Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Qupperneq 34
34 Skrýtið Sakamál Helgarblað 21.–24. mars 2014
K
aldur vetrarvindur blés um
München í Þýskalandi í
janúarbyrjun 2013 og kalt
þurrt loftið kallaði fram
tár í augum fólks sem gekk
um götur borgarinnar. Sú var án
efa raunin hjá 31 árs konu, Katrinu
Michalk, sem að kvöldi 4. þess
mánaðar var á heimleið úr vinnu.
Til að halda á sér hita hafði hún
brett upp kragann og reynt að njóta
tónlistar sem barst úr heyrnartól-
um sem voru í eyrum hennar. Hún
átti aðeins um 700 metra ófarna að
íbúð sinni við Halskel-stræti núm-
er 17 og tónlistin yfirgnæfði um-
ferðarniðinn og leiddi athyglina frá
bítandi kuldanum.
Katrin kom að útidyrum
fjölbýlis hússins og sló inn öryggis-
kóðann og steig inn um dyrnar. En
tónlistin sem dundi í eyrum hennar
kom í veg fyrir að hún heyrði fótatak
einhvers sem kom fast á hæla henni
og smeygði sér inn um dyrnar.
Skelfingaróp í stigaganginum
Skyndilega hljóðnaði tónlistin
og hinn ókunnugi greip um axlir
Katrinar aftan frá og rak hárbeitt-
an eldhúshníf á kaf í bak hennar –
aftur og aftur … og aftur. Slíkt var
offorsið að hnífsblaðið brotnaði
og sat fast í líkama Katrinar. Skelf-
ingaróp hennar ómuðu upp allan
stigaganginn og hún lyppaðist nið-
ur á gólf anddyrisins.
Uppi á þriðju hæð sátu Hue
Nguyen og eiginmaður hennar
í makindum þegar vein að utan
nánast yfirgnæfði hljóðið í sjón-
varpinu sem þau voru horfa á.
Áður en Nguyen-hjónin náðu
að athuga hverju sætti hafði ná-
granni þeirra rokið niður í and-
dyri þar sem Katrin lá, alblóðug,
en með lífsmarki. „Ég er að deyja.
Náið í hjálp,“ sagði Katrin með
andköfum.
Aðrir íbúar í stigaganginum
tíndust niður í anddyrið, á meðal
þeirra unnusti Katrinar, Alexander,
sem kom hlaupandi niður stigann
og vafði hana örmum.
„Ég get ekki andað. Allt er að
verða svart,“ muldraði Katrin veik-
um rómi.
Furðufugl í nágrenninu
Þegar bráðaliða bar að var Katrin
öll, henni hafði blætt út – en sama
spurning brann á öllum viðstödd-
um: „Af hverju? Af hverju?“ Þeirri
spurningu hafði ekki verið svarað
þegar Katrin var borin til grafar í
snæviþöktum kirkjugarði skammt
frá heimili hennar.
Hún átti enga óvildarmenn
samkvæmt bestu vitneskju þeirra
sem þekktu hana best. Morðinginn
hafði ekki skilið eftir nokkrar vís-
bendingar, ef undan voru skilin
agnarsmá DNA-sýni. Ekki virtist
nokkur leið að finna ástæðu fyrir
þessu óhugnanlega morði.
Þannig liðu nokkrar vikur – lög-
regla spurði spurninga og fékk
svör sem enduðu í blindgötu. En
skyndilega fékk einn lögreglu-
mannanna hugljómun. „Það er í
nágrenninu náungi sem hagar sér
undarlega. Ég hef fylgst með hon-
um og það er eitthvað ekki í lagi,“
sagði hann við yfirmenn sína.
„Hann er ekki á skrá, en það gæti
verið einhvers virði að eiga við
hann orð.“
Marco F. yfirheyrður
Um var að ræða 19 ára karlmann,
Marco F., og ákvað lögreglan að
sækja hann heim þar sem hann
bjó hjá móður sinni. Marco var
samvinnan uppmáluð og heim-
ilaði lögreglunni að svipast um í
íbúðinni og viti menn – í klæða-
skáp fann lögreglan hrúgu af blóð-
ugum fötum og hníf með hálfu
blaði.
Já, viðurkenndi Marco, hann
hafði myrt Katrinu: „Ég vissi ekki
einu sinni hver hún var.“ En –
spurningin áleitna – af hverju?
„Mig hefur alltaf langað í eigin
íbúð. Þegar ég sá þessa konu þetta
kvöld á gangi, og sá að hún gekk
að húsi þar sem hún greinilega átti
eigin íbúð, þá ákvað ég að drepa
hana. Sko, ég taldi að þá fengi ég
íbúðina fyrir mig.“
DNA-sýni staðfestu að hann
væri morðingi Katrinar og hann
var ákærður fyrir morðið og
komið fyrir á geðdeild fangels-
is í München. Tíminn mun leiða í
ljós hvort hægt verður að rétta yfir
honum, geðlæknar munu sjá um
það mat. n
n Katrin átti sér einskis ills von eitt vetrarkvöld í janúar, en …
Hryllingur
í Halskel-stræti
Katrin og Marco F.
Morðið var að allra mati
með öllu óskiljanlegt.
„Ég get ekki andað.
Allt er að verða svart.
Fórnarlamb og morðingi Til vinstri má sjá mynd úr eftirlitsmyndavél sem sýnir Katrinu Michalk á síðasta kvöldi ævi hennar. Til hægri er
Marco F. sem játaði að hafa banað Katrinu. Enn hefur ekki verið kveðinn upp úrskurður í máli gegn honum.
Masten át
vísbendinguna
Richard Masten, æðsti stjórn-
andi Miami-Dade Crime Stopp-
ers, hefur verið handtekinn fyrir
fremur óvenjulegar sakir. Hann
er sakaður um að hafa lítils-
virt dómstól í Miami á föstudag.
Honum hafði borist nafnlaus
ábending um sakamál sem var til
rannsóknar. Hann vildi ekki láta
dómarann hafa ábendinguna,
sem skrifuð var á blað, og óttað-
ist að blaðið yrði tekið af honum
í varðhaldi. Hann greip þá til
þess ráðs að borða blaðið sem
ábendingin var skrifuð á. „Dóm-
arinn bað mig um að brjóta lof-
orð okkar um verndun heim-
ildarmanna. Það gat ég ekki gert,“
sagði Masten sem þarf að sitja
inni í tvær vikur fyrir athæfið.
Eftirlýstur á
Google
Christopher Viatafa, 27 ára íbúi í
Kaliforníu í Bandaríkjunum, komst
að því þegar hann „gúglaði“ sig á
dögunum að hann var á lista yfir
eftirlýsta menn [e. most wanted].
Viatafa lenti í deilum í heimahúsi
þann 8. ágúst í fyrra. Í skrám lög-
reglu kemur fram að hann hafi
dregið fram skammbyssu og skotið
nokkrum skotum í gólfið, líklega
til að leggja áherslu á mál sitt. Nú
er hann á lista yfir þá menn í norð-
urhluta Kaliforníu sem lögreglu-
yfirvöld vilja hvað mesta ná í
skottið á. Viatafa gaf sig fram þegar
hann varð þessa var og á nú von á
ákæru fyrir athæfi sitt. Fram kemur
á umræddri vefsíðu að hann hafi
nú verið handtekinn [e. captured].
Flúði með
leigubíl
Bíræfinn bankaræningi í Edin-
borg í Skotlandi flúði af vettvangi
sem farþegi í leigubíl. Maðurinn
fékk leigubílstjórann til að bíða
eftir sér á meðan hann stökk inn
í banka. Út úr bankanum kom
hann skömmu síðar með nokkur
þúsund pund í Tesco-poka. Mirr-
or greinir frá því að maðurinn hafi
ekki notað nein vopn við ránið.
Leigubílstjórinn er ekki talinn hafa
haft hugmynd um hvað gekk á.
Rory Hamilton, sem stýrir
rannsókn málsins, segir að leigu-
bílstjórar séu mjög oft fengnir til
að aka viðskiptavinum í banka.
„En í þetta sinn þurfum við á því
að halda að leigubílstjórinn gefi
sig fram,“ segir hann. Lögreglan
hefur ekki annað að styðjast við en
myndir úr öryggismyndavélum.
Ekki hefur tekist að bera kennsl á
ræningjann.