Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 21.–24. mars 20142 Fréttir
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yr daginn í vinnunni og ængar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
jótari að ná sér eftir ængar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt ölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kve og ensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir og Fríhöfnin.
Klófesti innbrotsþjóf
Daníel Sæmundsson greip hann glóðvolgan inni í bílskúr
É
g var á leiðinni í ræktina með
konunni þegar hún sá einhvern
inni í bílskúrnum okkar,“ segir
Daníel Sæmundsson, íbúi í
Reykjanesbæ, sem handsamaði inn-
brotsþjóf á fimmtudag. Daníel var að
undirbúa próteindrykk fyrir ræktina
þegar hann heyrði konuna sína öskra
á einhvern fyrir utan. Hún var þá
komin út í bíl og sá innbrotsþjófinn
athafna sig í bílskúr þeirra hjóna.
„Ég hljóp út um leið og ég heyrði
í konunni. Hún öskraði á mann-
inn hvað í andskotanum hann væri
að gera í bílskúrnum okkar. Honum
brá þá og tók á rás,“ segir Daníel sem
bjóst ekki við því að taka ræktina
snemma þennan morguninn. „Ég
hljóp á eftir honum töluverðan spöl
þar til ég náði honum. Hann reyndi
að komast yfir grindverk en steypt-
ist á hausinn. Þá náði ég í hnakka-
drambið á honum og sagði við hann
að nú skyldi hann koma með mér.“
Daníel segir konuna sína hafa hringt
á lögregluna og því hafi ekkert ann-
að verið í stöðunni en að rölta með
þjófinn heim.
„Hann sagði við mig að hann ætl-
aði ekkert að brjótast inn. Honum
hafi bara verið svo kalt,“ segir Daníel
sem trúði því mátulega. Lögreglan
var fljót á vettvang, að sögn Daníels.
„Þeir handtóku manninn, tóku af
honum einhver efni sem hann var
með og fóru með hann í burtu.“ n
atli@dv.is
Aðstoðarmenn Gunnars
fengu tæki fyrir milljón
n Nýjar tölvur, farsímar og spjaldtölvur keyptar n Allt frá Apple
U
tanríkisráðuneytið keypti
fjarskiptatæki fyrir tæpa
milljón króna fyrir tvo að-
stoðarmenn Gunnars Braga
Sveinssonar. Um var að ræða
nýja iPhone 5-farsíma, iPad 4 4G og
MacBook Air-fartölvur. Þetta kemur
fram í svari utanríkisráðuneytisins
við fyrirspurn DV um málið.
Aðstoðarmennirnir heita Mar-
grét Gísladóttir og Sunna Gunnars
Marteinsdóttir. Kaupin á nýju fjar-
skiptatækjunum fyrir aðstoðar-
menn Gunnars Braga vekja vekja
meðal annars athygli í ljósi þess
að yfirleitt er sá háttur hafður á hjá
hinu opinbera að nýir starfsmenn
fái notuð fjarskiptatæki sem til eru á
vinnustaðnum.
Þegar upplýsingafulltrúi ráðu-
neytisins er spurður að því af hverju
aðstoðarmennirnir hafi ekki feng-
ið notuð tæki sem fyrir voru í ráðu-
neytinu segir hún að vegna ör-
yggissjónarmiða fái aðstoðarmenn
ráðherra alltaf ný fjarskiptatæki. „Að
jafnaði eru tölvur og símar nýtt eins
og kostur er, m.a. með því að starfs-
menn fái notuð tæki. Tækin þarf þó
að endurnýja reglulega og við lát-
um nýja ráðherra og aðstoðarmenn
ávallt fá ný tæki, m.a. vegna öryggis-
sjónarmiða.“
Tilgangurinn með kaupunum
Þegar utanríkisráðuneytið er spurt
af hverju umrædd tæki hafi verið
keypt segir ráðuneytið að aðstoðar-
mennirnir þurfi þau fyrir vinnu
sína: „Þetta eru vinnutæki. Að-
stoðarmenn ráðherra eru ævinlega
á ferðinni með ráðherra; þeir veita
upplýsingar um fundi hans til ráðu-
neytis og fjölmiðla, taka myndir á
fundum, einkum fyrir samfélags-
miðla og fjölmiðla, fylgjast með um-
ræðu o.fl.“
Tækin sem keypt voru fyrir að-
stoðarmennina eru með þeim dýr-
ustu og bestu á markaðnum og er
verð þeirra eftir því. Fartölvurnar
sem keyptar voru kosta tæpar 200
þúsund krónur stykkið, spjaldtölv-
urnar kosta rúmlega 140 þúsund
stykkið og farsímarnir tæplega 130
þúsund krónur.
Prestsdóttir úr Skagafirði
og mágkona Sigmundar
Margrét Gísladóttir var ráðin að-
stoðarmaður Gunnars Braga í maí
í fyrra. Hún er „Skagfirðingur í húð
og hár“ eins og segir á vefsíðu skag-
firska fréttablaðsins Feykis, dóttir
séra Gísla Gunnarssonar og Þuríðar
Þorbergsdóttur frá Glaumbæ. Sem
kunnugt er þá er Gunnar Bragi
Sveinsson einnig Skagfirðingur og
er fyrsti maður á lista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi.
Í september í fyrra nýtti Gunnar
Bragi sér heimild sína til að ráða sér
annan aðstoðarmann og var Sunna
Gunnars Marteinsdóttur þá fyr-
ir valinu. Sunna er mágkona Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar
forsætisráðherra.
Tvittað frá Balí
Í desember í fyrra vakti nokkra
athygli meðal kunnugra þegar Mar-
grét Gísladóttir setti inn Twitter-
færslur frá ráðherrafundi á vegum
Alþjóðaviðskiptastofnunar sem hún
sat á Balí í Indónesíu. Á fundinum
var meðal annars gerður samning-
ur um tollamál á milli aðildarríkja
stofnunarinnar.
Í Twitter-færslunni sagði Margrét:
„Hér sit ég að ræða gjaldeyrishöft,
verðtryggingu og skuldaleiðréttingu
við Belga, Dana, Mauritusbúa og
Indónesíumann #FML #ishouldgeta-
medal.“ Færsluna setti Margrét inn á
sína eigin Twitter-síðu en einnig síðu
sem ber yfirskriftina „I should get a
medal“ en inn á þá síðustu hafa ýms-
ir Twitter-notendur sett færslur sem
lýsa einhverju sem þeim þykir leiðin-
legt, svo leiðinlegt að þeir segja í gríni
að þeir ættu að fá verðlaun fyrir að
gera viðkomandi hlut. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Þetta eru
vinnutæki
Mágkona Sigmundar Davíðs
Sunna Gunnars Marteins er mágkona Sig-
mundar Davíðs og var ráðin inn sem seinni
aðstoðarmaður Gunnars Braga.
200 þúsund króna tölva Margrét
Gísladóttir fékk þrjú ný fjarskiptatæki frá
ráðuneytinu fyrir meira en 450 þúsund
krónur.
Fengu ný tæki
fyrir milljón
Tveir aðstoðar-
menn Gunnars
Braga Sveins-
sonar utanríkis-
ráðherra fengu
ný fjarskiptatæki
fyrir samtals
milljón frá ríkinu.
Skólastjóri í
einn tíma
Starfsfólk í Háteigsskóla í Reykja-
vík tók upp á þeirri tilbreytni á
fimmtudag að skipta um starf
í eina klukkustund. Í upphafi
skóladagsins voru öll nöfn starfs-
manna sett í hatt og síðan dró
hver upp eitt nafn og þurfti að
sinna starfi viðkomanda frá kl.
9.10–10.10. Þannig dró Ásgeir
Beinteinsson skólastjóri starf
tónmenntakennara skólans upp
úr hattinum og kenndi því tón-
mennt í eina klukkustund. Sá
sem dró skólastjórastarfið var svo
Jonas Kaminskas skólaliði í Há-
teigsskóla og stóð hann sig ekki
síður vel í starfinu í þessa klukku-
stund. Jonas er frá Litháen og er
því fyrsti skólastjórinn í Reykja-
vík sem er Lithái. Verkefnið þótti
heppnast vel og nutu bæði nem-
endur og starfsfólk þess að sinna
nýjum hlutverkum í stutta stund
og hristi þetta upp í skólalífinu.
MynD aF VeF ReykjaVíkuRBoRgaR.
Fjölgun um
þúsund bíla
Þrenging Hofsvallagötu í fyrra
leiddi til þess að umferðarþungi
jókst á öðrum götum í hverfinu.
Þetta kom fram á fundi umhverf-
is- og skipulagsráðs Reykjavíkur
á miðvikudag. Fulltrúar
Sjálfstæðis flokksins segja um-
ferðartalningu á Hofsvallagötu
sýna að umferð um aðrar götur í
hverfinu hafi aukist sem nemur
um allt að 1.000 bílum á sólar-
hring. Þetta telja fulltrúarnir vera
áhyggjuefni, því með því dragi úr
umferðaröryggi gangandi vegfar-
enda, sérstaklega í ljósi þess að á
svæðinu eru tveir stórir skólar.
Lögreglan
mætt Handtók
manninn og færði
á lögreglustöð.