Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Side 16
16 Fréttir Helgarblað 21.–24. mars 2014
Sviðin jörð jörgenS
n Viðskiptavinir saka hann um slæleg vinnubrögð n Sagður hafa reynt að selja fyrirtæki annars manns
J
örgen Már Guðnason, 45 ára,
hefur orðið uppvís að því að
leigja út íbúð á svörtum mark
aði sem hann er ekki skráður
eigandi að heldur fyrrverandi
kærasta hans sem hefur fengið nálg
unarbann á hann. Þá hefur Jörgen
Már einnig látið til sín taka í park
etslípun þar sem hann hefur starf
að í nafni fyrirtækis sem er í eigu
manns sem er alls ótengdur honum,
er sagður hafa reynt að selja fyrir
tækið og haft slæm áhrif á orðspor
þess. Jörgen Már hefur einnig komið
við sögu í ferðaþjónustunni þar sem
hann hefur sagt hafa leyfi sem hann
hefur ekki. DV ræddi við Jörgen sem
ber af sér sakir og segist vera eigandi
hússins sem hann leigir út.
Hjá lögreglu hrannast upp mál
gegn Jörgen Má og eru þau eins og
fyrr segir af margvíslegum toga. Við
mælendur DV bera honum ekki góða
söguna og í vikunni voru tvær stúlkur
í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem þær
lýstu óförum sínum vegna hans, þótt
ekki væri tekið fram hjá Stöð 2 að um
Jörgen Má væri að ræða.
Árið 2012 hlaut Jörgen hálfs árs
dóm fyrir að berja fyrrverandi sam
býliskonu sína ítrekað, og hefur önnur
kona fengið nálgunarbann. Sú er fyrr
verandi kærasta hans og eigandi hús
næðis að Hrísateig 1 sem Jörgen leigir
út.
Kærður til lögreglu
Málin á hendur Jörgen hrannast upp
á borði lögreglunnar. Einn heim
ildarmaður blaðsins, sem hefur kært
hann fyrir líkamsárás, segir þau fjöl
mörg. „Þeir eru með tugi mála á
hann. Guð minn góður, þessi maður
er alltaf að,“ segir hann.
Um viðbrögð lögregluþjóna
þegar hann kærði Jörgen segir heim
ildarmaðurinn: „Þeir vissu allir hver
hann var. „Er þetta Jörgen enn eina
ferðina?“ spurðu þeir þegar ég kærði
hann.“
Í samtali við DV gat lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu ekki tjáð sig
um ákveðin mál tengd Jörgen en
sagði þó mýmörg mál á borði þeirra
tengd Hrísateig 1.
Notar nafn annars fyrirtækis
Jörgen er ekki menntaður parket
slípari en hefur þó tekið að sér parket
slípun. Gerði hann það iðulega undir
formerkjum parketslípunarfyrirtæk
is sem þurfti að kæra hann til Neyt
endastofu vegna þessa.
Parketslíparinn ehf. var stofnað
2005 en Jörgen sótti um lénið park
etsliparinn.is, og er enn með það.
Hefur hann verið í rekstri undir þeim
formerkjum að þykjast vera starfs
maður Parketslíparans ehf., og kallar
fyrirtækið sitt Parketslíparann þrátt
fyrir að Neytendastofa hafi úrskurðað
að hann megi það ekki.
Hefur þetta valdið eiganda Parket
slíparans ehf. mjög miklum óþægind
um, enda hafi vinnubrögð Jörgens
iðulega verið slæleg og segist hann
iðulega fá hringingar frá óánægðum
viðskiptavinum sem telji sig hafa
verið í viðskiptum við hann. Halldór
Sveinsson, eigandi Parketslíparans,
sá ástæðu til þess að árétta á Face
booksíðu Parketslíparans ehf. að
Jörgen væri alls ekki á sínum vegum
og varaði við viðskiptum við hann.
„Það eru mjög margir sem að
halda að þeir séu að eiga viðskipti
við mig þegar þeir hafa samband við
hann, og eru síðan mjög óánægð
ir með mikið af því sem hann gerir,“
segir Halldór.
Á vefsíðunni segist Jörgen vera
með 15 ára reynslu, sem hann hefur
ekki að sögn keppinauta hans.
Seldi fyrirtæki sem hann á ekki
Halldór segir að Jörgen hafi gengið
svo langt að selja Parketslíparann.
„Það var strákur í Þorlákshöfn sem
taldi sig vera kaupa Parketslíparann
ehf. Ég hef séð afsal sem á stóð Park
etslíparinn ehf. Það segir sig sjálft að
hann selur ekki fyrirtækið mitt,“ segir
Halldór. „Fólk er svo andvaralaust
gagnvart svona mönnum. Þetta er
ekki íslenskur raunveruleiki að lenda
í mönnum sem eru að villa sér heim
ildir.“
Og Jörgen heldur áfram upp
teknum hætti. Á þriðjudaginn aug
lýsti hann til sölu 50 prósenta hlut í
Parketslípun Reykjavíkur, fyrir eina
og hálfa milljón. „Mjög góð laun fyrir
duglega menn, vönduð heimasíða
sem er ofarlega á leitarvefum,“ skrif
aði Jörgen á bland.is.
Á vefsíðu Parketslípunar Reykja
víkur er hann búinn að afrita nánast
orðrétt textann af parketsliparinn.is.
Ógnandi skilaboð
„Svona menn virðast komast alveg
Hjálmar Friðriksson
Símon Örn Reynisson
hjalmar@dv.is / simon@dv.is
T
vær ungar konur, Pálína Ósk
Ómarsdóttir og Ólöf Ýr Frið
riksdóttir, ræddu við Stöð 2
á þriðjudag, í umfjöllun um
svarta leigumarkaðinn, þar sem
þær lýstu óförum sínum.
Pálína segist hafa greitt 780 þús
und fyrirfram og í leigu. „Svo þrem
mánuðum síðar fer rafmagnið af
húsinu og við finnum út að bank
inn á íbúðina. Þannig að við lentum
í djúpum skít,“ sagði Pálína. „Þetta
var bara hræðilegt.“
„Ég er í áfalli“
Ólöf Ýr lenti hins vegar í því að
henni var leigt herbergi sem var
þegar í útleigu. Jörgen hafði áður
leigt öðrum manni herbergið, sem
verið hafði fjarverandi í tíu daga og
kom aftur og þá var Ólöf Ýr í her
berginu. Þegar haft var samband
við Jörgen brást hann ókvæða við
og vildi ekki leysa úr málinu. Úr
varð að Ólöf flutti út. Jörgen Már
viðurkennir að hafa leigt bæði
Pálínu Ósk Ómarsdóttur og Ólöfu
Ýri Friðriksdóttur herbergi í samtali
við DV. Í tilviki Pálínu segir hann að
hann hafi leigt sjálfur íbúðina sem
Pálína Ósk var í af öðrum manni.
„Hún vissi alveg af stöðu mála, að
ég ætti ekki íbúðina,“ segir Jörgen
Már. Hann segist hafa leigt Ólöfu
Ýri íbúð í húsinu við Hrísateig.
Síðar kom til áfloga á milli Jörg
ens og mannsins sem var þegar að
leigja herbergið sem Ólöf leigði.
Umræddur maður, sem vill ekki
láta nafns síns getið, hefur kært
hann til lögreglunnar fyrir líkams
árás. „Ég er í áfalli,“ segir hann.
Þeim ber ekki saman um hvernig
áflogin orsökuðust, en báðir hafa þeir
kært atvikið og segjast báðir í rétti.
„Svekktur út í sjálfan mig“
Maðurinn segist álasa sjálfum
sér vegna málsins, enda hafi
hann átt að sjá hvers konar mann
Jörgen hefði að geyma. „Ég hef
horft á hann henda út ungri
stúlku og tveimur vinum hennar
fyrir ekki neitt. Svo bar hann bara
búslóðina hennar út á götu og lét
hana sitja þar úti í rigningunni.
Hann sagði mér að hún hefði
ekki greitt neitt en svo komst ég
að því síðar að pabbi stúlkunnar
hafði greitt honum 130 þúsund
krónur.“
„Þetta reyndist allt lygi, eins
og allt sem að þessi maður hefur
sagt. Þetta eru svo mörg atriði að
ég nenni ekki einu sinni að telja
þetta upp,“ segir maðurinn enn
fremur. „Ég er svo svekktur út í
sjálfan mig að hafa sagt já við öllu
og ekki fattað þetta fyrr.“
„Við lentum í djúpum skít“
n Hlunnfarnar eftir leigu hjá Jörgen
Fórnarlömb Pálína Ósk Ómarsdóttir og
Ólöf Ýr Friðriksdóttir ræddu við Stöð 2 á
þriðjudag um reynslu sína.
ótrúlega langt með að klekkja á fólki
og svíkja og pretta og skemma,“ segir
Brynja Agnarsdóttir í samtali við
DV. Henni og og eiginmanni henn
ar, Guðfinni Newman, var að eigin
sögn hótað ítrekað af Jörgen Má eftir
að þau fengu hann til að pússa parket
hjá sér árið 2011.
Að þeirra sögn skemmdi hann
parketið og vildu þau því ekki að
hann kláraði verkið. Hún segir að
fljótlega eftir það hafi þeim borist
SMShótanir og segir Brynja að í
kjölfarið hafi verið skorið á dekkin á
bílum þeirra. „Það var pottþétt hann
eða einhver á hans vegum, því hann
var með ógnandi tilburði í okkar garð
í Laugum. Sagði við manninn minn
að hann ætlaði að drepa hann. Við
sváfum náttúrlega ekki rólega,“ segir
hún.
Ekki með gilt leyfi
Slóð Jörgens nær í dag auk leigu
markaðar og parketslípunar til ferða
þjónustu fyrir erlenda ferðamenn.
Hann heldur úti síðunni icelandto
urs.is og þar kemur fram að hann sé
löggiltur ferðaskipuleggjandi. Í sam
tali DV við Ferðamálastofu kemur
fram að ekki fyrirfinnist gilt leyfi af
þessum toga á kennitölu Jörgens.
Ferðamálastofa kannast við mál
Jörgens og hefur honum verið sagt
að fjarlægja umsögn um leyfið sem
er á heimasíðu icelandtours.com.
Það leyfi er á nafni fyrrverandi eigin
konu hans samkvæmt Ferðamála
stofu og því er honum ekki heimilt að
nota það.
„Það segir
sig sjálft
að hann selur ekki
fyrirtækið mitt
Búslóðin í garðinum Á myndinni má sjá
það sem virðist vera eftirstöðvar búslóðar
við Hrísateig en viðmælendur blaðsins saka
Jörgen um að henda út búslóðum leigjenda.