Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Page 4
4 Fréttir Helgarblað 21.–24. mars 2014 www.kebabgrill.is • Lækjargötu 10 Reykjavík • Sími 571-8800 Opnunartími: Mán-Fim 11-23, fös og lau 11-06, sun 13-23 Brauðið bakað á staðnum Smakkaðu besta Kebab í heimi! Jóhanna tók bílinn Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrver- andi forsætisráðherra, keypti sjálf bílinn sem hún hafði til um- ráða í forsætisráðuneytinu. Bíl- inn keypti hún daginn áður en þingkosningar fóru fram í apríl í fyrra. Viðskiptablaðið greindi frá þessu á fimmtudag. For- sætisráðuneytið keypti bílinn af félagsmálaráðuneytinu um hálfu ári eftir að Jóhanna settist í ráðherrastól fyrir 3.950 þúsund krónur. Bifreiðin er af gerðinni Honda CR-V og er árgerð 2007. Bíll fauk á hliðina Nokkrar annir voru hjá Björgunar- sveitinni Strákum á Siglufirði að- faranótt fimmtudags og fram á morgun. Veður á Siglufirði var slæmt og meðal annars fauk bíll á hliðina, skúrar fuku, stór hurð á iðnaðarhúsnæði fauk upp og brotnaði í mél. Þá fuku tunnur, girðingar og fleira lauslegt. Á ell- efta tímanum á fimmtudagskvöld var svo tilkynnt að þakplötur væru að losna af hesthúsi innarlega í firðinum. Björgunarsveitin Hérað á Egils stöðum var einnig kölluð út aðfaranótt fimmtudags til að sækja fastan bíl í Fagradal og Víkverji frá Vík var kölluð út á fimmtudags- kvöld til að aðstoða ökumann við Dyrhólaey. S keggi Ásbjarnarson, kennari í Laugarnesskóla, káfaði á drengjum og beitti börn bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi um árabil. Þónokkr- ir hafa stigið fram og lýst ofbeldinu sem þeir sættu í barnæsku. Þeirra á meðal eru Björg Guðrún Gísladóttir, sem gaf nýverið út minningabók sína, Hljóðin í nóttinni, Páll Guð- finnur Gústafsson, fyrrverandi nem- andi í Laugarnesskóla, og Kjartan Guðjónsson leikari. Margir hafa einnig orðið til þess að stíga fram og lýsa mannkostum Skeggja. Einkum fyrrverandi nemendur hans sem áttu honum margt að þakka. Meðal þeirra sem hafa lýst góðum kostum Skeggja án þess þó að draga fram- burð skólafélaga frá gamalli tíð í efa er Anna Kristjánsdóttir. Minnist Skeggja með hlýju „Hvað Skeggja snertir, þá reyndist hann mér vel og aldrei sýndi hann af sér neina óeðlilega hegðun í minn garð og ég mun ávallt minnast hans með hlýju fyrir góðmennsku hans í minn garð, en um leið get ég ekki svarað fyrir það að hann hafi hegðað sér öðruvísi gagnvart öðrum börn- um. Þannig ætla ég ekki að ganga út og mótmæla ónefndum félaga mín- um sem hefur aðra og verri reynslu af Skeggja en ég hafði,“ sagði Anna sem fékk hrós og hvatningu frá Skeggja. Vonar að um einstaka atburði sé að ræða Þá hefur fræðslustjóri Reykjavíkur, Ragnar Þorsteinsson, tjáð sig um málefni skólans og sagðist hann vona að um væri að ræða einstaka atburði. „Viðbrögð Reykjavíkurborgar eru náttúrlega örugglega eins og allra annarra að við bara hörmum slíka atburði sem hafa gerst í gegn- um þessa löngu farsælu skólasögu Laugarnesskóla og lítum á það sem svartan blett í þeirri faglegu og flottu sögu. Og bara vonum svo sannarlega að um sé að ræða einstaka atburði en ekki eitthvað annað,“ sagði Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Barnaníðingar venjulegt fólk Björg Guðrún Gísladóttir sagðist í viðtali við DV skilja afstöðu þeirra. Barnaníðingar séu venjulegt fólk sem eigi sér margar hliðar. „Hann var listrænn og skapandi maður og bjó yfir miklum hæfileikum og var af mörgum talinn mjög góður kennari og það er gott að margir eigi um hann góðar minningar, að sjálf- sögðu. Þetta snýst ekki um það held- ur að við áttum okkur á því að þeir sem fremja barnaníð, eru venjulegt fólk sem á sér margar hliðar. Og það er ekki síst þess vegna sem svona mál verða svo tilfinningarík og flókin fyrir okkur að skilja þegar þau koma upp.“ Þetta var grimmt og óréttlátt kerfi Í bókinni Brynja og Erlingur fyr- ir opnum tjöldum, segja þau Brynja Benediktsdóttir heitin og Erlingur Gíslason leikarar og leikstjórar frá lífi sínu. Brynja gekk í Laugarnesskóla og var sett í svokallaðan besta bekk því raðað var eftir læsi í þá daga. Þeir kennarar sem kenndu úr- valsbekkjunum voru í miklu áliti á meðan þeir sem kenndu tossabekkj- unum þóttu minna virði. Faðir Brynju var einn þeirra. Og kenndi tossabekkjunum. „Þetta var grimmt og óréttlátt kerfi sem olli hroka, illvígri metnaðargirni og stéttaskiptingu strax á unga aldri,“ segir hún í ævisögu sinni og segist hafa verið heppin að hafa ekki lokast inni í sínum englabekk því nemend- ur föður hennar hafi komið heim til þeirra að leita ásjár hans. Veitti föðurlausum sérstaka athygli Brynja lýsir metnaði Skeggja sem hafi viljað skila afburðanemend- um. Í bekk með henni voru meðal annarra Ragnar Arnalds, sem seinna varð ritstjóri frjálsrar þjóðar, Styrmir Gunnarsson, sem varð ritstjóri Morgunblaðsins, Magnús Jónsson, sem var ritstjóri Þjóðviljans, Sveinn R. Eyjólfsson, sem varð einn eigenda Dagblaðsins og Jón Baldvin Hanni- balsson. Þau voru kölluð englabörnin hans Skeggja og margir í bekknum voru föðurlausir. Þeim föðurlausu veitti Skeggi sérstaka athygli. „Hann var þeim drengjum ákaf- lega góður sem voru föðurlausir að hans áliti. Sveinn R. Eyjólfsson hafði misst föður sinn sex ára gamall og Ragnar Arnalds var sonur fráskildra foreldra. Skeggi leyfði þeim stundum að sitja í kjöltu sinni í tímum og öf- unduðumst við stelpurnar yfir því,“ segir Brynja frá. Bauð börnum heim í sérstakt próf Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi rit- stjóri Morgunblaðsins og fyrrver- andi bekkjarfélagi Brynju, minntist Skeggja sérstaklega þegar hann féll frá í minningargrein sem birt var í Morgunblaðinu, 1981. „Hann kom sér upp kerfi, sem var í því fólgið, að nemendur fengu sérstaka viðurkenningu fyrir að ná ákveðnum árangri í hverri grein. Þessi viðurkenning var fallega lit- uð stjarna á stóru spjaldi. Það var okkur mikið kappsmál að ná öllum stjörnunum eftir veturinn. Ef erfið- lega gekk að ná þessum árangri átti Skeggi það til að bjóða þeim, sem áttu við þann vanda að stríða, heim til sín til þess að taka sérstakt próf í þessum stjörnuleik og bauð upp á appelsín og kex. Það þótti vegsemd og virðingarauki að vera boðinn heim til Skeggja.“ n n Skeggi leyfði föðurlausum strákum að sitja í kjöltu sinni Englabörnin hans Skeggja Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Athygli Skeggja Sum börn fengu meiri athygli en önnur. Englabörnin í bekk Skeggja voru sum föðurlaus og fengu ríkulega athygli. Mynd KriStinn VilhelMSSon Barnaníðingar eru venjulegt fólk „Þetta snýst ekki um það heldur að við átt- um okkur á því að þeir sem fremja barnaníð, eru venjulegt fólk sem á sér margar hliðar.“ Anna Kristjánsdóttir „Hvað Skeggja snertir, þá reyndist hann mér vel,“ segir Anna Kristjánsdóttir. Mynd SiGtryGGur Ari lærðu hjá Skeggja Skeggi kenndi bæði Jóni Baldvini og Styrmi, sem minntist hans með fögrum orðum í minningargrein 1981. Brynja Benediktsdóttir Lýsir skelfilegri stéttaskiptingu og því hvernig Skeggi nostr- aði við föðurlausa drengi í „englabekknum“ sem hún var hluti af. Varað við snjó- flóðahættu Lögreglustjórinn á Húsavík hefur beðið vegfarendur að gæta varúðar, einkum við Ljósavatnsskarð og í Dals- mynni. Á fimmtudag var talið líklegt að hætta gæti skapast af snjóflóðum úr fjöllum á þess- um slóðum. Viðvörunin gildir út föstudag, í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.