Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Síða 12
Helgarblað 21.–24. mars 201412 Fréttir
Þ
að hefði verið mjög auð-
velt að rökstyðja að fara út
í þessar breytingar án þess
að það hefði þurft að koma
fréttastjóranum neitt við,“
segir Hallgrímur Indriðason, frétta-
maður á RÚV og formaður Félags
fréttamanna hjá Ríkisútvarpinu, að-
spurður um stuðning starfsmanna
fréttastofunnar við Óðin Jónsson,
fréttastjóra RÚV, sem sagt var upp
störfum ásamt framkvæmdastjór-
um starfssviða RÚV í vikunni.
Inntakið í skýringu Hallgríms á
þessum orðum er sú að starfsemi
fréttastofunnar muni ekki breytast
mikið og að þar af leiðandi sé óþarfi
að segja Óðni upp. „Rökin hafa ver-
ið sú að rekstrarsviðin séu að breyt-
ast svo mikið, að þess vegna sé óhjá-
kvæmilegt að segja upp samningum
við þessa framkvæmdastjóra. Mið-
að við skipulagsbreytingarnar
eins og þær voru kynntar þá eru
breytingarnar á fréttastofunni sára-
litlar,“ segir Hallgrímur.
Ljóst er út frá orðum Hallgríms
að nokkur óánægja er með upp-
sögn Óðins meðal einhverra starfs-
manna. Hann segir hins vegar að
hann hafi ekki ástæðu til að draga
þau orð Magnúsar Geirs Þórðar-
sonar útvarpsstjóra í efa að þegar
breytingar eigi sér stað á starfs- og
rekstrarsviðum RÚV þá sé „hrein-
legast“ að segja öllum samningum
upp, einnig samningi við Óðin. „Ég
efast ekkert um að hann meini þetta
og að honum finnist þetta. En þetta
þýðir ekki að við þurfum endilega
að vera sammála því.“
Sækir um aftur
Staða Óðins, og hinna fram-
kvæmdastjóranna, verður auglýst
til umsóknar um helgina. DV hef-
ur heimildir fyrir því að hann hafi
kynnt einhverjum starfsmönnum
fréttastofunnar að hann hyggist
sækja um starfið aftur.
Á fundi sem Félag fréttamanna,
félag starfsmanna fréttastofu RÚV,
hélt í gær var staðan rædd og er ljóst
að Óðinn nýtur stuðnings margra
starfsmanna á fréttastofu. Einhverjir
af starfsmönnum fréttastofunn-
ar hafa skorað á Óðin að sækja aft-
ur um starfið. Slík áskorun ætti að
vera Óðni til góðs í umsóknarferl-
inu um starfið. „Ef við værum að
fara að skora á hann að sækja um
þá væri það ekki til þess gert að
fæla hann frá því,“ segir Hallgrímur.
Spurningin er sú hversu þungt slík
áskorun muni vega í ráðningarferl-
inu sem Capacent mun sjá um.
Hallgrímur sagði fyrir fundinn í
gær að hann gæti ekki fullyrt hvort
fréttamennirnir myndu skora á
Óðin að sækja aftur um. „Ég get ekki
talað fyrir hönd starfsmannanna
sem ég er að fara að funda með í
kvöld þannig að ég get ekki fullyrt
um það. En ég hins vegar get sagt að
það verður rætt hvort við eigum að
gera það.“
Almenn ánægja
Hallgrímur segir aðspurður að frétta-
menn RÚV séu almennt ánægð-
ir með störf Óðins. „Við teljum að
faglega hafi hann staðið sig eins og
hann á að standa sig. Þá sérstaklega
hefur hann staðið þétt við bakið á
okkur þegar komið hefur fram ýmis
ómálefnaleg og ósanngjörn gagnrýni
á störf fréttastofunnar.“
Fleiri starfsmenn RÚV sem DV
hefur rætt við taka undir þetta
sjónar mið. Óðinn þykir faglegur
stjórnandi, „ekki spilltur“ eins og
einn segir og verður ekki sagt að
fréttastofa RÚV sé hlutdræg í um-
fjöllun sinni um málefni líðandi
stundar, jafnvel þó að ýmsir hags-
munaaðilar í samfélaginu telji að
svo sé.
Gengið á fund Óðins
Hins vegar er Óðinn ekki gallalaus
þó hann þyki faglegur. Þannig var
fundur hjá Félagi fréttamanna á síð-
asta ári þar sem komist var að þeirri
niðurstöðu að fulltrúar félagsins
þyrftu að ræða við hann vegna skap-
gerðarbresta hans. Óðinn getur verið
hvass því hann er með stórt skap sem
hann á til að sýna. Sumir starfsmenn
þola það en aðrir ekki. Þannig segir
einn starfsmaður að sumir hafi kikn-
að undan gagnrýni fréttastjórans.
Eitt atriði sem flestir viðmæl-
endur DV nefna þegar talið berst
að vanköntum Óðins er að hann
vill ráða og er ekki hrifinn af gagn-
rýni eða mótbárum frá starfsmönn-
um. Fyrir vikið þá er sagt að hann
hafi losað sig við starfsmenn sem
staðið hafa uppi í hárinu á honum
en haldið hinum fréttamönnunum
sem standa ekki um of uppi í hárinu
á honum og hans skoðunum. Fyrir
vikið þá er sagt að Óðinn vilji hafa
já-fólk í kringum sig. Ef þessi kenn-
ing er rétt þá má segja að áskorun
frá Félagi fréttamanna um að hann
sæki um endurspegli líka þá stað-
reynd að þeir fréttamenn sem starfa
á RÚV séu hliðhollir Óðni.
Eitt erfiðasta starfið
Óðni til varnar má segja að starf
hans sé eitt það erfiðasta, ef ekki
það erfiðasta, í íslenskum fjölmiðl-
um. RÚV er ríkisfjölmiðill sem þarf
að gæta hlutleysis og situr fréttastof-
an undir linnulausri gagnrýni þess
efnis að hún dragi taum hins eða
þessa í samfélaginu. Óðinn er yfir-
maður fréttastofunnar og því þarf
hann að svara þessari gagnrýni og
reyna að stýra fréttastofunni þannig
að á engan halli. Slíkur varfærinn
dans getur svo auðvitað líka komið
niður á efnistökum fréttastofunn-
ar þar sem afhjúpun á viðkvæmum
málum getur þýtt að upp komi sú
gagnrýni að RÚV dragi taum ein-
hvers.
Umræðan um meinta pólitíska
slagsíðu RÚV er því erfið og í reynd
slæm þar sem segja má að hún geti
dregið tennurnar úr ríkisfréttastof-
unni. Hún má ekki vera of aðgangs-
hörð af því hún þarf að vera hlut-
laus. Óðinn, eða hver svo sem er
fréttastjóri RÚV á hverjum tíma,
þarf að stíga þennan erfiða dans.
Lærdómar sögunnar
Hallgrímur Indriðason segir að
hann hafi enga ástæðu til að ætla
að uppsögn Óðins sé leikrit sem sett
hafi verið upp til að losna við hann
en bæði frammámenn í Sjálfstæðis-
flokknum og Framsóknarflokknum
hafa gagnrýnt fréttastofu RÚV harð-
lega síðastliðin ár fyrir meinta póli-
tíska slagsíðu. „Þó að það sé kannski
ekki tilgangurinn hjá Magnúsi Geir
að þóknast einhverjum pólitíkusum,
sem hann hefur sjálfur aftekið með
öllu og ég hef enga ástæðu til að
draga í efa, þá kallar það á alls kyns
samsæriskenningar hvernig staðið
er að þessu og ég er ekki viss um að
það sé gott fyrir RÚV.“
Ein frægasta pólitíska manna-
ráðning á Íslandi á liðnum árum
var þegar Auðunn Georg Ólafsson,
lítt þekktur framsóknarmaður, var
ráðinn fréttastjóri RÚV árið 2005.
Ráðningin vakti hörð viðbrögð
hjá starfsmönnum RÚV og stopp-
aði Auðunn Georg stutt við vegna
þessa. „Ég trúi ekki að menn ætli
að fara að feta þessa braut aftur. Ég
bara trúi því ekki fyrr en ég tek á
því,“ segir Hallgrímur en líkt og áður
segir þá er ekkert á þessari stundu
sem bendir til að Magnús Geir ætli
sér að setja flokkspólitískan gæðing
yfir fréttastofu RÚV.
Gætu beðið um mastersgráðu
Þó ekki sé hægt að fullyrða að upp-
sögn Óðins sé til þess gerð að koma
honum frá þá er ekki heldur hægt
að fullyrða að svo sé ekki. Þó Óðinn
sæki aftur um starfið þá er hugsan-
legt að gerð verði krafa um að um-
sækjendur séu með mastersgráðu.
Óðinn er ekki með mastersgráðu, líkt
og einn viðmælandi DV bendir á, og
fyrir vikið þá er ólíklegt að hann geti
verið endurráðinn miðað við þær
forsendur sem ráðið verður á.
Eins og er þá er hins vegar
ekkert sem bendir til þess að eitt-
hvað óeðlilegt sé á bak við uppsögn
Óðins. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Starfsmenn skora
á Óðin að sækja um
n Ekki talið nauðsynlegt að reka Óðin n Gætu beðið um mastersgráðu„Við teljum að
faglega hafi hann
staðið sig eins og hann á
að standa sig.
Óvíst með forsendur Ekki er hægt að
fullyrða að Magnús Geir Þórðarson hafi rek-
ið Óðin til að losna við hann af pólitískum
ástæðum.
Styðja Óðin Starfsmenn fréttastofu RÚV
eru almennt séð ánægðir með Óðin Jónsson
að sögn Hallgríms Indriðasonar.
Sækir um Óðinn Jónsson
fréttstjóri ætlar að sækja
aftur um starfið hjá RÚV.