllinn er fallegur að innan og
stýrishjólið í honum er mjög gott og gefur
góða tilfinningu í akstri.
Þröngt Það er ekki mikið pláss aftur
í þessum bíl með framsætin í eðlilegri
stellingu en miðjusæti er hægt að leggja
niður og þá myndast góður armpúði með
glasahöldurum.
Björgvin Ólafsson
bilar@dv.is
Bílar
n Tiguan er fallegur og góður jepplingur n Mjög skemmtilegur í akstri
Upplýsingar:
Kostir: Útlit, eyðsla, góð bakkmynda-
vél, gott stýri, beygjuradíus og stiglausar
skiptingar
Gallar: Lítið pláss aftur í, hátt aðgengi
í farangursgeymslu, útsýni á mælaborð
og rofar fyrir stefnuljós og rúðuþurrkur
Stjörnur: 3,5
Umboðsaðili: Hekla
Bíll: Volkswagen Tiguan
Eyðsla: 6,0 l/100 (blandaður akstur,
uppgefið)
Hestöfl: 158
Gírar/þrep: 7 þrepa DSG sjálfskipting
Árekstrarpróf: 71%
Verð: Frá 5.190 þús.
Sambærilegir bílar: Honda CRV,
Toyota RAV4, Ford Kuga, Mazda CX-5,
BMW X3
Fallegur VW Tiguan er
með vel heppnað útlit og
er flottur með Airline-
pakkanum.