Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 14
14 Fréttir É g held að Ísland hafi sérstöðu með því að rukka ekki fyrir að- gang að náttúruperlum, en með því að hefja gjaldtöku núna þá missir landið þessa sérstöðu. Það þykir mér synd,“ segir velska ferðakonan Irene Gowns, þegar blaðamaður ræðir við hana á meðan beðið er eftir því að Strokkur gjósi. Gjaldtaka hófst á Geysissvæð- inu um síðustu helgi, en allir eldri en 17 ára þurfa að greiða 600 krón- ur fyrir aðgang að svæðinu. Þegar blaðamaður kom á svæðið mætti honum her starfsfólks, sem beið átekta með peningatöskur, tilbúið til þess að rukka gesti. Klukkan var rúmlega þrjú á miðvikudegi, í hrá- slagalegu veðri og ekki sérstaklega margir að skoða sig um á svæðinu. Þrátt fyrir það voru sjö starfsmenn í hliðinu þegar mest lét, sem virtist nokkuð yfirdrifið. Einn starfsmað- urinn bjó til litla snjókarla á hliðinu, til að stytta sér stundir, en vaktin er nokkuð löng, eða frá klukkan 9–18. Skilja þá sem sleppa Geysi Inni á svæðinu, í kringum Strokk, er fljúgandi hálka og klaki utan hellulagðra stíga. Ekkert er gert til þess að hálkuverja og ferðamönn- um sem blaðamaður ræðir við þyk- ir það ekki nógu gott. „Ef landeig- andinn er ábyrgur fyrir svæðinu hér, þá ætti hann kannski að sjá til þess að auðveldara sé að ganga um svæðið,“ segir Irene. Gjaldið var inn- ifalið í verðinu sem hún borgaði fyrir ferðina, hálfan Gullna hringinn og ferðaskrifstofan sá því um kaup á að- gangsmiða. Tveir enskir ferðalangar sem greiddu við innganginn þykir gjaldið alls ekki of hátt, en segjast skilja þá sem sleppa því að skoða svæðið vegna gjaldsins. „Fyrst mað- ur er kominn hingað á annað borð, alla leið frá Englandi, þá er þetta ekki mikið. Það þarf að borga fyr- ir aðgang að svo mörgu á Englandi, svo þetta kemur lítið á óvart. Við vorum vöruð við gjaldinu áður en við komum svo við vissum af því. Okkur langaði til að sjá þetta, svo við komum hvort sem er og ef það þarf að borga, þá gerum við það. Það hefði samt verið mun meira aðlað- andi, hefði aðgangurinn verið frjáls. Það kom okkur mjög á óvart hversu margir voru að innheimta gjaldið. Maður veltir því fyrir sér hver borgar laun fyrir allt þetta starfsfólk,“ segir enska ferðafólkið. „Þetta er sorgleg þróun” Þegar blaðamaður röltir út um hliðið inn á svæðið er þar kona sem fer fyrir hópi fólks. „Hver vill taka við þessum peningum? Ert það þú?“ spyr hún starfsmann sem tek- ur á móti henni og gefur henni upp verðskrá fyrir hópa, sem geta feng- ið magnafslátt. Hún gefur sér tíma til að ræða við blaðamann, en hún býr í Frakklandi og hefur verið farar- stjóri enskra ferðahópa í fjölda ára. „Ísland er gestrisnasta þjóð í heimi að mínu mati, en þetta kalla ég ekki gestrisni. Það hlýtur að vera hægt að fara aðra leið en þessa. Fólk kemur til Íslands til að sjá óspjallaða nátt- úru, þetta er ekki eftirsóknarvert. Það er ekkert að því að taka gjald af ferðafólki sem kemur hingað til lands, en þetta er of mikið „in your Helgarblað 21.–24. mars 2014 allt þetta starfsfólk?“ n Sex starfsmenn standa vörð um Geysi n „Ekki gestrisni,“ segir fararstjóri „Með því að hefja gjaldtöku þá missir landið þessa sérstöðu Rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is 600 krónur takk! Gjaldtakan hófst þann 10. mars. Hér greiðir fararstjóri fyrir 11 manna hóp, þar sem 30 krónur eru veittar í afslátt af hverjum miða. Snjókallar Svo lítið var að gera að einn starfsmaðurinn bjó til snjókalla. Hann hefur getað búið til þá nokkra, enda vaktin níu tímar.„Með því að hefja gjaldtöku þá missir landið þessa sérstöðu. „Hver borgar fyrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.