Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Blaðsíða 45
L
eikstjórinn Ridley Scott kynnir
nýja heimildamynd um rokk-
goðsögnina Bruce Spring steen
en myndin er sýnd á sama tíma
um allan heim, aðeins einu
sinni, mánudaginn 22. júlí. Íslenskur
tónlistarmaður fer með stórt hlutverk
í myndinni en það er enginn annar en
Jón Magnússon, betur þekktur sem
JoJo.
Hittust á Strikinu
Forsagan er sú að JoJo var staddur á
Strikinu í Kaupmannahöfn á sínum
tíma. Þar var hann að spila fyrir veg-
farendur. JoJo segir að allt í einu hafi
einhver komið upp að honum og
sagt: „Hey, Bruce Springsteen er að
koma niður götuna, viltu ekki spila
einhver Bruce lög?“
„Ég sagðist nú ekki kunna mikið
eftir Bruce Springsteen en svo sé ég
tvo menn hinum megin við götuna,
annan svartan og stóran og hinn lít-
inn með arnarnef. Ég hugsaði: „Þetta
hlýtur þá að vera Bruce Springsteen.“
Ég kallaði: „Hey, Bruce, viltu ekki
koma og gera fyrir okkur hluti hérna
í götunni sem ekki er hægt að „feika“
á sviðinu?“.
Hvað gerum við næst?
„Hann leit á mig, maður, og sagði:
„Úff, þetta var „nasty“ skot.“ Síðan
labbaði hann upp að mér og sagði:
„Jájá, ég skal alveg sýna ykkur að það
er líka hægt að gera þetta í götunni.“
JoJo segir að Springsteen hafi aug-
ljóslega byrjað að njóta sín vel eft-
ir fyrsta lagið. „Eftir að við spiluð-
um „The River“ kom hann til mín og
sagði: „Hey, ég sé að þú veist alveg
hvað þú ert að gera hérna, hvað eig-
um við að gera næst?““
Klökknaði
JoJo segir að hringt hafi verið í hann
frá umboðsmanni í tengslum við
myndina. „Umboðsmaðurinn sagði
mér að Bruce hafi orðið hrærður –
bæði þegar við hittumst á Strikinu og
svo aftur þegar hann horfði á upp-
tökurnar af fundinum. Ég er ánægður
að hafa getað haft svona áhrif á kall-
inn,“ segir JoJo sem bíður spenntur
eftir að sjá myndina á mánudaginn. n
Fólk 45Helgarblað 19.–21. júlí 2013
Ferðalag inn í nýjan hljóðheim
n Emilíana Torrini leitar að kjarnanum í sjálfinu á nýrri plötu
N
ý plata tónlistarkonunnar
Emilíönu Torrini heitir
Tookah og kemur út í byrj-
un september. Emilí ana
sló rækilega í gegn í Evrópu með
laginu Jungle Drum sem var að
finna á síðustu plötu hennar Me
and Armini. Fyrsta smáskífan af
nýju plötunni er komin út. Þar er
lagið Speed of dark að finna en
lagið er einnig komið á Youtube.
„Fyrsta plata mín snérist um
að læra að semja tónlist, önnur
snérist um að vinna og finna
kjarnann í eigin lagasmíðum og
textagerð, síðasta plata mín „Me
and Armini“ snérist um lærdóm-
inn að sleppa. Tookah snýst um
leitina að mínum eigin hljómi,“
segir Emilíana Torrini í tilkynn-
ingu frá Smekkleysu sem gefur
plötuna út hér á landi.
Titill plötunnar er sérstakur en
orðið Tookah er ekki til nema í
orðaforða Emilíönu sjálfrar. Svona
útskýrir hún þetta sérstaka orð:
„„Tookah“ er orð sem ég bjó til,
orð sem ég tengi við djúpstæða og
einstaka hamingju. Það er kjarni
sjálfs þíns ... Það er það sem Súfist-
arnir dansa fyrir ... augnablikið
þar sem allt er yndislega fullkom-
ið. Sumir kalla það guðlegt ástand.
Ég kalla það „Tookah“.“ n
JoJo leikur í nýrri
mynd Ridley Scott
n Spilaði með Bruce Springsteen á Strikinu n Springsteen klökknaði
Goðsögn Nýja
heimildamyndin
um Springsteen
verður skyldu
áhorf fyrir tón
listaraðdáendur.
Flottur JoJo
var í góðum
fíling með
Springsteen
á Strikinu.
Emilíana Torrini
Leitar að hamingjunni.
Ridley Scott kvikmyndaleikstjóri Leikstýrði myndum á borð við Alien og Blade Runn
er. Nú leikur Jójó hlutverk í nýjustu mynd hans.
Hvað er að
gerast?
19.–21. júlí
Föstudagur19
júlí
Laugardagur20
júlí
Sunnudagur21
júlí
Tónleikar í 12
tónum
Hljómsveitin
Hymnalaya
heldur tónleika
í 12 tónum á
Skólavörðustíg á
föstudag í tilefni útgáfu fyrstu breið
skífu sveitarinnar. Sveitin hefur verið
starfandi í rúmt ár og sækir innblástur
í gamla sálma sem hún klæðir í þjóð
legan jaðarpopp og sveimbúning.
12 tónar 17:30
Hjaltalín á Faktorý
Hljómsveitin
Hjaltalín heldur
tónleika á Faktorý
næstkomandi
laugardagskvöld.
Um upphitun sér
hljómsveitin Japan.
Húsið opnar klukkan
22:00 en tónleikarnir hefjast
stundvíslega klukkan 22:45.
Miðaverð er 1.500 krónur og verða
miðar eingöngu seldir við dyr. Það
er því um að gera að vera tímanlega
á svæðið því miðarnir munu eflaust
rjúka út eins og heitar lummur.
Faktorý 22:00
Lokatónleikar Lunga
Listahátíðin LungaA
hefur staðið yfir
alla vikuna á
Seyðisfirði og
á laugardags
kvöldið verður
boðið upp á
mikla tónlistar
veislu. Fram koma
FM Belfast, Ghostigital, Mammút, Úlf
ur Úlfur, Grísalappalísa, Vök og danska
sveitin Rangleklods. Tónleikarnir fara
fram á tveimur sviðum og plötusnúðar
munu þeyta skífum eftir að þeim lýkur.
Miðaverð í forsölu er 3.900, en annars
4.900.
Seyðisfjörður 21:00
Kíton konur í
Viðey
Kíton dömurnar
Adda Ingólfs
dóttir og Margrét
Rúnarsdóttir
ætla að töfra fram
seiðandi söngva í Við
eyjarstofu á sunnudaginn. Adda kemur
fram ásamt hljómsveitinni Evu, sem
skipuð er þeim Völu Höskuldsdóttur og
Sigríði Eir Zophaníasdóttur. Margrét
frumflytur efni dúettsins Foreign
Mona ásamt manni sínum Birki Rafni
Gíslasyni. Miðaverð er 2.700 krónur og
er sigling með ferjunni innifalin.
Viðeyjarstofa 16:00
R.I.P.D frumsýnd
Kvikmyndin R.I.P.D verður frumsýnd á
föstudag. Hún fjallar um þaulreyndan
fógeta, Roy Pulsifer (Jeff Bridges) í
sérstakri lögregludeild sem sérhæfir
sig í að hafa uppi á illum öndum sem
dulbúa sig sem venjulegar manneskjur.
Honum kemur ekki saman við félaga
sinn, nýliðann Nick Walker (Ryan
Reynolds), sem var upprennandi
leynilögreglumaður áður en hann
fór yfir móðuna miklu. Þeir verða að
leggja ágreining sinn til hliðar og vinna
saman þegar þeir komast á snoðir um
ráðabrugg sem gæti hæglega bundið
enda á lífið eins og það leggur sig.
Leikstjóri myndarinnar er Robert
Schwentke.
Smárabíó 15:20