Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Síða 35
Skrýtið 35Helgarblað 21.–24. mars 2014
Flugvélar sem
hurfu sporlaust
Mál málanna í heims-
fréttunum síðustu daga er
dularfullt hvarf flugvélar
Malaysia Airlines, MH 370,
sem ekkert hefur spurst
til í tæpan hálfan mánuð.
Fleiri dæmi eru til um
dularfulla, en umfram
allt sorglega, atburði sem
tengjast flugvélum; sum-
ar hafa horfið á meðan
ógæfa virðist vera tengd
ákveðnu flugnúmeri.
Breska blaðið Mirror tók
saman lista yfir eftirminni-
leg og dularfull flugslys.
1 Hvarf í hringferðinni Amelia Earhart, frumkvöðull
innan fluggeirans, var fyrst kvenna
til að fljúga yfir Atlantshafið. Árið
1937 gerði hún tilraun til að fljúga
í kringum hnöttinn fyrst kvenna.
Þann 2. júlí það ár hvarf vél henn-
ar en um borð var einnig siglinga-
fræðingurinn Fred Noonan. Síð-
ast var vitað um ferðir hennar við
Howland-eyju í Kyrrahafinu. Mörg-
um kenningum hefur verið varp-
að fram um hvarfið. Flestir telja að
vél hennar hafi einfaldlega orðið
eldsneytislaus og brotlent í sjón-
um, en aðrir halda því fram að hún
hafi verið njósnari fyrir Franklin D.
Roose velt Bandaríkjaforseta og verið
handsömuð af Japönum. Hvað sem
því líður hefur ekkert spurst til vélar-
innar frá árinu 1937.
2 Skotin niður af Bretum? Tónlistarmaðurinn Glenn Mill-
er var vinsæll á fimmta áratug síð-
ustu aldar og sumarið 1944 var hann
á ferðalagi vítt og breitt um Bret-
landseyjar ásamt hljómsveit banda-
ríska flughersins. Í desember var
ætlunin að fljúga með lítilli rellu frá
Englandi til Parísar. Síðast spurð-
ist til vélarinnar yfir Ermarsundi, en
hvernig hvarfið bar að er enn þann
dag í dag ráðgáta. Enginn skortur
hefur þó verið á kenningum. Sum-
ir telja að Bretar hafi óvart skotið
vélina niður, en á þessum tíma stóð
seinni heimsstyrjöldin sem hæst.
Þýski blaðamaðurinn Udo Ulfkotte,
hjá Bild, hélt þeirri langsóttu kenn-
ingu fram að Miller hafi komist til
Frakklands en einfaldlega dáið úr
hjartaáfalli á vændishúsi í París.
3 Flug 19 og Bermúda- þríhyrningurinn
Þann 5. desember 1945 hurfu sex
litlar flugvélar Bandaríkjahers spor-
laust og þar með varð til goðsögnin
um Bermúdaþríhyrninginn. Fimm
þessara véla lögðu af stað nánast
samtímis frá Fort Lauderdale í Flór-
ída. Eftir að vélarnar höfðu verið á
lofti í um einn og hálfan tíma til-
kynntu flugmennirnir, hver á fætur
öðrum, að þeir væru áttavilltir og
gætu ekki borið kennsl á kennileiti
fyrir neðan þá. Þrátt fyrir tilraunir til
að vísa mönnunum rétta leið tókst
það ekki og er talið að allar vélarn-
ar hafi farist, en 14 voru um borð.
Sjötta flugvélin, vél sem var send
til að leita að vélunum fimm, hvarf
einnig. Allir þrettán sem voru um
borð í henni voru taldir af.
4 Dularfulli Morse-kóðinn Mörgum spurningum var
ósvarað þegar Star Dust-vél, í eigu
breska flugfélagsins British South
American Airlines (BSAA), hvarf í
flugi milli Buenos Aires í Argent-
ínu og Santiago í Chile. Þann 2.
ágúst 1947 lagði vélin af stað og var
ferðinni heitið yfir Andes-fjöll. Það
er skemmst frá því að segja að vél-
in komst aldrei á áfangastað, en
áður en hún hvarf barst frá henni
Morse-kóðinn STENDEC. Æ síðan
hafa getgátur verið uppi um þýðingu
kóðans. Sumir halda því fram að
geimverur hafi verið að verki en aðr-
ir að vélin hafi verið sprengd vegna
viðkvæmra gagna sem einn farþeg-
anna var að fara með til Chile. 50
árum eftir hvarfið, árið 1997, fannst
flak vélarinnar í Andes-fjöllum.
5 Flaug inn í storm Önnur BSAA-vél, Star Tiger,
hvarf á leið sinni frá Santa Maria á
Asoreyjum til Bermúda snemma
árs 1948. 25 farþegar voru um
borð, en veður var vont þegar lagt
var af stað. Áætlað var að flugið
tæki tólf tíma og vegna hálofta-
vinda flaug vélin tiltölulega lágt.
Sterkir vindar gerðu það að verk-
um að vélina bar af leið og þurfti
að fljúga inn í öflugan storm til að
komast til Bermúda vegna hættu
á eldsneytisskorti. Stærri vél af
tegundinni Lancastrian flaug á
undan vélinni og lenti hún heilu
og höldnu. Hvorki sást tangur né
tetur af Star Tiger-vélinni. Talið
er að vélin hafi brotlent í sjón-
um vegna þess hve lágt hún flaug
eða að hæðarmælir um borð hafi
bilað.
6 Flugnúmerið 191 Þessi örgrein vísar ekki til til-
tekinnar flugvélar heldur til flug-
númersins 191 og nokkurra atburða
tengdum þessari tölu á undanförn-
um 40 árum eða svo. Eitt mann-
skæðasta flugslys í bandarískri
flugsögu varð árið 1979 þegar vél
American Airlines, með flugnúmer-
ið 191, brotlenti nokkrum mínútum
eftir flugtak í Chicago. Alls lést 271
í slysinu. Árið 1967 fórst flugvél af
tegundinni X-15, með flugnúmer-
ið 191, í tilraunaflugi með þeim af-
leiðingum að flugmaður vélarinnar
lést. Árið 2012 fékk flugmaður vélar
JetBlue Airways, með flugnúmerið
191, hræðslukast sem varð til þess
að farþegar þurftu að binda hann
niður. Nokkur flugfélög eru hætt
að nota þetta flugnúmer, að sögn
Mirror.
7 Rannsókn leiddi ekkert í ljós
Enn ein flugvél BSAA hvarf á flugi frá
Bermúda til Jamaíku þann 17. jan-
úar 1949. Vélin var sambærileg Star
Tiger-vélinni sem talið er að hrapað
hafi í sjóinn ári áður, en ólíkt henni
lagði vélin af stað í björtu og góðu
veðri. Einhverra hluta vegna átti vél-
in í miklum vandræðum með fjar-
skiptasamband. Vélin komst aldrei
á áfangastað og leit að 20 farþegum
og áhöfn var hætt átta dögum síð-
ar. Rannsókn á hvarfinu leiddi ekk-
ert í ljós, en Don Bennett, fram-
kvæmdastjóri BSAA á þeim tíma,
hélt því fram að báðum vélunum
hafi verið grandað að yfirlögðu ráði.
Þá sagði hann að Clement Atlee,
fyrrverandi forsætisráðherra Bret-
lands, hafi fyrirskipað að hvarf vél-
anna yrði ekki rannsakað frekar.
8 Sjálfsvíg aðstoðarflugstjóra
217 létust þegar vél á vegum Egypt
Airlines fórst í Atlantshafi í október
1999. Vélin lagði af stað frá New
York og var ferðinni heitið til Kaíró.
Skömmu eftir flugtak brotlenti hún
úti fyrir ströndum Massachusetts.
Gamil el-Batouty, aðstoðarflugmað-
ur vélarinnar, hafði fengið áminn-
ingu fyrir kynferðislega áreitni frá
framkvæmdastjóra EgyptAir, en svo
vildi til að hann var í vélinni þegar
hún fórst. El-Batouty hafði fengið
þau skilaboð frá framkvæmdastjór-
anum að þetta yrði hans síðasta flug
fyrir flugfélagið. El-Batouty á að hafa
svarað um hæl að þetta yrði einnig
síðasta flug hans. Talið er að þegar
flugstjórinn hafi farið á klósettið
hafi El-Batouty tekið vélina af sjálf-
stýringu og stýrt henni í hafið.
9 Mistök og bilun Airbus 330-vél Air France
hvarf yfir Atlantshafi þann 1. júní
2009 á leiðinni frá Brasilíu til
Frakklands með 228 innanborðs.
Samkvæmt úttekt sérfræðinga er
talið að ískristallar hafi valdið því
að sjálfstýring vélarinnar bilaði.
Áhöfn vélarinnar reyndi að leysa
vandamálið en það tókst ekki
sem varð til þess að vélin hrap-
aði í sjóinn. 50 lík fundust fyrstu
mánuðina eftir slysið, en svarti
kassi vélarinnar fannst ekki fyrr
en í maí 2011. 104 lík til viðbót-
ar fundust í kjölfarið. Enn hafa
jarðneskar leyfar 74 farþega um
borð ekki fundist.
Talið er að samspil bilunar og
röð mistaka flugmanna hafi átt
stærstan þátt í því að vélin fórst.
Dularfullt Mörg dularfull
flugslys hafa orðið í flugsögunni.
Hvarf flugs MH 370 er þó með
þeim undarlegri í sögunni.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is