Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Page 22
22 Fréttir Erlent Helgarblað 21.–24. mars 2014 Einkaaðilum falið að sía internetið Umdeildar aðgerðir Davids Cameron gegn klámi Jóhann Páll Jóhannsson johannp@dv.is A ðgerðir bresku ríkisstjórn­ arinnar til að vernda börn og unglinga gegn klámi hafa gefist illa og verið gagn­ rýndar harðlega. Netsíurn­ ar, sem fjarskiptafyrirtæki beita til að hefta aðgang að efni sem þykir óæskilegt, hafa meðal annars bitnað á samtökum hinsegin fólks og stuðn­ ingsnetum fyrir fórnarlömb kynferð­ isofbeldis. „Það er einfaldlega ekki til nein nákvæm aðferð til að raða vef­ síðum niður í flokka eftir því hvort þær eru góðar eða slæmar. Enginn algóriþmi ræður við það,“ skrifar Cory Doctorow, blaðamaður og bar­ áttumaður fyrir netfrelsi, á vef Guar­ dian. Ritskoðunaroffors Aðgerðum breskra stjórnvalda var hrint í framkvæmd að fullu í janúar á þessu ári. Eins og fjölmargir höfðu spáð lokuðu netsíurnar á mun fleira en klám og ofbeldisfullt efni, enda er ómögulegt að tryggja að þær ein­ skorðist við slíkt. Meðal annars ná þær til kynfræðslu og fræðsluefnis til aðstoðar klámfíklum. „Eftir leynilegar samninga­ viðræður við fjarskiptafyrirtæk­ in hefur ríkisstjórnin komið upp síum og ýmiss konar takmörkunum af slíku offorsi að aðeins Kínverjar slá því við. Internetinu er skipt í tvo flokka: það sem er „ásættanlegt“ og það sem er „óviðunandi“,“ skrifar Martin Robbins, blaðamaður á New Statesman. Litið til Bretlands Líkt og fram kemur í DV í dag undir­ býr nú Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra róttækar aðgerð­ ir til að verja börn og unglinga fyrir klámi líkt og tíðkast í Bretlandi. Hefur hún nú þegar fundað með fjarskipta­ fyrirtækjum og hagsmunaaðilum um málið. Í ávarpi sem fulltrúi ráðu­ neytisins hélt á alþjóðlega netör­ yggisdeginum var frumkvæði Breta í baráttunni gegn klámi á internetinu sérstaklega hampað. Aðgerðirnar sem David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur hrint í framkvæmd byggja á því að fjarskiptafyrirtækjum er gert að loka sjálfkrafa fyrir aðgang að óæskilegu efni hjá nýjum viðskiptavinum. Vilji þeir skoða klám eða losna undan netsíunni þurfa þeir að óska sérstak­ lega eftir því. Fram kom í útvarpsvið­ tali við Cameron á dögunum að héð­ an í frá þyrftu heimilisfeður líklega að eiga vandræðalegt samtal við eig­ inkonur sínar ef þeir hygðust skoða klám. Er þetta í takt við þá félagslegu íhaldssemi sem flokkur Camerons er þekktur fyrir. Gríðarleg völd til einkageirans Ýmsir aðilar hafa mótmælt að­ gerðunum í Bretlandi, svo sem sam­ tök sem berjast fyrir stafrænu frelsi og hagsmunum barna, en jafnframt femínistar og mannréttindasamtök. „Það versta við klámsíuna er ekki það að hún loki óvart fyrir gagnlegar upp­ lýsingar, heldur sú staðreynd að hún heftir aðgengi að upplýsingum yfir­ höfuð,“ skrifar Laurie Penny, þekktur pistlahöfundur í Guardian, og bætir við: „Með veikum rökum hefur ríkis­ stjórn undir forystu Íhaldsflokksins gefið einkafyrir tækjum leyfi til að ákveða hvaða vefsíður við megum skoða og hverjar ekki. Þannig setur ríkið fordæmi fyrir ritskoðun af áður óþekktri stærðargráðu – og að sjálf­ sögðu er henni allri útvistað til einka­ geirans til að ríkisstjórnin verði ekki sjálf dregin til ábyrgðar fyrir að ráðast til atlögu gegn tjáningarfrelsinu.“ n Umdeildar aðgerðir David Cameron, for- sætisráðherra Bretlands, hefur verið gagnrýndur harðlega vegna að- gerðanna gegn klámi á internetinu. MynD ReUteRs Á klámbekk Klámfíkn er ekkert grín. Í lífshættu eftir orkudrykkjaþamb Fjórtán ára norskur drengur þambaði fjóra lítra í tölvuleikjamaraþoni F jórtán ára norskur unglingur var fluttur á sjúkrahús vegna nýrnabilunar á dögunum eft­ ir að hafa þambað fjóra lítra af orkudrykkjum. Forsagan er sú að drengurinn hafði verið að spila tölvuleikinn Call of Duty ásamt skólafélögum sínum, í svokölluðu LAN­partíi í skólanum. Drengurinn, Henrik Eide Dahl, og skólafélagar hans spiluðu leikinn í sextán klukku­ stundir samfleytt og til að halda sér vakandi drukku margir hverjir orku­ drykki sem innihéldu mikið magn koffíns. „Skyndilega varð allt svart og það leið yfir mig,“ segir Henrik í sam­ tali við norska ríkisútvarpið, NRK. Hann var fluttur á sjúkrahús til Lillehammer þar sem ástand hans versnaði. Nýrun gáfu sig og var hann meðal annars tengdur við öndunar­ vél um tíma. „Þegar ég vaknaði var ég skíthræddur. Ég man að bræður mínir sátu við sjúkrabeðinn og grétu,“ segir hann. Eftir þrettán daga á sjúkrahúsi var hann loksins út­ skrifaður, en hann þarf enn að taka lyf vegna of hás blóðþrýstings. „Þetta hefur verið óhugnanleg reynsla. Ég veit það núna að það er óskynsam­ legt að drekka svona mikið af orku­ drykkjum. Ég verð samt betri með hverjum degi sem líður og mér er farið að líða eðlilega aftur,“ segir hann. Anna Kathrine Duns, læknir sem meðhöndlaði Henrik á sjúkrahús­ inu í Lillehammer, segir að Henrik hafi um tíma verið nær dauða en lífi. Hún segir að ekki sé vitað nákvæm­ lega hvers vegna ástand Henriks varð jafn alvarlegt og það var. Hún segist þó ekki vera í neinum vafa um að orkudrykkirnir hafi átt sinn þátt í því. Þó ofneysla koffíns geti verið alvarleg geti orkudrykkir innihaldið fleiri hættuleg efni. n Call of Duty Drengirnir höfðu spilað tölvuleikinn Call of Duty samfleytt í sextán klukkustundir. Fannst eftir 15 ára leit Frægt verk eftir hollenska listmál­ arann Rembrandt sem var stolið af listasafni í Frakklandi árið 1999 er komið í leitirnar. Verkið, sem metið er á hundruð milljóna, fannst í borginni Nice í suður­ hluta Frakklands. Tveir voru handteknir í tengslum við rann­ sókn málsins, en samkvæmt upp­ lýsingum franskra fjölmiðla voru mennirnir teknir höndum þegar þeir reyndu að koma verkinu í verð. Verkið, Barnið með sápu­ kúluna, var metið á 20 milljón­ ir franka þegar því var stolið, eða 614 milljónir króna. Rannsókn málsins er á frumstigi. Kamprad aftur til Svíþjóðar Sænski auðjöfurinn Ingvar Kamprad, sem þekktastur er fyrir að hafa stofnað IKEA, er fluttur aftur til Svíþjóðar eftir að hafa búið í 40 ár erlendis. Kamprad, sem er orðinn 87 ára, flutti til Danmerkur árið 1973, en þrem­ ur árum síðar flutti hann til Sviss þar sem hann hefur búið síðan. Samkvæmt sænskum fjölmiðl­ um ætlar Kamprad að eyða því sem eftir er ævinnar með fjöl­ skyldu sinni og vinum sem flest­ ir búa í Svíþjóð. Kamprad missti eiginkonu sína árið 2011 og segir talsmaður hans að það hafi haft áhrif á þá ákvörðun hans að flytja aftur til Svíþjóðar. Þó að Kamprad sé orðinn 87 ára er hann hvergi nærri hættur að vinna. Mun hann halda því áfram svo lengi sem heilsan leyfir. Sakfelldir fyrir hópnauðgun Dómstóll á Indlandi hefur sak­ fellt fjóra menn fyrir að nauðga fréttaljósmyndara í borginni Mumbai á síðasta ári. Mennirnir voru fundnir sekir um gróf brot, en dómur yfir mönnunum verð­ ur kveðinn upp í dag, föstudag. Fórnarlamb mannanna er 22 ára kona sem stödd var í yfirgefinni verksmiðju þegar mennirnir réð­ ust á hana. Með í för var félagi konunnar, en árásarmennirnir réðust á hann og börðu áður en þeir nauðguðu konunni. Mennirnir voru fimm talsins, en einn mannanna er sagður vera undir 18 ára aldri sem þýðir að réttað verður yfir honum fyrir unglingadómstól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.