Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 10
Helgarblað 21.–24. mars 201410 Fréttir
Ráðuneytið gat ekki
rökstutt ákvörðunina
Ráðuneytið bendir á skoðun ráðherrans á hæfi Hrafnhildar Ástu Þorvaldursdóttur
M
enntamálaráðuneytið
getur ekki rökstutt ráðn-
ingu Hrafnhildar Ástu
Þorvaldsdóttur í starf
framkvæmdastjóra Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna. Þetta
kemur fram í bréfi til þess um-
sækjanda um starfið sem metinn
var hæfastur sem DV hefur undir
höndum. Í bréfinu óskaði umsækj-
andinn, Kristín Egilsdóttir, eftir rök-
stuðningi fyrir því af hverju hún fékk
ekki starfið.
Í svari menntamálaráðuneytis-
ins er ekki settur fram neinn rök-
stuðningur fyrir þessari niðurstöðu.
Þess í stað er bent á Illuga Gunnars-
son og sagt að ákvörðunin hafi ver-
ið hans: „Ráðuneytið tók viðtöl við
þrjá umsækjendur sem stjórn Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna
lagði til í umsögn sinni og
tillögu og var það niðurstaða
mennta- og menningarmála-
ráðherra að Hrafnhildur
Ásta Þorvaldsdóttir væri best
til þess fallin að starfa sem
framkvæmdastjóri Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna.“
Gjá milli ráðuneytis og
ráðherra
Bréfið til umsækjandans er undir-
ritað af ráðuneytisstjóranum, Ástu
Magnúsdóttur, og öðrum starfs-
manni ráðuneytisins, Agnesi Guð-
jónsdóttur.
Orðalagið í bréfinu vekur
mikla athygli en ljóst er að ráðu-
neytið bendir alfarið á Illuga og segir
ákvörðunina um að ráða Hrafnhildi
Ástu hafi verið hans en ekki ráðu-
neytisins. Þá er í bréfinu ekki veittur
neinn rökstuðningur fyrir ráðn-
ingunni, annar en sá að Illugi hafi
metið það sem svo að Hrafnhildur
Ásta væri „best til þess fallin“ að
gegna starfinu.
Líkt og ljóst má vera þá flokkast
það ekki sem rökstuðningur að segja
að einhverjum hafi bara fundist eitt-
hvað, án þess þá að útskýra af hverju.
Svar ráðuneytisins hefur því yfir sér
þann blæ að vera „af því bara“-svar
þar sem enginn rökstuðningur er
gefinn fyrir ráðningunni annar en
órökstutt mat Illuga Gunnarssonar.
Ætlaði að leita réttar síns
Líkt og DV greindi frá fyrir nokkrum
vikum þá ætlaði Kristín Egilsdóttir
að leita réttar síns út af ráðningunni
á Hrafnhildi Ástu í starfið. Rök-
stuðningur ráðuneytisins bendir
til að slíkur málarekstur væri ekki
illskiljanlegur í ljósi þess að engin
haldbær rök virðast hafa legið á
bak við ákvörðun ráðuneytisins og
Illuga.
Þá vekur einnig athygli að Ill-
ugi ráðfærði sig við afar fáa í ráðu-
neytinu þegar ráðningarferlið átti
sér stað og tók sjálfur viðtöl við um-
sækjendur ásamt aðstoðarmönn-
um sínum. Ákvörðunin virðist því
nánast alfarið hafa verið hans, líkt
og lesa má út úr bréfi ráðuneytis-
stjórans. Fyrir vikið er afar lítið til
af gögnum um ráðninguna í ráðu-
neytinu. Illugi fékk umsóknargögn-
in inn á sitt borð frá stjórn LÍN og
afgreiddi málið sjálfur án þess að
styðjast við mat stjórnarinnar á því
hver væri hæfasti umsækjandinn.
Illugi Gunnarsson hefur ekki
viljað ræða við blaðamann DV um
ráðningu Hrafnhildar Ástu Þor-
valdsdóttur þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir til þess að fá svör hans við
spurningum um ráðninguna. DV
hefur reynt að fá svör frá Illuga um
ráðninguna síðan á mánudaginn í
síðustu viku. Illugi hefur ekki haft
samband við blaðamann DV þrátt
fyrir þetta. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Var það niður-
staða mennta-
og menningarmálaráð-
herra að Hrafnhildur Ásta
Þorvaldsdóttir væri best
til þess fallin.
Frænka Davíðs Hrafnhildur Ásta
er náfrænka Davíðs Oddssonar.
Órökstutt mat Mat Illuga á ráðn-
ingu Hrafnhildar Ástu Þorvaldsdóttur
í starf framkvæmdastjóra LÍN er ekki
rökstutt í bréfinu. MynD SIGtryGGur ArI
Ber við minnisleysi og óléttu
Keyptu borðgrind í IKEA að verðmæti 89.950 og greiddu 3.650 krónur
S
igurjón Jónsson og Arndís
Arnardóttir mættu fyrir aðal-
meðferð í Héraðsdómi Reykja-
víkur á þriðjudag fyrir fjársvik.
Nánar tiltekið fyrir þær sakir að hafa
þann 7. október blekkt starfsmann
við afgreiðslukassa í IKEA til að af-
greiða borðgrind að verðmæti 89.950
gegn greiðslu 3.650. Það eru þau sök-
uð um að hafa gert með því að koma
fyrir eða nýta sér að strikamerki
hliðareiningu, að verðmæti 3.650 kr.
Bæði hafa þau neitað sök þrátt
fyrir að greidd hafi verið sátt í einka-
máli sem IKEA höfðaði.
Sigurjón sagði fyrir dómi að hann
hefði ekki viljað greiða sættir, en fað-
ir hans hefði á endanum greitt upp-
hæðina til þess að koma í veg fyrir
dýrt dómsmál.
Sigurjón og Arndís segjast hafa
keypt borðgrindina í afmælisgjöf
handa vini sínum. Þeim fannst ekki
skjóta skökku við að svo stórt hús-
gagn kostaði 3.650 krónur. Vininum
fannst þó gjöfin helst til of rausnar-
leg. En fram kom að hann vildi skila
henni og aðeins viljað þiggja 8 þús-
und króna gjafabréf. Konan fékk hins
vegar 77 þúsund króna gjafabréf.
Þótt verðmunurinn sé mikill, seg-
ist Arndís ekki hafa áttað sig á hon-
um og bar við minnisleysi og því að á
þessum tíma hafi hún verið ólétt.
Áður hafði hálfbróðir Sigurjóns,
héraðsdómslögmaðurinn Snorri
Vidal, og kærasta hans, Sigurbjörg
Þorvaldsdóttir, játað greiðlega á
sig sök. Þau voru dæmd til tveggja
mánaða skilorðsbundinnar fangels-
isrefsingar fyrir þjófnaðinn en þau
stálu vörum kerfisbundið úr IKEA
með því að færa á milli strikamerki
á vörum og skila þeim. Brotin sem
dæmt var fyrir áttu sér stað á tímabil-
inu 1.–30. september 2012, og eru
alls fimm talsins. n
kristjana@dv.is
Gjafabréfið 77.000 kr Konan fékk 77 þúsund króna gjafabréf fyrir borðgrind sem hún
keypti á 3.650.
Allir með iPad
Nemendur í áttundu og níundu
bekkjum grunnskóla Reykjanes-
bæjar, fengu á fimmtudag af-
henta iPad-spjaldtölvur frá
Apple, til að nota við námið.
Alls fengu 220 nemendur slíkar
tölvur, en stefnt er að því að eft-
ir þrjú ár verði allir nemendur
í unglingadeildum grunnskól-
anna í Reykjanesbæ komnir
með spjaldtölvur. Með þessu
verða breytingar á kennsluhátt-
um, nemendur eiga að skila
myndböndum og rafrænum ver-
kefnum. Þá fá allir spjaldtölvu,
óháð félagslegri stöðu. Á næstu
þremur árum eiga allir nem-
endur í unglingadeild að vera
komnir með spjaldtölvur og allir
kennarar skólanna.
Tippari vann
sjö milljónir
Heppinn tippari er 7,2 millj-
ónum króna ríkari eftir að hafa
tippað á Miðvikudagsseðlinn
hjá Íslenskri getspá. Hann
keypti getraunaseðil með fimm
leikjum tvítryggðum og átta
leikjum með einu merki, eða
alls 32 raðir sem kostuðu hann
576 krónur. Þegar úrslitin lágu
fyrir í gærkvöldi kom í ljós að
hann var með 13 leiki rétta.
Sveik út
vörur með
stolnu korti
Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur dæmt 26 ára konu í 30 daga
óskilorðsbundið fangelsi fyrir
fjársvik. Konan var sakfelld fyr-
ir að svíkja út vörur hjá Krón-
unni, BYKO og Nettó þann 5.
september síðastliðinn, sam-
tals að verðmæti 43.203 krónur.
Framvísaði konan í blekkingar-
skyni og án heimildar greiðslu-
korti annarrar manneskju sem
hún hafði komist yfir. Konan
neitaði sök, en kennsl voru
borin á hana af myndum úr ör-
yggismyndavélum. Konan á sér
nokkurn brotaferil sem hófst
árið 2006. Auk þess að sæta
fangelsi í 30 daga var henni gert
að greiða laun skipaðs verjanda
síns, 100 þúsund krónur.