Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2013, Síða 48
ÚTSALAN ER HAFIN Í DRESSMANN
VERIÐ VELKOMIN
Útsala
AKUREYRI S:4627800. SMÁRALIND S:5659730. KRINGLUNNI S:5680800.
Skellur
fyrir
Júmbó!
Karl-læg
Herðubreið
n Tímaritið Herðubreið er nýkomið
út undir ritstjórn Karls Th. Birgisson-
ar. Í tímaritinu er að finna greinar
eftir Karl sjálfan, Björn Val Gíslason,
Jón Baldvin Hannibalsson og ræðu
Árna Páls Árnasonar auk ljósmynda,
ritdóma og ljóða eftir ýmsa.
Dauðaleit þarf að gera að konum í
Herðubreið, en raunar er það svo
að í öllu tímaritinu er aðeins að
finna eina grein eftir konu sem er
ritdómur um bók eftir karlmann og
ljóð eftir Hallgrím Helgason um Snæ-
fríði Baldvinsdóttur. Engin efnisleg
umfjöllun er sérstaklega um konur.
Staða kvenna í tímaritinu
er því ansi fátækleg,
en svo telst til
að hún sé 13–
2, jafnvel að-
eins 13–1 og
mætti segja
að Herðu-
breið sé ansi
Karl-læg.
Enn eitt kastið
n „Yndisleg deila er risin um
stórkarlalega þýðingu Mogg-
ans á enska hugtakinu accession
process sem aðlögunarferli,“
segir fyrrverandi ritstjórinn og
blaðamaðurinn Jónas Kristjánsson
um gagnrýni Davíðs Oddssonar á
starfsmann fréttastofu RÚV í ný-
legum leiðara. „Orðabókarskiln-
ingurinn segir accession þýða
aðild og accession process þýða
aðildarferli. Mogginn er svo harð-
ur á villu sinni, að hann gagn-
rýnir fréttamann útvarpsins fyrir
að þýða hugtakið rétt. Ritstjóra
Moggans er þetta til-
efni enn eins
æðiskastsins
í hatri hans á
útvarpinu.“
Fegurðardrottn-
ingin Hildur
n Hildur Lilliendahl er á forsíðu
nýjasta tölublaðs Vikunnar. Á for-
síðunni stendur „Ungfrú Ísland
2013?“ en
á forsíðu-
myndinni
hefur Hild-
ur klætt sig
upp eins og
fegurðar-
drottning. Í
samtali við
vísi.is sagði
Hildur að
uppátækið
hefði tek-
ið óratíma
og að henni hafi liðið kjánalega á
meðan. „Undirbúningurinn tók
allan daginn. Ég sat í förðun í tvo
tíma, fór í himinháa hæla og var
með bæði gerviaugnhár og með
hárkollu. Svo fór ég í þessi ein-
kennilegu föt, en ég klæddist kjól
úr Prinsessunni í Mjódd í mynda-
tökunni. Mér leið alveg gríðarlega
asnalega.“
L
angþráður draumur Birgis Þórs
Björnssonar rættist aðfara-
nótt miðvikudagsins síðasta
þegar hann hitti R&B söngv-
arann heimsþekkta Frank Ocean.
„Hann var sultuslakur að gæða sér
á Sóma-tortillu,“ segir Birgir sem
viðurkennir að hafa verið að aka
um götur Reykjavíkur í þeirri veiku
von að berja goðið augum. Klukkan
var að ganga tvö þegar Birgir, í félagi
við fleiri aðdáendur, ákvað að keyra
fram hjá Hilton Reykjavík Nordica
hótelinu og þá gerðist hið ómögu-
lega. „Þetta var þannig að við keyrð-
um fram hjá Nordica – við félagarn-
ir – og sáum gítarleikarann hans og
trommuleikarann. Svo gerist það að
ég sé mann í hvítri úlpu labba út úr
bíl,“ segir Birgir sem lagði saman tvo
og tvo og ályktaði að þetta hlyti að
vera Frank sjálfur. Birgir beið ekki
boðanna heldur rauk út úr bílnum
og hljóp eins og hann ætti lífið að
leysa í átt að manninum í hvítu úlp-
unni. Reikningurinn reyndist réttur;
þarna stóð hann með Sóma-tortillu í
kjaftinum og lífvörð sér við hlið, ný-
kominn af skemmtistaðnum Dollý –
ofurlítið kenndur. Að sögn Birgis var
söngvarinn alveg laus við stjörnu-
stæla og alþýðlegur í framkomu. „Við
áttum gott spjall, þó stutt hafi ver-
ið,“ segir Birgir sem var sá eini í að-
dáendahópnum sem fékk mynd af
sér með afslappaða goðinu enda fór
lífvörðurinn fljótlega að ókyrrast.
„Bouncerinn var svoldið leiðinlegur.“
Birgir, sem starfar hjá símafyrir-
tækinu Nova, fór að sjálfsögðu á tón-
leika söngvarans sem voru haldnir í
Laugardalshöllinni fyrr um kvöldið
og var vægast sagt ánægður með þá.
„Þetta er það besta sem ég hef upp-
lifað – tvímælalaust.“ n baldure@dv.is
Draumur að hitta Frank Ocean
n Söngvarinn sultuslakur með Sóma-tortillu
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 19.–21. JúLí 2013 80. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Frank og Birgir Söngvarinn og Nova-
starfsmaðurinn áttu gott spjall.