Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Síða 46
46 Fólk 19.–21. júlí 2013 Helgarblað
Stórlaxar í Hollywood en ólík veiði
n Stefán Karl veiddi maríulaxinn í Soginu
L
eikarinn Stefán Karl Stefáns
son veiddi maríulaxinn um
helgina. Hann hefur einbeitt
sér að silungsveiði síðustu ár
en ákvað í sumar að láta til skarar
skríða og leggja til atlögu við laxinn.
„Ég var að veiða í Soginu á laxa
svæðinu. Hann beit á við Frúar
steininn og þetta var bara unaðsleg
tilfinning. Sjö punda myndarlegur
lax. Maríulaxinn,“ segir Stefán sem
er þó enginn nýgræðingur í veið
inni.
„Nei, en ég hef yfirleitt haldið
mig við silunginn og þegar við höf
um farið í lax hefur það verið seint
á tímabilinu og yfirleitt allur lax far
inn. Þetta var allt nýgengið og grá
lúsugt enda stórstreymi stuttu áður
en við komum.“
Bróðir Stefáns var með í för og
landaði einnig sínum fyrsta laxi.
„Við fengum í heildina sjö og ég
verð að upplýsa að maríulaxinn hjá
Björgvini bróðir mínum var pund
inu stærri en minn, enda er hann
eldri en ég!“
Stefán veiddi sína laxa á tíu
gramma svartan tóbý. Hann segir
veiðina vera lífsstíl og að fjölskylda
hans njóti þess að bregða sér út fyrir
bæinn og stunda vatnaveiði.
„Svo kom náttúrulega hlé
í veiðina þegar maður fór til
Hollywood. Þar eru margir stórlaxar
en veiðimennskan er öðruvísi,“ seg
ir Stefán. n
Stefán Karl Sáttur með aflann.
M
ér fannst stemningin góð
en það var sérstaklega
gaman að sjá hvað var
mikið af ungu fólki,“ segir
Dana Rún Hákonardótt
ir, athafnakona og tónleikagestur á
Frank Ocean tónleikunum sem fóru
fram í Laugardalshöll síðast liðinn
þriðjudag. „Mér fannst virkilega
gaman að sjá Frank loksins á sviði
enda er tónlist hans búin að vera
mikið í spilun á mínu heimili. Hann
var í góðu formi og söng eins og eng
ill,“ bætir Dana við, og var nokkuð
sátt við tónleikana.
Kappinn lét ekki staðar numið
eftir tónleikana í Höllinni því síð
ar um kvöldið þeytti hann skífum í
eftir partíi á skemmtistaðnum Dollý,
við mikinn fögnuð viðstaddra, sam
kvæmt heimildum DV.
Frank Ocean hóf feril sinn sem
lagahöfundur fyrir ekki ómerkari
stjörnur en Beyoncé Knowles og Justin
Bieber. Á síðasta ári kom svo út hans
fyrsta sólóplata, Channel Orange.
Platan hefur hlotið mikið lof og rauk
á toppinn á vinsældalistum um allan
heim. Hlaut Ocean meðal annars
tvenn Grammyverðlaun fyrir plötuna
sem og Britverðlaun sem besti alþjóð
legi karlkyns listamaðurinn.
Hann vakti mikla athygli á síð
asta ári þegar hann opinberaði það
á Tumblrsíðu sinni að hann hefði
orðið ástfanginn af öðrum karlmanni
þegar hann var nítján ára. En með til
kynningunni varð hann einnig fyrsti
þekkti þeldökki bandaríski tónlistar
maðurinn til að koma út úr skápnum
með samkynhneigð sína. n
n Góð stemning á Frank Ocean tónleikunum
n Þeytti skífum um kvöldið í eftirpartíi á Dollý
„Söng eins
og engill“Spennt Fegurðar-drottningin Manúela Ósk Harðardóttir
lét sig ekki vanta á
tónleikana.
Höfðar til margra Þrátt fyrir að
Ocean njóti mikilla vinsælda hjá
kvenþjóðinni höfðar tónlistin einnig
til karlpeningsins. Þessir piltar biðu
spenntir eftir að hlusta á goðið.
Mikil stemning Þessar skvísur réðu
sér vart fyrir kæti fyrir tónleikana og hafa
eflaust verið ennþá glaðari þegar Ocean
hafði lokið sér af.
Slær í gegn Frank Ocean troðfyllti
Laugardalshöllina en myndatökur
voru ekki leyfðar í salnum. Hér er
hann að taka við Grammy-verðlaun-
um fyrr á þessu ári.
Allir hressir Sunna Margrét Þórisdóttir, söngkona
hljómsveitarinnar Blood group, var í góðra vina hópi
fyrir utan Laugardalshöllina fyrir tónleikana.
Vala Grand
ósátt
Athafnakonan Vala Grand var
ekki par sátt á dögunum þegar
hún fékk reikning í hendurnar frá
bensínstöðinni N1 en þar eru vör
ur úr nýrri snyrtivörulínu – Grand
look by Vala Grand, til sölu. Vala
greinir frá því á Facebook að á
nótunni hafi staðið: Valur Grand
Gregory Einarsson. Hún bendir
á að það séu fjögur ár síðan hún
skipti um kyn og stór fyrirtæki á
borð við N1 ættu að hafa aðgang
að réttum nöfnum fólks. Hún lýk
ur færslunni á þessum orðum:
,,Versla núna bara hjá Shell eða
orkunni.”
Pylsusali í sókn
Nýr pylsuvagn við hlið Bæjarins
bestu í miðbæ Reykjavíkur hefur
vakið athygli. Pylsuvagn Bæjarins
bestu er sá frægasti á landinu og
líklega með frægustu pylsuvögn
um heims og hafa ekki ómerk
ari menn en Bill Clinton snætt
þar pylsu. Nýi vagninn er þó ekki
á vegum samkeppnisaðila en á
tímabili leit út fyrir að harðvít
ugt stríð pylsusala væri hafið á
þessum litla bletti. Útsendari DV
snæddi pylsu í hádeginu og fékk
þær skýringar að vagninn væri
á vegum Bæjarins bestu og væri
notaður á miklum álagstímum.
Vagninn væri líka á ferð um landið
til að svala pylsuþörf svangra
ferðamanna og Íslendinga í sum
arfríi. Bæjarins bestu í sókn.
Heimilislaus
Gunnar Smári
Lífskúnstnerinn Gunnar Smári
Egilsson tilkynnti á Facebook í
gær að hann væri á leið í sviss
nesku alpana með konu sinni og
sex ára barni. Tilgangurinn er að
fylgja barninu á fiðlunámskeið og
segir Gunnar Smári að fjölskyld
an haldi út fyrstu vikuna í ágúst og
komi ekki heim fyrr en í október.
,,Við erum því hálf veglaus í tvo
mánuði, gömlu hjónin með sex
ára stúlkubarnið, og erum að leita
að ódýrum og ókeypis dvalarstöð
um í Evrópu og næsta nágrenni
þennan tíma síðsumars. Þetta
verður einskonar InterRail hálfri
öld of seint,” segir Gunnar Smári
en hann lét af störfum sem for
maður SÁÁ á dögunum og leitar
nú á vit ævintýranna.