Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Qupperneq 40
40 Afþreying 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
Tökur á Castle féllu niður
n Aðalleikarinn lét ekki sjá sig
T
ökur á þáttunum Castle
féllu niður í síðustu viku
þar sem aðalleikarinn
Nathan Fillion mætti
ekki á tökustað. Sam
kvæmt síðunni Deadline.com
er ástæðan sú að Fillion hafi
ákveðið að mæta ekki þar sem
hann er í miðjum deilum við
ABC studios en hann krefst þess
að vinna einungis fjóra daga vik
unnar. ABC Studios hefur ekki
viljað tjá sig um málið en stað
festi að tökur væru hafnar á ný.
Þessi mjög svo vinsæla
þátta röð, sem sýnd er á RÚV,
segir frá glæpa sagna höfund
inum Richard Castle sem
er fenginn til að hjálpa lög
reglunni þegar morð ingi herm
ir eftir atburðum í bókum
hans. Hann vinnur þar við hlið
rann sóknar lögreglu kon unn ar
Kate Beckett sem leikin er af
Stana Katic.
Samkvæmt formúlunni er
eitthvað á milli Castle og Beckett
og í lok 5. þáttaraðarinnar biður
hann hennar. Hún þarf því að
taka erfiða ákvörðun: Á hún að
neita bónorðinu og fara til New
York að vinna fyrir FBI eins og
henni býðst? Eða á hún að gift
ast Castle.
„Ef hún afþakkar vinnuna
hjá FBI sýnir hún veikleika
merki,“ segir Katic við TV Guide
aðspurð um hvað persóna
hennar ætti að gera. „Þetta er
saga nútímakonu og ég vil ekki
senda þau skilaboð til kvenna
sem er annt um starfsframa
sinn að þær eigi frekar að velja
hjónaband en starfsframa. Það
er heldur ekki svo langt á milli
New York og DC auk þess sem
Castle er milljónamæringur.
Þau geta vel ferðast á milli. Það
mundi ekki vera lýsandi fyrir
persónu Beckett að vera búin
að ná svona langt í starfi sínu og
henda því síðan frá sér.“ n
Sjónvarpsdagskrá Föstudagur 19. júlí
Stöð 2RÚV SkjárEinn Stöð 2 Sport
dv.is/gulapressan
Hæfismat
Birgir heiðursfélagi
Gunnar Björnsson var endur-
kjörinn forseti Skáksambands
Íslands á aðalfundi sambands-
ins um síðustu helgi. Birgir Sig-
urðsson var kjörinn nýr heiðurs-
félagsins sambandsins. Fjöldi
lagabreytingartillagna voru
samþykktar og má þar nefna til-
lögu um landsliðseinvald og að
liðum í fyrstu deild verður fjölgað
í 10 strax í haust.
Stjórn SÍ 2013–14 skipa:
Gunnar Björnsson, Helgi Árna-
son, Ingibjörg Edda Birgisdótt-
ir, Pálmi Pétursson, Ríkharður
Sveinsson, Róbert Lagerman
og Stefán Bergsson. Varastjórn
skipa: Steinþór Baldursson,
Óskar Long Einarsson, Þorsteinn
Stefánsson og Andrea Margrét Gunnarsdóttir.
Birgir Sigurðsson var samþykktur nýr heiðursfélagi með dúndrandi
lófaklappi. Í ræðu forseta kom fram mikið þakklæti til Birgis en hann hóf
útgáfu á Tímaritinu Skák út á eigin reikning og vann svo við blaðið í tugi ára.
Fram kom einnig í ræðu Gunnars að Birgir hafi verið brauðryðjandi í skák-
starfi eldri borgara og eigi mikinn þátt í því hversu sterkt það sé í dag.
Þrettán lagabreytingatillögur lágu fyrir fundinn og þar af voru fjór-
ar frá stjórn SÍ. Allar tillögur stjórnarinnar voru samþykktar. Töluverðar
breytingar verða á Íslandsmóti skákfélaga og það strax í haust.
Samþykkt var fjölga liðum í efstu deild í tíu og var breytingartillaga
Björns Þorfinnssonar um að hún tæki gildi strax í haust samþykkt. Það
þýðir að Skákfélag Akureyrar og Skákdeild Fjölnis fá sæti í efstu deild
keppnistímabilið 2013–14.
Einnig var tillaga TR og TV samþykkt með þorra atkvæða; að fækka er-
lendum skákmönnum í hverju liði niður í tvo úr fjórum og tekur það einnig
gildi strax í haust. Það er því ljóst að mun fleiri íslenskir skákmenn tefla
í efstu deild en áður og að mótið verður áfangahæft fyrir íslenska titil-
veiðara.
dv.is/blogg/skaklandid
Stefán Bergsson skrifar
Skáklandið
15.40 Ástareldur (Sturm der Liebe) e.
16.30 Ástareldur (Sturm der Liebe) e.
17.20 Sumar í Snædal (1:6)
17.47 Unnar og vinur (14:26)
18.10 Smælki (1:26) (Small Potatoes)
18.15 Táknmálsfréttir
18.25 Hið sæta sumarlíf (4:6)
(Det søde sommerliv) Dönsk
matreiðsluþáttaröð. Mette
Blomsterberg reiðir fram kræs-
ingar sem henta vel á sumrin. e.
19.00 Fréttir
19.30 Veðurfréttir
19.35 Gunnar á völlum Í þáttunum
Gunnar á völlum fara þeir
Gunnar Sigurðarson og Fannar
Sveinsson um víðan völl og
skoða það markverðasta sem er
að gerast í íslenskri knattspyrnu.
Þeir félagar eru oftar en ekki
mun uppteknari af því sem
gerist utan vallar og sökum þess
fjalla þættirnir því í raun ekkert
um knattspyrnu.
19.45 Dýralæknirinn (6:9) (Animal
Practice) Bandarísk gaman-
þáttaröð um dýralækninn
George Coleman sem þykir
afar vænt um dýrin en fyrirlítur
gæludýraeigendur. Meðal
leikenda eru Justin Kirk, JoAnna
Garcia Swisher og Bobby Lee.
20.10 Tónlistarmaðurinn 6,1 (The
Music Man) Svikahrappur kemur
til bæjar í Miðvesturríkjum
Bandaríkjanna og ætlar að
féfletta bæjarbúa en margt
fer öðruvísi en til var ætlast.
Leikstjóri er Jeff Bleckner og
meðal leikenda eru Matthew
Broderick og Kristin Chenoweth.
Bandarísk fjölskyldumynd frá
2003.
22.20 Fallin hetja 6,5 (Hancock) Of-
urhetja sem er fallin í ónáð hjá
almenningi slær sér upp með
eiginkonu almannatengslaráð-
gjafa sem er að reyna að lappa
upp á ímynd hans. Leikstjóri er
Peter Berg og meðal leikenda
eru Will Smith, Charlize Theron
og Jason Bateman. Atriði í
myndinni eru ekki við hæfi ungra
barna.
23.50 Svallveislan 6,1 (A Good Old
Fashioned Orgy) Vinir sem
hafa þekkst síðan í grunn-
skóla ákveða að halda meiri
háttar svallveislu í lok sumars.
Leikstjórar eru Alex Gregory og
Peter Huyck og meðal leikenda
eru Jason Sudeikis, Leslie Bibb
og Lake Bell. Bandarísk gaman-
mynd frá 2011. Atriði í myndinni
eru ekki við hæfi ungra barna.
01.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
07:00 Barnatími Stöðvar 2 Waybu-
loo, Ævintýri Tinna, Scooby-
Doo! Leynifélagið
08:05 Malcolm in the Middle (5:22)
08:30 Ellen (3:170)
09:15 Bold and the Beautiful
09:35 Doctors (31:175)
10:15 Fairly Legal (5:10) (Lagaflækjur)
11:00 Drop Dead Diva (1:13)
11:50 The Mentalist (9:22)
12:35 Nágrannar
13:00 Extreme Makeover: Home
Edition (11:25)
13:50 Sammy’s Adventures
15:15 Ævintýri Tinna
15:40 Leðurblökumaðurinn
16:05 Waybuloo
16:25 Ellen (4:170)
17:10 Bold and the Beautiful
17:32 Nágrannar
17:57 Simpson-fjölskyldan (19:22)
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag
19:06 Veður
19:15 Simpson-fjölskyldan (1:22)
19:35 Arrested Development (6:15)
20:15 Besta svarið (6:8) Frábær
spurninga- og skemmtiþáttur
þar sem hinn eini sanni Sverrir
Þór Sverrisson, Sveppi, stýrir af
einstakri snilld. Í hverjum þætti
mætir einn þjóðþekktur gestur
til leiks og keppendur eru þrír,
vinir eða ættingjar gestsins.
Keppendurnir eiga að svara afar
fjölbreyttum spurningum um
gestinn og keppast um að vera
með besta svarið hverju sinni.
21:00 Notting Hill 6,9 Rómantísk
gamanmynd. William Thacker
er bóksali í Notting Hill í
Lundúnum en Anna Scott er
bandarísk kvikmyndastjarna.
Þau virðast eiga fátt sameigin-
legt en þegar þau hittast fyrir
tilviljun taka hlutirnir óvænta
stefnu. Ástin er vissulega
óútreiknanleg en getur þetta
samband virkilega gengið?
23:00 X-Men: First Class 7,8 Fjórða
myndin í hinum geysivinsæla
kvikmyndabálki og fjallar um
tilurð ofurmennahópsins sem
sameiginlega ganga undir
nafninu X-Men. Við kynnumst
Charles Xavier og Erik Lehnsherr
áður en þeir urðu Professor X og
Magneto og hvernig ágreiningur
þeirra myndaðst og stríðið milli
þeirra hófst.
01:10 War, Inc. 5,6 Gamanmynd með
John Cusack, Hilary Duff, Dan
Akroyd í aðalhlutverkum.
03:00 Religulous 7,7 Umdeild heim-
ildarmynd þar sem grínistinn Bill
Maher ferðast um allan heim
og ræðir við fólk sem aðhyllist
hinum ýmsu trúarbrögðum.
04:40 Get Him to the Greek 6,4
Frábær gamanmynd með Jonah
Hill og Russell Brand í aðalhlut-
verkum um brjálaða rokkstjörnu
og nýráðinn aðstoðarmann
hans.
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Dr.Phil
08:45 Pepsi MAX tónlist
13:30 The Voice (4:13)
15:45 The Good Wife (5:22)
16:35 The Office (15:24) Skrifstofu-
stjórinn Michael Scott er hættur
störfum hjá Dunder Mifflin en sá
sem við tekur er enn undarlegri
en fyrirrennari sinn. Andy
bregður sér í nýtt hlutverk sér til
mikillar ánægju.
17:00 Royal Pains (11:16) Bandarísk
þáttaröð sem fjallar um Hank
sem er einkalæknir ríka og
fræga fólksins í Hamptons.
17:45 Dr.Phil
18:30 Minute To Win It Einstakur
skemmtiþáttur undir stjórn
þúsundþjalasmiðsins Guy Fieri.
Þátttakendur fá tækifæri til að
vinna milljón dollara með því
að leysa þrautir sem í fyrstu
virðast einfaldar. Trúlofað par
reynir að næla sér í háa fjárhæð
og tveir ókunnugir einstaklingar
eru settir saman í lið og keppa í
þraut sem gæti gefið vel í aðra
höndina.
19:15 The Ricky Gervais Show
(13:13)Bráðfyndin teiknimynda-
sería frá snillingunum Ricky
Gervais og Stephen Merchant,
sem eru þekktastir fyrir
gamanþættina The Office og
Extras. Þessi þáttaröð er byggð
á útvarpsþætti þeirra sem sló í
gegn sem „podcast“ á Netinu.
Þátturinn komst í heimsmeta-
bók Guinnes sem vinsælasta
„podcast“ í heimi.
19:40 Family Guy (13:22) Ein þekktasta
fjölskylda teiknimyndasögunnar
snýr loks aftur á SkjáEinn. Peter
Griffin og fjölskylda ásamt hund-
inum Brian búa á Rhode Island og
lenda í ótrúlegum ævintýrum þar
sem kolsvartur húmor er aldrei
langt undan.
20:05 America’s Funniest Home
Videos (31:44) Bráðskemmti-
legur fjölskylduþáttur þar sem
sýnd eru fyndin myndbrot sem
venjulegar fjölskyldur hafa fest
á filmu.
20:30 The Biggest Loser (4:19)
Skemmtilegir þættir þar sem
fólk sem er orðið hættulega
þungt snýr við blaðinu og kemur
sér í form á ný.
22:00 Rocky IV 6,4 Bandarísk
kvikmynd frá árinu 1985. Apollo
Creed stígur aftur fram á sjón-
varsviðið eftir að hafa skorað á
sovéskan boxara að nafni Ivan
Drago. Eftir mikinn ósigur sem
endar á óhugnanlegan hátt,
ákveður Rocky að slást við
Drago á hans eigin heimavelli í
Moskvu sósíalismans.
23:35 Excused Nýstárlegir
stefnumótaþáttur um ólíka
einstaklinga sem allir eru í leit
að ást.
00:00 Nurse Jackie (4:10) Margverð-
launuð bandarísk þáttaröð
um hjúkrunarfræðinginn og
pilluætuna Jackie. Í þessum
þætti kemur ýmislegt fram sem
hingað til hefur verið hulið.
00:30 Flashpoint (5:18) Spennandi
þáttaröð um sérsveit lög-
reglunnar sem er kölluð út þegar
hættu ber að garði.
01:20 Lost Girl (16:22)
02:05 Pepsi MAX tónlist
16:30 Into the Wind Stórmerkileg
mynd um stutta ævi Terry Fox.
17:25 FA bikarinn (Everton - Wigan)
Útsending frá leik Everton og
Wigan Athletic í 8 liða úrslitum
ensku bikarkeppninnar.
19:10 Pepsi deildin 2013 (Fram - KR)
21:00 NBA 2012/2013 - Úrslitaleikir
(San Antonio - Miami)
22:50 FA bikarinn
(Man. Utd. - Chelsea)
07:00-20:00 (Lalli, Refurinn Pablo,
Litlu Tommi og Jenni, Svampur
Sveinsson, Mörgæsirnar frá
Madagaskar, Strumparnir, Lína
Langsokkur, Sorry Í ve Got No
Head, iCarly, Njósnaskólinn, Big
Time Rush o.fl.)
20:00 Það var lagið
21:15 A Touch of Frost.
23:00 Monk (5:12)
23:45 It’s Always Sunny In
Philadelphia (4:7)
00:10 Það var lagið
01:25 A Touch of Frost.
03:10 Monk (5:12)
03:55 It’s Always Sunny In
Philadelphia (4:7)
04:20 Tónlistarmyndb. frá Popptíví
06:00 ESPN America
07:00 The Open Championship
Official Film 1970
08:00 Opna breska meistaramótið
2013 (2:4) Elsta og virtasta
mót golfíþróttarinnar er Opna
breska meistamótið. Bestu
kylfingarnir spila alltaf til að
vinna á þessu fornfræga móti.
19:00 The Open Championship
Official Film 1992
20:00 Opna breska meistaramótið
2013 (2:4) Elsta og virtasta
mót golfíþróttarinnar er Opna
breska meistamótið. Bestu
kylfingarnir spila alltaf til að
vinna á þessu fornfræga móti.
03:00 ESPN America
SkjárGolf
11:55 The Big Year
13:35 Algjör Sveppi og dularfulla
hótelherbergið
14:55 The Best Exotic Marigold Hotel
16:55 The Big Year
18:35 Algjör Sveppi og dularfulla
hótelherbergið
19:55 The Best Exotic Marigold Hotel
22:00 Dark Shadows Gamansöm
mynd eftir Tim Burton með Johnny
Depp og Helena Bonham Carter
um vampíruna Barnabas Collins,
sem snýr aftur til fjölskyldu sinnar
eftir útlegð.
23:55 Another Earth Áhrifamikil
mynd um líf nema og tónskálds
sem hittast við dramatískar
aðstæður eftir að eins örlagarík
nótt breytti lífi þeirra að eilífu.
01:25 Mirrors 2 Hrollvekja um
næturvörð í verslun sem fer að
sjá óhugnarlegar sýnir á nætur-
vöktum sínum. Og þær tengjast
allar spegli í versluninni.
02:55 Dark Shadows
Stöð 2 Bíó
17:50 Enska úrvalsdeildin
19:35 Premier League World
20:05 Leikmaðurinn
20:40 Manstu
21:25 PL Bestu leikirnir
21:55 Stuðningsmaðurinn
22:25 MD bestu leikirnir
22:55 Enska úrvalsdeildin
Stöð 2 Sport 2
Stöð 2 Krakkar
Stöð 2 Gull
Löggan og rithöfundurinn
Castle aðstoðar lögregluna við að
upplýsa sakamál.
The Vow
P
aige og Leo eru nýgift og
yfir sig ástfangin þegar
þau lenda í bílslysi.
Paige er meðvitundar
laus um tíma eftir slysið og
þegar hún vaknar, þjáist hún
af minnisleysi. Hún þekk
ir ekki Leo og man ekki eftir
lífi þeirra saman. Eðlilega er
þetta mikið áfall fyrir Leo sem
reynir hvað hann getur til að
fá ástina sína til að muna eitt
hvað. Paige er mjög vör um sig
og finnst óþægilegt þegar Leo
reynir að sýna henni blíðuhót.
Hugljúf bandarísk bíómynd
frá árinu 2012 á drama og
rómantísku nótunum. Með
aðalhlutverk fara Rachel
McAdams og Channing Tat
um. Leikstjóri er Michael
Sucsy.
Stöð 2 laugardagur 20. júlí kl. 20:25